Lögmannablaðið - 01.09.2004, Blaðsíða 16
16 3 / 2 0 0 4
H v e r f a n d i l a n d a m æ r i l ö g m e n n s k u n n a r
Karl Georg Sigurbjörnsson hrl.
Alþjóðlegi sakamála-
dómstólinn frá sjónar-
horni verjenda
Undirritaður varð þeirrar
gæfu aðnjótandi að fá
styrk í gegnum Lög-
mannafélag Íslands til
að setjast á námskeið á
vegum CCBE (the
Council of Bars and Law
Societies of the Europ-
ean Union) og ERA (the Academy of Eur-
opean Law in Trier, Germany) með styrk
frá framkvæmdaráði Evrópubandalagsins.
Námskeiðið er til þess ætlað að þjálfa verj-endur í að koma fram fyrir hinum Alþjóð-
lega sakamáladómstóli (International Criminal
Court eða ICC) sem nú er að taka til starfa og
er með aðsetur í Haag í Hollandi. Tilgangurinn
með námskeiðinu er að þjálfa verjendur í
alþjóðlegum refsirétti og í þeim formreglum
sem gilda fyrir ICC til að hægt sé að kalla til
verjendur sem þekkja gangverk dómstólsins
þegar hann tekur til starfa. Megináhersla við
val á verjendum á námskeiðinu eru starfandi
lögmenn frá austur- og mið Evrópu en til að
byggja upp tengslanet milli lögfræðinga í Evr-
ópu eru teknir lögmenn á námskeiðið frá Evr-
ópubandalagslöndunum. Verjendurnir voru
valdir af viðkomandi lögmannafélögum í hverju
landi fyrir sig og voru valdir 98 lögmenn til að
sitja námskeiðið, 16 lögmenn koma frá Evrópu-
bandalagslöndunum og 82 koma frá austur- og
mið Evrópu.
Námskeiðið er tvíþætt. Í fyrsta lagi er það
byggt upp til að þjálfa þátttakendur með fyrir-
lestrum, verkefnum og vinnuhópum. Heim-
sóknum til þeirra alþjóðlegu dómstóla sem eru
starfandi s.s. dómstólinn fyrir fyrrum Júgóslavíu
og ICC. Heimsóknum frá dómurum við dómstól-
ana fyrir Rwanda og Sierra Leone. Einnig eru
þjálfunarréttarhöld sett á svið (moot-court excer-
ises). Í öðru lagi er tilgangurinn með námskeiðinu
að byggja upp vefaðgang fyrir alþjóðlegan saka-
málarétt og kennsluefni fyrir verjendur fyrir ICC
sem hægt er að nota síðar sem þjálfunarefni hvar
sem er í heiminum fyrir lögfræðinga sem hafa
áhuga á að kynna sér gangverk dómstólsins og
komast á lista hjá honum sem hæfir starfandi verj-
endur fyrir ICC.
Námskeiðinu er skipt í fjóra hluta og tekur tvö
ár að ljúka því. Öðlast þátttakendur rétt til að
sækja um að komast á lista yfir hæfa verjendur
fyrir dómstólnum að því loknu. Þátttakendur fara
fjórum sinnum til Trier í Þýskalandi og Haag í
Hollandi og sitja námskeiðið. Hvert námskeið
tekur fimm daga. Fyrsti hluti námskeiðsins, sem
var haldinn í lok árs 2003, var kynning á alþjóð-
legum sakamálarétti, kenningum um alþjóðlegan
sakamálarétt, sögu alþjóðlegs refsiréttar og sak-
sókn á vegum alþjóðlegra sakamáladómstóla s.s.
Nuremberg, Japan, dómstólinn fyrir fyrrum Júgó-
slavíu, Rwanda dómstólinn og dómstólinn fyrir
Sierra Leone.
Annar hluti námskeiðsins, sem var í byrjun árs
2004, fjallaði um uppbyggingu ICC og lögsögu
dómstólsins. Lögsaga ICC tekur til alvarlegustu
glæpa sem framdir eru í samfélagi manna og eru
þeir glæpir gegn mannkyninu, stríðsglæpir, þjóð-
armorð og árásir þjóða hver á aðra (aggression).
Þriðji og fjórði hluti námskeiðsins mun snúa að
málarekstri fyrir ICC og byggjast upp á heim-
sóknum til dómstólsins og heimsóknum til starf-
andi dómstólsins fyrir fyrrum Júgóslavíu og fylgst
með málflutningi í nokkrum málum þar og svo
málflutningsæfingum fyrir þátttakendur.
Það sem er mjög áhugavert við námskeiðið er
áherslan á sjónarhorn verjanda í svo alvarlegum
málum sem alþjóðlegir glæpadómstólar taka á og
ICC er ætlað á taka á í framtíðinni. Helstu vanda-
málin þar frá sjónarhóli verjenda eru vandamál
sem starfandi lögmenn sem flytja opinber mál
þekkja frá sínum heimalöndum. Vandamál sem
snúa að ofurafli ríkisins gagnvart einstaklingunum
sem eru sakborningar, takmörkuð fjárráð varnar-