Fréttablaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 24
 | 6 5. nóvember 2014 | miðvikudagur „Við reiknum með að afkoman á fjórða ársfjórðungi verði talsvert lakari en hún var á sama fjórðungi í fyrra og að EBITDA, hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, verði neikvæð,“ segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. Fyrirtækið hagnaðist um 85,8 milljónir Bandaríkjadala, jafn- virði 10,5 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi og sló þá ársgamalt afkomumet samstæðunnar. Hún var rekin með 26,7 milljóna dala, um 3,3 milljarða króna, tapi á fyrstu þremur mánuðum ársins en með hagnaði að jafnvirði 2,6 millj- arða króna á tímabilinu frá apríl til júníloka. Árstíðabundnar sveifl ur halda því áfram að setja mark sitt á afkomu fyrirtækisins sem hyggur á frekari landvinninga á næsta ári. Besti fjórðungurinn Tímabilið frá byrjun júlí til sept- emberloka er vanalega ykkar mik- ilvægasti fjórðungur. Hvað skýrir afkomumetið sem þið kynntuð í síðustu viku? „Þetta er jú mikilvægasti fjórð- ungurinn okkar og sá tími ársins þegar við erum með langmestu tekjurnar. Við teljum að orsaka sé að leita í þeirri auknu þjónustu sem Icelandair veitir, sem fjölgar far- þegum og ferðamönnum, en einn- ig hafa önnur dótturfélög okkar verið að njóta góðs af fjölgun ferða- Auðvitað er verð hjá félögum sem stunda flug mjög breytilegt frá einum tíma til annars. En við erum ekki að fara að breyta okkar stefnu á neinn hátt. Stefnu Icelandair verður ekki breytt Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir útlit fyrir að afkoma fyrirtækisins á fjórða ársfjórðungi verði talsvert lakari en á sama tíma í fyrra. Nýtt afkomumet samstæðunnar var kynnt í síðustu viku. Forstjór- inn hefur fulla trú að samningar náist við flugmenn. Lóðin í Hafnarfirði gæti borið nýjar höfuðstöðvar. FORSTJÓRINN Björgólfur Jóhannsson segir félagið hafa staðið í miklum framkvæmdum við hótel samstæðunnar og að viðsnúningur hafi orðið í rekstri Icelandair Cargo. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VIÐTAL Haraldur Guðmundsson haraldur@frettabladid.is manna. Einnig höfum við lagt aukna áherslu á vetur, vor og haust og þar með aukið vægi þessara árstíða í afkomu fyr- irtækisins,“ segir Björgólfur. Hann segir fjárhagsstöðu samstæð- unnar hafa styrkst, skuldir hafi meðal annars lækkað og því sé fyrirtækið vel undirbúið undir þær fjárfestingar sem séu fram undan. „Það er töluvert af fjárfestingum fram undan í nýjum fl ugvélum og styrk- ingu innviða ferðaþjónustunnar í land- inu með opnun hótelbygginga í eigu Ice- landair Group.“ Björgólfur tekur fram að kaup fyrir- tækisins á nýjum fl ugvélum hafi verið kynnt í fyrra þegar Icelandair undirrit- aði samning um kaup á sextán Boeing 737 MAX-vélum. „Við horfum til þess að þær verði not- aðar í leiðakerfi nu og höfum sagt að það styrki Icelandair að fá smærri vélar og gefi fyrirtækinu meðal annars aukinn sveigjanleika til að takast á við minni áfangastaði.