Vísbending - 21.12.2015, Blaðsíða 8
8
BENEDIKT
JÓHANNESSON
RITSTJÓRI
21 ÖRSAGA
Ævisaga anno 1950
Sólskinsstund. Ögurstund. Sögustund.
Ævisaga anno 1969
Rómantík. Erótík. Pólitík.
Ævisaga anno 2015
Misbeiting. Örvænting. Játning.
Gamansaga
Ósýnilegi maðurinn fór á bar með síamstvíburum og sat á milli þeirra.
Mannkynssaga
Einræðið er liðið undir lok og samræðið tekið við.
Biblíusaga
Hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera.
Sjálfsævisaga
Ég, um mig, frá vöggu, til grafar.
Örsaga
Síðan tók Þormóður töngina og kippti á brott örinni. En þar voru á
krókar og lágu þar á tágar af hjartanu, sumar rauðar, sumar hvítar, og
er hann sá það mælti hann: „Vel hefir konungurinn alið oss. Feitt er
mér enn um hjartarætur.“
Síðan hné hann aftur og var þá dauður.
Lýkur þar frá Þormóði að segja.
Framhaldssaga
(Frh. á bls. 42)
Þjóðsaga
Þjóð meðal þjóða. - Glötuð þjóðsaga.
Smásaga
Tvísaga
Einu sinni var karl og kerling í koti sínu.
Einu sinni var karl og kerling í koti sínu.
Fornaldarsaga
Ár vas alda. Nokkru fyrr er upphaf sögu vorrar.
Lygasaga
Þessi saga er ósönn.
Flökkusaga
Margs verður vís sá sem víða ratar. Ef hann ratar.
Ástarsaga
Eigi leyna augu ef ann kona manni. Ástin er blind.
Margsaga
Sjá tvísaga og endurtakið. Oft.
Morðsaga
Geir finnur. Enginn finnur hann.
Útvarpssaga
Einu sinni var Útvarp Saga. Þar var engin útvarpssaga.
Íslendingasaga
Eru nú tveir kostir til og er hvorgi góður.
Sagan endalausa
Sjá margsaga. Endurtakið frá byrjun.
V