Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2012, Qupperneq 23
Lífsstíll 23Mánudagur 15. október 2012
Verndandi
vinabönd
Október er bleikur mánuður
og af því tilefni hefur listakon-
an Hildur Hafstein hannað þessi
fall egu vinabönd til sölu til styrkt-
ar Krabbameinsfélaginu og bar-
áttunni við brjóstakrabbamein.
Böndin eru úr ítölskum ónyx, silfri
og silfurhúðuðum málmi, bundin
upp á bleikan þráð. Ítalskur ónyx á
að veita vernd og jákvæðni. Vina-
böndin eru til sölu á vinnustofu
Hildar, Laugavegi 20, Klapparstígs
megin. Verðið er 5.000 krónur.
Gagnsætt og
kynþokkafullt
Glærar kápur og fylgihlutir úr
PVC eru meðal heitustu tísku-
strauma haustsins.
Á pöllunum þóttu
kápur Emilio Pucci
sérlega glæsilegar
með hvítum út-
saumi.
Hjá Pazzarro sáust
glærar og kvenlegar útgáfur af
hinni klassísku „trench“-kápu
og Betsey Johnson
hefur sent frá sér
stutta plastjakka
úr bleiklituðu efni
og liturinn minnir
á bleikar tyggjó-
kúlur. Þá hafa tísku-
hús Burberry, Chanel
og Furla öll stokkið á vagninn og
sent frá sér flíkur og fylgihluti úr
glæru PVC-efni.
n Varaðu þig á megrunarfæðinu n Leiðindi og stress halda þér feitri/feitum
Þú borðar of mikið af
hollustusnarli
Hnetur, heilhveitipasta, ólífuolía og
dökkt súkkulaði eru náttúrulegt og
heilsusamlegt snarl. En mjög hita-
einingaríkt. Það þarf því að varast að
borða óhóflega mikið af þessari fæðu
ef þú ætlar þér að léttast. Full skál af
hnetusnarli er til dæmis óhóf.
Þú borðar ekki morgunmat
Að sleppa morgunmatnum
er alltaf slæm hugmynd. Líkaminn
bregst við með því að ríghalda í fitu-
forðann og bæta á hann.
Þú borðar of stóra
skammta
Borðaðu þar til þú ert orðinn södd/
saddur. Lærðu á líkamann og nærðu
hann. Skammtaðu þér minna á
diskinn og fáðu þér aðeins meira ef
hungrið sverfur enn að.
Þú borðar standandi
Ekki borða standandi við ís-
skápinn eða á ferð, í bílnum eða á
ferð og flugi í hádeginu. Best er
að taka sér góðan tíma til
málsverðar og hafa það
huggulegt á meðan.
Þú sefur ekki
nóg
Að taka sér tíma til
líkamsræktar merkir
stundum að þú færð minni
tíma til svefns. En það er hins vegar
afar mikilvægt að fá nægan svefn
ef markmiðið er að grennast sér til
heilsuauka. Það þarf orku í ræktina
og vanti svefninn þá vill líkaminn
gjarnan krefjast orkutapsins í gegn-
um aukna inntöku á hitaeiningum
og eykur hormónaframleiðslu sína.
Þú misskilur merkingar
Það margborgar sig að fara
varlega í neyslu fæðu sem er aug-
lýst sem fitulaus. Hún inniheldur oft
þeim mun meira af sykri eða auka-
efnum sem leiða til þyngdaraukn-
ingar.
Er ísinn fitulaus? En hvað inni-
heldur hann mikið af sykri? Skoð-
aðu vel allar merkingar. Þá er það
svo að margir vilja neyta fæðis sem
inniheldur lítið magn sykurs og fitu í
mjög miklu magni sem leiðir einnig
til þyngdaraukningar.
Þú borðar ekki nógu
mikið grænmeti
Að borða fimm til sjö
skammta af ávöxtum og
grænmeti á dag er mjög
mikilvægt fyrir alla, en
þeir sem eru í megrun
ættu að hafa í huga að borða
minna af ávöxtum en meira af
grænmeti. Þeir sem bæta heilsu sína
og borða mikið af grænmeti eru lík-
legri til að grennast hraðar og halda
þyngdinni og betri heilsu lengur.
