Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2012, Síða 2
Hundruð
milljóna
skuldir
flokkanna
2 Fréttir 15. október 2012 Mánudagur
S
jálfstæðisflokkurinn hef-
ur greitt tvær greiðslur af
sjö vegna umdeildra styrkja
sem flokkurinn fékk rétt
áður en ný lög um fjár-
mál stjórnmálaflokka tóku gildi.
Upp komst um styrkina árið 2009
og í kjölfarið ákvað flokkurinn að
endurgreiða þá, án vaxta og verð-
bóta. Styrkgreiðslurnar námu sam-
tals 55 milljónum króna og voru frá
FL Group, sem í dag heitir Stoðir, og
Landsbankanum. Bjarni Benedikts-
son, formaður flokksins, sagði í kjöl-
far ákvörðunar um að endurgreiða
ætti styrkina að þeir yrðu greidd-
ir á sjö árum. Fyrsta greiðslan nam
tæpum sjö milljónum króna og var
greidd 2009.
Skilaði tapi á síðasta ári
Samkvæmt upplýsingum um fjármál
Sjálfstæðisflokksins kemur fram að
flokkurinn skilaði tapi á síðasta ári.
Tapið nam átta milljónum króna,
sem er umtalsvert betri afkoma en
árið áður, þegar tap flokksins nam
110 milljónum króna. Eiginfjárstaða
flokksins er þó mjög góð miðað við
það sem fram kemur í úrdrætti úr
reikningum flokksins sem birtur er
á vefsíðu Ríkisendurskoðunar. Þar
segir að flokkurinn eigi 557 milljón-
ir króna í eigið fé, sem er þó talsvert
hærra en árið 2010 þegar eigið fé var
466 milljónir. Skuldir flokksins jukust
á milli áranna 2010 og 2011, samtals
um 21 milljónir króna.
Kosningar á næsta leyti
Dýrt ár er framundan hjá flokknum
en kosningar eru á næsta leyti og er
kosningabarátta stjórnmálaflokkum
yfirleitt fjárhagslega erfiðar. Ljóst er
að lægri styrkir ríkisins til flokks-
ins í kjölfar kosninga 2009 og styttri
tími en venjulega á milli kosning-
anna 2007 og 2009 hefur haft áhrif á
flokkinn. Endurgreiðsla 55 milljóna
króna styrkja hefur líka að öllum lík-
indum slæm áhrif á fjárhagsstöðu
flokksins þrátt fyrir að ekki hafi ver-
ið gert ráð fyrir nema 7,8 milljóna
króna endurgreiðslu á ári að jafnaði.
Sama staða er uppi á tengingun-
um hjá fleiri flokkum þó þeir hafi
ekki þurft að endurgreiða jafn háar
fjárhæðir og Sjálfstæðisflokkurinn.
Fjárhagsstaða Framsóknarflokks-
ins er dökk samkvæmt yfirlitinu hjá
Ríkisendurskoðun en flokkurinn
skuldar 222 milljónir króna og eigið
fé er neikvætt um 76 milljónir. Fjár-
hagsstaða flokksins batnaði lítið á
milli áranna 2010 og 2011 en styrkir
til flokksins lækkuðu einnig. Flokk-
urinn skilaði þó tæplega 4,5 millj-
óna króna hagnaði árið 2011 sem
er viðsnúningur frá árinu á und-
an þegar taprekstur var hjá fram-
sóknarmönnum.
Ríkisstjórnarflokkarnir í plús
Bæði Samfylking og Vinstri græn-
ir skiluðu hagnaði á síðasta ári.
Hagnaður Samfylkingarinnar nam
16 milljónum króna en flokkurinn
tapaði sjö milljónum árið áður.
Vinstri grænir skiluðu hagnaði
af rekstri annað árið í röð og var
hagnaðurinn árið 2011 30 milljón-
ir króna. Skuldir flokkanna eru þó
talsverðar. Eigið fé Vinstri grænna
er neikvætt um 10 milljónir króna
og skuldirnar 74 milljónir. Samfylk-
ingin skuldaði hinsvegar 106 millj-
ónir en eigið fé flokksins er jákvætt
um 39 milljónir.
Samfylkingin fékk hærri styrki
en samstarfsflokkurinn en styrkir til
flokksins námu samtals 138 milljónum
króna. Þar af voru langhæstu styrkirn-
ir frá ríkinu. Vinstri grænir fengu hins-
vegar 98 milljónir í styrki á síðasta ári,
þar af 78 milljónir frá ríkinu. n
n Fjórflokkurinn berst við skuldir n Kosningabarátta framundan
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Neikvæður rekstur
Sjálfstæðisflokkurinn
skuldar hundruð milljóna
króna og skilaði tapi á síð-
asta ári. Bjarni Benedikts-
son er formaður flokksins.
