Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2012, Side 15
Þær eru
frjálsar
Ég sendi
inn lag
Jaroslava Davíðsson segir ekkert vændi stundað á Goldfinger. – DVLeoncie vill komast í Eurovision. – DV
Skyggnilýsingarfundir í Valhöll
Spurningin
„Ánægður með sumt, óánægður
með annað. T.d. þjóðkirkjuákvæð-
ið. Það hefði mátt missa sín.“
Árni Freyr Helgason
18 ára nemi
„Ég er bara býsna ánægð með
þetta.“
Guðbjörg Kristjánsdóttir
65 ára umönnunarkona
„Ég veit það ekki alveg. Sjálfur er
ég ekki kominn með kosningarétt.“
Haraldur Garðarsson
15 ára nemi
„Ég er hæstánægður með allt
nema þjóðkirkjuákvæðið.“
Þorgeir Helgason
20 ára flugþjónn
„Ég er bara þokkalega sáttur.“
Guðmundur Eggert Finnsson
57 ára háskólanemi
Ertu sátt/ur við
niðurstöðu
kosninganna á
laugardag?
1 Bryndís rekin frá Fríkirkjunni Safnaðarráð stofnaði nefnd til að rann-
saka deilur en rak prestinn í staðinn.
2 Segja Monster-orkudrykkinn hafa dregið fimm til dauða
Foreldrar stefna framleiðanda
drykkjarins í Bandaríkjunum.
3 Nýtt hús! Britney Spears keypti glæsivillu í Los Angeles á dögunum.
4 Grunur um mannsal á nudd-stofu Kona segist hafa unnið í 4 ár
fyrir 6.500 krónur í mánaðarlaun.
5 „Hann vill að allir labbi eða hjóli milli kaffihúsa í kvart-
buxum“ Siguður G. Guðjónsson
er harðorður í garð Gísla Marteins
Baldurssonar.
6 Selur enn gamla Cocoa Puffs-ið Jón Gerald Sullenberger,
eigandi Kosts, segir morgunkornið ekki
ólöglegt.
7 Segir „ljóta umræðu“ hafa dregið úr trúverðugleika sín-
um Pétur Gunnlaugsson í meiðyrða-
mál vegna skrifa Viðskiptablaðsins.
Mest lesið á DV.is
U
ndanfarna daga hafa sprottið
fram miðlar með aðsetur í Val
höll, eins konar nútímavölvur
sem hafa þann einstaka hæfileika
að geta lesið hug og jafnvel tilfinningar
þeirra sem mættu ekki á kjörstað. Þess
ir miðlar hafa boðið þjóðinni upp á
alvöruskyggnilýsingarfundi í fjölmiðl
um og hafa jafnvel náð þeim árangri í
þessari einstöku næmni sinni að geta
túlkað vilja 50% þjóðarinnar sem kusu
með rassinum en ekki á kjörstað, en
eiga þó samkvæmt völvum Sjálfstæðis
flokksins jafn mikinn rétt og þeir sem
nýttu sér borgaraleg réttindi sín með
því að mæta á kjörstað og sýndu í verki
vilja sinn.
Þingmenn Hreyfingarinnar gagn
rýndu formenn meirihlutans þegar
þeir beinlínis lögðu til við stuðningsfólk
sitt að mæta ekki á kjörstað í kringum
Icesaveþjóðaratkvæðagreiðsluna og
við gagnrýnum formenn stjórnarand
stöðunnar fyrir að gera lítið úr þjóðar
atkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá.
Við munum gagnrýna alla þá sem reyna
að gera lítið úr lýðræðislegum rétti al
mennings til að láta í ljósi vilja sinn, og
afskræma þetta ferli með flokkpólitísk
um skyggnilýsingum. Þau okkar sem
fengu traust til að vera fulltrúar á lög
gjafarþingi ættum frekar að hvetja til
kosningaþátttöku svo við megum vita
með afgerandi hætti hver þjóðarviljinn
er þegar boðað er til atkvæðagreiðslu af
þessu tagi. Það eru mikil forréttindi að
sitja á löggjafarþingi og fá svona skýra
leiðsögn frá þeim sem mæta á kjörstað.
