Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2012, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2012, Blaðsíða 14
Sandkorn E ftir að rannsóknarskýrsla sýndi hvernig stjórnmálamenn skemmdu Orkuveitu Reykja- víkur fyrir okkur eigendunum voru flestir sammála niður- stöðu skýrsl unnar um að stjórnmála- menn ættu að hætta að stýra Orkuveit- unni og láta fagfólk um það; fólk sem hefði þekkingu á rekstri og starfsemi risastórs orkufyrirtækis. En ekki Sóley Tómasdóttir, borgar- fulltrúi Vinstri grænna. Að mati Sóleyj- ar er mjög æskilegt að hún sé í stjórn Orkuveitunnar, til að veita aðhald. „Ég held að við eigum einmitt að fara þveröfuga leið og auka afskipti stjórn- málafólks af Orkuveitunni,“ útskýrði hún í samtali við Stöð 2. Í fyrsta skipti í lengri tíma var far- ið að taka á óráðsíu í rekstri Orku- veitunnar á síðustu tveimur árum. Aðdragandinn að því var einfaldur. Nýja borgarstjórnin ákvað að setjast ekki sjálf í stjórn Orkuveitunnar. Nýr stjórnarformaður var fenginn til starfa, laus við pólitísk tengsl, og hófst strax handa við að minnka óhóflega eyðslu fyrirtækisins. Á endanum var ráðinn forstjóri með faglegu umsóknarferli, hlaðinn af reynslu og þekkingu af starfsemi fyrirtækisins. Tveir stjórn- málamenn sem báru mesta ábyrgð á stöðu Orkuveitunnar, Alfreð Þorsteins- son og Kjartan Magnússon, voru ekki ánægðir með niðurskurðinn. Þeir vildu meiri lán, og halda úti fleiri störf- um, þótt verið væri að sólunda eign- um almennings. Sóley trúir því eflaust einlæglega að hún geri betur en Kjartan, Alfreð, Björn Ingi Hrafnsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og fleiri sem á undan hafa komið. Það er ein algengasta villan í umbótum í mannkynssögunni að það nægi að skipta um persónur, á þeim grundvelli að ákveðnar persónur séu betri en aðrar. Það sem þarf er að greina kerfislæga veikleika og læra að forðast þá. Þegar fyrirtæki eins og Orkuveit- unni, eða Landsvirkjun, er stýrt af stjórnmálamönnum myndast hags- munaárekstur. Fyrirtæki í almanna- eigu verður notað í þágu flokkshags- muna, eins og Björn Ingi Hrafnsson útskýrði í rannsóknarskýrslunni: „Menn [fara] að hugsa pólitískt um ákvarðanir stjórnarinnar í staðinn fyrir að hugsa það faglega hvað er best fyrir fyrirtækin.“ Það er ástæða fyrir því að stjórn- málamenn eru helst ekki látnir stýra fyrirtækjum. Þeir eru stjórnmála- menn. Það er gott fyrir stjórnmála- menn að fá 112 til 250 þúsund krón- ur aukalega í laun á mánuði, og fá að stýra hlutum, en það er ekki gott fyrir almenning. Eins og Helga Jónsdóttir, einn af fyrrverandi stjórnarmönnum Orku- veitunnar, lýsti: „Ég hef aldrei verið í stjórn sem mér finnst hafa verið jafn- fjarri því og stjórn Orkuveitu Reykja- víkur að skynja grundvallarleikregl- ur í stjórnun fyrirtækis, og skilin milli stjórnmála og fyrirtækjareksturs.“ Sagan er uppfull af fólki sem telur sig betur umkomið að beita valdi sínu en aðrir. Auðvitað fær Sóley tekjur fyrir að vera í stjórn Orkuveitunnar, þótt hún hafi engan faglegan bakgrunn til þess. Hún er menntuð í uppeldisfræðum og hefur reynslu af allt öðrum sviðum. Vinstri grænir og samfylkingarfólk gagnrýna sjálfstæðismenn og fram- sóknarmenn harðlega fyrir að raða sér í helstu stjórnunarstöður og nota eign- ir almennings til að ota sínum eigin tota. Það er algeng skoðun þeirra að vandamál Íslands verði leyst með því að koma sjálfstæðismönnum frá völd- um og sjálfum sér til valda. Einhvern veginn virðast þeir trúa því að betra sé að þeim sjálfum sé betur treystandi til að vera í sömu aðstöðu. En nær- tækt dæmi er að Davíð Oddsson var á árum áður uppfullur hugsjóna um að minnka tök stjórnmálamanna á eign- um samfélagsins. Hann gerði það svo vel að á endanum fór hann að treysta sjálfum sér betur en nokkrum öðrum til að verða seðlabankastjóri, og