Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2012, Side 4
Ríflega 51 milljaRði
lýst í þRotabú sunds
Ekki gripið til aðgerða
n Cocoa Puffs-morgunkorn frá Bandaríkjunum leyfilegt á Íslandi
H
eilbrigðiseftirlitið ætlar ekki að
grípa til frekari aðgerða varð-
andi sölu verslunarinnar Kosts
á Cocoa Puffs-morgunkorni.
Ástæðan fyrir því að húsleit var fram-
kvæmd fyrr á árinu vegna sölu Cocoa
Puffs sem innflutt er frá Bandaríkjun-
um var þráavarnarefni sem heitir BHT
en samkvæmt aukaefnareglugerð er
það ekki leyft í morgunkorni. Þetta
kemur fram í svari Guðmundur H.
Einarssonar, framkvæmdastjóra Heil-
brigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópa-
vogssvæðis, en hann segir einnig að
það sé þó ekki óleyfilegt að selja um-
rætt morgunkorn.
„Matvælastofnun komst að þeirri
niðurstöðu að efnið væri leyfilegt
samkvæmt sérstöku ákvæði í reglu-
gerðinni um yfirfærslu,“ segir Guð-
mundur. Hann segir að það þýði að ef
tiltekið aukaefni er leyfilegt í hráefni
sem notað er í fullunna vöru þá megi
efnið vera í fullunni vörunni. „Umrætt
,,Cocoa Puffs“ er því heimilt að hafa á
markaði hér á landi ef varan uppfyll-
ir aðrar reglur sem um hana gilda, s.s.
um merkingar,“ segir hann enn fremur
í svarinu.
Þetta stemmir við það sem Jón
Gerald Sullenberger, verslunarmaður
í Kosti, sagði í samtali við blaðið á
mánudag. Þá sagði hann að það eina
sem hann hafi þurft að gera til að fá
að flytja inn morgunkornið væri að
merkja það sérstaklega. „Við tókum
þá ákvörðun að halda áfram að flytja
inn amerískt Cocoa Puffs og setja á
merkingu um að það væri erfðabreytt
þannig að neytandinn gæti valið sjálf-
ur,“ sagði Jón Gerald sem sagði mikla
eftirspurn vera eftir Cocoa Puffs frá
Bandaríkjunum. Neytendur segi að
mikill bragðmunur sé á Cocoa Puffs-
morgunkorni sem flutt er inn frá
Bandaríkjunum og því sem flutt er inn
í gegnum Nathan & Olsen, umboðsað-
ila Cocoa Puffs á Íslandi, frá Evrópu. n
adalsteinn@dv.is
4 Fréttir 24. október 2012 Miðvikudagur
Leyfilegt Heilbrigðiseftirlitið segir að
leyfilegt sé að selja Cocoa Puffs-morgun-
korn frá Bandaríkjunum þrátt fyrir að það
innihaldi óleyfilegt þráavarnarefni.
Gjaldþrot Sævars Jónssonar:
Kaupþing í Lúx
tapaði á Sævari
Stærsti kröfuhafinn í þrotabú Sæv-
ars Jónssonar skartgripasala var
félagið Pillar Securitisation S.a.r.l.
Um er að ræða dótturfélag kröf-
uhafa Kaupþings í Lúxemborg.
DV sagði frá því í gær að kröfu-
hafar hefðu þurft að afskrifa rúm-
lega 230 milljónir króna vegna
persónulegs gjaldþrots Sævars
sem kenndur er við verslunina
Leonard. Sævar var tekinn til
gjaldþrotaskipta í febrúar 2010 en
engar eignir fundust í búinu sam-
kvæmt tilkynningu um skiptalok í
Lögbirtingablaðinu á mánudag.
DV fékk svo þær upplýsingar
hjá skiptastjóra þrotabúsins á
þriðjudag að skiptabeiðandi og
stærsti kröfuhafinn hafi verið Pill-
ar Securitisation sem hefur því
þurft að taka á sig stærsta skellinn
vegna gjaldþrotsins.
Eins og fram kom á DV.is
á mánudag heldur Sævar þó
Leonard-verslununum og ný-
byggðu glæsihýsi sínu í Garðabæ
þar sem reksturinn og húsið eru
skráð á kennitölu eiginkonu hans.
Þóttist hafa
lent í árekstri
Árekstur varð milli tveggja bíla í
Keflavík um helgina. Ökumaður
annars bílsins tók sprettinn og lét
sig hverfa af vettvangi. Skömmu
síðar hringdi maður í lögregluna
á Suðurnesjum og kvaðst vera sá
brotthlaupni. Lögregla hafði hins
vegar grunsemdir um að hann
væri að taka á sig sök annars
manns. Í tilkynningu frá lög-
reglunni á Suðurnesjum kemur
fram að haft hafi verið samband
við hinn grunaða en hann neitað
að hafa verið á staðnum, hvað þá
að hafa orðið valdur að umferð-
aróhappi. Síðan hætti hann að
svara í símann. Þriðji maðurinn,
eigandi bílsins, hafði samband
við lögreglu til að nálgast bíl sinn.
Hann sagðist hafa lánað hlaupa-
garpinum bílinn. Honum var bent
á að sá sem ber ljúgvitni eigi yfir
höfði sér kæru og skelfdist hann
þá mjög. Rannsókn málsins er í
gangi.
