Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2012, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2012, Síða 2
Fárveik vegna myglusvepps 2 Fréttir 24. október 2012 Miðvikudagur F ljótlega eftir að við fluttum fór ég að finna fyrir einkennum, kannski 2–3 vikum eftir að við fluttum inn. Fyrst tengdi ég þetta bara við álag en svo fóru einkennin alltaf að verða meiri og meiri og ég varð veikari. Það var þó ekki fyrr en sonur minn veiktist líka að ég fór að hugsa hvort þetta gæti tengst húsinu en hans einkenni voru lík þeim sem fyrrverandi íbúi í húsinu hafði verið með,“ segir Alda Björg Lár­ usdóttir sem veiktist mikið af völdum myglusvepps stuttu eftir að hún flutti ásamt fjölskyldu sinni. Fjölskyldan rak gistiheimili rétt fyrir utan Egilsstaði og íbúðarhúsið, sem er timburhús, voru þau með á leigu. Læknar ráðþrota Alda hafði ekki kennt sér meins fyrr en hún flutti inn í húsið og það tók nokkra mánuði fyrir hana að finna orsakavald veikindanna. Í fyrstu grun­ aði hana ekki að veikindin gætu verið af völdum myglusvepps. Níu ára sonur hennar veiktist líka mikið en var með önnur einkenni en móðir hans. Eig­ inmaður hennar var hins vegar al­ gjörlega einkennalaus og því var erfitt í fyrstu fyrir þau að finna út af hverju veikindin stöfuðu. Læknar voru ráð­ þrota og mæðginin voru rannsökuð í bak og fyrir án þess að ástæða veikind­ anna fyndist. Öndunarerfiðleikar Fyrstu einkennin sem Alda fór að finna fyrir voru öndunarerfiðleikar. „Ég fann oft fyrir því að ég náði ekki andanum. Mér fannst eins og hálsinn lamaðist og ég náði ekki kyngja. Ég náði svo ekki að draga inn andann. Þetta varði mjög stutt í einu, kannski 2–3 sekúndur í senn. Síðan fékk ég mjög skringilegan hjartslátt, það var eins og það væru aukaslög og takturinn ruglaðist í smá stund. Þetta fór að hafa áhrif á nætur­ svefninn og ég svaf illa og leið mjög illa. Öndunarerfiðleikarnir og hjart­ sláttaróreglan lét sig ekki vanta á næt­ urnar og ég vaknaði nánast á hverri nóttu með drukknunartilfinningu. Ég var komin í vítahring og dauðkveið því að fara að sofa vegna þessa, en var þó alltaf mjög orkulaus og þreytt. Á þessu hafði gengið í nokkrar vikur en læknarnir fundu ekkert að mér og ég fór að ímynda mér allt mögulegt – að ég væri að missa vitið, að ég væri að fá hjartaáfall og svo framvegis. Ég vakti manninn minn ítrekað á næturnar og bað hann að vaka með mér, svo bara grét ég og mér leið illa,“ segir Alda. Ýmis önnur einkenni hrjáðu Öldu. Til dæmis dofnaði hún upp í vinstri hluta líkamans, þá aðallega í andliti og niður í fingur. Fyrst varði dofatilfinn­ ingin í stuttan tíma í senn en varð svo stöðug innan nokkurra vikna. Einnig fékk hún „skringilegan fjörfisk“ undir hársvörðinn og við gagnaugu, eins og hún lýsir því, höfuðverk, mikinn þurrk í hálsi og munni, mikinn svima, ójafn­ vægi og minnisleysi. Hún varð líka viðkvæm fyrir mikilli birtu og var farin að ganga mun oftar með sólgleraugu vegna þess. Hún varð einnig viðkvæm fyrir ýmiss konar lykt og sonur henn­ ar líka. Grét og öskraði Einkenni Davíðs sonar hennar voru ólík hennar. „Okkur virtist sem hann fengi eitthvað í líkingu við maga­ krampa. Viðbrögð hans voru mjög öfgakennd, hann fékk þetta oftast á kvöldin, en með tímanum fór hann að vakna á nóttunni líka og einstaka morgnar voru erfiðir. Hann svitn­ aði köldum svita, ef hann stóð þegar verkirnir hófust gat hann alls ekki lagst eða sest, ef hann sat gat hann ekki staðið eða legið. Hann vildi alls ekki breyta um stellingu og stífnaði upp. Hann vildi alltaf fara í kulda, sem var oftast inni á baði því þar var opnað vel út. Þar stóð hann og grét og stund­ um öskraði hann. Við máttum ekki snerta hann, en samt kallaði hann á okkur „mamma … pabbi … hjálpið mér“, en við gátum ekkert gert nema bíða, standa hjá honum og reyna að segja honum að