vin- um sínum, félögum og ættingjum til að taka að sér aðrar helstu stofnanir. Allir halda að þeir séu betri en hin- ir, en þetta snýst ekki um persónurnar, heldur prinsippin. n Leynifundur sjalla n Titringur meðal sjálf- stæðismanna í Reykjavík fer síst minnkandi. Hanna Birna Kristjánsdóttir og Illugi Gunnarsson heyja einvígi um leiðtogasætið í kjördæmun- um tveimur en Guðlaugur Þór Þórðarson biður af auðmýkt um annað sætið. Guðlaug- ur Þór glímir við nokkurn vanda vegna lykilhlutverks innan Orkuveitu Reykjavík- ur en fjármál stofnunarinn- ar eru nú alræmd. Nú er um það talað að Hanna Birna og Guðlaugur hafi gert með sér óformlegt kosningabanda- lag fyrir tilstilli Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, fyrrverandi borgarstjóra, sem hafi hitt Hönnu Birnu á leynifundi. Risarækja Alfreðs n Alfreð Þorsteinsson, fyrr- verandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, þótti ekki fara troðnar slóðir þegar hann stýrði orkurisan- um til nýrr- ar framtíðar. Það var hann sem beindi Orkuveitunni inn á slóð- ir sem þóttu furðulegar. Þar var einkennilegasta beygj- an þegar fyrirtækið tók að rækta risarækjur fyrir austan fjall. Um langa hríð var Al- freð leiðandi í þessu öllu saman. Seinna tók Guðlaug- ur Þór við keflinu og fylgdi forskrift meistara síns. Umdeild Eyrún n Meðal þeirra sem sækj- ast eftir vegtyllum innan Sjálfstæðisflokksins er Eyrún Sigþórsdóttir, sveitarstjóri á Tálknafirði sem vill 2. sæti í Norðvesturkjördæmi. Eyrún þykir fara óhefðbundnar leiðir en hún er umdeild fyr- ir að þiggja byggðakvóta. Þá sýndi hún mikinn kjark með því að innleiða Hjallastefn- una á Tálknafirði og afhenda Margréti Pálu grunnskólann. Deilt er um lögmæti þess gjörnings. Elín grimm n Kjarnakonan Elín Hirst ætl- ar sér stóra hluti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kragan- um. Þar tekst hún á við þungavigtar- fólk á borð við Ragnheiði Ríkharðs- dóttur, Óla Björn Kárason og Jón Gunnarsson. Elín var ómyrk í máli á fundi sjálf- stæðismanna í Mosfellsbæ þar sem hún lýsti því meðal annars hvernig fréttastofa Ríkisútvarpsins undir stjórn Óðins Jónssonar léti stjórnast af andstæðingum Sjálfstæð- isflokksins. Elín talar af þekk- ingu eftir að hafa starfað um langt skeið innan RÚV. Ég var á vissan hátt galgopi Við erum ólík frá náttúrunnar hendi Sigmundur Ernir segist hafa breyst þegar dóttir hans fæddist. – DV Telma Tómasson vill allskonar sjónvarpsfólk. – DV Við erum betri„Allir halda að þeir séu betri en hinir, en þetta snýst ekki um persónurnar, heldur prinsippin Þ jóðaratkvæðagreiðslan á laugar- daginn kemur, 20. október, er haldin til að virða hvort tveggja í senn, ákvörðun Alþingis og vilja þjóðarinnar. Alþingi ákvað á sín- um tíma með 35 atkvæðum gegn 15 að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna. Meiri hlutann skipuðu þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi öðrum en Sjálfstæð- isflokknum. Áður, 28. september 2010, hafði Alþingi samþykkt einum rómi, með 63 atkvæðum gegn engu, ályktun um að „endurskoða ... stjórnarskrá lýð- veldisins Íslands“. Hinn 12. júní 2010 sagði formaður Sjálfstæðisflokksins í ræðustóli Alþingis, að flokkur hans „myndi ekki leggjast gegn þessu máli, heldur styðja það, að endurskoðun stjórnarskrárinnar fari fram“. Í sömu umræðu sagði varaformaður Fram- sóknarflokksins, sem hafði sett endur- skoðun stjórnarskrárinnar sem skilyrði fyrir stuðningi við minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og VG 2009, „mik- ilvægt, að þing og þjóð gangi í takt: Til hamingju Ísland.