Fréttablaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 12
5. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12 ÚKRAÍNA Petró Pórósjenkó Úkraínu- forseti hefur fyrirskipað her lands- ins að auka viðbúnað sinn og fjölga í herliði í hernaðarlega mikilvæg- um borgum í austurhluta landsins. Þetta er sagt gert vegna möguleika á nýrri sókn aðskilnaðarsinna. Í frétt BBC kemur fram að Pórósjenkó segi að stjórnarherinn skuli leggja áherslu á að verja borg- irnar Mariupol, Berdyansk, Khark- iv og norðurhluta Luhansk-héraðs. Forsetinn ræddi við fjölmiðla að loknum fundi sínum og yfirmanna hersins sem haldinn var í gær vegna umdeildra kosninga í héröðunum Donetsk og Luhansk sem fram fóru um helgina. Pórósjenkó sagðist vera fylgjandi núgildandi friðarsamkomulagi en að hann íhugaði að hætta við að veita Donetsk og Luhansk aukna sjálfs- stjórn líkt og samkomulagið gerir ráð fyrir. Tilkynnt var um friðar- samkomulagið þann 5. september síðastliðinn eftir margra mánaða átök úkraínska stjórnarhersins og aðskilnaðarsinna á bandi Rússlands- stjórnar. Alexander Sakharatjsenkó, 38 ára gamall leiðtogi uppreisnarmanna í hópi aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu, var í gær í kjölfar kosning- anna um helgina svarinn í embætti sem æðsti maður sjálfsstjórnar- svæðis þar. Athöfnin fór fram í leikhúsi sem varið var þungvopnuðum hermönn- um í helsta vígi uppreisnarmanna a sjálfsstjórnarsvæðinu sem aðskiln- aðarsinnar kalla Alþýðulýðveldi Donetsk. Úkraínustjórn og bandamenn hennar á Vesturlöndum hafa for- dæmt framkvæmd kosninganna. atliis@frettabladid.is, olikr@frettabladid.is Úkraínuher gert að auka viðbúnaðinn Fundað var í þjóðaröryggisráði Úkraínu í gær. Stjórnin býr sig undir að geta hrundið nýrri sókn aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins. Leiðtogi að- skilnaðarsinna í Donetsk var sór embættiseiði í gær. FUNDAÐ Í ÖRYGGISRÁÐI ÚKRAÍNU Petró Pórósjenkó Úkraínuforseti og Arsení Jatseník utanríkisráðherra takast í hendur fyrir fund þjóðaröryggisráðs landsins í Kænugarði í gær. Úkraínustjórn segist enn styðja friðarumleitanir við aðskilnaðar- sinna en eykur um leið viðbúnað og segist búin undir stríð. NORDICPHOTOS/AFP REYKJAVÍKURBORG Fjárhagsáætl- un meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur gerir ráð fyrir 437 milljóna króna afgangi borgar- sjóðs á næsta ári. Útlit er fyrir að 130 milljóna króna tap verði á rekstrinum í ár. Tapið er sagt skýrast með auknum launakostn- aði í kjölfar kjarasamninga. Í tilkynningu frá meirihluta Sam- fylkingar, Bjartrar framtíðar, VG og Pírata segir að fjárhagsáætlun einkennist af ábyrgum rekstri. „Fyrirtækin okkar eins og Orku- veitan eru enn að greiða niður miklar skuldir en á næstu fimm árum verða skuldir OR farnar niður um 80 milljarða,“ er haft eftir Degi B. Eggertssyni borgar- stjóra. Lækka á gjaldskrár leikskóla, taka upp systkinaafslætti þvert á skólastig og hækka frístundakort- ið. Fjölga á almennum félagslegum leiguíbúðum um fimm hundruð á næsta ári. Framlög eru aukin lítil- lega til velferðarmála. Útsvar verður óbreytt eða 14,52 prósent. Álagningarhlutföll fast- eignaskatta og lóðarleigu verða sömuleiðis óbreytt. Þá mun borgin fjárfesta fyrir 9,2 milljarða króna á árinu 2015. „Undirbúin verður viðbygging við Sundhöllina og Borgarbókasafnið, auk skóla, sundlaugar og menning- armiðstöðvar í Úlfarsárdal,“ segir um fjárfestingarnar. - gar Sköttum haldið óbreyttum á næsta ári: Borgarsjóður tapar vegna kjarasamninga BORGARSTJÓRINN Dagur B. Eggerts- son kynnti fjárhagsáætlun Reykjavíkur- borgar fyrir árið 2015. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fáðu 20% afslátt af NOKIAN dekkjum og styrktu Bleiku slaufuna um leið Veldu margverðlaunuð finnsk gæðadekk sem eru sérstaklega hönnuð fyrir krefjandi aðstæður norðlægra slóða. ein öruggustu dekk sem völ er á ítrekað valin bestu dekkin í gæðakönnunum breitt úrval nagla-, vetrar- og heilsársdekkja eigum dekk fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla Bíldshöfða 5a, Rvk Jafnaseli 6, Rvk Dalshrauni 5, Hfj Aðalsímanúmer 515 7190 Opnunartími: Virka daga kl. 8-17 Laugardaga: sjá MAX1.is Fáðu ráðgjöf frá sérfræðingum MAX1. Skoðaðu dekkjaleitarvélina á MAX1.is MAX1 býður 20% afslátt af hágæða Nokian dekkjum út nóvember og hluti söluágóða rennur til Krabbameinsfélagsins. SENDUM UM ALLT LAND Flutningur með Flytjanda 500 kr. hvert dekk Knarrarvogi 2, Rvk (ath. ekki dekkjaþjónusta) MAX1 &
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.