Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2012, Side 23
Fólk 23Miðvikudagur 24. október 2012
Spilar með Svölu
n Legend með samning hjá kanadísku fyrirtæki
Á
stæðan fyrir því að þeir vildu
vinna með okkur var auðvitað
tónlistin og svo ímyndin. Þeir
vildu fá svona listamenn inn í
„label“-ið. Þeir telja okkur eiga eft-
ir að höfða til breiðs hóps og þar sem
þetta er þannig fyrirtæki fáum við að
vera við sjálfir áfram, segir tónlistar-
maðurinn Krummi Björgvinsson en
kanadíska plötufyrirtækið Artoffact
gerði nýverið samning við hljóm-
sveitina Legend.
Plata sveitarinnar verður endur-
útgefin og henni dreift í Kanada,
Norður-Ameríku og í Evrópu af einu
stærsta dreifingarfyrirtæki Kanada í
þessum „industrial/goth“-tónlistar-
geira. „Platan kemur út 11. desem-
ber og þessu fylgja kynningarferðir
og tónleikaferðalög. Ég er nákvæm-
lega núna að ræða við bókara bæði í
Þýskalandi og Kanada og við förum
af stað sem fyrst á nýju ári,“ segir
Krummi og bætir við að þar að auki
muni sveitin troða upp á tónlistarhá-
tíðum um víða veröld. „Það er allt
að gerast og spennandi tímar fram-
undan.“
Þann 1. desember mun svo
Legend troða upp ásamt Steed Lord
á Gamla Gauknum en þetta verð-
ur í fyrsta skiptið sem systkinin
Krummi og Svala koma saman með
hljómsveitir sínar á svið. „Við hlökk-
um rosalega mikið til. Okkar hlust-
endahópur er ekkert endilega sá
sami og fyrir mér gerir það tónleik-
ana fjölbreyttari og skemmtilegri.
Fólk sem fílar raftónlist getur hlust-
að á báðar sveitir því það er mikið
af raf tónlistaráhrifum hjá okkur líka.
Við eigum það sameiginlegt. Legend
er þó drungalegri en Steed Lord svo
þetta verður skemmtileg blanda;
drunginn og bjartsýnin saman.“
Krummi segir að þar sem hljóm-
sveitarmeðlimir beggja sveita séu
miklir vinir hafi lengi staðið til að
halda sameiginlega tónleika. „Við
fórum að tala um þetta fyrir tveimur
árum þegar ég var nýbúinn að stofna
Legend. Svo bauðst þetta tækifæri
núna hjá strákunum á Gamla Gaukn-
um og þetta öskraði á mig að þetta
væri rétti tíminn. Steed Lord kem-
ur heim um jólin og þetta small allt
saman.“ n
indiana@dv.is
Þ
essi mynd er 100 prósent
snjóbretti, segir Eiríkur
Helgason snjóbrettakappi
um snjóbrettamyndina
Pepping sem fór í loftið á
vefsíðunni helgasons.com í gær,
þriðjudag. Eiríkur er ánægður með
myndina en segir umdeilt mynd-
band sem hefur farið eins og eldur
í sinu um internetið ekki hafa verið
framleiðslu þeirra bræðra en Eiríkur
er eldri bróðir Halldórs Helgasonar
snjóbrettakappa.
„Við Halldór bjuggum það ekki til
en höfum heyrt að fólk sé að stimpla
okkur sem eigendur þess. Ég sást til
dæmis ekki í þessu myndbandi. Hall-
dór sést enda eru þetta vinir okkar
sem gerðu það. Þetta eru bara ungir
snjóbrettamenn sem langaði að gera
svona snjóbretta-, partí-, subbu-
myndband.“
Eiríkur segir ímyndina sem snjó-
brettafólk hafi á sér ekki endilega
rétta. „Það varð allt vitlaust þegar
þetta myndband fór í loftið. Nú á allt
snjóbrettalið að vera sóðalegt. Ég
drekk varla sjálfur og myndi aldrei
gera eitthvað svona eins og sést
á þessu myndbandi. Ég get alveg
hlegið að öðrum sem láta svona en ég
myndi aldrei láta svona sjálfur,“ segir
hann hlæjandi en bætir við að þessi
neikvæða ímynd sem fari af jaðar-
íþróttafólki fari ekki fyrir brjóstið á
sér.
„Ég er fyrir löngu búinn að venjast
þessu. Svona hefur þetta verið síðan
maður var pínu lítill. Þetta er ekkert
nýtt.
Það sem skiptir mestu máli hjá
okkur, og flestu snjóbrettafólki sem
ég þekki, er að hafa eins gaman af líf-
inu og við getum. Við erum ekkert að
spá í hvað öðru fólki finnst um okk-
ur og gerum það sem okkur dettur í
hug svo lengi sem það særir engan
annan en okkur,“ segir hann og bætir
aðspurður við að vissulega geri hann
sér grein fyrir að hann sé ákveðin
fyrir mynd. „Ég segi samt eins og
Halldór. Ég ætla ekki að breyta mér
fyrir neinn. Ég er bara eins og ég er.