“ Þið hafi ð bætt við áfangastöðum og fjölgað ferðum. Eru þessar breytingar að skila viðunandi árangri? „Þessar nýju leiðir hafa reynst vel. Síðan bætast við tvær á næsta ári en reyndar tökum við St. Pétursborg út. Ný leið styrkir kerfi ð í heild sinni en auðvitað verðum við að horfa til þess að þær gangi líka fjárhagslega og þær hafa verið að gera það,“ segir Björgólfur. Hærri laun og aukin samkeppni Þú segir að fjórði ársfjórðungur verði fyrirtækinu að öllum líkindum erfi ður. Hvað spilar þar helst inn í fyrir utan mögulegan samdrátt í tekjum? „Í fyrsta lagi er auðvitað hærri launa- kostnaður því laun hafa hækkað. Síðan er aukin samkeppni. Við erum reyndar með mjög mikla samkeppni á sumrin, en þegar ég er að tala um samkeppni þá er ég auðvitað ekki einungis að að tala um ferðir til og frá Íslandi. Ég er að tala um þessa stóru mynd yfi r Norður-Atl- antshafi ð þar sem við erum að horfa á mjög stór félög eins og Lufthansa, Brit- ish Airways, Norwegian og SAS sem eru að fl júga þar yfi r. Við höfum séð aukna samkeppni þar og auðvitað líka á heima- markaðinum.“ Hvernig ætlið þið að bregðast við þessari auknu samkeppni? „Við ætlum að gera það sem við erum best í og bregðast við þeim aðstæðum sem upp koma. Þar skiptir þjónustan mestu máli sem kemur meðal annars fram í aukinni tíðni á áfangastaði og meiri dreifi ngu í áætlanakerfi nu í heild sinni.“ Má gera ráð fyrir að aukinni sam- keppni verði mætt með lækkun far- gjalda? „Auðvitað er verð hjá félögum sem stunda fl ug mjög breytilegt frá einum tíma til annars. En við erum ekki að fara að breyta okkar stefnu á neinn hátt. Styrkur okkar liggur auðvitað í því hvað við erum dreifð í báðum heimsálfum og getum boðið, með einni millilendingu, fl ug yfi r Norður-Atlantshafi ð. En þetta snýst líka um þægindi og þjónustu og við horfum á hvað markaðurinn er að gera og þurfum að sjálfsögðu að bregð- ast við í ljósi aðstæðna á hverjum tíma,“ segir Björgólfur. Blæs á ásakanir um einokun Skúli Mogensen, forstjóri Wow air, sagði í viðtali í Markaðinum í september síð- astliðnum að einokunarstaða ríki í Norð- ur-Ameríkufl ugi. Wow hefur gagnrýnt úthlutun Isavia á afgreiðslutímum á Kefl avíkurfl ugvelli, eða stæðum, og sagt Icelandair hafa fengið þá tíma sem séu nauðsynlegir fyrir tengifl ug milli Evrópu og Bandaríkjanna. Málið hefur nú ratað alla leið til EFTA-dómstólsins sem mun á næstunni kveða upp sinn úrskurð vegna afgreiðslutíma í Kefl avík. „Þó það sé talað um það í orðræðunni að það sé ekki samkeppni til Norður- Ameríku þá er það auðvitað bara rangt. Við erum auðvitað í mjög mikilli sam- keppni við stór erlend fl ugfélög á þess- ari leið. Delta hefur svo verið að fl júga á milli Íslands og New York þannig að það hefur ekki heldur verið einokun þar,“ segir Björgólfur og heldur áfram: „Hins vegar er til eitthvað sem heit- ir hefðarréttur og við höfum 30 ára reynslu af þessum tengibanka í Kefl a- vík. Ég hef aldrei skilið af hverju fl ug- félag sem ætlar að hefja fl ug til Amer- íku þarf að fara inn á nákvæmlega sömu tímasetningar og fyrirtæki sem er fyrir þegar völlurinn býður upp á takmarkað pláss. Enda hefur komið í ljós að viðkom- andi félag, sem kvartaði, ætlar að fl júga á öðrum tíma og hefur tilkynnt að sá tími sé betri en sá sem það var að sækjast eftir.“ Félagið þoli vöxtinn Leiðakerfi fyrirtækisins hefur tvöfaldast frá árinu 2009. Þið spáið því að farþeg- ar ykkar verði um 2,9 milljónir á næsta ári og fjölgi þá um 300 þúsund milli ára. Eruð þið ekki að stækka of hratt? „Það er nú góð spurning. Við höfum nú verið að stækka meira en þetta undan- farin ár enda hefur stærð félagsins tvö- faldast. En Icelandair er auðvitað bara einn angi af því og hryggjarstykkið í samstæðunni. Hins vegar þurfa menn auðvitað að passa sig á því að vaxa ekki of hratt. En ég tel að okkur hafi tekist að vaxa þannig að félagið þoli það innan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.