Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2012, Qupperneq 8
Í
þarsíðustu viku bilaði eitt af
þremur hjartaþræðingartækj
um á hjartaþræðingardeild
Landspítalans þegar sjúklingur
var í aðgerð.
Skipta þurfti um varahlut í tæk
inu og var það gert næsta dag en
sjúklingurinn var færður yfir í aðra
stofu þar sem aðgerðinni var haldið
áfram með öðru tæki.
Sjúklingurinn sem um ræðir var
í aðgerð þegar tækið bilaði og lést
en þó er ekki talið að bilun tækis
ins hafi valdið dauða sjúklingsins.
Þegar bilunin kom upp var hann
færður yfir í annað tæki. „Vissulega
er þetta þó bagalegt,“ segir lækn
ir á spítalanum. Einn viðmælenda
DV segir það tímaspursmál hvenær
tæki klikki á ögurstundu. Læknar og
annað heilbrigðisstarfsfólk sem rætt
hefur verið við er orðið langþreytt á
ástandinu.
Tækið helst ekki notað í neyð
Tækið sem um ræðir er 15 ára gam
alt. Tvö önnur tæki eru á deildinni,
annað 10 ára og hitt 4 ára. Nýtt
hjartaþræðingartæki kostar um 150
milljónir króna en samkvæmt upp
lýsingum DV þá er talið æskilegt að
endurnýja slík tæki eftir um 7–8 ára
notkun.
„Gömul tæki bjóða upp á ákveðna
hættu, til dæmis geislahættu. Við
notum venjulega ekki þetta tæki
sem bilaði þarna, við notum það
bara í rútínutengda hluti, helst ekki
í neyð. Þarna vildi svo til að ann
að aðaltækið var upptekið vegna
annars sjúklings og það var ákveðið
að byrja á þessum sjúklingi í gamla
tækinu og það stoppaði,“ segir Ragn
ar Daníels son hjartalæknir um þetta
tiltekna tæki sem bilaði. Hann var
þó ekki sjálfur í aðgerðinni en þekk
ir til atviksins. Hann segir tækja
kost deildarinnar vera lélegan. Tæk
in séu orðin gömul og úr sér gengin.
„Myndgæðin og annað sem við vinn
um með, þau eru því miður ekki eins
og myndgæði sem við sjáum þegar
við erum á hjartaþræðingarstofum
erlendis, nema kannski nýjasta tæk
ið okkar, það er það skásta. Það er
bara kominn tími á endurnýjun, ef á
að sinna þessari starfsemi áfram þá
þarf að endurnýja það sem fyrst. Þó
það verði lappað upp á það núna –
aftur enn eina ferðina – með kannski
nýjum röntgenlampa þá er tækið
sem slíkt löngu úrelt, miðað við það
sem gerist árið 2012.“
Þörf fyrir endurnýjun
Davíð O. Arnar, yfirlæknir á hjarta
deild Landspítalans, segir tækin vera
komin til ára sinna en þeim sé þó
vel haldið við. „Þau eru ekki í lélegu
ásigkomulagi vegna þess að þeim er
mjög vel við haldið. Hins vegar er
eitt tækið komið dálítið til ára sinna
og það er verið að leggja drög að því
að kaupa nýtt.“ Aðspurður hvort fáist
fjármagn til þeirra kaupa segir hann
að það sé verið að reyna að afla fjár
magns til þess. „Góð spurning, það
er verið að afla fjármagns til þess að
það verði keypt innan skamms, hvað
sem það þýðir nákvæmlega. Það er
bara þörf fyrir eðlilega endurnýjun
á þessum tækjum með nokkurra ára
millibili og við erum bara að vinna
að því,“ segir hann.
Haldið saman með plástrum
Spítalinn hefur þurft að þola mik
inn niðurskurð undanfarin ár. Tæki
hafa lítið sem ekkert verið endur
nýjuð en þeim er haldið við af tækja
deild spítalans. „Það er staðreynd
almennt á spítalanum að það hefur
verið trassað árum saman að sinna
eðlilegri endurnýjun á tækjum.