Ég myndi líka telja að ég væri ágætis
fyrirmynd. Það eru eflaust margir
verri en ég.“
Eiríkur segir þá bræður hafa feng-
ið góð viðbrögð við nýju myndinni.
„Núna hefur hún verið uppi í eina
klukkustund og strax hafa hátt í sex
þúsund manns horft á hana. Þetta
stefnir í að verða eitthvað gott,“ seg-
ir hann og bætir við að það fari mikil
vinna í svona mynd. „Við erum bún-
ir að vera í heilt ár að filma og klippa
efnið. Þetta er búið að vera mjög gott
ár.“
Athygli vakti að Eiríkur sást ekk-
ert í þættinum Ísþjóðinni þegar sjón-
varpskonan Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir heimsótti Halldór bróður
hans til Mónakó. „Planið var að vera
báðir í þættinum en það hittist illa
á. Við erum náttúrulega að ferð-
ast brjálað mikið báðir tveir og ég
var fjarverandi þegar hún kom. Ég
verð bara með næst,“ segir hann og
bætir við að það séu spennandi tímar
framundan. „„Season“-ið er að byrja
á fullu aftur og við erum báðir á leið
til London að keppa yfir helgina.“ n
n Snjóbrettakappinn Eiríkur Helgason segir umdeilt
myndband, sem hefur farið eins og eldur í sinu um netið,
ekki framleiðslu þeirra bræðra
B
ragi Valdimar Skúlason,
Baggalútur og tónskáld, á von
á sínu þriðja barni í febrúar
en fyrir á hann tvær dætur
sem eru sjö og tveggja ára með konu
sinni Þórdísi. Frá þessu er greint í
síðasta tölublaði Séð og heyrt en
þar segir að ekki sé vitað hvort um
dreng eða stúlku sé að ræða. Það
sé þó möguleiki að það komi í ljós
áður en barnið fæðist þar sem þau
geymi upplýsingar um það í umslagi
heima. Bragi Valdimar segir því ekki
útilokað að þau kíki í umslagið við
gott tækifæri. Barnið er væntanlegt
í heiminn í febrúar en athygli vekur
að Kiddi í Hjálmum, meðstjórnandi
Braga Valdimars í Hljómskálanum, á
einnig von á barni í febrúar. n
n Bragi Valdimar og Kiddi í Hjálmum
eiga báðir von á barni í febrúar
Baggalútsbarn
væntanlegt
„Ég drekk varla
sjálfur og myndi
aldrei gera eitthvað
svona eins og sést á
þessu myndbandi.
„Margir
verri en ég“
Snjóbrettakappar Eiríkur er eldri bróðir Halldórs.
Hann segir þá bræður ekki hafa komið nálægt framleiðslu
myndbandsins umdeilda sem fór fyrir brjóstið á mörgum.
Ágætis fyrirmynd Eiríkur
segir snjóbrettafólk vilja
hafa gaman af lífinu. Hann
telur sig ágætis fyrirmynd.
Allt að gerast
Plata Legend verður
endurútgefin og
dreift af stóru
dreifingarfyrirtæki
innan „industrial/
goth“-geirans.
Mynd: BrynjAr Snær
Fjallar um fjármál
á léttum nótum
n Jóni Jónssyni er margt til lista lagt
J
ón Jónsson lætur til sín taka á
fleiri sviðum en tónlistarsviðinu
en hann er einnig menntaður
hagfræðingur og heldur fræðslu-
fundi. Þar fræðir hann ungt fólk á
framhaldsskólaaldri um fjármál
á skemmtilegan hátt og fer með-
al annars yfir það hvað það þýðir að
verða fjárráða, hvernig peningar virka
og mikilvægi þess að setja sér mark-
mið. Í lok fundar tekur Jón svo að
sjálfsögðu nokkur lög.
Hann mun ferðast um allt land
með fræðslufundi sína en sá fyrsti,
sem haldinn var í Reykjavík á þriðju-
dag, var fullbókaður og ljóst að Jón
nær til unga fólksins með því að tala
um fjármál á léttu nótunum. n
F
yrstu ljósmyndir af atriðum úr
þáttaröðinni Lífsleikni Gillz er
að finna á Vísi en þáttaröðin,
sem hefur verið endurklippt
til sýninga í kvikmyndahúsum,
verður frumsýnd nú í nóvember.
Þættirnir eru framhald af þátt-
unum Mannasiðir Gillz sem sýnd-
ir voru á Stöð 2 í fyrra. Egill Einars-
son, höfundur og aðalleikari
þáttanna, segir í samtali við Vísi
að þættirnir séu til þess gerðir að
létta fólki lundina og að langt sé
síðan gott íslenskt grín hafi sést
í kvikmyndahúsum. Þættirnir
séu fyndnasta íslenska efnið sem
fram hafi komið síðan Sódóma var
og hét. Í þáttunum er fylgst með
nokkrum misheppnuðum mönn-
um sem reyna að fóta sig í ýms-
um aðstæðum en klúðra því og þá
kemur Gillz eins og frelsandi engill
og bjargar málunum. n
n Misheppnaðir menn
reyna að fóta sig í
ýmsum aðstæðum
LífsLeikni giLLz í bíó