Vísbending - 21.12.2015, Side 45
Um áramótin flytja síðustu fyrirtækin inn í Frelsisturninn,
dýrustu byggingu veraldar og þá hæstu á vesturhveli,
en 104 hæða byggingin teygir sig 541 metra upp í
háloftin syðst á Manhattan eyju.
Turninn rís þar sem tvíburaturnarnir stóðu fram að
hryðjuverkaárásunum þann 11. september 2001.
Nær strax eftir áfallið var ákveðið að byggja turn og
minnismerki á lóðinni. Hafist var handa við að hanna
bygginguna, en David Child, sá hinn sami og teiknaði
hæsta hús jarðar, Burj Khalifa, á heiðurinn af verkinu.
Verkið hófst í apríl 2006 og er nú að ljúka tæplega
tíu árum síðar með framúrkostnaði upp á milljarð
dollara. Upphafleg kostnaðaráætlun var upp á þrjá
milljarða dollara, en byggingin mun kosta rétt rúm-
lega fjóra milljarða dollara fullkláruð. Sú upphæð er
fjórum sinnum hærri en Hafnarstjórn New York og New
Jersey, eigendur nýja turnsins og áður tvíburaturn-
anna tveggja, fengu í tryggingarbætur fyrir þá báða.
Til þess að standa straum af byggingarkostnaðinum
hefur hafnarstjórnin hækkað brúar- og jarðganga-
gjöld að og frá Manhattan um helming.
Nú hefur Nýja-Jórvíkurborg fengið enn eitt mannvirkið
að dáðst að. Frelsisturninn.
PÁLL STEFÁNSSON
RITSTJÓRI