Þetta er ekki ástand sem byrjaði bara
út af hruninu, þetta var svona fyrir
hrun líka. Þetta er ríkisspítali, hann
er rekinn á fjárlögum og hugmynd
ir fjárveitingavaldsins og þeirra sem
ráða þar eru gjörsamlega óraunhæf
ar hvað varðar fjármuni til að fjár
magna tæki á spítalanum sem er
aðalspítali landsins. Fjármögnun á
þessum spítala hefur aldrei verið í
samræmi við það hvernig staðið er
að tækjaendurnýjun á öðrum há
skólaspítölum í nágrannalöndun
um. Það er ekki venjan annars stað
ar að vera með svona gömul tæki
eins og Landspítalinn hefur komist
upp með. Björn Zoëga hefur nú sjálf
ur sagt að sumum tækjum sé haldið
saman með plástrum. Það er nærri
lagi og jafnvel rétt,“ segir Ragnar.
Fagleg óánægja
Ragnar segir læknana ekki vera
ánægða að vinna við þennan tækja
kost. „Læknum sem standa þarna og
framkvæma hjartaþræðingar dags
daglega er náttúrulega ekki vel við
að standa í að reyna að taka mynd
ir og vinna inni í kransæðasjúkling
um án þess að sjá með fullnægjandi
hætti hvað þeir eru að gera,“ segir
hann.
Aðspurður hvort læknar séu ekki
orðnir langþreyttir á ástandinu segir
Ragnar starfsfólkið aðlaga sig ýmsu.
„Það er ótrúlega seigt í okkur en við
erum samt sem áður orðin lang
þreytt, ég er búinn að vinna þarna í
20 ár og það er búið að keyra óvenju
hart vegna fjárhagsaðhalds undan
farin ár. Við erum ýmsu vön en það
veldur ákveðinni faglegri óánægju
að vinna með svona gömul tæki. Við
erum mjög meðvituð um að reyna
að forðast ákveðnar gildrur sem
hægt er að lenda í. Við reynum að
velja sjúklingana á tækin samkvæmt
okkar bestu vitneskju og þekkingu.“
Hann segist ekki vita til þess
að upp hafi komið krítískt ástand
vegna tækjabilunar sem sett hafi líf
sjúklings í hættu. „Ekkert sem ég
get sagt sem hefur ekki verið leyst
á staðnum. Þetta var verra hér áður
fyrr þegar við vorum bara með tvær
þræðingarstofur, þá gat komið upp
sú staða að eitt tæki var bilað og
annað notað, ef það stoppaði vorum
við með tvö tæki stopp. Nú erum við
fræðilega með þrjú þó að eitt tæki sé
yfirleitt ekki notað í þetta.“
Ekki hægt að skera meira niður
„Ég tek undir með forstjóranum sem
segir að það sé ekki meira hægt að
skera niður þarna. Það er búið að
ganga mjög hart og nærri starfsfólk
inu, það vinnur gríðarlega mikið
undir miklu álagi við mjög erfiðar að
stæður, það er miklu fórnfúsara starf
en hefur nokkurn tímann verið gefið
út í fjölmiðlum. Við höfum ekki verið
að flíka því út á við, fólk gengur bara
til sinna verka. En lengi má manninn
reyna, stendur einhvers staðar,“ seg
ir hann og segir það svo sannarlega
vera raunina á spítalanum.
DV fékk ábendingu um að geisla
magn frá röntgentækjunum væri
talið yfir hæfilegum mörkum. Það
reyndist hins vegar ekki rétt sam
kvæmt upplýsingum frá forstjóra
Geislavarna ríkisins, Sigurði M.
Magnússyni, en um þessar mundir
fer fram eftirlit á hjartaþræðingar
tækjum deildarinnar á vegum
Geislavarna ríkisins. Það er gert til
þess að athuga hvort að sjúklingum
eða starfsmönnum beinist hætta af
geislum úr tækjunum. Að sögn Sig
urðar hefur ekkert komið fram sem
gefur ástæðu til að ætla að sjúklingar
eða starfsfólk verði fyrir óeðlilega
mikilli geislun við notkun tækjanna.
