Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2012, Side 6
„Eðlilegar gengisvarnir“
n Björgólfur Thor Björgólfsson sver af sér stöðutöku
B
jörgólfur Thor Björgólfsson
fjárfestir segir að móðurfélag
Landsbankans, Samson, hafi
stundað „eðlilegar gengisvarnir“
á árunum fyrir hrun. Í síðasta tölublaði
DV var fjallað um gengisvarnir Samson
á árunum 2007 og 2008 þar sem fram
kom að þessar varnir hafi verið svo
miklar að um stöðutöku gegn krónunni
hafi verið að ræða. Meðal annars kom
fram í greininni að félagið hefði tapað
tæplega 16 milljörðum króna árið 2007
vegna þess að krónan hélst sterkari en
stjórnendur félagsins töldu og að nærri
19,5 milljarða hagnaður hefði verið á
fyrstu sex mánuðum ársins 2008 þegar
krónan hrundi í verði. Í báðum tilfell-
um var tapið og hagnaðurinn sem um
ræddi afleiðing af gengisvörnum fé-
lagsins sem Samson hafði gert með af-
leiðusamningnum.
Björgólfur Thor er hins vegar
ósáttur við þessa túlkun. Athugasemd
hans er birt orðrétt hér fyrir neðan:
„Í grein DV á mánudag 22. október,
þar sem eðlilegar gengisvarnir voru
ítrekað kallaðar stöðutaka gegn krón-
unni, studdist blaðamaður við rangar
forsendur við útreikninga sína.
Gengisvarnir Samson náðu há-
marki í árslok 2007 og náðu þá til um
75% af eigin fé félagsins, að teknu tilliti
til þáverandi markaðsverðs eignarhluta
Samson í Landsbankanum.
Á árinu 2008 fór eigið fé Samson
lækkandi vegna lækkandi hlutabréfa-
verðs. Félagið dró þá úr gengisvörnum
til samræmis, keypti krónur og seldi
evrur. Þrátt fyrir kaup Samson á krón-
um lækkaði gengi krónunnar skarpt.
Þetta voru réttnefndar gengisvarn-
ir en ekki staða gegn krónunni. Eignin
var í íslenskum krónum en lánin voru í
erlendum myntum. Að hluta til var það
vegna þess að eigendur Samson vildu
fjármagna félagið að stórum hluta er-
lendis, en ekki í íslenskum bönkum,
og erlendir bankar lánuðu ekki í krón-
um. Þetta sést berlega þegar skoðað
er hverjir voru kröfuhafar Samson þar
sem íslensku bankarnir voru í minni-
hluta.“ n ingi@dv.is
6 Fréttir 24. október 2012 Miðvikudagur
V
erktakafyrirtækið Hanza-
eignir, sem meðal annars var
í eigu fjárfestanna Brynjars
Harðarsonar og Róberts Me-
lax, stefnir í tæplega sextán
milljarða króna gjaldþrot. Þetta kem-
ur fram í ársreikningi félagsins, sem í
dag heitir Laugarakur, fyrir árið 2011.
Fyrirtækið byggði fjölbýlishús með um
300 íbúðum á Arnarneshæð í Garðabæ
á árunum fyrir hrun. Félagið var fjár-
magnað af Glitni sem átti 35 prósenta
hlut í félaginu á móti nokkrum fjárfest-
um. Miðengi, dótturfélag Íslandsbanka,
tók félagið yfir eftir hrunið 2008. Stærsti
hluthafi Hanza-eigna, eignarhalds-
félagið Hanza-hópurinn var tekið til
gjaldþrotaskipa fyrr á árinu.
Þekktir hluthafar
Eigendur Hanza-hópsins voru
eignarhaldsfélög í eigu Róberts Melax,
sem var einn af stofnendum lyfjaversl-
unarinnar Lyfju, Brynjars Harðarson-
ar, fyrrverandi handboltakappa, Dav-
ids Ball, bresks lögmanns, og Guðna
Bergssonar, lögmanns og fyrrverandi
fótboltamanns. Þessir menn sátu allir
í stjórn félagsins auk Sigrúnar B. Þor-
grímsdóttur.
Einstaklingar úr sama hópi komu
einnig að öðrum fasteignafélögum á
Íslandi og erlendis fyrir hrunið, með-
al annars Valsmenn ehf. og City Center
Properties sem keypti fasteignir í Nor-
egi með fjármögnun frá Glitni árið
2007.
Rekstrarhæfið brostið
Í skýringu í ársreikningnum segir að
rekstrarhæfi félagsins sé brostið og
að félagið geti ekki staðið við skuld-
bindingar sínar: „Líkt og fram kemur í
skýrslu stjórnar er rekstrarhæfi félags-
ins brostið. Tap varð af rekstri félagsins
að fjárhæð 1.776 milljónir á árinu og
er eigið fé neikvætt um 15,9 milljarða.
