Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2012, Síða 13
Umræða 13Miðvikudagur 24. október 2012
„Hef notað helling af lyfjum“
Gestur Gylfason Af hverju er
ekki skólpið hreinsað og búið til
metangas úr því eins og í t.a.m.
Stokkhólmi?
Jón Gnarr Skólpið er leitt langt út
í Faxaflóa að sögn Guðmundar [B.
Friðrikssonar sem var Jóni til halds
og trausts á línunni, innsk. blm.].
Rannsóknir sýna fram á að það er
ekki þörf á jafn mikilli hreinsun og
í Stokkhólmi. Hins vegar er þarna
hráefni sem vel mætti nýta og
stöðvarnar okkar eru hannaðar
þannig að þessu má bæta við.
Ásgeir Einarsson Af hverju á ég
að flokka ruslið mitt?
Jón Gnarr Hver á að gera
það annar? Þú ert eigin húsbóndi.
Páll Arnarson Sæll, mér finnst
þetta frábært framtak. Hvenær
verður hægt að flokka allt sorp
heima hjá sér, eins og er til dæmis gert á
Akureyri?
Jón Gnarr Þú getur flokkað í nær
alveg sömu flokka og á Akureyri og
skilað á grenndar- og endurvinnslu-
stöðvar. Pappírsgámurinn er með
fimm pappírsflokkum í og við stefn-
um á að taka jarð- og gasgerðarstöð
í notkun árið 2014.
Arnór Valdimarsson
Sorpböggun Sorpu er enn í
Grafarvoginum, en engin
endurvinnslustöð er fyrir okkur hér. Og
þurfum við því með ærinni fyrirhöfn,
tilkostnaði, sliti á vegakerfinu og mengun
að aka okkar umframsorpi út úr hverfinu
inn á Sævarhöfða eða annað. Eingöngu til
að Sorpa, með skattpeningum okkar,
greiði verktökum fyrir að keyra sama sorp
inn í hverfið aftur. Þetta eru þvílík 2007
vinnubrögð, sem hafa þó viðgengist frá
því fyrir hrun, að þetta er löngu hætt að
vera fyndið!
Jón Gnarr Guðmundur B. segir
að stefnt sé að því að reisa nýja
endurvinnslustöð á norðursvæði
höfuðborgarsvæðisins, sem líklega
verður innan Grafarvogs. Þetta þarf
að skoða og eflaust bæta. Þakka
ábendinguna.
Jóna Jónsdóttir Hvað kostar að
innleiða bláu tunnuna? Er það
ekki það sama og græna
tunnan? Væri ekki nær að nota þessa
peninga í félagsstarf fyrir aldraða?
Jón Gnarr Þetta stendur undir sér
og verður að kosta eitthvað. Bláa
tunnan mun ekki auka kostnað
svo framarlega sem íbúar draga
úr blandaða sorpinu og hirðu á
því.
Ása Björg Hvenær ætlar
Reykjavíkurborg að ganga
fram með sama fordæmi og
Dalvíkurbyggð og fleiri, þar sem
endurvinnsla er ekki val, heldur skylda
íbúa? Er ekki kominn tími til að
Reykjavíkurborg líti sér nær og verði
borg heimsfriðar OG náttúruverndar!?
Ekki má gleyma að endurvinnanlegt
sorp er í dag ágætis tekjulind, svo ekki
sé talað um hvað sparast í
urðunargjöldum. Dalvíkurlausnin er
góð lausn, ég legg til að þið kynnið
ykkur hana!
Jón Gnarr Erum við ekki að gera
það? Eina sem Dalvíkurbyggð
er að gera umfram okkur er að
flokka lífrænt frá til jarðgerðar. Við
stefnum á það sama árið 2014 þegar
gas- og jarðgerðarstöð verður tekin í
notkun.
Tómas Sigurðsson Hefurðu
hugsað þér að bjóða þig fram
aftur til borgarstjóra, þegar
þessu kjörtímabili lýkur?
