Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2012, Qupperneq 16
Dýrkeypt seinkun
n Það er dýrt að missa af tengiflugi hafi ferðalangur sjálfur sett saman ferðaáætlun
F
jölmargir íslenskir ferðamenn
þurfa að millilenda að minnsta
kosti einu sinni áður en þeir
ná áfangastað. Það getur ver
ið töluvert ódýrara að setja sjálf
ur saman ferðaáætlun sem inni
heldur framhaldsflug svo margir
ákveða að skipuleggja ferðalag
ið sjálfir. Réttindi þeirra sem missa
af framhaldsflugi eru misjöfn og
ódýrasti miðinn getur auðveldlega
orðið dýrkeyptur ef maður missir af
tengifluginu.
Fjallað er um þetta á Túrista,
turisti.is, en þar segir að fólk sem
missir af tengifluginu eigi sjaldn
ast kröfu á flugfélögin og þurfi því
að kaupa nýjan miða til að komast
á áfangastað. Farmiðar keyptir rétt
fyrir brottför séu alla jafna dýrir og
því kostnaðarsamt að lenda í þessari
stöðu en ferðatryggingar bæti ekki
tjónið.
Túristi gefur ferðamönnum ráð
um hvernig þeir geta tryggt sig og
þar segir að hjá Icelandair og SAS
sé hægt að kaupa farseðla sem gilda
einnig fyrir framhaldsflug þó það sé á
hendi annars aðila. Félagið sem seldi
miðann sé þá skyldugt til að koma
fólki á áfangastað og greiða kostnað
sem tafir gætu valdið.
Hjá Iceland Express og WOW air
sé ekki boðið upp á slíka farseðla en
farþegum bent á að láta að minnsta
kosti þrjá tíma líða á milli komu fyrra
flugs og brottfarar þess síðara. Þar
segir jafnframt að á heimasíðum
lággjaldaflugfélaganna Norwegian,
German Wings og Airberlin sé hægt
að kaupa miða frá Keflavík með
millilendingu en þó aðeins ef bæði
flug heyri undir félagið sjálft. EasyJet
gefi aðeins færi á að bóka eitt flug í
einu.
Að lokum segir að stundvísi flug
félaganna skipti miklu máli fyrir
ferðamenn og því hafi Túristi tekið
saman stundvísitölur sínar daglega
síðan í júní 2011. n gunnhildur@dv.is
16 Neytendur 24. október 2012 Miðvikudagur
Algengt verð 254,7 kr. 260,7 kr.
Algengt verð 254,4 kr. 260,5 kr.
Höfuðborgarsv. 254,3 kr. 260,4 kr.
Algengt verð 254,7 kr. 260,7 kr.
Algengt verð 256,6 kr. 260,7 kr.
Melabraut 254,4 kr. 260,5 kr.
Eldsneytisverð 23. október
Bensín Dísilolía
Dekrað við
mann
n Lofið fær Heilsustofnun Náttúru
lækningafélags Íslands en DV
fékk eftirfarandi sent: „Mig langar
að koma að lofi en ég hef dvalist
í heilsuskjóli NLFÍ í Hveragerði.
Hérna er dekrað við mann og mað
ur bókstaflega lagður í bómull.
Viðmótið sem maður fær er alveg
til fyrirmyndar. Allir starfsmenn
boðnir og búnir til að
hjálpa og leiðbeina
varðandi betri lífsstíl,“
segir ánægður við
skiptavinur.
Slepjulegt
salat
n Lastið fær Bónus fyrir ólystugt
grænmeti. „Ég vil fá að lasta græn
metisborðið í Bónus í Faxafeni en
ég varð mjög svekkt um daginn
með grænmeti sem ég keypti þar.
Að koma heim með matvörur og
komast að því að paprikurnar eru
myglaðar að innan og salatið lint
og slepjulegt er ekki mín hugmynd
að skemmtun,“ segir óánægður við
skiptavinur.
Guðmundur Marteinsson fram
kvæmdastjóri segir að sér finnist
leitt að heyra þessa
sögu. „Allar slíkar
athugasemdir eru
teknar alvarlega
og eru skilaboð til
okkar um að gera
enn betur,“ segir
Guðmundur.
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
Í
sinni hreinustu mynd er popp
korn frekar hollt snakk og ekkert
að því að narta í það öðru hvoru.