Við síðasta eftirlit, í nóvember 2009,
voru gerðar kröfur um minniháttar
breytingar og lagfæringar á gæða
áætlun deildarinnar og að geisla
skammtamælir á einni deildinni yrði
lagfærður en hann virtist vera bilað
ur þegar eftirlitið fór fram. Kröfum
Geislavarna var mætt innan tilskil
ins tíma samkvæmt Sigurði. n
Hjartaþræðingartæki
bilað í hjartaaðgerð
n Tæki á Landspítalanum úr sér gengin n Mikil þörf á endurnýjun tækja
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
„Gömul tæki
bjóða upp á
ákveðna hættu, til
dæmis geislahættu
„Við reynum að
velja sjúklingana
á tækin samkvæmt okk-
ar bestu vitneskju og
þekkingu.
Erfitt ástand Þeir sem DV
ræddu við segja tækjabúnað á
spítalanum lélegan. Í síðustu
viku bilaði hjartaþræðingartæki í
aðgerð. myndin TEngisT FréTTinni Ekki bEinT
Þörf á endurnýjun Davíð O. Arnar segir
að verið sé að leggja drög að kaupum á nýju
hjartaþræðingartæki.
8 Fréttir 24. október 2012 miðvikudagur
Í mál vegna Viðskiptablaðsins:
„Ég gat ekkert
rifið í hann“
„Þetta var mjög óþægilegt,“ sagði
Pétur Gunnlaugsson, stjórnar
formaður og útvarpsmaður á
Útvarpi Sögu, í Héraðsdómi
Reykjavíkur á þriðjudag þar sem
aðalmeðferð í meiðyrðamáli hans
gegn ritstjóra og útgáfufélagi Við
skiptablaðsins fór fram.
Pétur höfðaði mál vegna
skrifa um hann sem birtust í
dálknum Huginn og Muninn í
Viðskiptablaðinu í fyrra. Þar var
því haldið fram að Pétur hefði
í átakaumræðu við þingmann
inn Björn Val Gíslason um Ices
avemálið á Útvarpi Sögu, þann
11. apríl 2011, rifið í þingmann
inn eftir að hafa kastað öllu laus
legu af borðinu sem þeir sátu við
ásamt Arnþrúði Karlsdóttur út
varpsstjóra sem stýrði þættinum.
Samkvæmt skrifunum sem
birtust í Viðskiptablaðinu mánuði
eftir umræddan útvarpsþátt kom
fram að ástæða þess að Pétur
missti stjórn á skapi sínu var að
Björn Valur gaf í skyn að Pétur
væri „handbendi Davíðs Odds
sonar en ekki fulltrúi sinna eigin
skoðana.“
Í skýrslu sinni fyrir dómi sagði
Pétur að vissulega hafi eldfimt
málefni verið til umræðu og tekist
hefði verið á með orðum en hann
hafnaði því algjörlega að hafa lagt
hendur á þingmanninn. „Ég gat
ekkert rifið í hann enda sat hann
hinum megin við borðið,“ sagði
Pétur og bætti við að kannski
væru einhverjir menn sem yrðu
svona reiðir yfir því að vera kall
aðir handbendi Davíðs Oddsson
ar en hann kannaðist nú ekki við
að vera einn þeirra. Gagnrýndi
hann vinnubrögð Viðskipta
blaðsins harðlega enda hefði ekki
verið haft samband til að stað
festa frásögnina áður en hún var
birt.
Tæknimaður Útvarps Sögu,
Jóhann Kristjánsson, sem var
einn þeirra fjögurra sem staddur
var í hljóðverinu þegar umrætt
atvik var sagt hafa átt sér stað,
sagðist fyrir dómi ekkert kannast
við hina meintu árás eða nokkuð
sem fram kom í Viðskiptablaðinu.
Þátturinn hafi verið með hefð
bundnu sniði.
Dópaður á
stolnum bíl
Lögreglan á höfuðborgarsvæð
inu stöðvaði ökumann aðfaranótt
þriðjudags vegna gruns um að
hann væri undir áhrifum vímu
efna. Við nánari athugun kom
í ljós að bifreiðin sem hann ók
var stolin. Voru ökumaðurinn og
farþegi í bílnum handteknir og
vistaðir í fangageymslum lögreglu.
Aðfaranótt þriðjudags var tíð
indalítil hjá lögreglu fyrir utan að
tilkynnt var um eitt innbrot í versl
un á Langholtsvegi. Sáust tveir
menn hlaupa frá versluninni en
þeir náðust ekki og þá liggja ekki
fyrir upplýsingar um hverju var
stolið í innbrotinu.