Jón Gnarr Ég get vel hugsað mér
það. En hef ekki ákveðið neitt.
Unnar Bjarnason Jón, hvenær
koma upphituð strætóskýli? Er
það í bígerð?
Jón Gnarr Þetta hefur verið til
skoðunar. Veit ekki alveg.
Birgir Olgeirsson Ertu hlynntur
eða andvígur frumvarpi um
jöfnun húshitunarkostnaðar?
Jón Gnarr Ég held ég sé á móti því. Er
ekki búinn að skoða það samt, það er
þá með þeim fyrirvara.
Arnór Valdimarsson Hversu
lengi er áætlað að nota Álfsnes
(til hvaða árs) til urðunar sorps
og er komið plan eftir Álfsnes?
Jón Gnarr Guðmundur B: Við erum
að endurnýja starfsleyfið þar þannig
að við erum ekki hætt þar. En eftir
2014 verður urðun á lífrænum úrgangi
hætt þar með tilkomu gasgerðar-
stöðvar.
Pétur Sigurbjartsson Varð
ekkert úr þeim áformum að
stofna sér banka fyrir borgina
eða Besta bankann eins og hann var
nefndur?
Jón Gnarr Nei, það reyndist allt of
flókið og dýrt.
Arnór Valdimarsson Þrátt fyrir
loforð á loforð ofan hafa
fulltrúar okkar innan
stjórnmálanna svikið íbúana árum
saman. Vinsamlega gætir þú kippt í
nokkra lýðræðislega og vitræna spotta og
kippt því í liðinn fyrir Grafarvoginn að
heimskunni í sorpflutningum með sama
sorpið inn og út úr hverfinu linni.
Jón Gnarr Ég skal reyna mitt besta.
Pétur Jónsson Að velja bláa
tunnu undir sorp frekar en annan
lit, var þetta táknrænn
gjörningur af þinni hálfu?
Jón Gnarr Nei. Guðmundur B. segir
mér að þetta sé alþjóðlegur litur fyrir
pappírsflokkun. Ég er með blá augu.
Páll Arnarson Er ekki hægt að
banna nagladekk á höfuð-
borgarsvæðinu? Þar sem það er
sannað að þau eyða upp malbikinu á
höfuðborgarsvæðinu. Ég vil benda á að
strætóferðir innan höfuðborgarsvæðisins
féllu aldrei niður síðasta vetur. Hann var
einn sá snjómesti í 40 ár.
Jón Gnarr Við erum bundin lögum
hvað þetta varðar og bíðum nú
eftir nýjum umferðarlögum þar sem
skattlagning nagladekkja verður
skoðuð sérstaklega.
Bjarni Guðmundsson Sæll Jón,
er eitthvað í bígerð hjá ykkur sem
ýtir undir rafknúin farartæki?
Jón Gnarr Já, heldur betur. Við erum
að skoða það og spá í hvernig borgin
getur hvatt til rafknúins samgöngu-
máta. Guðmundur B: Til skoðunar
eru ýmsir hvetjandi kostir, svo sem
frátekin stæði, hleðslustaurar, frítt
rafmagn og forgangsakreinar.
Olga Lúsía Pálsdóttir Láta
tæma tunnurnar á 20 daga fresti
í stað 10? Er borgarstjórinn alveg
genginn af göflunum ? Eiga pítsukassar
með matarleifum og fleiri matarumbúðir
að úldna í 20 daga? Hvað segir heilbrigðis-
eftirlitið um það?
Jón Gnarr Matarleifar eiga ekki
að vera í pítsukassanum þegar þú
hendir honum í bláu tunnuna. Kassinn
úldnar ekki. Guðmundur B: Gráa
tunnan er losuð á 10 daga fresti, en ef
íbúar flokka þá geta þeir fengið tunnu
sem losuð er á 20 daga fresti og greitt
helmingi lægri gjöld.