þetta væri að verða búið. Ekki máttum við knúsa hann og ekki gátum við læknað hann. Þetta er það ömurlegasta sem ég hef upplifað, og við bæði sem foreldrar. Hann fékk að auki mikla verki í fætur, í leggi og hné, og var þurr í hálsi og munni,“ seg­ ir Alda og augljóst að ástandið hefur tekið á fjölskylduna. Fyrrverandi íbúi veiktist líka Alda leitaði til lækna á Egilsstöðum eftir hjálp, bæði þegar hún fór fyrst að kenna sér meins og svo með Dav­ íð eftir að hann veiktist. Þeir læknar sem hún talaði við töldu ekki líkur á að þetta gæti stafað af einhverju í hús­ inu. „Það voru allt önnur einkenni hjá okkur mæðginum og þess vegna vildu læknar ekki tengja þetta saman. Davíð var sendur í blóðtöku og skoð­ aður í bak og fyrir. Barnalæknir taldi hann vera með óþol og mælti með að hveiti og mjólkurvörur yrðu tekn­ ar úr mataræði hans. Þessi ráð læknis­ ins minntu Öldu á það sem sagt hafði verið við fyrrverandi íbúa hússins sem glímt hafi við heilsubrest. „Það sem læknirinn sagði um Davíð, var nánast orðrétt það sem konan sagði mér að læknirinn hefði sagt við hana. Hún tók mataræðið sitt vel í gegn og fannst sér stundum líða betur, en leið þó mest­ megnis illa. Undir lok veru þeirra í húsinu var hún mikið heima vegna veikinda og leið virkilega illa. Henni batnaði ekki fyrr en hún flutti úr hús­ inu,“ segir Alda. Allt leit vel út Það fór að sækja á Öldu sterkari grunur um að hér gæti verið um myglusvepp að ræða. Hún las sér til á netinu og í leit sinni fann hún síð­ una husogheilsa.is sem Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir líffræðingur heldur úti. Þar var listi yfir þau einkenni sem fólk gæti fundið fyrir væri það veikt af völdum myglusvepps. „Það var ótrú­ legt hve mörg einkenni pössuðu við hjá okkur, bæði hjá mér og stráknum, en það voru listar yfir einkenni hjá fullorðnum og börnum.“ Fjölskyldan ákvað að prófa að flytja úr húsinu tímabundið til þess að athuga hvort það myndi slá á ein­ kennin. „Við fluttum yfir í næsta hús en tókum bara með okkur okkar dót,“ segir hún. Þau fundu ekki mikinn mun og Alda reyndi að útiloka að um myglusvepp væri að ræða. Þetta hlyti bara að vera eitthvað annað en hún vissi þó ekki hvað. Hugsunin var þó alltaf til staðar og á endanum fengu þau Sylgju til að koma og skoða hús­ ið sem þau bjuggu í en enga sýnilega myglu var þar að sjá nema myglu utan á einu vatnsröri í þvottahúsinu. „Hún kom austur til okkar til að rakamæla í veggjum í húsinu. Þegar þarna var komið sögu var ég frekar komin á það að losa mig við þessa grillu að mygla væri aðalvandamálið. Það var engin raka­, fúkka­ eða myglulykt í húsinu, allt var nýmálað og fínt, og húsið leit vel út, að undanskildu baðherberginu sem var orðið lúið. Þegar Sylgja kom mældi hún raka og sá að einhver raki var í kringum sturtubotn og í vegg við vaskinn. Hún ráðlagði okkur að athuga inn í veggi hvort væri að sjá svarta myglubletti, og ef svo væri þyrfti að laga það og setja ný efni. Hún sá að það var smá mygla í gluggum en ekk­ ert sem hún taldi óeðlilegt,“ segir Alda. Gróin fylgdu með Þau sögðu Sylgju frá því að þau hefðu flutt úr húsinu en ekki fundið mik­ inn mun. „Þá spurði hún okkur hvort við hefðum skilið dótið okkar eftir í húsinu. Við gerðum það ekki held­ ur tókum bara sængurnar okkar og föt með. Það áttum við ekki að gera heldur skilja allt eftir,“ segir Alda, en það er vegna þess að sveppagró geta Eitrunar- einkenni Einstaklingsbundið hvaða einkenni koma fram og hversu sterkt. Ef þessi einkenni koma fram án eðlilegra skýringa þá er mögulegt að um eitrun af völdum myglusvepps sé að ræða. Fullorðnir Einkenni – koma ekki öll fram – einstaklingsbundið n Þreyta, eða sífelldur höfuðverkur, stundum eins og mígreni. n Ennisholubólgur, óþægindi og síendurteknar sýkingar. n Hósti, þurrkur eða sviði í hálsi, eða sviði í