Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2012, Síða 6
Leiddur út
6 Fréttir 15. október 2012 Mánudagur
Þ
ar síðasta föstudag voru gerð
upptæk pókerborð og fleiri
munir í Kojack pókerklúbbn-
um í Ármúla vegna gruns
lögreglu um að þar færi fram
ólöglegt fjárhættuspil. Sigurpáll Jó-
hannesson, fasteignasali og fyrrum
eigandi klúbbsins, var handtekinn í
kjölfarið og færður niður á lögreglu-
stöð í járnum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu var Sigurpáll
handtekinn vegna framkomu hans
við lögreglumenn á staðnum. Lög-
fræðingur Sigurpáls segist ekki skilja
handtökuna.
Rak staðinn fyrir þrotabúið
Staðurinn sem um ræðir heitir
Kojack og var til húsa í Ármúla fyrir
ofan Vitaborgara, en þar var einnig
rekinn veitingastaður og bar. Lög-
reglan lokaði ekki staðnum sjálfum
en gerði upptæk pókerborð og fleiri
muni tengda pókernum. Sigurpáll
átti staðinn þar til hann var tek-
inn til gjaldþrotaskipta en rak hann
á vegum þrotabúsins þegar lög-
reglan ruddist þar inn. Lögfræðistof-
an Skuldaskil var með umsjón yfir
þrotabúinu en skiptastjórinn, Egg-
ert Ólafsson, hafði falið Sigurpáli að
reka staðinn. Að sögn skiptastjór-
ans, hafði Sigurpáll ætlað að reyna
koma staðnum á rétt ról til þess að fá
meira upp í kröfur kröfuhafa í þrota-
búinu. Skiptastjórinn lét hins vegar
loka staðnum eftir að lögregla stöðv-
aði það sem hún telur hafa verið
ólöglegt fjárhættuspil í gróðaskyni.
„Hann átti þetta þegar þetta var úr-
skurðað gjaldþrota og það var hann
sem ætlaði að ná samningum við
kröfuhafana þannig að hann gæti
haldið áfram rekstrinum,“ segir Egg-
ert. Hann segist ekki hafa vitað af því
hvers konar starfsemi ætti sér stað
þarna. „Ég vissi að þetta væri spila-
klúbbur en ég kom ekki þarna fyrr
en seint og síðar meir þegar var ver-
ið að láta verðmeta húsmuni þegar
ljóst var að þetta gat ekki gengið,
að hann væri ekki að ná samning-
um. Hann fullyrti að tekjurnar væru
af veitingasölu og menn væru bara
að spila þarna. Ég var búinn að loka
þessu þegar fyrrverandi eigendur
komu inn í þetta með honum og þeir
ætluðu að reka þetta saman til þess
að ná sem bestum samningum við
kröfuhafa.“
Kannaðist fyrst ekki
við handtökuna
Þegar DV hafði samband við Sigur-
pál vegna málsins kannaðist hann
í fyrstu ekki við að hafa rekið stað-
inn né að hafa verið handtekinn og
leiddur út í járnum. „Nei, ég er ekki
eigandi. Ég var bara þarna að að-
stoða,“ sagði hann. Er það rétt að þú
hafir verið handtekinn og leiddur út í
járnum? „Nei, það eru alls konar sög-
ur komnar um þetta. Þetta var í raun-
inni ekkert, þeir komu þarna inn og
stoppuðu þetta og síðan er staðurinn
ennþá opinn sem bar. Þeir tóku ein-
hver borð og eitthvað. Þetta var ekk-
ert stórmál,“ sagði Sigurpáll.
Stuttu seinna hafði þó lögmaður
hans, Saga Ýrr Jónsdóttir samband
við blaðamann og staðfesti það að
hann hefði verið handtekinn umrætt
kvöld en taldi það ekki réttmæta að-
gerð hjá lögreglu. Sigurpáll hringdi
svo í kjölfarið og baðst afsökunar
á því að hafa logið að blaðamanni.
Málið hefði legið þungt á honum en
hann væri ekki maður sem lygi.
Pókermótin ekki
í hagnaðarskyni
„Hann rak staðinn en á hann ekki
eftir að hann varð þrotabú,“ segir
Saga, lögmaður Sigurpáls. Aðspurð
um það hvað hafi gerst umrætt kvöld
segir hún: „Ég veit ekki allt sem lög-
reglan veit en það sem ég veit er að
lögreglan lokaði staðnum af því að
það hafði farið fram pókermót þarna.
Lögreglan er að skoða það sem
meint fjárhættuspil. Staðreyndin er
hins vegar sú að þarna er rekinn bar
og það hafa verið seldar veitingar
þarna líka. Pókermótin hafa ekki ver-
ið í hagnaðarskyni. Þetta er í raun
bara til að trekkja fólk inn á staðinn.
Hagnaðurinn sem kemur inn hefur
verið notaður strax aftur í aukavinn-
inga og annað. Það eru peningar
frá þeim sem taka þátt hverju sinni.
Þetta er þannig að þú kaupir þér
spilapeninga og það er keppt og svo
vinnur einhver pottinn. Peningarn-
ir fara allir aftur til keppendanna og
staðurinn fær ekki neitt. Það er nátt-
úrulega hagnaður fyrir staðinn að fá
fólk inn á hann,“ segir Saga. „Ég sé
ekki ástæðu til þess að það hefði átt
að handtaka hann þetta kvöld. Við
vitum alveg að á Íslandi eru margir
klúbbar sem eru með póker. Þetta
er ekki eins og áður þegar þetta var
underground og enginn vissi af tilvist
þeirra,“ segir hún.