Rakel Pétursdóttir Hvernig
geturðu réttlætt að rútustæði sé
staðsett 20 metra frá næstu
íbúðabyggð með tilheyrandi mengun og
hávaða. Myndirðu vilja hafa svona
starfsemi við svefnherbergisgluggann
þinn?
Jón Gnarr Þetta er skipulagsmál sem
tengist mér ekki persónulega. Endi-
lega hafðu samband við Heilbrigðis-
eftirlitið í Reykjavík.
Kristinn Guðmundsson Hvaða
borg er helsta fyrirmynd
Reykjavíkur þegar litið er út fyrir
landsteinana, bæði hvað varðar stjórnun
og skipulag?
Jón Gnarr Þrándheimur í augnablik-
inu.
Gísli Björnsson Sæll aftur Jón.
Hvernig er með börn fædd 2011,
hefur verið tekin ákvörðun um
hvenær þau komist inn á leikskólana?
J Jón Gnarr Við finnum pláss fyrir öll
börn og haldin verður nákvæmlega
sama áætlun og alltaf varðandi
þessa inntöku.
Bjarni Guðmundsson Flott að
þið séuð að skoða hvernig borgin
getur hvatt til rafknúins
samgöngumáta. Nú eru flest rafknúinna
farartækja á Íslandi í formi tvíhjóla, gætu
þið hugsað ykkur að taka þann kost á
næsta stig? (hjólastígarnir sem verið er að
leggja er góð byrjun) og ég spyr því ég hef
ákveðnar hugmyndir.
Jón Gnarr Enn og aftur erum við
bundin af umferðarlögum. Í núver-
andi umferðarlögum er ekki til neitt
sem heitir hjólreiðastígur. Það setur
okkur ákveðnar skorður.
Gísli Gíslason Á að beita sér fyrir
auknu leiguhúsnæði í Reykjavík?
Markaðurinn er gjörsamlega
sprunginn með tilheyrandi hækkun á
húsaleigu.
Jón Gnarr Það er mikill áhugi hjá
okkur fyrir því. Þetta tekur tíma.
Lögin gera það að verkum að það er
hagstæðara að kaupa en leigja. Þessu
þyrfti að breyta.
Bergur Ísleifsson Sæll, ég vil
endilega að þú bjóðir þig fram til
forystu í næstu alþingiskosning-
um. Einhver séns á því?
Jón Gnarr Nei, ekki séns en takk fyrir
traustið.
Björgvin Hólm Hvað fannst þér
um þegar Geir Haarde ákvað að
allir öreigar þjóðarinnar skyldu
bera ábyrgð á þeim sem allt eiga, og bað
svo guð að blessa landið?
Jón Gnarr Veit ekki hvort það hafi
verið neitt sérstaklega kristilegt.
Jóhann Gizurarson Sæll Jón og
takk fyrir að vera besti
borgarstjóri frá upphafi. Hvenær
sér maður þig svo í forsætisráðherrastóln-
um?
Jón Gnarr Þegar Reykjavíkurborg
verður sjálfstætt ríki.
Natan Kolbeinsson Hver er
ykkar mesti sigur og mesti
ósigur?
Jón Gnarr Orkuveitan er líklega mesti
sigurinn og mesti ósigurinn líklega
ísbjörninn sem ekki er kominn.
Páll Arnarson Er eitthvað á
döfinni að láta strætó ganga
lengur um helgar? Eins og til
dæmis að síðasti vagn færi klukkan tvö,
hálf þrjú? Held að það myndi ýta undir að
fólk færi fyrr heim. Eins og sést í London
þá fer meirihlutinn af fólkinu heim með
síðustu lest.
Jón Gnarr Við erum alltaf að reyna
að bæta strætó og að reyna að láta
hann mæta þörfum. En við rekum
hann náttúrulega með hinum sveitar-
félögunum á höfuðborgarsvæðinu.
Viktor Guðmundsson Kemur til
greina að breyta Laugaveginum í
varanlega göngugötu, samanber
Strikið í Kaupmannahöfn?
