Fréttablaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 2
5. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 VINNUMARKAÐUR Mikill hiti hefur færst í umræður um launakjör Íslendinga síðustu daga og búast menn við erfiðum samninga- viðræðum í vetur. Bjarni Ben- ediktsson fjármálaráðherra sagði í gær að ef gengið yrði að kröf- um Læknafélags Íslands myndu útgjöld vegna launa lækna aukast um helming. Eins óskaði Sigmund- ur Davíð eftir skoðun ASÍ á háum launakröfum lækna. Þorbjörn Jónsson, formaður læknafélagsins, vildi ekki stað- festa tölur fjármálaráðherra og kvað eðlilegt að hann svaraði fyrir þær sjálfur. „Við höfum aldrei dregið dul á það að við förum fram á verulegar launahækkanir. Við höfum ekki viljað fara í karp um tölur og prósentur í þeim efnum en það er ljóst að um umtalsverða hækkun er að ræða.“ Þorbjörn telur samt að nokkur árangur sé að nást í umræðunni. „Markmið mitt er að ná samningi sem fyrst svo að verkfallsaðgerðir stöðvist. Það þjónar ekki tilgangi að karpa um tölur og pró- sentur á síðum blað- anna. Stóru tíðindin eru hins vegar þau að ráðamenn þjóðarinn- ar telja að læknar hafi dregist aftur úr á síð- ustu árum. Það hafa þeir sagt opin- ber- lega og er merki um að við séum að ná ákveðnum árangri í málflutningi okkar,“ segir hann. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagðist í viðtali við fréttastofu Sjónvarps vilja fá að heyra afstöðu ASÍ til þeirrar kröfugerðar að hækka laun lækna meira en annarra stétta. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, undrast þessa umleitan forsætis- ráðherra og telur hann horfa fram hjá eigin ábyrgð á stöðu mála. „Þótt maður eigi ekki að láta orð forystumanna ríkisstjórnarinn- ar koma sér á óvart þá tekst þeim það samt alltaf.“ Gylfi segir stöð- una sem uppi er á vinnumarkaði nokkuð slæma og búið sé að gefa tóninn. „Sigmundur og Bjarni eru á flótta frá sjálfum sér. Þeir hafa búið til nýja viðmiðun og um það standa deilurnar, að menn njóti þeirra viðmiðunar. Það þýðir ekki fyrir forsætisráðherra að benda á ASÍ í þeim efnum enda komum við ekki nálægt kröfugerð lækna eða samningaviðræðum þeirra.“ Ábyrgðina segir hann fyrst og fremst ríkisstjórnarinn- ar. Með því að hafa samið um 30 prósenta launahækkun framhalds- skólakennara á forsendum þess að um þjóðarsátt hafi verið að ræða hafi viðmiðið verið sett. „Þótt óreyndir séu þá bera þeir samt sem áður ábyrgð á því ástandi sem upp er komið á vinnumark- aðnum á Íslandi,“ segir Gylfi. „Það er ástæða fyrir því að menn eru með góðar væntingar um hækk- un launa. Til að mynda þegar þeir töluðu um laun mennta- skólakennara. Sé það rétt að læknar hafi einnig setið eftir í launaþróun inni á spítölum þá er ekk- ert óeðlilegt að þeir vilji sækja ríflegar hækkanir. Ábyrgð- in fyrst og fremst er ráðamanna þessara ríkisstjórnar.“ sveinn@ frettabladid.is ASÍ segir ástandið á ábyrgð ríkisstjórnar Fjármálaráðherra segir útgjöld til launa lækna aukist um helming verði farið að kröfum þeirra. Formaður Læknafélagsins segir árangur hafa náðst í við- ræðum. Forseti ASÍ segir ekkert óeðlilegt við að læknar sæki launahækkanir. Við höfum aldrei dregið dul á það að við förum fram á verulegar launahækk- anir. Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands BRETLAND, AP Flóttamannastofn- un Sameinuðu þjóðanna kynnti í gær metnaðarfulla herferð gegn ríkisfangsleysi. Stefnt verði að því að innan áratugar verði eng- inn maður ríkisfangslaus. Milljónir manna búa nú við það að vera hvergi ríkisborgarar, og eru þá hvorki með fæðingarvott- orð né önnur persónuskilríki. Ástandið hefur versnað mjög undanfarin misseri, einkum vegna átakanna í Sýrlandi. Nýfædd börn kvenna, sem flúið hafa átökin þar, lenda mörg í þessari stöðu. - gb Herferð gegn ríkisfangsleysi: Enginn verði ríkisfangslaus FERÐAÞJÓNUSTA Upplýsingamiðstöð Austurlands á Egilsstöðum hefur verið lokað og óvíst er hvenær starfseminni verður framhaldið. Ástæðan er fjárskortur. Svo segir í tilkynningu frá Aust- urbrú, sem rekið hefur miðstöðina. Þar segir að um mikla afturför í þjónustu við ferðamenn sé að ræða. Sífellt minna fjármagn frá Ferða- málastofu Íslands auk þess sem Fljótsdalshérað ákvað nýverið að endurskoða þátt sinn í rekstrin- um eru ástæður lokunarinnar, en Austurbrú leitar leiða til að opna að nýju. - shá Ferðamenn án upplýsinga: Loka miðstöð vegna fjárskorts HEILBRIGÐISMÁL „80 mg tafla af OxyContin selst líklega á kr. 5.000.