R
íflega 51 milljarðs króna
kröfum var lýst í þrota-
bú eignarhaldsfélagsins
IceCapital, áður Sunds. Þetta
segir skiptastjóri félagsins,
Ómar Örn Bjarnþórsson. Kröfulýs-
ingarfrestinum í búið lauk fyrr á ár-
inu. Ómar segir að nú þegar hafi ein-
hverjum af kröfunum verið hafnað.
Hann segir ekki fyrir liggja hversu stór
hluti krafnanna verði samþykktur.
Eignastaða IceCapital liggur ekki fyr-
ir en Ómar segist reikna fastlega með
því að einhverjar eignir séu í búinu.
64 milljarða skuldir
Félagið var í eigu Gunnþórunnar
Jónsdóttur, eftirlifandi eiginkonu Óla
Kr. Sigurðssonar í Olís, sonar hennar,
Jóns Kristjánssonar, og dóttur henn-
ar, Gabríelu Kristjánsdóttur. Fram-
kvæmdastjóri félagsins var Páll Þór
Magnússon. Heildarskuldir Sunds og
tengdra félaga námu 64 milljörðum
króna við bankahrunið samkvæmt
skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is. Eignarhaldsfélög tengd Sundi fjár-
festu meðal annars í hlutafé í öllum
íslensku viðskiptabönkunum þrem-
ur á árunum fyrir hrunið. Félög þeim
tengd áttu einnig bifreiðaumboðin
Bifreiðar og landbúnaðarvélar og
Ingvar Helgason en þau voru keypt
fyrir metfé árið 2007.
Deloitte rannsakar
Ómar segir að bókhald IceCapi-
tal sé til rannsóknar hjá endurskoð-
endafyrirtækinu Deloitte. Hann segir
bókhaldið hafa verið mjög umfangs-
mikið. „Það er búið að vera þar í
nokkra mánuði og er von á niður-
stöðu á næstunni. Þegar rannsóknin
liggur fyrir munum við sjá yfirlit yfir
útistandandi kröfur, hvort einhverj-
ar riftanlegar ráðstafanir eru í bú-
inu og eins hversu miklar eignir það
á í formi skuldabréfa og annað slíkt.
Bókhald félagsins var mjög umfangs-
mikið og tekur sinn tíma að fara í
gegnum það.“
Skiptastjórinn segir að hann
hafi vitneskju um félög sem skuldi
IceCapital peninga: „Það eru félög
sem skulda IceCapital peninga. En
þó að þau skuldi félaginu peninga
þá er ekki víst hvort þessir peningar
innheimtast,“ segir Ómar og bætir
því við, aðspurður, að á þessu stigi
málsins vilji hann ekki greina frá því
hvaða félög um ræðir.
Ómar segir rannsókn Deloitte á búi
IceCapital hafa verið gerða með vitund
og vilja skiptabeiðanda, Arion banka.
Riftunarmál höfðuð
Ómar segir aðspurður að ómögulegt
sé að segja til um hvenær skiptum á
IceCapital ljúki vegna þess að rann-
sóknarskýrslan frá Deloitte liggi ekki
fyrir. „Það fer allt eftir því hver niður-
staðan úr þessari skýrslu verður, með-
al annars hvort farið verði í riftunarmál
og annað slíkt. Málaferli af þeim toga
munu tefja skiptin á búinu, segir Ómar.
Skiptastjóri þrotabús eignar-
haldsfélagsins IceProperties, sem
var í eigu Sunds/IceCapital, hefur
stefnt Páli Þór Magnússyni, fyrr-
verandi eiganda félagsins, vegna
færslu á tíu fasteignum út úr fé-
laginu eftir efnahagshrunið 2008.
DV greindi frá þessu máli fyrr á ár-
inu. Fasteignirnar, meðal annars
Hressingarskálinn svokallaði í Aust-
urstræti og húsnæði í Kringlunni,
voru seldar út úr IceProperties og
til IceCapital/Sunds án endurgjalds
þann 20. október, 11 dögum eftir fall
Kaupþings. Ómar segir að IceCapi-
tal/Sund sé aðili að því máli.
Þess vegna liggur fyrir að
IceCapital/Sund tók við fasteign-
um frá IceProperties eftir hrun.
Frá IceCapital fóru fasteignirn-
ar yfir í eignarhaldsfélag sem heit-
ir Fasteignafélagið okkar. Félag-
ið er í eigu eignarhaldsfélagsins
Pluma ehf. sem aftur er í eigu Páls
Þórs Magnússonar. Heildarverð-
mæti fasteignanna var um 870 millj-
ónir króna samkvæmt ársreikningi
IceProperties fyrir árið 2007. Eign-
irnar voru hins vegar seldar út úr
IceProperties án endurgjalds, líkt
og áður segir. Byggir málarekstur
IceProperties á því að um gjafagern-
ing hafi verið að ræða þar sem ekk-
ert endurgjald hafi komið fyrir fast-
eignirnar. Af þessu að dæma má
ætla að Fasteignafélagið okkar hafi
heldur ekki greitt fyrir fasteignirnar
þegar þær voru keyptar af IceCapi-
tal/Sundi. Þetta gæti bent til að
IceCapital/Sund gæti þurft að höfða
riftunarmál. n
n Deloitte rannsakar bókhald huldufélagsins Sunds n Von á niðurstöðu
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Umfangsmikið bókhald
Skiptastjóri IceCapital segir að
bókhald félagsins sé mjög um-
svifamikið. Framkvæmdastjóri
félagsins var Páll Þór Magn-
ússon og Jón Kristjánsson var
einn af eigendunum.
„Bókhald félagsins
var mjög umfangs-
mikið og tekur sinn tíma
að fara í gegnum það