Ljóst er að félagið getur ekki staðið við
skuldbindingar sínar. Stjórnendur telja
líklegt að félagið verði tekið til gjald-
þrotaskipa á árinu 2012.“
Segir bankann hafa blekkt
Brynjar Harðarson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Hanza-eigna, segir að
Glitnir hafi fengið hluthafa Hanza-
hópsins til að koma inn í félagið á
móti bankanum eftir að bankinn tók
þær af fyrri eiganda, eignarhaldsfé-
laginu Phoenix. „Að nafninu til eign-
uðumst við 65 prósent í þessu. Þetta
er mjög löng og flókin saga. Fljótlega
kom í ljós að þetta leit allt öðrvísi út en
bankinn hafði sagði okkur. Skuldirnar
voru miklu meiri en þeir sögðu okkur,
til dæmis voru ógreidd gatnagerðar-
gjöld upp á hálfan milljarð og fjár-
magnskostnaður var miklu meiri en
talið var. Þetta endar örugglega í stóru
gjaldþroti.“
Brynjar segir hluthafana í Hanza-
eignum ekki hafa lagt fram eiginfjár-
framlag í viðskiptunum heldur hafi
bankinn lánað þeim í formi skulda-
bréfs. Hann segir að bankinn hafi tek-
ið veð í byggingarreit sem félagið átti
í Hafnarfirði og að bankinn hafi síð-
an leyst þá eign til sín. „Á endanum
töpuðum við heilmiklu á þessu. Þetta
var gjörsamlega vonlaust allt frá ár-
inu 2007. En bankinn vildi ekki taka
á neinu því þá hefði það komið niður
á hlutabréfaverðinu hjá þeim. Saga
þessa fyrirtækis er að mörgu leyti
saga hrunsins í hnotskurn: Ljóst var
að íbúðaverðið var allt af hátt en það
mátti ekki lækka verðið því það hefði
komið niður á eignasafni bankans,“
segir Brynjar.
546 milljóna eignir
Félagið á einungis 546 milljóna króna
eignir á móti skuldum sem nema 16,5
milljörðum króna. Afskriftir vegna fé-
lagsins munu því nema um sextán
milljörðum króna. Í ársreikningi fé-
lagsins segir að langtímaskuldirn-
ar við Íslandsbanka nemi tæpum 11
milljörðum króna, skuldir við Íbúða-
lánasjóð nema tæplega 153 milljón-
um króna og skuldir við aðra lánveit-
endur tæpum 800 milljónum.
Þar að auki eru skammtímaskuld-
ir inni í félaginu sem nema meira en 4
milljörðum króna. Stærsti hluti þeirr-
ar skuldar, tæpir fjórir milljarðar, er
vegna framvirkra gjaldmiðlaviðskipta
sem félagið stundaði við Glitni árið
2008. „Meðal skammtímaskulda er
skuld við Glitni Banka hf. að fjárhæð
3.947 milljónir króna sem mynd-
aðist vegna samninga um framvirk
gjaldmiðlaviðskipti sem Laugarakur
ehf. gerði við Glitni Banka hf. á ár-
inu 2008. Samningarnir gjaldféllu á
uppgjörsdegi í október 2008, og eru
skuld í íslenskum krónum frá þeim
tíma sem ber dráttarvexti.“ Félagið
stofnaði því einnig til skulda sem ekki
verða beinlínis raktar til fasteignavið-
skipta. n
n Fasteignafélagið Hanza-eignir stefnir í gjaldþrot
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Skilja eftir Sextán
milljarða Skuldir
Einn eigandinn Einn af
eigendum Hanza-eigna var
Róbert Melax, fjárfestir sem
meðal annars stofnaði Lyfju
á sínum tíma. Félagið skuldar
rúma 16 milljarða króna.
Tókust á
um fargjald
Leigubílstjóri og tveir farþegar tók-
ust harkalega á í Reykjanesbæ á
dögunum og þurfti lögreglan að
skakka leikinn.
Fram kemur í tilkynningu frá
lögreglu að leigubílstjórinn hefði
sagt að túrinn myndi kosta um
sjö þúsund krónur. Síðan sagðist
hann hafa mismælt sig, því gjaldið
yrði ekki ofangreind upphæð
heldur 10.000 krónur. Þegar kom-
ið var á ákvörðunarstað krafði
hann svo farþegana um 12.500
krónur samkvæmt gjaldmælin-
um. Farþegarnir buðu þá 10.000
sem bílstjórinn tók og vildi að þeir
borguðu sér tvö þúsund og fimm
hundruð krónur til viðbótar.
Þá brugðust þeir illa við og
vildu þá fá þrjú þúsund krónur til
baka frá bílstjóranum, þannig að
fargjaldið yrði sjö þúsund krón-
ur eins og upphaflega hefði verið
samið um. Lögregla benti viðkom-
andi á að ef yrðu eftirmál af þess-
um flókna ágreiningi væri hægt
að leggja fram kæru á næsta virka
degi á næstu lögreglustöð.
Búnaður til
snjóbræðslu
verður lagaður
Nú í vikunni verður unnið að við-
gerð á snjóbræðslu og hellulögn
á gatnamótum Bankastrætis og
Ingólfsstrætis. Af þessum sökum
verður að takmarka umferð um
gatnamótin frá klukkan 9–16 í dag,
miðvikudag, og á fimmtudag.
Miðvikudaginn 24. október
verður lokað fyrir umferð niður
Laugaveg og Skólavörðustíg við
Bergstaðastræti. Fimmtudaginn
25. október verður lokað fyrir
akstur niður Bankastræti við Ing-
ólfsstræti. Opið verður fyrir umferð
um Ingólfsstræti báða dagana, en
ökumenn eru beðnir um að sýna
aðgát við framkvæmdasvæðið.
Vegfarendur eru beðnir
velvirðingar á truflunum sem af
framkvæmdum kann að stafa og
verður opnað á ný eins fljótt og
mögulegt er. Á sama tíma verður
einnig unnið við smáviðgerðir á
Skólavörðustíg fyrir framan Hegn-
ingarhúsið.
„Stjórnendur
telja að líklegt
verði að félagið verði
tekið til gjaldþrota-
skipa á árinu 2012
Segir Samson hafa keypt krónur
Björgólfur Thor segir ekki rétt að Samson
hafi tekið stöðu gegn krónunni.