Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2012, Qupperneq 18
Viltu kropp eins og Vergara?
n Einkaþjálfari Sofiu Vergara leysir frá skjóðunni
L
eikkonan Sofia Vergara hefur
um árabil þótt sú heitasta í
bransanum og situr iðulega á
toppnum yfir kynþokkafyllstu
konur heims. Vergara heldur sín-
um kvenlegu línum með hjálp
sænska stjörnueinkaþjálfarans
Gunnars Peterson. Gunnar þessi
hefur hjálpað stjörnum á borð við
Angelinu Jolie, Matthew McCon-
aughey og Jennifer Lopez að kom-
ast í sitt besta form og því ekkert
skrítið að kólumbíska leikkonan
hafi leitað til hans.
Í viðtali við InStyle-tímaritið
deildi einkaþjálfarinn helstu
leyndarmálum Sofiu í tengslum
við líkamsrækt með lesendunum.
„Sofia er svokallað stundaglas og
heldur þeirri lögun með endalaus-
um hnébeygjum. Ef sú vitneskja
er ekki nóg til að fá þig til að bæta
hnébeygjum inn í æfingaplanið
þitt þá veit ég ekki hvað getur það,“
segir þjálfarinn og bætir við að
þótt Sofia sé dugleg að gera maga-
æfingar séu slíkar endurtekningar
ekki nægar ef ætlunin sé að fá
grjótharða magavöðva. „Það er ná-
kvæmnisvinna að fá svona fallegar
línur eins og Sofia er með. Þetta
snýst ekki bara um miðjuna. Við
leggjum áherslu á axlirnar til að
ýta undir grannt mittið og svo not-
um við æfingar sem reyna á fleiri
en einn vöðvahóp. Þannig náum
við betri árangri.“
Peterson ítrekar að það erfið-
asta við líkamsræktina sé að halda
sér við efnið. „Ég bý til nýja æfingu
fyrir hvern einasta dag fyrir hvern
einasta kúnna. Æfingarnar eru því
alltaf ferskar svo hvorki hugur né
líkami fær leið þar á. Að auki bæti
ég alltaf smá fíflagangi inn í því
þetta verður að vera skemmtilegt.“
18 Lífsstíll 24. október 2012 Miðvikudagur
Greiðslur fyrir
10 þumla
M
ér fannst vanta almenni-
lega bók sem kenn-
ir hárgreiðslu og hár-
umhirðu á markaðinn,
segir Theodóra Mjöll
Skúladóttir Jack sem gefur ráð um
hárumhirðu og 70 einfaldar upp-
skriftir að hárgreiðslum í nýrri bók
sinni, Hárið.
Theodóra er hárgreiðslukona
að mennt og nemi í vöruhönnun
við Listaháskóla Íslands. Undan-
farin ár hefur hún unnið sem
hárgreiðslukona á Rauðhettu
og úlfinum, en er sem stendur í
fæðingarorlofi.
Kúnnar í vandræðum með hárið
„Ég var með svo mikið af kúnnum
með sítt hár sem voru í vandræð-
um með hárið. Ég eyddi alltaf mikl-
um tíma í að kenna þeim greiðslur,
svara spurningum um umhirðu og
kenna þeim að flétta og krulla á sér
hárið. Svo komu þær aftur og voru
búnar að gleyma leiðbeiningun-
um,“ segir hún og hlær. „Ég leitaði
að bókum með leiðbeiningum fyrir
þær en fann engar. Það er enda-
laust mikið til af förðunarbókum
en enginn virðist hafa lagt í að gera
hárgreiðslubók.“
Einfaldar greiðslur fyrir allar
konur
Theodóra leggur áherslu á að all-
ar uppskriftirnar í bókinni séu ein-
faldar og fyrir alla að leika eftir. „Ég
eyddi miklum tíma í að einfalda
hárgreiðslurnar svo að allir gætu
skilið leiðbeiningarnar. Ég tók mið
af greiðslum sem ég hef sankað að
mér í gegnum árin og nokkrar sem
ég hafði séð. Svo er ég líka með
nokkrar uppskriftir að barnahár-
greiðslum fyrir foreldrana að læra.
Greiðslurnar eru bæði fyrir konur
með tíu þumalfingur og fyrir þær
flinku. Allt frá einföldum fléttum
og upp í fínar uppgreiðslur,“ segir
Theodóra.
