Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2012, Blaðsíða 13
Erlent 13Mánudagur 15. október 2012
Viskí í stað
ávaxtasafa
Tveggja ára drengur var fluttur á
sjúkrahús í Swansea í Wales eftir
að hafa drukkið ótæpilegt magn af
viskíi. Málið er heldur óvenjulegt
enda á það rætur sínar að rekja
til alvarlegra mistaka sem starfs-
menn veitingastaðarins Frankie
& Benny‘s gerðu þegar þér létu
drenginn hafa áfengið í staðinn
fyrir ávaxtasafa.
Drengurinn, Sonny Rees, var
á staðnum til að fagna tveggja
ára afmæli sínu ásamt fjölskyldu
sinni. Móðir hans, Nina Rees, átt-
aði sig ekki á mistökunum fyrr
en sonur hennar var nærri búinn
með drykkinn. Hún hafði hvatt
hann til að klára drykkinn en
fannst svipbrigðin á andliti hans
einkennileg í hvert skipti sem
hann teygaði sopa. Nina ákvað
svo að taka sjálf sopa og kvartaði
í kjölfarið til framkvæmdastjóra
staðarins sem trúði henni ekki fyrr
en hann tók sjálfur sopa.
Sonny var fluttur á sjúkrahús,
vel í glasi, þar sem hann var undir
eftirliti lækna. Hann fékk að fara
heim að því loknu og varð ekki
meint af drykkjunni. Forsvars-
menn Frankie & Benny‘s hafa fyr-
irskipað rannsókn á málinu.
Ein áskrift á
hvern íbúa
Farsímaáskriftir á heimsvísu eru
orðnar nánast jafn margar og
fjöldi jarðarbúa, eða um sex millj-
arðar. Þetta kemur fram í nýjum
tölum frá Alþjóðafjarskiptasam-
bandinu, sem er ein af sérstofn-
unum Sameinuðu þjóðanna. Í
tölum sambandsins eru farsíma-
áskriftir í Kína einn milljarður.
Könnun sambandsins náði til
155 landa. „Inni í þessum tölum
er fjöldi símakorta í notkun, ekki
fjöldi símtækja eða fólks. Þannig
að ef einhver er með tvö virk síma-
kort en aðeins einn síma teljast
það tvær áskriftir,“ segir Susan
Teltscher, framkvæmdastjóri sam-
bandsins.
Stofnunin hefur einnig tekið
saman tölur um internetnotkun
og voru netnotendur á heimsvísu í
lok árs 2011 tveir milljarðar.
Í hart við
glæpagengi
Bandarísk yfirvöld hafa skil-
greint glæpasamtökin MS–13
sem „alþjóðleg glæpasam-
tök“ sem gerir yfirvöldum
kleift að frysta eigur meðlima
samtakanna. Þúsundir með-
lima eru í samtökunum sem
teygja anga sinna til fjölmargra
landa; Bandaríkjanna, Kanada,
Mexíkó og ríkja Mið-Ameríku.
Samtökin græða milljónir á
milljónir ofan á sölu og smygli
fíkniefna auk þess að stunda
aðra glæpi. Með þessari endur-
skilgreiningu á samtökunum
mega bandarískir bankar ekki
eiga í viðskiptum við meðlimi
samtakanna.
Innri markaðurinn 20 ára!
Innri markaður Evrópu varð að
veruleika árið 1992 og nær í
dag til yfir 500 milljón manna í
27 aðildarríkjum ESB og
EES ríkjanna þriggja; Íslands,
Noregs og Liechensteins.
Utanríkisráðuneytið, sendinefnd
ESB á Íslandi og Evrópustofa
efna til málstofu þriðjudaginn
16. október 2012 kl. 16:00-17:30
á Hótel Borg, Gyllta salnum,
í tilefni af 20 ára afmæli
innri markaðar ESB.
Stjórnandi umræðu: Kristín Halldórsdóttir, forstöðumaður
Enterprise Europe Network, Evrópumiðstöð.
Umræður og spurningar úr sal.
Móttaka með léttum veitingum.
Fundurinn er öllum opinn.
Vissir þú að:
EES samningurinn tryggir að Íslendingar geta búið, stundað nám og unnið í hvaða landi
innri markaðarins sem þeir kjósa.
EES samningurinn veitir Íslendingum rétt til þátttöku í fjölda samstarfsáætlana ESB á
sviði mennta-, menningarmála og rannsókna.
Viðskipti milli ESB ríkja jukust úr 800 milljörðum evra árið 1992 í 2.540 milljarða evra
árið 2010.
Árið 2011 fór 82.7 % af vöruútflutningi Íslands til annarra ríkja á innri markaðinum.
Lítil og meðalstór fyrirtæki –
tækifæri á innri markaði ESB
Dagskrá:
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gauti Marteinsson, verkefnisstjóri Evrópumiðstöðvar,
Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Herweig Lejsek, stofnandi og framkvæmdastjóri
Videntifier Forensic.
Piotr Banas, stjórnarsvið innri markaðar og þjónustu,
framkvæmdastjórn ESB.
N
ú, þegar innan við þrír mánuð-
ir eru eftir af árinu, bendir flest
til þess að árið 2012 verði það
heitasta í Bandaríkjunum frá
upphafi mælinga. Haldið hefur verið
utan um hitatölur í Bandaríkjunum
frá árinu 1895. Fyrstu níu mánuðir
ársins, frá janúar til loka september,
eru heitustu fyrstu níu mánuðir frá
upphafi mælinga og bendir flest til
þess að þeir mánuðir sem eftir eru af
árinu verði nokkuð hlýir.
Nýliðinn september var í tuttug-
asta og þriðja sæti yfir heitustu sept-
embermánuði frá upphafi og sext-
ándi mánuðurinn í röð þar sem hiti
er yfir meðallagi samkvæmt töl-
um bandarísku veðurstofunnar.
Meðal hiti í Bandaríkjunum fyrstu
níu mánuði ársins var 59,8 gráður
á Fahrenheit, eða um 15,4 gráður á
Celsius. Marsmánuður á þessu ári er
sá hlýjasti frá upphafi mælinga eins
og júlímánuður. Allir mánuðir sem
af eru ári, fyrir utan september, eru
í hópi tuttugu hlýjustu mánaða frá
upphafi mælinga.
Samkvæmt þriggja mánaða spá
bandarísku veðurstofunnar verða
komandi mánuðir nokkuð hlýir mið-
að við meðaltal undanfarinna ára-
tuga. Nick Wiltgen, veðurfræðingur
hjá weather.com, sagði í ágúst síðast-
liðnum að líkurnar á því að árið 2012
yrði ekki það heitasta frá upphafi
mælinga væru einungis um þrett-
án prósent. Hann bætti hins vegar
um betur í þessari viku og sagði að
líkurnar í dag væru um sjö prósent.
Samkvæmt þessu bendir flest til
þess að árið 2012 verði það heitasta
í Bandaríkjunum frá upphafi mæl-
inga.
jonbjarki@dv.is
Hitamet að falla í Bandaríkjunum
n Tölur eru til frá árinu 1895
Hlýtt í veðri Marsmánuður á þessu
ári er sá hlýjasti frá upphafi mælinga.
Sama gildir um júlímánuð.