Fréttablaðið - 05.11.2014, Síða 6
5. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Við ætlum að
heimsækja ríkislögreglu-
stjóra til að reyna að
loka þessu máli.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir,
meðlimur allsherjarnefndar Alþingis.
VEISTU SVARIÐ?
Á morgun 6. nóvember gefur
Íslandspóstur út jólafrímerkin
2014 og frímerkjaröð tileinkaða
íslenskri myndlist. Myndefni
jólafrímerkjanna er fengið úr
miðaldahandritinu Íslenska
teiknibókin. Þau eru:
Fæðing Jesú, boðun Maríu
og tilbeiðsla vitringanna.
Jólaprýði Póstsins 2014
er tileinkuð þremur kirkjum.
Hóladómkirkju, Akureyrar-
kirkju og Víðimýrarkirkju.
Safnaðu litlum lis taverkum
Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum.
Einnig er hægt að panta þau hjá
Frímerkja sölunni. Sími: 580 1050.
Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
facebook.com/icelandicstamps
1. Hverrar gerðar er bifreið í eigu
Strætó sem framkvæmdastjóri notar?
2. Hver er formaður SFR?
3. Í hvaða sveitarfélagi var starf
bæjar ritara lagt niður fyrir skömmu.
SVÖR
1. Mercedes Benz 2. Árni Stefán Jónsson
3. Mosfellsbæ
STJÓRNSÝSLA Ef Norðmenn gefa
Íslendingum ekki umtalaðar hríð-
skotabyssur sem sendar voru hing-
að til lands og ríkið leggur ekki
fram fé til kaupa á þeim er hugs-
anlegt að Landhelgisgæslan greiði
fyrir byssurnar með því að veita
þjónustu í staðinn.
Þetta kom fram í máli Georgs
Lárussonar, forstjóra Landhelgis-
gæslunnar, sem mætti í gær öðru
sinni fyrir allsherjarnefnd Alþing-
is vegna hríðskotabyssumálsins.
„Það er óeðlilegt í sjálfu sér að
gæslan þurfi að koma tvisvar. Af
hverju lá þetta ekki bara alveg
fyrir og var allt saman sagt á síð-
asta fundi?“ segir Bjarkey Olsen
Gunnarsdóttir sem situr í allsherj-
arnefnd fyrir Vinstri græna.
Bjarkey kveðst hafa spurt for-
stjórann hvers vegna æft hafi
verið með ótollafgreiddum hríð-
skotabyssum á Keflavíkurflug-
velli og hvort það hafi gerst áður.
„Hann sagði að þetta væri ein-
angrað tilvik.“
Enn er óljóst hvort hríðskota-
byssurnar eru gjöf frá Norðmönn-
um eins og Georg segir. „Hann
nefndi að þeir hefðu hitt ein-
hverja Norðmenn á ráðstefnu í
Hörpunni um helgina og það var
hvorki reikningur né gjafabréf
sem þeir höfðu fram að færa,“
hefur Bjarkey eftir forstjóranum.
„Hann heldur sig við að þetta hafi
átt að vera gjafagjörningur. Bakki
menn út úr því sé ekkert annað en
að leita til ráðuneytisins með hvort
það á þá að kaupa helminginn af
þessu á móti ríkislögreglustjóra
eða hvort það á að senda þetta til
baka.“
Bjarkey segir enn ekki öll kurl
komin til grafar. Þar vísar hún
meðal annars í reglur um vopna-
burð lögreglunnar sem meðlim-
ir allsherjarnefndar fengu að sjá
í trúnaði í gær. „Þar komu fram
hlutir sem vöktu töluverðar spurn-
ingar og ekki má ræða – sem er
auðvitað afar óþægilegt,“ segir
hún og upplýsir að ríkislögreglu-
stjóri hafi í gær boðið allsherjar-
nefnd í heimsókn í næstu viku.
„Við ætlum að heimsækja ríkis-
lögreglustjóra til að reyna að loka
þessu máli.“
Að sögn Bjarkeyjar sagði Georg
að útvega þyrfti vopn með ein-
hverjum hætti. „Hann hefur viðr-
að það að greiða fyrir þetta með
einhvers konar þjónustuskiptum.
Það er algerlega órætt en það á
ábyggilega að reyna að fara þá
leið,“ segir Bjarkey.
Þá segir Bjarkey að óskað hafi
verið eftir því formlega að tekin
verði saman tímalína í málinu. „Þá
kemur kannski að því að við sjáum
hvort fólk talar einu máli í þessu
eða ekki,“ segir hún.
Georg Lárusson sagði eftir fund-
inn hjá allsherjarnefnd í gær að
byssurnar yrðu áfram innsiglað-
ar. „Meðan ekki er búið að leysa
úr þessu eru vopnin undir inn-
sigli og fara hvergi enda engin
brýn þörf á þeim hér alveg á
næstunni.“ gar@frettabladid.is
Óeðlilegt að Gæslan
þurfi að koma tvisvar
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir í allsherjarnefnd Alþingis segir að upplýsingar um
vopnakaup hafi verið misvísandi. Forstjóri Landhelgisgæslunnar hitti Norðmenn í
Hörpunni sem hvorki færðu honum gjafabréf né reikning fyrir hríðskotabyssum.