lungum, hrotur. n Tíð þvaglát, tíður niðurgangur eða aðrar meltingartruflanir. n Sjóntruflanir, minnistruflanir, snertiskyn, doði og dofi í útlimum,ljósnæmi, rafmagnsviðkvæmni. n Jafnvægistruflanir. n Kvíði, þunglyndi, svefnvandamál. n Áreiti í slímhúð – öndunarfæri og melting. n Þroti, bjúgur. n Húðvandamál, þurrkur eða útbrot. n Liðverkir, stingir, eða aðrir óútskýrðir verkir. n Fæðuóþol, óþol gegn t.d. hnetum, brauði, msg, mjólkurvörum eða öðru. n Þyngdaraukning eða þyngdartap án skýringa. n Einkenni eins og hjá börnum. Börn Einkenni – koma ekki öll fram – einstaklingsbundið n Nefrennsli, hitasveiflur, eyrnaverkur, þrýstingur í eyrum (eins og hella). n Hósti, astmi, lungnabólga, bronkítis. n Höfuðverkur eða einkenni frá ennisholum. n Útbrot (líkt exem), þurr húð, roði í kinnum, rauðir flekkir í andliti, þurrir blettir eða sprungin húð, kláði. n Sveppasýking á bleyjusvæði eða annars staðar. n Tíðar sýkingar, RS og bakteríur. n Verkir í fætur eða liðamót – oft framan á sköflungi eða í hnjám. n Magakrampi, meltingartruflanir, niðurgangur eða harðlífi. n Óróleiki, athyglisbrestur og einkenni ofvirkni, einbeitingarskortur, skapbrestir. n Í slæmum tilfellum hægist á þroska og einkenni frá taugakerfi koma fram. n Fæðuóþol t.d. gegn mjólkurvörur o.fl. HEiMiLd: HusoGHEiLsA.is Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Fárveik Mæðginin Alda og Davíð voru fárveik af völdum myglusvepps. Mörður vill þriðja sætið Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, er í framboði við flokksval flokksins í Reykjavík og óskar eftir þriðja sæti í kjörinu. Það jafngildir öðru sæti á fram­ boðslista flokksins í Reykjavíkur­ kjördæmi norður eða suður í al­ þingiskosningunum í apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Mörður sendi frá sér. „Ég býð mig fram til þjón­ ustu við Reykvíkinga í samræmi við stefnu jafnaðarmanna,“ segir Mörður í tilkynningunni. „Við eig­ um að halda áfram að byggja upp samfélag þar sem velferð borgar­ anna er tryggð, þar sem atvinnu­ líf er fjölbreytt og öflugt, þar sem jöfnuður og jafnrétti kynja ein­ kennir samfélagsgerðina og græn­ ar áherslur móta atvinnustefnu, landnýtingu og daglegt líf. Ég er líka maður mennta og menningar, Evrópusamstarfs og þjóðlegrar hollustu.“ Mörður sat á þingi fyrir Sam­ fylkinguna í stjórnarandstöðu 2003–2007 og svo aftur frá 2010. „Fyrir kosningarnar í vor þarf Samfylkingin að kynna skýra framtíðarsýn í anda jafnaðar­ manna og sannfæra landsmenn um að við leggjum okkur í verkin af heilindum og heiðarleika,“ segir Mörður í tilkynningunni og bætir að lokum við: „Ég er reiðubúinn að taka þátt í því verki og legg þar fram reynslu mína, hugmyndir, krafta og trúmennsku.“ Greiðslukortum stolið í Bláa lóninu Lögreglan á Suðurnesjum fékk á mánudag tilkynningu um þjófn­ að úr baðskáp í Bláa lóninu. Úr honum hafði verið stolið tveim­ ur greiðslukortum í eigu erlends baðgests. Í ljós kom að umræddur gestur átti í einhverju basli með að læsa skápnum, en taldi sig þó hafa tekist það áður en hann fór út í lónið. Svo reyndist þó ekki vera. Gesturinn hafði þá þegar sam­ band við banka í heimalandi sínu og lét loka kortunum, þannig að sá óprúttni aðili sem þarna var að verki hafði ekki erindi sem erfiði. Fimm reynd- ust ölvaðir Rúmlega tvö hundruð ökumenn voru stöðvaðir í Reykjavík um helgina í sérstöku umferðar­ eftirliti lögreglunnar. Fimm þeirra reyndust undir áhrifum áfeng­ is og/eða fíkniefna og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Einum til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að við­ komandi hafði neytt áfengis en var þó undir refsimörkum. Eftirlitið fór fram í miðborginni og við eina af verslunum ÁTVR í austur­ borginni. n Alda og sonur hennar veiktust alvarlega vegna myglu í íbúðarhúsi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.