Þú reynir ekki nógu
mikið á þig
Þér finnst ef til vill nóg að ganga
í vinnuna eða fara út að ganga
með hundinn. Það kostar mun
meiri átök að bæta heilsuna og
laga línurnar. Það þarf að minnsta
kosti 30 mínútna hreyfingu á dag og
hjartað þarf að slá hraðar. Farðu í
spinning, fjallgöngur eða lyftu lóðum.
Þú ert ekki hætt/ur að
drekka gos
Gos inniheldur enga næringu og
það að halda áfram að drekka gos
í heilsuátaki vinnur beinlínis gegn
þér. Jafnvel þó þú drekkir sykur-
snauða drykki. Enda sýna rannsókn-
ir að þeir sem drekka tvö eða fleiri
glös af sykursnauðu gosi á dag, hafa
meira mittismál (50% meira mittis-
mál) en þeir sem drekka ekki slíka
drykki.
Þú átt ekki maka sem
styður þig
Makinn þinn getur haft mikil áhrif á
mataræðið. Jákvæð og neikvæð. Ef
makinn vill lítið annað en skyndi-
bitafæði og nöldrar reglulega yfir
heilsuátakinu þá er líklegt að ár-
angurinn verði minni en ella. Fáðu
makann með þér í lið.
Þú drekkur ekki vatn
Vatnsdrykkja stuðlar að
þyngdartapi. Drekktu glas af vatni
áður en þú borðar máltíð. Borðaðu
einnig fæðu sem inniheldur mikið
vatn, svo sem grænmeti. Slíkt fæði
á að vera meira seðjandi. Lítil rann-
sókn gaf til kynna að það að drekka
kalt vatn geti hraðað efnaskiptum og
minnkað löngun í sætindi.
Þér leiðist
Streita hefur mikil áhrif
á þyngd. Sértu stressuð/
aður þá framleiðir
líkaminn meira
af horm-
ónum sem
valda löngun
í sykraðan og feit-
an mat. Hvíldu þig
og skemmtu sér, besta
leiðin til þess að losa um
streitu er að hreyfa sig og hlæja
sig máttlausan með góðum vinum.
Þú borðar úti í hádeginu
Þeir sem fara út að borða í há-
deginu á vinnutíma eru þyngri en
aðrir. Þeir eru líklegri til að gera of vel
við sig en þeir sem taka með sér hollt
að borða í vinnuna.
Þú borðar ekki áður en þú
ferð í ræktina
Ef þú stundar reglulega líkamsrækt
án þess að fá þér að borða áður, ertu
í slæmum málum. Þegar þú æfir á
tóman maga, brennir þú hitaeining-
um frá vöðvum en ekki úr fitu.
Þú gerir aðeins loftháðar
æfingar
Ef þú þraukar á hlaupabrettinu en
gerir lítið annað þá nærðu ekki góð-
um árangri í ræktinni. Lyftu lóðum
og finndu muninn. Efnaskiptin taka
stökk.
Þú gengur í
of víðum
fötum
Víð föt eru
þægileg en að
ganga í slík-
um fatnaði dags
daglega getur haft
þau sálrænu áhrif
að við leyfum okkur meiri munað.
Þeir sem vilja ná árangri í rækt-
inni ættu að prófa að skella sér
í aðsniðinn leikfimigallann
fremur en víða heimagall-
ann eftir vinnu. n
kristjana@dv.is
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
200 hita-
einingar
Eftirfarandi magn af grænmeti
inniheldur 200 hitaeiningar:
n 1 bolli af brokkólí
n 1 bolli af blómkáli
n 1 bolli af gulrótum
n 1 bolli af kúrbít
n 1 bolli af agúrku
n 1 bolli af spínati
n 1 bolli af papriku
n 1 bolli af tómötum
n 1 stór portobello sveppur
sextán stærstu
mistökin í megrun