Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.11.2014, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 05.11.2014, Qupperneq 28
FÓLK|FERÐIR FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Hermann Aðalsteinsson, formaður Skákfélagsins Hugins, fór á sitt fyrsta skákmót sem haldið var í útlöndum fyrir nokkrum dögum. Hann byrjaði með trompi en mótið var haldið í Las Vegas í Bandaríkjunum. „Las Vegas er auðvitað þekkt fyrir allt annað en skák en þetta mót var sérstakt að því leyti að peningaverðlaunin voru þau hæstu sem hafa verið greidd á opnu skákmóti. Mótið hét „Millionaire Chess“ eða Milljónamótið og voru fyrstu verð- laun hundrað þúsund dollarar eða rúm- lega tólf milljónir íslenskra króna.“ Á mótinu voru 560 þátttakendur frá 44 löndum og þar af voru 34 stórmeist- arar og 28 alþjóðlegir meistarar. Fimm íslenskir keppendur tóku þátt en hópur- inn sem fór héðan taldi níu manns því kvikmyndagerðarmaður og aðstoðar- menn hans voru með í för en verið er að vinna að heimildarmynd um skák á Íslandi. „Við vorum úti í rúma viku en mótið stóð í fimm daga. Ég tók þátt í U-1600 flokki sem er flokkur keppenda með 1400-1600 skákstig og endaði í 23. sæti með fjóra vinninga af sjö mögu- legum. Alls tóku 67 skákmenn þátt í þessum flokki og var ég einn Íslendinga í honum. Ég er svona sæmilega sáttur við það en ætlaði mér að ná inn á topp tíu, en það mistókst,“ segir Hermann léttur í bragði. Hann stefnir þó á að gera betur næst en hann langar að fara á annað Milljónamótið sem haldið verður en hvorki er búið að ákveða stað né tíma fyrir það. Öryggisgæslan á skákmótinu var mjög ströng en ekki mátti fara inn í sal- inn sem mótið var haldið í með raftæki af neinu tagi. „Það voru málmleitarhlið sem allir þurftu að ganga í gegnum áður en þeir fóru inn í salinn. Þetta var bara eins og á flugvöllunum og er gert til að koma í veg fyrir svindl. Þetta er orðið svona á öllum stærri mótum.“ Hermann segir Las Vegas hafa verið meira spennandi og allt stærra í sniðum þar en hann hafi búist við. „Það var alls staðar gríðarlega margt fólk. Líka eldsnemma á morgnana. Ég fór nokkra morgna mjög snemma í göngutúr og það kom á óvart hve margir voru á ferðinni, og líka hversu heitt var orðið en það var um þrjátíu stiga hiti klukkan átta á morgnana. Við náðum að skoða okkur um í borginni og vorum mest á „The Strip“ sem er aðalgatan þar sem öll spilavítin eru. Við prófuðum að sjálfsögðu að spila fjárhættuspil en það fór enginn illa út úr því. Annars er það náttúrulega þannig að það sem gerist í Vegas verður eftir í Vegas,“ segir hann og hlær. Á SKÁKMÓTI Í VEGAS LAS VEGAS Bóndinn og skákáhugamaðurinn Hermann Aðalsteinsson er ný- kominn heim frá Las Vegas þar sem hann tók þátt í Milljónamótinu í skák. THE STRIP Í Las Vegas er margt að sjá og þá sérstaklega við aðalgötuna, The Strip. MYND/GETTY MILLJÓNAMÓT Á mótinu voru 560 þátttakendur frá 44 löndum. Heildarverðlaunafé mótsins var ein milljón dollara. SKÁKSTJARNA Kepp- endur á skákmótinu fengu að upplifa það hvernig er að vera stjarna og mátuðu sig á rauða dreglinum. AÐSENDAR MYNDIR RÝMINGARSALA Allt að 60% afsláttur! Opið alla virka daga í nóvember kl. 13:00-18:00 í Háholti 23, Mosfellsbæ Umhverfisvænar toppgæða vörur í miklu úrvali Mirella ehf – heildverslun Háholt 23, 270 Mosfellsbær Sími: 586 8050 / Netfang: mirella@simnet.is Fæst í öllum apótekum – Hagkaup – Fjarðarkaup – Heimkaup – Heilsuver – Heilsulausn.is Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.