Vísbending


Vísbending - 21.12.2015, Síða 40

Vísbending - 21.12.2015, Síða 40
40 Léttvægir í þjóðarsögunni Íslensk sagnaritun hófst á dögum Ara fróða. „Ef dæma skyldi eftir fróðleik sem í Íslendingabók er veittur virðast ekki líkur á því að nokkru sinni hafi verið víkingar á Íslandi. Víkingar eru innanstokksmunir úr sagnaskáldskap sem komst í tísku eftir daga Ara,“ skrifaði Halldór Laxness eitt sinn. Rétt er að Ari fróði nefnir víkinga ekki einu orði í Íslendingabók, fyrstu Íslandssögunni, sem rituð var snemma á 12. öld. Nær ritið þó frá landnáminu á 9. öld og fram til samtíma höfundarins, en það tímabil spannar víkingaöldina fyrrnefndu. Ekki er þó að efa að Ari fróði hefur heyrt um víkinga að fornu og nýju. Þeir koma fyrir í ýmsum gömlum kveðskap sem hann hlýtur að hafa þekkt. Kannski einnig í forneskjusögum sem á hans tíð voru sagðar fólki til skemmtunar, þótt þær hafi varla verið skráðar á bókfell á þeim tíma. Og vel má vera að víkingar hafi enn látið að sér kveða á dögum Ara, þegar siglt var meðfram ströndum Noregs, vestur Fóru víkingar ekki í víking? Útrásarmenn víkingaaldar „voru kallaðir víkingar og hernaður þeirra víking,“ segir í ágætri bók nýlegri, Söguþjóðin eftir Jónas Kristjánssonar. Óhætt er að segja að þetta sé ríkjandi skoðun sem menn hafa lengst af ekki efast um. Enda styðja ýmis dæmi þetta: „Hann hafði verit víkingur mikill inn fyrri hlut ævi sinnar, ok þá er hann var í víkingu, mætti hann skjaldmey einni, er Brynhildur hét,“ segir um Bryn-Þvara í Bósa sögu. Um Ingimund gamla segir í Landnámu að hann var „víkingur mikill og herjaði í vesturvíking jafnan.“ En þegar betur er athugað kemur í ljós að víkingar fornsagnanna eru yfirleitt alls ekki sömu mennirnir og fara í víking. Þýskur fræðimaður, Jana Krüger, hefur í nýlegri doktorsritgerð ‘Wikinger’ im Mittelalter (2008) sýnt fram á það með rækilegri rannsókn á texta rúnarista, fornkvæða og konungasagna að orðin víkingur og víking eru í norrænu að jafnaði notuð um tvo ólíka hópa sem gjarnan takast á í hernaði. Sambærileg rannsókn hefur ekki verið gerð á texta Íslendingasagna og fornaldarsagna eins og þörf er á, en í fljótu bragði virðist hið sama vera þar uppi á teningnum. Menn hafa áður tekið eftir því að stundum er eins og höfundar íslenskra fornsagna forðist að nota orðið víking um hernað ýmissa fornkappa utanlands. Gunnar á Hlíðarenda fer utan því hann vill „í hernað og afla sér fjár“ eins og segir í Njáls sögu. Helgi og Grímur Njálssynir eru í herferðum, um tíma með Kára Sölmundarsyni. Alls staðar taka þeir fé ófrjálsri hendi og fella saklausa menn, meðal annars konungssoninn á Mön. En höfundur sögunnar kallar þá hvorki víkinga né ferðir þeirra víkingu. Víðar í fornsögunum virðast höfundar gæta þess af fullri meðvitund að koma ekki víkingsnafni á kappa sína. Í Heimskringlu segir frá því þegar Ólafur Tryggvason, síðar Noregskonungur, fer á unga aldri í víking um Eystrasalt, Evrópulönd, til Englands og víðar. Þessum herferðum er lýst mjög á eina lund: hann drepur marga menn, brennir hús ofan af sumum, hirðir fé af fórnarlömbum sínum og snýr heim aftur. En Ólafur er samt ekki talinn víkingur. Sama er að segja um arftaka hans, Ólaf Haraldsson. Í Heimskringlu er hann látinn fara í víking 12 ára gamall. Því er lýst hvernig hann ferðast land úr landi með lið sitt, herjar á menn, vinnur sigra og fær mikið fé. Leikurinn berst meðal annars til Englands þar sem Ólafur berst við hlið Aðalráðs konungs. Eftir að hafa unnið Lundúni heldur hann til Kantaraborgar og vinnur hana einnig, drepur fjölda manna og brennir borgina. Illvirki vinnur hann einnig í Frakklandi. En aldrei er hann nefndur víkingur. Á bak við þetta kann að leynast einhver málsöguleg þróun orðanna sem þarf að rannsaka frekar. Viðhorf til víkinga og víkingar hafa án efa einnig verið að taka breytingum þegar fornsögurnar eru skráðar á 12., 13. og 14. öld. Er líklegt að þau hafi orðið nei- kvæðari með tímanum og gæti kristinna siðaskoðana æ meira þegar fram líða stundir Orðið víkingur virðist helst notað um sjóræningja og illvirkja sem liggja í leyni, fara aftan að mönnum og hafa engin markmið með gjörðum sínum önnur en að ræna og auðgast. Í víking fara aftur á móti kappar með göfugan ásetning um að vinna framaverk, efla sæmd sína og sinna og freista gæfunnar, en snúa síðan aftur til friðsamlegra lífshátta. víkingaöldinni og láta hana jafnvel ná fram á 13. öld. Verða þá Snorri Sturluson og Gissur jarl að víkingum! Fram undir lok 19. aldar fékk þessi almennari notkun orðsins víkingur lítinn byr á Íslandi og meðal íslenskra fræðimanna. Gamla hefðin var svo sterk. En svo skýtur orðinu víkingaöld upp kollinum, fyrst 1879 sýnist mér i fljótu bragði, og um svipað leyti var farið að nota samheitið víkingaskip um langskip og knerri formanna, jafnt kaupmanna sem sjóræningja, en fram að því var það sjaldan notað nema um sjóræningjaskip. Gauksstaðaskipið sem Norðmenn grófu upp úr fornum haugi árið 1880 olli hér þáttaskilum, og ekki síður sá viðburður að Norðmenn sigldu eftirlíkingu af skipinu þvert yfir Norður-Atlantshafið á heimssýninguna í New York árið 1893. Skipið var látið heita Víkingur. Þetta vakti mikla athygli á Íslandi. Hægt og hljótt hélt nýja hugtakið innreið sína í íslenskt mál. Dropinn holar steininn.

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.