Ég er einstaklega þakklát þeim sem
mættu á kjörstað. Ég verð að viðurkenna
að ég er ekki gædd skyggnigáfu og því
hef ég ekki hugmynd um af hverju það
var ekki 100% þátttaka. Hvorki ég né sér
fræðingar í þjóðarvilja getum eða eigum
að túlka það á þann hátt að það skipti
einhverju máli varðandi niðurstöðu
þessara atkvæðagreiðslna né annarra
slíkra. Flokkar eiga ekki atkvæði, þing
menn eiga ekki atkvæði, enginn á at
kvæði nema sá sem nýtir sér kosninga
rétt sinn. Þeir sem mættu ekki fyrirgerðu
rétti sínum til að vilji þeirra yrði tekinn
með í reikninginn.
Þingið getur orðið við þjóðarvilja
strax
Ég ætla ekki að eyða meira púðri í
skyggnilýsingar í Valhöll og einbeita mér
að því sem mér stendur næst. Það voru
nefnilega nokkur atriði sem komu mjög
skýrt fram hjá þeim sem mættu á kjör
stað og það er hægt að verða við þeim
þjóðarvilja strax ef samþingmenn mín
ir vilja. Gleymum því ekki að löggjafar
samkundan hefur í auknum mæli sýnt
að þingmannafrumvörp eru ekki lengur
látin safna ryki í nefndum heldur hafa
fjölmörg slík frumvörp og ályktanir ver
ið samþykktar á vinnustað mínum. Mér
finnst það mjög jákvæð þróun. Því ætti
ekki neitt að verða því til fyrirstöðu að
Alþingi verði strax við þeim eindregna
vilja sem kom fram í þjóðaratkvæða
greiðslunni varðandi persónukjör og
jafnt vægi atkvæða?
Ein af helstu niðurstöðum þjóðar
atkvæðagreiðslunnar þann 20. október
var að rúmlega 78% landsmanna vilja
persónukjör í alþingiskosningum.
Ekki er nauðsynlegt að breyta stjórn
arskránni til að breyta kosningalögum
til að hægt sé að bregðast við þessu. Það
þarf bara einfaldan meirihluta á Al
þingi til að samþykkja slíkar breytingar.
Spurningin er bara hvort vilji sé fyrir
hendi meðal alþingismanna. Gott að
hald almennings gæti gert gæfumuninn.
Valgerður Bjarnadóttir lagði fram
frumvarp um persónukjör sem var mælt
fyrir nýlega. Sambærilegt frumvarp var
lagt fram fyrir tæpum 30 árum af hinum
merka alþingismanni Vilmundi Gylfa
syni. Það ætti ekkert að verða því til
fyrirstöðu að afgreiða þetta frumvarp
svo að hægt verði að bregðast við ákalli
almennings um að geta kosið þvert á
flokka það fólk sem það treystir best til
að stjórna landinu hverju sinni.
Tveir þriðju hlutar þjóðarinnar vilja
síðan að atkvæði kjósenda alls staðar að
af landinu vegi jafnt. Þingmenn Hreyf
ingarinnar lögðu fram frumvarp um
skiptingu þingsæta milli kjördæma fyrr
í þessum mánuði sem endurspeglar
þennan vilja.
17. júní 2013
Að lokum vil ég taka heilshugar undir
með þeirri sýn sem forsætisráðherrann
setti fram á Alþingi og vona að þinginu
beri gæfa til þess að taka höndum
saman um að klára þetta þing á söguleg
um og reisnarlegum nótum. Til þess að
það sé hægt þarf að ná samkomulagi í
þinginu um vinnubrögð og tímaramma.
Flokkadrættir og klækir stjórnmála
manna verða að víkja í þeirri vinnu.
Þjóðin getur þar með kveðið upp end
anlegan dóm í þjóðaratkvæðagreiðslu
samhliða næstu þingkosningum. Stefn
um á að ný stjórnarskrá taki gildi þann
17. júní 2013.
Út með það nýja Unnið er hörðum höndum þessa dagana við að rífa hálfbyggt hús við Mýrargötu sem reist var á hápunkti góðærisins, árið 2007. Hönnunin þykir ekki henta
fasteignakaupendum dagsins í dag. Mynd Sigtryggur ariMyndin
Umræða 15Miðvikudagur 24. október 2012
Það var allt
klárt
Eyþór Ingi bað kærustunnar í Eiffel-turninum. – DV
Kjallari
Birgitta
Jónsdóttir
„Þeir sem mættu
ekki fyrirgerðu
rétti sínum til að vilji
þeirra yrði tekinn með
í reikninginn