Vísbending


Vísbending - 21.12.2015, Qupperneq 23

Vísbending - 21.12.2015, Qupperneq 23
23 sem kaupmenn vildu ekki vera. Líkast til myndi breytingin leiða til stórhækkaðs kostnaðar við mjólkurdreifingu og minni vörugæða.viii Frumvarp um frjálsari mjólkursölu var ekki útrætt, en árið 1973 skipaði Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráðherra nefnd til þess að ræða fyrirkomulag sölunnar. Snemma árs 1976 lá fyrir stjórnarfrumvarp þar sem lagt var til að þeir kaupmenn gætu selt mjólk sem stæðust kröfur heilbrigðisyfirvalda. Frumvarpið var samþykkt sem lög frá alþingi um vorið. Mjólkursamsalan bjó sig undir að loka mjólkurbúðum sínum.ix En málinu var ekki lokið. Samtök gegn lokun mjólkurbúða efndu til undirskriftasöfnunar. Í texta mótmælaskjalsins var því lýst sem myndi taka við ef búðunum yrði lokað: 1. Verri þjónusta við neytendur. Útsölustöðum mun fækka. 2. Lakara vörueftirlit, eldri og lélegri vörur. 3. Útsöluverð mun hækka vegna hærri dreifingarkostnaðar. 4. 167 konur missa atvinnu sína og hafa enga tryggingu fyrir annarri atvinnu.x Í september 1976 afhentu samtökin stjórn samsölunnar undirskriftir rúmlega 17.000 manns. Farin var fjölmenn kröfuganga gegn lokuninni og haldinn baráttufundur í Austurbæjarbíói. Fundinum bárust stuðningsyfirlýsingar frá Kvennadeild Verkalýðsfélags Akraness, stjórn Stúdentaráðs, Arkitektafélaginu, Samtökum ungra kommúnista, Sókn, Rauðsokkahreyfingunni, þjóðfélagsfræðingum við Háskóla Íslands og Fylkingunni.xi Árið 1977, sama árið og Mjólkursamsalan lokaði flestum búðum sínum, fjölgaði útsölustöðum á mjólkurvörum á svæði hennar úr 173 í 202.xii Í viðtali við Alþýðublaðið ári eftir að mjólkurbúðunum í Reykjavík var lokað sagðist Stefán Björnsson forstjóri Mjólkur- samsölunnar ekki vita til þess að neinn væri óánægður með breyt- inguna.xiii Nokkuð fór tvennum sögum af atvinnumálum starfs- stúlkna í mjólkurbúðum. Sumar áttu erfitt með að fá vinnu við sitt hæfi. Aðrar urðu að sætta sig við erfiðari vinnu og verr borgaða en í mjólkurbúðunum.xiv En vorið 1978 sagði Hallveig Einarsdóttur for- maður Félags afgreiðslustúlkna í brauð og mjólkurbúðum, að betur hefði ræst úr atvinnuvanda kvennanna en hún hefði þorað að vona. Aðeins þrjár afgreiðslukonur hefðu tekið út fullar atvinnuleysis- bætur.xv Úrelt skipulag Ekki verður betur séð en að ávinningurinn af breytingunni hafi verið stjórnendum Mjólkursamsölunnar fullljós - að minnsta kosti þegar hún var í þann veginn að ná fram að ganga. Í greinargerð til Samtaka gegn lokun mjólkurbúða, sem samin var í september 1976, sagði stjórn samsölunnar að eftir að hvaða matvöruverslun sem er, sem stæðist kröfur heilbrigðisyfirvalda, gæti fengið mjólkursöluleyfi, yrði ,,ekki fjárhagsgrundvöllur fyrir rekstri Samsölubúðanna, enda ætti rekstur þeirra þá að vera óþarfur og eðlileg mjólkurdreifing tryggð á annan hátt.” Jafnframt sagði í greinargerðinni að ,,[a]thugun [hefði] ennfremur leitt í ljós, að við breytinguna [myndi] útsölustöðum mjólkur væntanlega fjölga.“ Alls ekki yrði fallist á að hreinlæti eða vörueftirlit myndi versna. Eftirlit yrði enn sem fyrr í höndum borgarlæknis.xvi Með öðrum orðum sparaði breytingin ekki aðeins fé að mati stjórnarinnar, heldur gætu neytendur líkast til sótt mjólkina á fleiri staði, auk þess sem kröfum um hreinlæti yrði ekki síður sinnt en áður. Hvers vegna lét Samsalan þá ekki kaupmenn um að selja mjólkina löngu fyrr? Skýringin gæti legið í því að bændur, sem eiga Mjólkursamsöluna, stjórna henni ekki beint. Samsalan er sjálfstætt fyrir- tæki og hagsmunir stjórnenda og eigenda fara ekki alltaf saman. Stjórnendur gætu til dæmis viljað hafa fyrirtækið sem stærst, í stað þess að stefna að sem mestri hagkvæmni í rekstri. Þegar fyrirtæki stækka vex virðing stjórnendanna og starfið verður skemmtilegra. Árið 1959 í mjólkurbúðinni við Laugaveg 162. Úr mjólkurbúðinni við Brekkulæk. Áttu enda? Krakkar úr hverfum Reykjavíkur notuðust við sömu aðferð, báðu blíðlega og brosandi um vínarbrauðsenda. Fjölmenn kröfuganga var farin gegn lo kun mjólkurbúða í lok september 1976 og birtist þessi mynd af þeim viðburði í Þjóðviljanum.

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.