“ Þetta má lesa á vef SÁÁ þar sem greint er frá því að ný, sterk verkjadeyfandi lyf séu komin á ólöglega vímuefnamark- aðinn hér á landi. „OxyContin hefur bæst í flokk þeirra lyfja sem fólk er að selja en ekki nota einhverra hluta vegna. Þetta er morfínskylt ávanabindandi lyf og misnotað sem slíkt. Misnotkun þess hefur verið mikið vandamál í Banda- ríkjunum í langan tíma,“ segir Valgerður Rúnarsdóttir, læknir hjá SÁÁ. Ólafur Einarsson, verkefn- isstjóri lyfjagagnagrunns hjá Embætti landlæknis, segir að brögð hafi verið að því að einstak- lingar hafi farið á milli lækna til að fá OxyContin ávísað. „Við skoð- um þetta reglulega og ef við sjáum slíkt bregðumst við strax við. Við skoðun á ávísunum á OxyContin á árunum 2012 og 2013 kom hins vegar í ljós að ávísunum fækkaði. „Það er ávísað mun meira af öðrum lyfjum í flokki sterkra verkjalyfja. En almennt eru læknar mjög á varðbergi í sam- bandi við þessi lyf.“ Að sögn Ólafs hefur verið meira um að einstaklingar fái önnur ávanabindandi lyf hjá fleiri læknum en einum og nefn- ir í því samhengi svefnlyf. Hann bendir á að gripið hafi verið til aðgerða til að auka aðgengi lækna að upplýsingum. - ibs SÁÁ segir ný sterk ávanabindandi verkjalyf komin á ólöglega vímuefnamarkaðinn hér á landi: Taflan líklega á fimm þúsund krónur OxyCont- in hefur bæst í flokk þeirra lyfja sem fólk er að selja en ekki nota einhverra hluta vegna. Þetta er morfínskylt ávanabindandi lyf. Valgerður Rúnarsdóttir, læknir hjá SÁÁ STJÓRNSÝSLA „Það er ekki mitt að meta það hvort það hafi verið mistök eða ekki,“ sagði Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lög- reglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, sem kom í gær fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vegna skýrslu um aðgerðir lögreglunnar við mótmæli árin 2008 til 2011. Sigríður sagði skýrsluna einsdæmi og að slík samantekt yrði ekki gerð aftur. Geir Jón Þórisson, þáverandi yfirlög- regluþjónn sem gerði skýrsluna, sagði menn geta gagnrýnt textann og ásakað hann um hitt og þetta. „Þarna voru lög- reglumenn sem sögðu sínar skoðanir og skýrslan var aldrei ætluð til húslestrar,“ sagði Geir Jón við Vísi í gær. Einn þeirra sem nefndir eru í skýrsl- unni hefur kært lögregluna. „Ein kæra hefur borist og ekkert frekar um það að segja á þessu stigi,“ er svar ríkissaksókn- ara við fyrirspurn Fréttablaðsins. - gar Lögreglustjórinn ekki reiðubúinn að segja umdeilda skýrslu vera mistök: Engar nýjar kærur hafa borist FYRIR ÞINGIÐ Sigríður Björk Guðjónsdóttir lög- reglustjóri (lengst til hægri) mætir á fund stjórnskip- unarnefndar í gær, ásamt Rannveigu Þórisdóttur, stjórn- anda upplýsinga- og áætlunardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu og Jóni H. B. Snorrasyni aðstoð- arlögreglustjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON GYLFI ARNBJÖRNSSON BJARNI BENEDIKTSSON SPURNING DAGSINS ALÞINGI Styrktarfélag barna með einhverfu afhenti í gær þingmönn- um sérkennslugögn sem keypt voru fyrir fé úr söfnuninni Blár apríl. Alls söfnuðust tæpar 4,5 milljónir króna sem nýttar voru til kaupa á heyrnarhlífum og kúlusessum. „Eftir að hafa ráðfært okkur við sérfræðinga var þetta lendingin. Gögnin takmarka utanaðkomandi áreiti og börnin geta því einbeitt sér betur að námi,“ sagði Ragnhildur Ágústsdóttir, formaður félagsins. „Þingmennirnir hleyptu söfnuninni af stað með því að ganga með bláan hálsklæðnað á degi einhverfu og því þótti vel við hæfi að þeir rækju smiðshöggið.“ - joe Fjórar heyrnarhlífar og sessur fyrir hvern skóla landsins: Sérkennslugögn fyrir 4,5 milljónir ÞINGMENN Heyrnarhlífum og sessum veitt viðtaka. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ísólfur, eruð þið í rusli? „Við erum í rusli og stuði á víxl.“ Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri í Rangárþingi eystra, hyggst ræða við full- trúa Gámaþjónustunnar vegna meintrar vanrækslu verktaka sem á að sækja rusl eins íbúa sveitarfélagsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.