“ Þegar kallað er eftir því, að þing og þjóð gangi í takt, er það þingið, sem á að ganga í takt við þjóð- ina, ekki öfugt. Þingið sækir umboð sitt til þjóðarinnar. Það stendur skýrum stöfum í frumvarpi Stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár, en ekki í lýðveldis- stjórnarskránni frá 1944. Kjarni málsins Hryggjarstykkið í því frumvarpi til nýrr- ar stjórnarskrár, sem borið verður undir þjóðaratkvæði 20. október, er niður- staða þjóðfundarins 2010. Fundinn sóttu 950 manns af landinu öllu, 18 ára til 91 árs, karlar og konur í nánast jöfnum hlutföllum. Sjö manna stjórn- laganefnd, skipuð af Alþingi, skipulagði þjóðfundinn undir forustu Guðrúnar Pétursdóttur líffræðings, formanns nefndarinnar, og birti helztu niður- stöður hans. Breið samstaða náðist á Alþingi um skipun stjórnlaganefnd- ar. Sjálfstæðisflokkurinn átti mikinn og þakkarverðan þátt í því samkomulagi og einnig í þjóðfundinum. Þjóðfundar- gestir voru valdir af handahófi úr þjóð- skrá. Fjöldi fundarmanna, 950 manns, tryggir, að niðurstöður þjóðfundarins endurspegla vilja þjóðarinnar í töl- fræðilega marktækum skilningi. Allir Íslendingar, 18 ára og eldri, áttu jafna möguleika á að veljast til setu á þjóðfundinum og leggja þar grunninn að nýrri stjórnarskrá. Það er kjarni málsins. Hlutverk Stjórnlagaráðs var í reyndinni ekki annað en að færa niður- stöður þjóðfundarins í nothæfan frum- varpsbúning. Stjórnlagaráð taldi það skyldu sína að virða niðurstöður þjóð- fundarins að sem flestu leyti. Það tókst með smávægilegum frávikum eins og ég lýsti á þessum stað á föstudaginn var. „Gölluð og úrelt“ Forsaga málsins er kunn. Með lýðveld- isstjórnarskránni var tjaldað til einnar nætur. Þetta má lesa í Alþingistíðind- um (1944, A, bls. 312–313): „[H]efur greinilega komið í ljós nú í umræðum ... á Alþingi, í blöðum og víðar í tilefni þjóðaratkvæðagreiðslunnar um lýð- veldisstjórnarskrána, að brýn nauðsyn er til þess, að hinni almennu endur- skoðun verði hraðað og til hennar vandað. Þjóðin virðist á einu máli um það, að stjórnskipunarlög þau, sem við nú búum við, séu á margan hátt svo gölluð og úrelt, að ekki verði við leng- ur unað. […] Má fullyrða, að ekkert hefði hindrað almenning í að láta í ljós óánægju sína með stjórnarskrána við atkvæðagreiðsluna í s.l. mánuði ann- að en sú óhjákvæmilega nauðsyn, að þjóðin sýndi samhug sinn um stofn- un lýðveldisins, en léti ekki óánægju með einstök atriði stjórnarskrárinnar, sem ekkert stóðu í sambandi við sjálfa lýðveldisstofnunina, verða til þess að tvístra þjóðinni.“ Þjóðin þurfti þá að standa saman sem einn maður að lýð- veldisstofnun í miðri heimsstyrjöld meðal annars til að tryggja viðurkenn- ingu stórveldanna. Flokkarnir smöluðu kjósendum á kjörstað. Rannsóknarnefnd Alþingis Vert er að rifja upp fleira, sem stendur í einróma ályktun Alþingis 28. október 2010. Þar segir: „Alþingi ályktar að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verði höfð að leiðarljósi í framtíðinni, ... að taka verði gagnrýni á íslenska stjórn- málamenningu alvarlega , ... að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé áfellis- dómur yfir stjórnvöldum, stjórnmála- mönnum og stjórnsýslu, verklagi og skorti á formfestu.“ Og hvað sagði rannsóknarnefnd Al- þingis (2010, 8. bindi, bls. 184): „Taka þarf stjórnarskrána til skipulegrar endur skoðunar í því skyni að treysta grundvallaratriði lýðræðissamfélagsins og skýra betur meginskyldur, ábyrgð og hlutverk valdhafa.“ Endurskoðun stjórn- arskrárinnar nú er mikilvægur hlekk- ur í uppgjöri þjóðarinnar við hrunið. Alþingi óskar eftir leiðsögn kjósenda 20. október. Það gerist sárasjaldan, að Alþingi ráðfæri sig þannig við fólkið í landinu. Síðast þurfti potta og pönnur. Nú dugir kjörseðill. n Hvers vegna þjóðaratkvæði? Leiðari Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 14 15. október 2012 Mánudagur „Sjálfstæðisflokk- urinn átti mikinn og þakkarverðan þátt í því samkomulagi og einnig í þjóðfundinum. Kjallari Þorvaldur Gylfason Stjórnlagaráðsfulltrúi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.