Fréttablaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 46
5. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 26 BÆKUR ★★★★ ★ Vinur minn vindurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir BÓKABEITAN Vinur minn, vindurinn eftir Berg- rúnu Írisi Sævarsdóttur kom nýlega út hjá Bókabeitunni. Um er að ræða ríkulega myndskreytta barnabók sem fræðir unga lesendur um veðr- ið – ja, eða vindinn, nánar tiltekið. Eins og titillinn bendir til er vindurinn persónugerður í bókinni, og lesandinn fylgir honum í leik á hverri opnu. Hann leikur sér á ólík- an máta, enda er hann ekki alltaf í sama skapi. Höfundur ræðir um ólíkar birtingarmyndir vindsins og mismunandi nöfn sem eiga við hverju sinni. Lesandinn er ávarp- aður og tilfinningin er dálítið eins og kennslustund, en blessunarlega laus við allt yfirlæti. Sagan verður nálæg lesandanum þegar hann er ávarpaður, en það er gert á ýmsa vegu. Sums staðar spyr sögumaður spurninga, annars staðar biður hann lesandann um að gera lítil verkefni eins og að blása eins og vindurinn, og á enn öðrum stöðum vísar hann í athafnir barnanna, svo sem baðferð- ir og pollahopp. Textinn er bæði ein- faldur og leikandi; skemmtilegur í upplestri. Myndirnar eru líka skemmti- legar, en þar fylgjumst við með eldhressum ketti njóta lífsins úti í guðsgrænni náttúrunni og veðrátt- an hefur vitaskuld áhrif á hvað hann tekur sér fyrir hendur. Þannig eru myndirnar aukalag ofan á söguna, myndasaga um þennan ónefnda kött sem aldrei kemur fyrir í textanum. Þó að bókin fjalli aðallega um vindinn minnist höfundur einnig á önnur veðurfræðileg fyrirbrigði eins og rigningu og sólskinsveður. Í lok bókarinnar er svo opna þar sem upp eru talin átján orð sem nota má til að lýsa ólíku veðri. Hvað útlit bókarinnar varðar er það nokkuð vel heppnað. Brotið er fallegt og blaðsíðurnar þykkar og mattar. Leturval á texta dregur heildarmyndina aðeins niður en það stingur örlítið í stúf við annars vel úthugsaða uppsetningu opnanna. Halla Þórlaug Óskarsdóttir NIÐURSTAÐA: Fjörug og lærdómsrík bók, lifandi og fallegar myndir. Sögu- maður fræðir og spjallar við lesendur um veðrið með virðingu. Spjallað um veðrið TÓNLIST ★★★ ★★ Heimspíanistar í Hörpu Nelson Goerner TÓNLEIKAR Í HÖRPU SUNNUDAGINN 2. NÓVEMBER. Heimspíanistar í Hörpu er tón- leikaröð með frábærum píanó- leikurum. Oftar en ekki hafa þeir unnið til verðlauna í alþjóðlegri keppni. Urmull er af fínum pían- istum; keppni er þar af leiðandi hugsuð til að veita þeim tækifæri til að hasla sér völl í tónlistar- heiminum. Þetta virðist vera á undanhaldi. Hér áður fyrr komust sigurveg- ararnir á forsíður stórblaðanna. Nú þykir það ekkert merkilegt lengur. Í dag þarf fólk því að beita öðrum ráðum til að vekja á sér athygli. Mestanpartinn er það frumleikinn á YouTube sem ræður. Helst verður það að vera eitthvað fáránlegt. Ef manni tæk- ist að syngja lag eftir Schubert með endaþarminum væri það stórfrétt. Maður yrði frægur á svipstundu og þyrfti enga keppni. Að þessu sinni var það Nel- son Goerner sem lék á flygilinn í Norðurljósum í Hörpu. Hann var sigurvegarinn í Franz Liszt- keppninni á sínum tíma, og líka í píanókeppninni í Genf. Svo er hann auðvitað á YouTube, en þar eru mörg frábær myndskeið með honum. Þó er þar engin viðundra- sýning. Tónleikarnir byrjuðu á sónötu K 282 eftir Mozart. Upphafið var rólegt og Goerner lék af unaðs- legri mýkt. Hljómurinn í slag- hörpunni var dásamlegur. Hrað- ari kaflar á eftir komu samt ekki eins vel út, hvernig