Lögregla telur sig hafa sannanir
Lögreglan er ekki á sama máli og tel-
ur að starfsemin sem þarna fór fram
hafi verið ólögleg. „Við fórum þarna
og lögðum hald á spilaborð sem þarna
voruð notuð vegna þess að við teljum
ólöglegt að hafa þetta á opinberum
veitingastað,“ segir Árni Vigfússon hjá
Lögreglunni í Reykjavík. Hann segir
það hafa legið fyrir í smá tíma að ráðist
yrði í þessar aðgerðir á staðnum enda
hafi þeir haft grun um það að þarna
færi fram ólöglegt fjárhættuspil í hagn-
aðarskyni. „Ástæðan fyrir því að verið
var að leggja hald á þetta er að þessi
starfsemi er ekki samkvæmt lögum.
Það er töluverður munur á þessu eða
því að þú sért með lokaðan klúbb fyr-
ir ákveðna aðila sem vilja koma saman
og spila. Þarna er þetta bara opinber
veitingastaður,“ segir hann og seg-
ir það hafa staðið til um tíma að loka
klúbbnum. „Það hefur svo sem ver-
ið vitað í svolítinn tíma að þetta færi
fram, en þarna var ákveðið að láta slag
standa eftir að búið var að fá úrskurð
um að fara þarna í þessar aðgerðir.“
Hann segir ekki hafa staðið til að
handtaka Sigurpál en það hafi ver-
ið gert vegna viðbragða hans við að-
gerðum lögreglu. „Hann reyndi að
koma í veg fyrir að lögreglumennirnir
gætu gert það sem þeir vildu á staðn-
um. Það var semsagt ástæðan fyrir því
og líka vegna rannsóknar málsins,“
segir hann. Þegar blaðamaður ber
undir hann fullyrðingar lögmanns
Sigurpáls um að pókermótin hafi ekki
verið í hagnaðarskyni þá gefur hann
lítið út á það. „Mér kemur það ekk-
ert á óvart að hann haldi því fram að
hann hagnist ekki á því en við teljum
okkur hafa sannanir fyrir því. Það er
kannski varla við því að búast að þeir
vilji viðurkenna það.“
Rannsókn málsins stendur enn
yfir. n
„Þetta
var
ekk ert stórmál
Sigurpáll Jóhannesson
n Pókerklúbbi lokað með lögregluvaldi n Grunur um ólöglegt fjárhættuspil
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
„Þetta
er ekki
eins og áður
þegar þetta var
under ground
og enginn vissi
af tilvist þeirra
Saga Ýrr Jónsdóttir
Pókerklúbburinn Kojack pókerklúbburinn var starfræktur í Ármúla á annarri hæð. Lögreglu grunar að þar hafi verið ólögleg starfsemi en
sá sem rak staðinn segir pókerinn ekki hafa verið í gróðaskyni. Mynd SigtRygguR ARi
Skilur ekki handtökuna Saga Ýr Jóns-
dóttir, lögmaður Sigurpáls, segist ekki skilja
handtökuna. Hún segir pókerinn sem spilað-
ur var á staðnum ekki hafa verið ólöglegan
og Sigurpáll hafi ekki hagnast af honum.
í járnu
Endurkjörin
formaður
Anna Stefánsdóttir fyrrverandi
hjúkrunarforstjóri Landspítal-
ans var endurkjörin formaður
Rauða krossins á Íslandi til næstu
tveggja ára á framhaldsaðalfundi
félagsins sem haldin var í Reykja-
vík á laugardag. Ragna Árnadótt-
ir, aðstoðarforstjóri Landsvirkj-
unar, var kjörin varaformaður til
fjögurra ára.
Gunnar Frímannsson, Rauða
krossinum á Akureyri, lætur af
starfi varaformanns og hætt-
ir í stjórn félagsins ásamt Esther
Brune, Fáskrúðsfirði, og Sigríði
Magnúsdóttir, Þingeyri.
Ráðstefna
um klám
Næstkomandi þriðjudag, 16.
október, verður haldin ráðstefna
um klám út frá lagalegu og sam-
félagslegu sjónarmiði í Háskóla
Íslands. Að ráðstefnunni standa
innanríkisráðuneytið, mennta-
og menningarmálaráðuneytið og
velferðarráðuneytið í samvinnu
við lagadeild Háskóla Íslands.
Heiti ráðstefnunnar er: Klám:
Lög, kynferði, (ó)menning, sjálfs-
mynd og nánd. Meginefnið snýst
um spurninguna hvert sé hlut-
verk löggjafans og stjórnvalda
og hvernig skilgreina eigi klám.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra setur ráðstefnuna og
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, slítur
henni. Skráning fer fram með
því að senda póst á netfangið
skraning@irr.is og ráðstefnan er
öllum opin.
Leiðrétting
Í úttekt í helgarblaði DV um
„hrunverja“ sem sækjast eftir
endurkjöri var Mörður Árna-
son sagður einn þeirra. Mörð-
ur var ranglega flokkaður í
úttektinni því hann var ekki í
ríkisstjórnarflokki á árunum
fyrir hrun, eins og gefið var til
kynna. Þá var sagt um Eygló
Harðardóttur að hún hefði sest
á þing rétt fyrir hrun en rétt er
að hún settist á þing rétt eftir
hrunið, í nóvember 2008. DV
biður þau bæði velvirðingar á
rangfærslunum.