MyNd SigtRygguR ARi
Eignir og skuldir
Hér má sjá yfirlit yfir skuldir og styrki til fjórflokkanna miðað við upplýsingar um fjár-
hagsstöðu flokkanna sem skilað var til Ríkisendurskoðunar.
250
m.kr.
200
m.kr.
150
m.kr.
100
m.kr.
50
m.kr.
0
237,9
m.kr.
153,6
m.kr.
222,4
m.kr.
76,7
m.kr.
105,6
m.kr.
138,1
m.kr.
74,1
m.kr.
98,7
m.kr.
n Skuldir
n Styrkir
400 milljónir frá
opinberum aðilum
Flokkarnir skulda samtals
467.054.631 krónur
miðað við stöðuna
eins og hún var í árslok
2011. Ríkið styrkti þá á
síðasta ári um 331.531.136
krónur og sveitarfélögin
um 35.328.361. Rétt er að taka fram að
aðeins er fjallað um stjórnmálaflokka
sem eiga bæði fulltrúa á þingi og í sveit-
arstjórnum. Það eru Sjálfstæðisflokkur,
Samfylking, Framsókn og Vinstri grænir.
Réðst á
foreldra sína
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
var send að heimili í Hlíðahverfi
í Reykjavík um klukkan þrjú að-
faranótt sunnudags en þar hafði
rúmlega tvítugur maður veist að
foreldrum sínum. Þegar lögreglu-
menn komu á vettvang reyndi
hann að berja þá með húsmunum,
að því er fram kemur í tilkynningu.
Þar kemur ennfremur fram
að þegar verið var að handtaka
manninn náði hann að koma
höggi í andlit lögreglumanns sem
þurfti í kjölfarið að leita sér aðstoð-
ar á slysadeild en hann var blóð-
ugur og bólginn á eftir. Maðurinn
gistir nú fangageymslur lögreglu
og verður hann yfirheyrður þegar
hann verður í ástandi til þess.
Tryggvi tekur
slaginn
Tryggvi Þór Herbertsson hef-
ur staðfest að hann ætli að taka
slaginn við Kristján Þór Júlíusson
um efsta sætið á lista sjálfstæð-
ismanna í Norðausturkjördæmi
í prófkjöri sem fram fer í janú-
ar. „Ég hef ákveðið að bjóða mig
fram til fyrsta sætis í NA-kjördæmi
í opnu prófkjöri flokksbundinna
sjálfstæðismanna sem fara mun
fram í janúar næstkomandi,“ seg-
ir Tryggvi Þór í tilkynningu sem
hann sendi á fjölmiðla.
„Frá því að ég settist á þing hef
ég verið fulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins í efnahags- og viðskiptanefnd
(áður efnahags- og skattanefnd)
og iðnaðarnefnd en sit nú í alls-
herjar- og menntamálanefnd.
Jafnframt sit ég sem fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í nefnd um gjald-
eyrishöft, í veiðigjaldanefnd og
nefnd um endurskipulagningu
háskólastigsins.
Á kjörtímabilinu hef ég látið
mig efnahags-, skatta- og atvinnu-
mál varða auk málefna sem sér-
staklega snerta NA-kjördæmi.“
Slasaðist í
Esjunni
Maður á fertugsaldri var sóttur
í Esjuhlíðar á laugardagskvöld.
Björgunarsveitir Slysavarna-
félagsins Landsbjargar á höfuð-
borgarsvæðinu voru kallaðar út
um sex leytið. Samferðamaður
mannsins lét vita af þeim, en
þeir voru þá staddir austan við
hefðbundna gönguleið.
Maðurinn hafði fallið og
komst ekki sjálfur niður hlíð-
ina. Að sögn Landsbjargar virð-
ist hann ekki alvarlega slasaður
en talið er að hann hafi farið
úr axlarlið. Vel gekk að finna
mennina, það tók aðeins um
hálftíma. Þeir voru hins vegar
á erfiðum stað í fjallinu og því
ekki hægt að bera þann slas-
aða. Hann var því settur á bör-
ur og látinn síga niður um tíu
metra, þó ekki alveg lóðrétt. Af
þessum sökum tók um tvo tíma
að flytja manninn að sjúkrabíl,
en að sögn Landsbjargar gekk
allt vel. Farið var með hann á
Landspítalann.
74,1 milljón Flokkur Steingríms skuldar
minnst af flokkunum fjórum.
222,4 milljónir Framsóknarflokkurinn er
skuldum vafinn.
105,6 milljónir Samfylkingin skuldar
helmingi minna en Framsóknarflokkurinn.