Örbylgjupopp er á hinn bóginn
eitt af því alversta sem við getum
látið ofan í okkur. Á heilsusíðunni
Rodale, rodale.com, eru talin upp
nokkur atriði um örbylgjupopp sem
gott er að hafa í huga.
eitraðar umbúðir
Eins og margar matvælaumbúðir
þá eru flestir örbylgjupopppokar
húðaðir með PFCefnum sem hafa
verið tengd við ýmis krabbamein
og truflun á hormónum. Efnin eru
notuð þar sem þau hrinda frá sér
fitu og geymast í líkama okkur í
langan tíma. Þau eru einnig talin
geta valdið skjaldkirtilssjúkdóm
um, haft áhrif á ADHD og stuðlað
að öðrum sjúkdómum og eru því
afar varhugaverð. „Oft kaupa fram
leiðendur umbúðirnar frá öðrum
framleiðendum og vita jafnvel ekki
hvaða efni eru notuð í umbúðirnar,“
segir Olga Naidenko, yfirmaður
hjá Environmental Workin Group
(EWG), góðgerða og umhverfis
samtökum. „Neytendur ættu að
kalla eftir frekari upplýsingum um
þetta.“
Hættuleg bragðefni
Það eru ekki bara efni í umbúðum
poppsins sem valda áhyggjum því
framleiðendur setja efni í poppið
sjálft sem gera það að verkum að
varan virðist fersk. Algengast af
þeim er efnið „diacetyl“ en það
gefur smjörbragð og hefur verið
bendlað við lungnaskemmdir hjá
starfsmönnum í verksmiðjunum
sem og hjá neytendum poppkorns
ins, þó í færri tilfellum. „Vísinda
menn við bandaríska vinnueftirlitið
komust að því að starfsmenn sem
önduðu að sér efnunum þróuðu
með sér slæma lungnasjúkdóma,“
segir Olga. Í kjölfarið skiptu margir
poppkornsframleiðendur efninu út
fyrir annað efni en í ljós hefur komið
að það hefur sömu skaðlegu áhrifin.
erfðabreytt matvæli
Það hefur ekki verið hægt að sanna
að langtímaneysla á erfðabreyttum
matvælum hafi engin áhrif á
mannslíkamann. Frumniðurstöður
nokkurra dýrarannsókna á áhrifum
matvælanna sýna að þau geta valdið
meltingarsjúkdómum, ofnæmi og
jafnvel æxlamyndun. Kaupir þú ör
bylgjupopp sem er ekki lífrænt þá
eru góðar líkur á að olían og bragð
efnin innihaldi erfðabreytt efni.
Falin transfita
Transfita er eitur fyrir hjartað og
hefur verið tengd við vandamál við
getnað og legslímuflakk. Framleið
endur eru þó mjög hrifnir af transfit
unni þar sem hún lengir endingar
tíma matvælanna. Það getur þó
verið erfitt að koma auga á trans
fituna á innihaldslýsingum því þótt
það standi að varan innihaldi enga
transfitu þá getur hún verið falin.
Ef varan inniheldur herta fitu í ein
hverri mynd þá er það vísbending
um transfitu en framleiðendur
þurfa ekki að taka slíkt fram á um
búðum nema varan innihaldi meira
en 0,5 prósent.
Hitað plast
Sérfræðingar í heilbrigðisvísindum
segja okkur að við eigum aldrei að
hita matvæli í plasti. Ástæða þess er
sú að við hitun losna efni úr plast
inu sem berast í matvælin. Þá hafa
bandarísku krabbameinssamtök
in hvatt fólk til að forðast plast til að
koma í veg fyrir krabbamein. Þó eru
margir örbylgjupoppspokar fóðrað
ir að innan með plasti.
Hollari kostir
Poppaðu með gömlu góðu að
ferðinni – að poppa í potti er alltaf
best. Kauptu þá lífrænt popp og
bættu við örlítilli olíu eða smjöri.
Enn betra er að nota kókosolíu eða
aðrar hollari olíur. Settu lok yfir
pottinn og hristu varlega til á hell
unni þar til poppið er tilbúið. Stráið
svo hollri tegund af salti eða kryddi
yfir.
Það má einnig búa til sitt heima
gerða örbylgjupopp. Þá setur þú
poppmaís í brúnan bréfpoka.
Brjóttu upp á opið nokkrum sinn
um og hitaðu í örbylgjuofninum.
Taktu pokann út þegar einungis eru
um það bil fimm sekúndur á milli
poppa. n
VarhugaVert
örbylgjupopp
n PFC-efni, transfita og erfðabreytt efni má finna í flestu örbylgjupoppi
„Neytend-
ur ættu
að kalla eftir
frekari upplýs-
ingum um þetta
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Hollt snakk Ef það er í örbylgju-
umbúðum með viðbættum efnum
þá er það allt annað er hollt.
seinkun og tengiflug
Margir setja sjálfir saman
flugáætlun en það getur
orðið dýrt ef seinkun
verður á fyrra fluginu.