sem á því stóð. Sum tónahlaupin liðu fyrir ónákvæmni og rytminn hefði mátt vera markvissari. Betra var næsta verk á efnis- skránni, Kreisleriana eftir Schu- mann. Þar var leikur Goerners andríkur, allar andstæðurnar í tónlistinni voru skemmtilega útfærðar. Það var gott flæði í tónlistinni, en þó vantaði aðeins upp á kraftinn. Hljómurinn í flyglinum hefði mátt vera öfl- ugri. Magnaðir hápunktar eiga að koma fyrir í verkinu, en þeir misstu stundum marks á tónleik- unum. Eftir hlé voru prelúdíur Chop- ins á dagskrá. Þær eru 24 tals- ins, yfirleitt mjög stuttar, hálf- gerð örverk. Þarna var Goerner í essinu sínu. Túlkunin var litrík og spennandi, og tæknin var óað- finnanleg. Ef hægt er að gagn- rýna eitthvað, þá er það helst pedalnotkunin. Hún var dálít- ið mikil. Sérstaklega í sextándu prelúdíunni, sem fyrir bragðið var ekki nógu spennandi. Bass- inn var of gruggugur. En yfirleitt var leikur Goerners flottur. Aukalögin voru skemmtileg. Hið fyrra var fjórða prelúdían úr bók I eftir Debussy. Þar voru litbrigðin mögnuð. Seinna auka- lagið var hin sjaldheyrða Schulz- Evler-útsetning á Dónárvalsinum eftir Strauss. Píanistinn hristi hana fram úr erminni eins og ekkert væri. Það var svo sannar- lega flugeldasýning. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Fagur tónn, marg brot- in, innileg túlkun en hefði að ósekju mátt vera snarpari. Fallegt, en stundum kraft laust NELSON GOERNER „Túlkunin var litrík og spennandi, og tæknin var óaðfinnanleg.“ NORDICPHOTOS/GETTY Fjórða Höfundakvöld Gunnarshúss verður haldið annað kvöld klukkan 20. Þá mæta þau Ófeigur Sigurðsson og Heiðrún Ólafsdóttir, lesa upp úr nýút- komnum skáldsögum sínum, Öræfum og Leið, og svara spurningum Páls Valssonar um þær. Allir velkomnir á meðan stólar leyfa. Ófeigur og Heiðrún kynna bækur sínar í Gunnarshúsi Lesið verður úr skáldsögunum Öræfi og Leið. ÖNNUR TVEGGJA Heiðrún Ólafsdóttir er annar höfundanna sem koma fram í Gunnarshúsi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hafdís Vigfúsdóttir flautuleik- ari og Gunnlaugur Björnsson gítarleikari koma fram á tón- leikum í Háteigskirkju í kvöld klukkan 20. þetta er í fyrsta sinn sem þau koma fram saman en þau eiga ýmislegt sameiginlegt, bæði luku ung framhaldsprófi frá Tónlistar skóla Kópavogs, hlutu viðurkenningu frá Kópavogsbæ sem framúrskarandi listnemar og stunduðu í framhaldinu tón- listarnám erlendis. Á efnisskránni í kvöld eru meðal annars C-dúr-sónata J.S. Bach, franskar perlur og Saga tangósins eftir Piazzolla. Að ógleymdu tónverki eftir Gunn- laug sjálfan, Temperamental Suite, en þetta er í fyrsta sinn sem verkið er flutt á Íslandi. - fsb Hafdís og Gunnlaugur saman í fyrsta sinn Flauta og gítar hljóma á tónleikum í Háteigskirkju í kvöld þar sem tveir ungir tónlistarmenn leika. TVÍSTIRNI Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Gunnlaugur Björnsson gítarleikari koma fram á tónleikum í Háteigskirkju í kvöld. MYND ÚR EINKASAFNI www.lyfja.is Lægra verð í Lyfju w.lyfja.is Hugum að húðinni Þegar veturinn gengur í garð er mikilvægt að sjá til þess að húðin sé vel undir kuldann búin. DermaSpray og Zeoderm eru nærandi húðvörur sem vinna gegn ýmsum húðkvillum s.s. exemi, psoriasis, kláða, húðbólgu og útbrotum. Topida virkar gegn sveppasýkingu í slímhúð og hefur kælandi og kláðastillandi áhrif. Salcura Antiac er öflugt í baráttunni við bólurnar – hreinsar og róar húðina. 20% afsláttur Gildir til 14. nóvember. MENNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.