Jón Gnarr Já, sterklega.
Kristinn Ingvason Ef þú þyrftir
að hætta að vera Jón Gnarr og
vera einhver af karakterunum
sem þú hefur leikið, hver yrði fyrir valinu?
Jón Gnarr Indriði.
Gísli Björnsson Sæll Jón, ég vil
taka fram að ég er mjög
ánægður með að fólk þurfi að
flokka ruslið sitt sjálft. Það kallar hins
vegar á fleiri tunnur, sem þarf þá meira
pláss undir. Sums staðar er ekki rými fyrir
slíkt á lóðum eða í ruslageymslum. Þá
þarf væntanlega fleiri tegundir af bílum til
að tæma allar þessar tunnur. Og jafnvel
að fjölga dögum sem tunnur eru tæmdar.
Hvernig hyggst borgin leysa þessi
vandamál, ef þau koma upp?
Jón Gnarr Guðmundur B: Borgin
býður upp á val. Þú þarft ekki að bæta
við tunnu heldur getur þú farið sjálfur
á grenndarstöðvar.
Bergur Ísleifsson Áttu þér
einhverja fyrirmynd á meðal
stjórnmálamanna sögunnar?
Jón Gnarr Mahatma Gandhi.
Edda Kentish Hæ. Ég er ánægð
með þig sem borgarstjóra. Svo
skemmtilega vill líka til að ég er
töluvert hrifin af fyrirbærinu „náttúruleik-
völlum“ sem ég þekki frá Danmörku. Er
ekki hægt að koma nokkrum slíkum upp
fyrir börn með litlum tilkostnaði? Það
væri skemmtilegt.
Jón Gnarr Já, við höfum haft þetta
að áhugamáli en aðstæðna vegna
höfum við meira verið í hagræðingu
og sparnaði.
Olga Lúsía Pálsdóttir Hvernig
er ætlast til að fólk sem býr í
fjölbýlishúsi og er með eina
ruslalúgu standi að flokkun sorps? Sé ekki
hvernig þetta á að vera framkvæmanlegt.
Jón Gnarr Guðmundur B: Þú gengur
niður með pappírinn, hann lyktar ekki
og þú getur líka geymt hann og þarft
ekki að fara eins oft með hann. Þetta
er ekkert mál. Sorprennur mega ekki
hindra okkur í því að flokka sorpið
okkar.
Viktor Guðmundsson Kaustu
um nýju stjórnarskrána? Ef svo,
viltu deila með okkur hinum?
Jón Gnarr Já, já, nei, já, já, já.
Steinunn Gestsdóttir Fyrir
síðustu kosningar lofaði Besti
flokkurinn að viðhafa spillingu
(uppi á borðum). Í ljósi þess hvað spilling í
stjórnmálum er alvarleg gat ég ekki
hugsað mér að kjósa flokkinn, þótt mér
litist vel á margt fólk í honum. Ef þú
heldur áfram í stjórnmálum, myndir þú
ennþá grínast með þetta? Eða myndirðu
gera konkret tillögur um hvernig ætti að
koma í veg fyrir spillingu í stjórnmálum?
Jón Gnarr Mannlegt eðli hneigist til
spillingar, sérhagsmuna. Það er Guðs
að breyta því en ekki mitt.
Sindri Már Smárason Þú lofaðir
mér í útvarpsviðtali að þú myndir
ekki hætta í afþreyingarbrans-
anum, af hverju ertu nánast hættur að
koma fram? Og finnst þér ADHD hafa háð
þér mikið í skóla og starfi? Hefur þú notað
lyf við ADHD? P.S. þú ert frábær
Jón Gnarr Það er ekki vika síðan ég
var Obi-Wan Kenobi. Ég er náttúru-
lega að vinna frá kl. 8–7 alla daga.
ADHD er ég. Ég hef notað helling af
lyfjum en ekkert þeirra hefur gert
neitt sérstakt gagn.