Á TEPPINU Forstjóri Landhelgisgæslunnar mætti ásamt fylgdarliði og svaraði öðru sinni fyrir allsherjarnefnd Alþingis spurning-
um um vopnamálið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HAFNARFJÖRÐUR Vinstri grænir
fá ekki áheyrnarfulltrúa í tveim-
ur nefndum Hafnarfjarðar. Tillaga
þess efnis var felld á fundi forseta-
nefndar 30. október síðastliðinn.
„Til stendur að gera úttekt á
nefndum og ráðum bæjarins og
ákvörðunin endurspeglar afstöðu
meirihlutans að svo stöddu, “
segir Guðlaug Kristjánsdóttir,
oddviti Bjartr-
ar framtíðar og
forseti bæjar-
stjórnar. Fjög-
urra mánaða
afgreiðslu-
tími tillögunn-
ar segir hún að
hafi ráðist af
því að nefndin
hafi ekki verið fullskipuð fyrr en
í byrjun október.
„Fyrir skemmstu var því hafnað
að minnihlutinn fengi sæti í starfs-
hóp um skólastefnu bæjarins og nú
þetta. Það fer ekki fyrir samstöð-
unni sem talað var um í upphafi,“
segir Guðrún Ágústa Guðmunds-
dóttir, fulltrúi Vinstri grænna.
- joe
GUÐLAUG KRIST-
JÁNSDÓTTIR
Tillögu um áheyrnarfulltrúa í tveimur nefndum Hafnarfjarðarbæjar hafnað:
Vinstri grænir fá ekki fulltrúa
FERÐAÞJÓNUSTA „Þetta er fyrsta
rafbílaleigan á landinu,“ segir
Aðalsteinn Lárus Skúlason hjá
fyrirtækinu ElectricCarrental í
Hafnarfirði.
Aðalsteinn er aðeins 21 árs
gamall og segir rafbílaleiguna
því verða fyrstu skref sín í fyrir-
tækjarekstri. Fyrsti bíllinn verði
keyptur eftir næstu helgi. Það
verði bíll sem dregur um 130 kíló-
metra á 80 prósent hleðslu sem ná
megi á tuttugu mínútum á hrað-
hleðslustöðvum. Síðar sé ætlunin
að huga að langdrægari tegund-
um.
„Mest erum við að höfða til vist-
vænna náttúruunnenda og held að
við eigum sterkan leik með því að
vera með alveg grænt verkefni,“
segir Aðalsteinn.
Að sögn Aðalsteins er ætlunin
að kynna rafbílaleiguna í gegn
um Google-leitarvélina. Þar verði
spjótunum sérstaklega beint að
Bandaríkjunum og Spáni þaðan
sem margir ferðamenn komi til
Íslands. - gar
Ungur athafnamaður að koma fyrstu rafbílaleigu landsins á fót í Hafnarfirði:
Rafbílar fyrir græna ferðamenn
AÐALSTEINN LÁRUS SKÚLASON
Höfðar til vistvænna ferðamanna með
rafbílaleigu.
RÚSSLAND, AP Rússnesk stjórnvöld
hafa ákveðið að taka ekki þátt í
leiðtogafundi um kjarnorkuöryggi,
sem halda á árið 2016. Rússar hafa
áður tekið þátt í leiðtogafundum af
þessu tagi, en þeir hófust árið 2010
að frumkvæði Baracks Obama
Bandaríkjaforseta. Talið er að
spennan vegna átakanna í Úkraínu
eigi sinn þátt í ákvörðun Rússa að
þessu sinni.
Á síðasta leiðtogafundi komu
fulltrúar 35 ríkja saman til að
ræða um alþjóðlegar reglur um
kjarnorkuöryggi. - gb
Rússar ekki með á leiðtogafundi um kjarnorkuöryggi:
Ætla að hunsa kjarnorkufund
VLADIMÍR PÚTÍN Rússlandsforseti
verður ekki með árið 2016.
NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Alþjóðlegu blaða-
mannasamtökin fordæma kröfu
Þóreyjar Vilhjálmsdóttur, aðstoð-
armanns innanríkisráðherra, um
fangelsisdóm yfir blaðamönnum
DV, Jóni Bjarka Magnússyni og
Jóhanni Páli Jóhannssyni.
Sérstakur ráðgjafi samtakanna
í ritstjórnarlegu frelsi, Scott
Griffen, segir að samtökin séu
slegin yfir kröfunni. Stjórnvöld
eru hvött til að breyta meiðyrða-
löggjöf í átt til þess sem gerist í
öðrum löndum. - kak
Fordæma kröfu Þóreyjar:
Hvetja til breyt-
inga á lögum