Vísbending


Vísbending - 21.12.2015, Page 17

Vísbending - 21.12.2015, Page 17
17 Neðanjarðarhugsunarháttur Svona neðanjarðarhugsunarháttur var þekktur meðal gömlu kommúnistanna. Fólk af kynslóð foreldra minna fór til náms austur til Moskvu undir dulnefni. Ótti við valdastéttina var útbreiddur á Íslandi og allar götur til okkar daga. Einar Olgeirsson talaði oft um að hitt eða þetta þyrfti að geyma vel og fáir mættu sjá, af því að hann óttaðist andstæðingana og að þeir kæmu höggi á okkar fólk, rækju fólk úr vinnu eða neituðu því um vinnu og svo framvegis. Það var eðlilegt miðað við það umsátursástand sem ríkti á kaldastríðs- tímanum. Morgunblaðið og Styrmir fengu upplýsingar um það sem var að gerast í Alþýðubandalaginu meðan átökin við Hannibal voru hvað hörðust og hann skrifar greinar sem blaðamaður um það sem var að gerast. Við töldum þá að hann hefði þetta innan úr fjölskyldunni, frá tengdafólki sínu, en hann hefur neitað því. Svo eftir að þessum kafla var lokið og Hannibal farinn úr Alþýðu- bandalaginu og Ólafur Ragnar fer að breiða út átakakenningu sína um innanflokksmál Alþýðubandalagsins þá fara mál aftur að leka inn í Morgunblaðið. Stundum birtust í blaðinu ótrúlega nákvæmar upplýsingar um það sem hafði verið rætt á fámennum fundum í útgáfufélagi Þjóðviljans. Fyrir vikið held ég því fram að Styrmir Gunnarsson hafi verið einn af mestu áhrifamönnum Alþýðubanda- lagsins um árabil og stend við það. Þar var fólk sem nýtti sér tengslin við Styrmi til þess að slást við okkur og þannig voru búnar til kenningar um flokkseigendafélag og bandamenn Einars Olgeirssonar og Moskvu. Áður en við varð litið, vorum við orðnir hluti af einhverjum veruleika með orðaleppum sem íhaldið bjó til og notaði í sínu stríði. Það var sárt að sjá félaga nota slíka umræðu til að koma höggi á okkur. Ameríska heimsveldið gerandi í íslenskum stjórnmálum Hér var háð stríð þar sem ameríska heimsveldið var gerandi í íslenskum stjórnmálum með óbeinum og beinum hætti. Þeir reyndu að halda því fram að við Alþýðubandalagsmenn værum með peninga frá Rússunum sem var náttúrulega lýgi og hreint kjaftæði. Ef einhver fékk pening frá Rússlandi voru það Bifreiðar og landbúnaðarvélar sem voru einn af máttarstólpum fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins. Völd Sjálfstæðisflokksins voru alls staðar og líka þarna. Þegar ég varð viðskiptaráðherra 34 ára gamall skrifaði ég grein um átökin og árásina á lýðræðið í Tékkóslóvakíu 1968. Þá komu til mín forustumenn í atvinnurekendasamtökunum, sem jafnframt voru í Sjálfstæðisflokknum, og ráðlögðu barninu í fullri vinsemd að skrifa ekki svona. Þeir voru að gæta hagsmuna þeirra fyrirtækja sem voru í viðskiptum við Sovétríkin. Margir töldu að þróunin í Tékkóslóvakíu myndi á endanum leiða til sósíalísks ríkis þar sem lýðræði væri í raun við völd. Þegar sú hreyfing var á bak aftur brotin með vopnavaldi urðu það fyrir mörgum ekki aðeins vonbrigði heldur ákveðin kaflaskil. Þaðan í frá var ekki hægt að gera ráð fyrir því að Sovétríkin eða neitt á þeirra vegum væru liðsmenn í baráttunni fyrir sósíalisma í heiminum. Fram að því héldu margir að það mætti bæta þetta þjóðskipulag en sú von brást árið 1968.“ Heimdallur stal ritgerðunum og frumkvæðinu frá okkur Nú liggur fyrir að margir sem fóru til náms austur fyrir tjald sáu með eigin augum hve slæmt ástandið var. Samt gengu þeir ekki fram fyrir skjöldu þegar heim kom og vöruðu við þessari þróun. Heldur þú að menn hafi í sumum tilvikum verið klemmdir milli tryggðar við flokkshreyfinguna heima og þess sem þeir höfðu upplifað á eigin skinni og þess vegna þagað í þágu flokksins? „Ég held að þetta hafi verið þannig að menn hafi viljað að hreyfingin leysti þetta með þeim. Ég held að menn hafi frekar viljað að flokkurinn breytti sínum áherslum og stefnumálum frekar en þeir persónulega. Mér virðist sem að það hafi að nokkru leyti tekist með því að slíta tryggðabönd við Sovétríkin, en á sama tíma halda í þá von sem menn sáu í þessari stjórnmálastefnu. Allt gerðist þetta í raun og veru 1968 og gerði sumum þessara manna, og okkur líka, kleift að starfa fyrir Alþýðubandalagið. Sín á milli skrifuðu margir námsmanna austan við tjald algerlega frábærar greinar og gagnrýni á þjóðskipulagið sem við blasti. Þessum bréfum og skýrslum lét Heimdallur stela og gaf út á bók sem hét Rauða bókin og er hið merkasta plagg og analýsa á ástandinu fyrir austan. Það er haft eftir Einari Olgeirssyni að hann vildi að þessum skýrslum yrði brennt og það var notað í auglýsingum. Ég held að Einari hafi fallið þyngra sú staðreynd að þessi bréf komust í hendur íhaldsins en sú gagnrýni sem í þeim fólst.“ Hefði ekki verið betra að þessi mál hefðu komið upp á yfirborðið með öðrum hætti en sem skotfæri í þessum skotgrafahernaði kalda stríðsins? „Sennilega hefði það verið betra. En svona er þetta stundum: Heimdallur stal ritgerðunum og frumkvæðinu frá okkur! Kerfið hrundi innan frá Horfandi yfir þetta svið er ljóst: Sovétríkin og þeirra kerfi hrundi aðallega af því að stefna þeirra í efnahagsmálum gekk ekki upp. Allsherjarmiðstýring leiðir til hruns. Þetta hafa þeir séð í Kína þar sem komið hefur verið á eins konar kapítalísku flokkseinræði þar sem flokkurinn ræður öllu, en efnahagslífið hefur þróast á kapítalískum forsendum. Undir það síðasta var austur-þýska stjórnin svo illa haldin efnahagslega að hún bauðst til að rífa niður múrinn gegn lánveitingum að vestan. Kerfið var hrunið innan frá. En hugsjónin um betra þjóðfélag sósíalisma, jafnréttis, lýðræðis og sjálfbærrar stefnu í efnahagsmálum, grænt þjóðfélag, er enn á sínum stað og verður alltaf. Og baráttan heldur áfram, því stéttabaráttan er í fullu gildi þar sem eru átök þeirra ríku og þeirra fátæku. Og svo ég leyfi mér nútíð í þessu fortíðarsamtali: Jöfnuður fer minnkandi – þar liggja ástæður þess að það er ófriðvænlegra í heiminum núna en lengi áður. Barátta fyrir jöfnuði er því barátta fyrir friði.“ Ólafur Ragnar bjó til átakakenningu sína um innanflokksmál Alþýðu- bandalagsins og þá fara mál aftur að leka inn í Morgunblaðið. V

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.