Fréttablaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 18
5. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Jú, ég var ógurlega krúttaralegt barn en ég er miklu fegurri kona núna en ég var um tvítugt eða þrítugt. Það er eins og það hafi bara ræst úr mér. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURJÓN JÓNSSON Mánagötu 29, Grindavík, lést á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi laugardaginn 1. nóvember. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju, föstudaginn 7. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Samtök sykursjúkra og Hjartaheill. Sigríður Ágústsdóttir Ásdís Sigurjónsdóttir Reimar Ásgeirsson Tryggvi Hrafn Reimarsson Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EYJÓLFUR EINAR BRAGASON arkitekt, lést á Akershus-sjúkrahúsinu í Lørenskog, Noregi, mánudaginn 27. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 13. nóvember kl. 13.00. Kristín Kristmundsdóttir Pétur Örn Eyjólfsson Elín Ösp Gísladóttir Elísabet Björt Eyjólfsdóttir Jónas Ingi Jónasson Edda Björg Eyjólfsdóttir Stefán Már Magnússon og barnabörn. Ástkær bróðir okkar og mágur, STEINAR EINARSSON sjómaður, Hringbraut 136, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 22. október sl. Útförin hefur farið fram. Vilborg Einarsdóttir Hörður Kristinsson Jökull Einarsson Björg Sigurðardóttir Helga Björk Einarsdóttir MARK BELL tónlistarmaður er látinn. Við þökkum hlýhug og stuðning við andlát hans. Útförin fór fram fimmtudaginn 30. október sl. frá Wakefield Chapel í Yorkshire, Englandi. Adam Marksson Bell Daníel Marksson Bell Móeiður Anna Sigurðardóttir Tony Bell, Susan Bell, Helen Bell Ásdís Skúladóttir Skúli Á. Sigurðsson Sigurður G. Lúðvígsson Móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, HELGA K. EINARSDÓTTIR bókasafnsfræðingur, síðast til heimilis að Melgerði 15 í Kópavogi, er látin. Jarðarförin fer fram frá Salnum í Kópavogi fimmtudaginn 6. nóvember kl. 15. Einar Torfi Finnsson Ingibjörg G. Guðjónsdóttir Hjörleifur Finnsson Glóey Finnsdóttir Scott Riddell Örn Þorvaldsson Rannveig Þorvaldsdóttir barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLAUG INGÓLFSDÓTTIR dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, lést laugardaginn 1. nóvember. Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir Kristinn Tómasson Soffía Ragnarsdóttir Steindór Sigurðsson Ingibjörg Ragnarsdóttir Axel Bragason Ragna Sigurlaug Ragnarsdóttir ömmubörn og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR f. 23. apríl 1928, áður til heimilis að Melgerði 26, Kópavogi, lést á Droplaugarstöðum, mánudaginn 27. október sl. Jarðsungið verður frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 6. nóvember kl. 15.00. Kári Stefánsson Bjarnheiður Elísdóttir Björg Stefánsdóttir Þorsteinn Steinþórsson Ernir, Dúna, Elísa, Sunna, Sigríður Björg og Steinþór Örn Emma Stefanía og Fálki Stefán Elskuleg móðir okkar, tengdamamma, amma og langamma, SIGNÝ ÁGÚSTA GUNNARSDÓTTIR áður til heimilis í Jöldugróf 7, lést á dvalarheimilinu Eir 20. október. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 6. nóvember kl. 15.00. Gunnar Loftsson Halldóra Ragnarsdóttir Magnús Loftsson Elsa Bjarnadóttir Reynir Loftsson Guðný Jónasdóttir Birgir Loftsson Helga Ágústdóttir Rúnar Loftsson Arnar Loftsson Björg Sigurlaug Loftsdóttir barnabörn og langömmubörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR GUÐNÝ MATTHÍASDÓTTIR frá Arnardal, lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði þann 30. október. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju, laugardaginn 8. nóvember kl. 14.00. Matthías Berg Stefánsson Eyrún Þóra Guðmundsdóttir Guðmunda Björk Matthíasdóttir Garðar Rafn Eyjólfsson Sigríður Guðný Matthíasdóttir Tryggvi Ölver Gunnarsson og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir, mágkona og frænka, SIGRÚN BIRNA HELGADÓTTIR Leirubakka 8, Reykjavík, lést sunnudaginn 2. nóvember á líknar- deildinni í Kópavogi. Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 7. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Karitas hjúkrunar- og ráðgjafaþjónustu. Kristín Berg Bergvinsdóttir Alexandra, Lea og Kristófer Helgi Bergvinsson Linda Björgvinsdóttir Brynjar, Róbert, Bergvin og Viktor systkini og fjölskyldur. Hálf öld, takk fyrir, það verður sko partí!“ segir Helga Braga Jónsdótt- ir leikkona sem á fimmtugsafmæli í dag. „Reyndar bara fjölskylda og vinir sem ætla að hittast og fagna, en alvörupartí engu að síður.“ Spurð hvort hún muni ekki verja deginum í dekri segir Helga Braga það nú ekki alveg ganga upp. „Það þarf að græja snittur,“ segir hún og hlær. „Systir mín, Ingveldur Ýr, hefur reyndar yfirumsjón með veitingum, en ég hjálpa til. Fór samt í ondúler- ingu í gærmorgun og skelli mér svo í smink fyrir partíið. Lét meira að segja klippa á mig topp í tilefni tíma- mótanna, hálfrar aldar topp.“ Fimmtugsafmælið er ekki eina af- mælið sem Helga Braga fagnar í ár því hún á líka 35 ára leikafmæli og 25 ára útskriftarafmæli sem leikkona. Spurð hvað henni sé efst í huga við þennan áfanga grípur hún til klisj- unnar og segir: „Þakklæti, vinir mínir, þakklæti,“ og skellihlær. „Ég er bara að springa úr hamingju,“ bætir hún við. „Það er bara eitthvað svo gaman að lifa, í alvöru!“ Helga Braga er á fullu í uppistandi, fyrirlestrahaldi og að skemmta á kvennakvöldum og segir það hafa verið aðalatvinnu sína síðan 1998, þótt hún hafi auðvitað alltaf verið að leika í leikhúsum, bíómyndum og sjónvarpsþáttum meðfram því. „Ég er bara að gera alls konar ofsalega skemmtilegt,“ segir hún. „Mér líður svo miklu, miklu betur og ég lít miklu betur út en ég hef nokkurn tíma gert. Jú, ég var ógur- lega krúttaralegt barn en ég er miklu fegurri kona núna en ég var um tví- tugt eða þrítugt. Það er eins og það hafi bara ræst úr mér.“ Spurð hvort hún hafi einhver plön fyrir seinni hluta ævinnar neitar Helga Braga því en segist hins vegar hafa plön fyrir seinnihluta þessa mánaðar. „Ég er að fara til New York og á tónleika með Billy Joel í Madi- son Square Garden, hvorki meira né minna. Þar er langráður draumur loks að rætast. Það er ein af mörg- um afmælisgjöfum sem ég gef sjálfri mér, ég er nefnilega búin að vera að gefa mér afmælisgjafir allt þetta ár, enda á ég svo mörg afmæli.“ fridrikab@frettabladid.is Miklu fegurri kona í dag Helga Braga Jónsdóttir leikkona er fi mmtug í dag en auk þess fagnar hún á þessu ári 35 ára leikafmæli og 25 ára útskrift arafmæli úr leiklistarskóla. Það er sko tilefni til partís. HELGA BRAGA JÓNSDÓTTIR „Það er bara eitthvað svo gaman að lifa, í alvöru!“ FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.