Vill vitundarvakningu
Theodóra leggur mikið upp úr
fræðslu um hár og umhirðu þess
og vonast til þess að hún geti kom-
ið af stað vitundarvakningu um
hár umhirðu. „Allir ættu að þekkja
vel hár sitt og hvaða hárvörur
henta hárgerðinni. Ég hvet fólk til
að greina á sér hárið og leita réttra
lausna. Hárið er okkur heilmikið
tilfinningamál og það er þess virði
að hugsa vel um það. Okkur finnst
við oft breyta um persónuleika við
að klippa á okkur topp og fallegt og
vel hirt hár eykur sjálfstraustið. Mér
finnst alltof margar konur taka ráð-
leggingum um hárumhirðu um-
hugsunarlaust. Þær ættu að skoða
hár sitt vandlega sjálfar og þess
vegna legg ég mikið upp úr fræðslu í
þessari bók. Hugsa sér hvað margar
konur eyða ógrynni fjár í rangar
hárvörur sem henta þeim alls ekki!“
Mikið af hæfileikafólki kom að
gerð bókarinnar. Ljósmyndarinn
Saga Sigurðardóttir sá um að taka
þær fimm hundruð myndir sem
prýða bókina og förðunarmeist-
arinn Ísak Freyr Helgason farðaði
fyrir sæturnar sem eru allar þekktar
fyrirsætur sem hafa slegið í gegn.
„Stúlkurnar hjá auglýsingastofunni
Undralandinu sáu svo um útlit og
uppsetningu bókarinnar og ég er
verulega ánægð með bókina að
öllu leyti,“ segir Theodóra stolt af
afrakstrinum.
kristjana@dv.is
n Hárið skiptir höfuð máli
Útkoman Einföld
greiðsla en lagleg.
Mynd: Saga Sig
Förðun: ÍSaK FrEyr
Kvenleg Sofia Vergara er allt annað en
horuð. Hún er með ávalar og fallegar línur og
er stolt af þeim.
Spurningar og svör:
Umhirða hárs
Vex hárið á mér hraðar ef ég klippi
það? Nei, hárið er ekki lifandi og því
hefur klipping ekki áhrif á vöxt þess.
af hverju fer ég úr hárum?
Til eru ótal skýringar á hárlosi en þær
algengustu eru árstíðaskipti, brjóstagjöf,
lyfjameðferðir, stress, vöðvabólga, áföll
og margt fleira. Ef um óstjórnlegt hárlos
er að ræða er gott að leita til læknis.
Hvernig get ég endurheimt rak-
ann sem eitt sinn var í hárinu en
hefur dofnað vegna aldurs?
Með aldrinum verður hárið þurrara
og viðkvæmara vegna náttúrulegrar
olíuminnkunar í hársverði. Góð lausn á
þessu vandamáli er að nota rakasjampó
og rakanæringu.
Er í lagi að hafa djúpnæringu í
hárinu yfir nótt? Sum djúpnæring eru
hönnuð þannig að hún nær hámarki sínu
eftir vissan biðtíma og er því nauðsyn-
legt að fara eftir þeim leiðbeiningum.
Þá næringu sem hefur engan sérstakan
biðtíma er í lagi að hafa yfir nótt og gerir
hárinu gott.
Hárið á mér er alltaf fitugt. af
hverju? Það geta legið margar ástæður
að baki því. Rangt mataræði, vitlaust
val á sjampói og hárnæringu, ofnotkun
kemískra efna og margt fleira.
Hvað gerir kókosolía fyrir hárið?
Hún gefur hárinu raka og gljáa, er
bakteríudrepandi, sveppadrepandi og
er frábært úrræði gegn flösu, exemi og
sóríasis.
Slítur það hárið að greiða það
blautt? Þegar hárið er blautt er það
mun teygjanlegra en þegar það er þurrt
og slitnar því frekar. Því þarf að fara mjög
varlega þegar hárið er greitt og nota til
þess mjög grófar greiður eða bursta með
mjúkum hárum.
Heit olía og
sýrunæring
Heitar olíur hafa verið vinsælar í
hárumhirðu síðustu misseri. Í bók
Theodóru kemur fram að hvað
hárnæringu varðar séu þær með
áhrifaríkasta sem hægt er að nota.
Þessar olíur eru fyrir þurrt hár sem
þarfnast mikillar umönnunar. Góð-
ar leiðbeiningar fylgja oftast og er
nauðsynlegt að fara eftir þeim.
Þá bendir Theodóra á kosti
styrkjandi næringar fyrir hár sem
þarfnast uppbyggingar vegna
slæmrar meðferðar. Sýrunæring er
næring sem inniheldur 3,5 í pH-
gildi sem kemur jafnvægi á hárið og
styrkir „hydrogen“-bönd keratínsins
í hárinu. Keratínið er ríkt af prótín-
um, olíum, rakagefandi gerviefnum
og fleiri efnum. Næring af þessum
toga hentar öllum hárgerðum.
Skiptu hárinu
í tvennt, þvert
yfir hvirfil og settu
lágt hliðartagl í
neðri hlutann.
Skiptu efri
hluta hársins
lóðrétt í tvennt.
Krossaðu
lokkana
yfir teygjuna sem
heldur utan um
hliðartaglið.
Krossaðu
lokkana
undir taglið og
aftur yfir.
Gerðu þetta
til skiptis
niður taglið.
Settu litla
gúmmí-
teygju í endann.
1 2 3
4 5 6
Snúið um tagl Einfaldar leiðbeiningar prýða bók Theodóru.
Þjálfari stjarnanna Gunnar Peterson
hefur þjálfað Angelinu Jolie, Matthew
McConaughey og Jennifer Lopez.