Sigurður Úlfarsson Nýlega var
hætt að skilgreina ljósleiðaranet
OR sem hluta af kjarnastarfsemi
fyrirtækisins og gert að jaðarmáli. Árið
2012 er ljósleiðarinn einn af mikilvægustu
innviðum borgarinnar. Ef hann verður
einkavæddur og verðið á þjónustunni
hækkað hefur það umtalsverð áhrif á
samkeppnishæfni borgarinnar og á alls
kyns starfsemi s.s. verslunarrekstur,
fyrirtæki, fjölmiðla, sjúkrahús o.fl. o.fl. Af
hverju var þessi ákvörðun tekin? Er hægt
að vinda ofan af þessari ákvörðun? Getur
þú beitt þér í því?
Jón Gnarr Þetta er neyðarbrauð
vegna slæmrar stöðu OR. Þetta er
hluti af uppbyggingu Orkuveitunnar.
Kannski getur OR einhvern tímann
keypt hlutinn aftur ef það verður
pólitískur áhugi fyrir því.
Ísak Hinriksson Hver er þín
skoðun á að sameina Reykjavík,
Kópavog, Seltjarnarnes,
Mosfellsbæ og fleiri smábæi?
Jón Gnarr Því fyrr þeim mun betra.
Örvar Þór Guðmundsson Er
ekki orðið tímabært að taka
tappann úr Reykjavíkurtjörn og
breyta henni í yfirbyggðan vatnsrenni-
brautargarð?
Jón Gnarr Nei, endurnar hafa
mótmælt því. Reykjavík er fjölskipað
stjórnvald og við getum ekki tekið
svona ákvörðun án þess að bera hana
undir endurnar. Og hvað yrði þá um
mávana?
Óskar Einarsson Síðustu tvö ár
höfum við verið með græna
tunnu, þar sem við flokkum
pappír, plast, fernur og málma. Fáum við
afslátt af sorphirðugjaldi í framtíðinni
vegna þessa?
Jón Gnarr Guðmundur B: Íbúar sem
láta hirða blandaða sorpið sjaldnar
greiða nú þegar lægri gjöld.
Bergur Ísleifsson Sú hugmynd
að koma upp lokuðum
hundaleikvöllum í Reykjavík
– hefurðu eitthvað spáð í hana? Ég er að
tala um svipaða „leikvelli“ og má sjá víða
á t.d. Manhattan þar sem þessi aðstaða er
alveg til fyrirmyndar.
Jón Gnarr Einhver svæði eru í
uppbyggingu eftir íbúakosningar. En
það hefur því miður verið töluverð
andstaða við þetta á meðal íbúa. Það
þarf að koma þessu haganlega fyrir.
Natan Kolbeinsson Hver er
framtíðarsýn þín á betrireykja-
vik.is?
Jón Gnarr Ég vona að BETRI REYKJA-
VÍK eflist og dafni og hvet fólk til að
nota vefinn.
Fanney Stefánsdóttir Nú borga
hundaeigendur ársgjald fyrir að
halda hund. Í hvað fer sá
peningur? Væri ekki hægt að lappa aðeins
upp á Geirsnef með ljósastaurum svo
hægt sé að nota svæðið meira yfir
vetrartímann?
Jón Gnarr Peningurinn fer í að reka
hundaeftirlitið. Við höfum verið að
huga að Geirsnefinu t.d. með því
að loka þar fyrir bílaumferð en það
kemur úr öðrum vasa eins og sagt er.
„ADHD er ég,“ sagði Jón Gnarr á Beinni línu á þriðjudag. Þar voru aðallega rædd sorphirðumál en ýmislegt fleira bar á góma.
Nafn: Jón Gnarr
Aldur: 45 ára
Starf: Borgarstjóri
Menntun: Grunnskólapróf
M
y
N
d
IR
SIG
TR
y
G
G
U
R
A
R
I