Lögmannablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 23
fréttir frÁ félAGsdeild
nýtt þátttökumet á námskeiðum
löGmannafélaG ÍSlandS heldur
árlega 2025 námskeið fyrir félagsmenn
sína. Stjórn námssjóðs ákveður hvaða
námskeið eru haldin hverju sinni
en dagleg verkstjórn er í höndum
starfsmanns félagsdeildar. Árið 2010
sóttu 393 þátttakendur námskeiðin
sem er nýtt þátttökumet en alls eru
félagsmenn lmfÍ um 870.
námskeið haustannar fóru seint af
stað að þessu sinni. alls voru auglýst níu
námskeið en eitt var fellt niður vegna
dræmrar þátttöku. Síðustu ár hefur
námskeið um skipti þrotabúa verið
haldið reglulega og að þessu sinni eru
tæplega 40 þátttakendur. Svipuð þátttaka
var á námskeiði um árangursríkan
málflutning þar sem Sigurður tómas
magnússon, ingveldur einarsdóttir og
Gestur Jónsson miðluðu af reynslu sinni
úr réttarsalnum.
heimasíða og félagatal
Heimasíða félagsins er mikið notuð af
almenningi sem leitar sér lögmanns
aðstoðar og er hlutverk hennar marg
þætt. Í fyrsta lagi koma nöfn allra
starfandi lögmanna fram á leitarvélum
í gegnum síðuna en ekki einungis
þeirra sem eru með eigin heimasíður.
Í öðru lagi auðveldar lögmannalistinn
á heimasíðunni leit almennings að
lögmanni eftir málaflokkum en lögmenn
þurfa að skrá sig sérstaklega á hann.
Kostnaður við hvern skráðan yfirflokk er
kr. 1200, á ári fyrir meðlimi félagsdeildar,
en kr. 1600, fyrir aðra lögmenn, svo
ódýrari auglýsingu á þjónustu lögmanna
er vart hægt að fá. Í þriðja lagi eru
dómstólarnir tengdir við félagatal
lmfÍ með rafrænum hætti þannig að
dómarar sækja þangað upplýsingar um
lögmenn sem eru með virk réttindi. Því
skiptir miklu máli að allar upplýsingar
í félagatali, s.s. símanúmer og netföng
séu rétt.
nýjar bækur á bókasafn
erlendar bækur hafa ekki verið keyptar
inn á bókasafn lmfÍ frá árinu 2008
vegna óhagstæðs gengis en nú hefur
verið gerð bragarbót á. Á öðrum stað
hér í blaðinu er listi yfir á sjötta tug
nýrra erlendra bóka sem safnið hefur
nú keypt inn en til stendur að gera aðra
stóra pöntun á vorönn.
félagsmenn eru hvattir til að nýta
sér aðstöðu bókasafnsins. Þeir geta
m.a. fengið aðgang um helgar til að
stunda fræðin en öðrum, lögfræðingum
og laganemum, er velkomið að nota
safnið á opnunartíma skrifstofu.
félagsdeild óskar lögmönnum og
fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og
farsæls komandi árs.
Eyrún Ingadóttir
Ár Fjöldi þátttakenda
2006 158
2007 203
2008 222
2009 348
2010 354
Rannsókn á misferli
Fjársvik og misferli af ýmsum toga er oft fylgifiskur
breytilegs viðskiptaumhverfis og er ógn við heilbrigð-
an fyrirtækjarekstur. KPMG aðstoðar skiptastjóra og
lögmenn við rannsókn á meintu misferli.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Harðardóttir
s. 545 6204, hhardardottir@kpmg.is
kpmg.is