Fréttablaðið - 05.11.2014, Page 36

Fréttablaðið - 05.11.2014, Page 36
 | 10 5. nóvember 2014 | miðvikudagur Tilhugsunin um að ná snilldartökum á ein- hverju, sem skiptir okkur miklu máli, er hrikalega góð – ekki satt? Daniel Pink segir, að rótina að snilldar- tökum megi finna í fyrirbæri sem hann kallar „flæði“ en flæði verður til í kjörað- stæðum þar sem áskoranir koma heim og saman við hæfileika okkar. Í flæðinu verða markmiðin kristaltær og skilin milli við- fangsefnis og okkar sjálfra verða óskýr – við rennum saman við það sem við erum að gera. Pink segir jafnframt að þótt snilldartökum verði ekki náð án flæðis, tryggi flæði á engan hátt að snilldar- tökum verði náð. Flæði getur orðið til í augnablikinu eða deg- inum en það tekur mánuði eða ár, jafnvel áratugi, að ná snilld- artökum á einhverju. Kynda undir ástríðunni Mikilvægast er að geta séð hæfni sína í því ljósi að hana megi endalaust þroska og efla. Í þessu sam- hengi verða fram- farir umfram allt eftirsóknarverðar. Markmiðin eru lærdóms- tengd, mistök ekki alvarlegt mál og fyrir- höfnin sjálfsögð. Að vera tilbúin til að leggja það á sig sem þarf, þrautseigja og úthugsuð framkvæmd. Að þola mótsagnir, óvissu og sveiflur, sem til skiptis valda gremju eða kynda undir ástríðunni. Að skilja að þetta hvort tveggja er tímabundið og að sveiflan er viðvarandi er mikilvægt. Ef allt gengur á afturfótunum þá vitum við að það gengur yfir og það sama gildir um velgengnina, hún gengur líka yfir. Fáir útvaldir Ég held það séu engar ýkjur þegar sagt er að það taki allt að tíu ár að ná snilldartökum á einhverju og þrautseigja sé sá eiginleiki sem ráði úrslitum – en skilgreina má þraut- seigju sem ástríðu og úthald til að ná lang- tímamarkmiðum. Í ljósi þess er það engin tilviljun að margt bendir til að við ráðn- ingar hafi þrautseigja náð forystusætinu af greindarvísitölu (IQ), sem besta forspár- gildi um frammistöðu í starfi. Þetta bendir líka til að meðfæddir eigin- leikar séu lítils virði ef ástríðu og úthald skortir til að ná þeim snilldartökum sem við sækjumst eftir – útskýrir líka af hverju svo margir eru efnilegir en fáir útvaldir. Svo margir efnilegir en … Martha Árnadóttir, framkvæmdastjóri Dokkunnar Hin hliðin M ótmælin á Austurvelli í fyrradag voru fjölmennari heldur en mig hafði grunað að þau gætu orðið. Samkvæmt fréttum taldi lögreglan að 4.500 manns hefðu lagt leið sína þangað. Mótmælin voru friðsamleg og það er ekki annað hægt en að fagna því að fólk beiti þessum lýðræðislega rétti sínum til þess að koma skoðunum á framfæri. Hugurinn reikar til loka ársins 2008 og byrjunar ársins 2009 þegar gríðarleg reiði skók samfélagið eftir bankahrunið og búsáhaldabyltingin svokallaða stóð sem hæst. Þá var reiðin skiljanleg. Stjórnvöld höfðu beinlín- is tilkynnt fólkinu í landinu að hagkerfið hefði hrunið. Fólk mátti búast við verulegri kjararýrnun. Sumir stóðu frammi fyrir beinni launaskerðingu, verðbólgan fór hátt í tuttugu prósent, margir misstu vinnuna og sumir misstu húsnæðið sitt. Aðstæður virðast vera allt aðrar núna, eins og lýst er í nýlegri hagspá hagdeildar Alþýðusam- bands Íslands. „Horfur í íslensku efnahagslífi eru þannig bjartari en um langt árabil en fjárhagsleg staða heimilanna hefur batnað og lagt grunn að umtalsverðum vexti einkaneyslu á þessu ári. Skuldir heimilanna fara lækkandi, kaup- máttur launa vaxandi, vænting- ar hafa aukist og dregið hefur úr efnahagslegri óvissu. Þetta, sam- hliða skuldalækkunaraðgerðum stjórnvalda og skattkerfisbreyt- ingum, mun ýta undir töluverðan vöxt einkaneyslunnar á tíma- bilinu,“ segir beinlínis í hagspá ASÍ. Þess vegna er svo áhugavert að velta því fyrir sér hvers vegna 4.500 manns eru reiðubúnir til þess að koma saman og mótmæla þegar aðstæður í efnahagslífinu virðast vera svo miklu betri og hagur fólks almennt að vænka. Þegar rætt er við mótmælend- ur um ástæður þess að það tók þátt voru fjölmargar ástæður nefndar. Samfélagið logar vegna kjaradeilna, fólk hefur áhyggjur af heilbrigðiskerfinu, fólki finnst vanta réttlæti í skatt- kerfið og fólki finnst stjórnmálamenn ekki bera ábyrgð á gjörðum sínum. Allir stjórnmálaflokkarnir á Íslandi eiga í grunninn sameiginleg markmið. Stefnt skal að bættum kjörum almennings, góðri menntun og öflugu heilbrigðis- og vel- ferðarkerfi. Forystumenn Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknarflokksins hafa lagt upp með ákveðna stefnu til að ná þessum markmiðum. Þá stefnu má meðal annars finna í stjórnmálaályktunum flokkanna, stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar og þingræðum ráðherra. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í útvarpsviðtali í gær að hann hefði hlustað eftir því sem fólk væri að segja í mótmælunum. Það er mikilvægt að hann og for- sætisráðherra bæði hlusti og skýri betur hvert þeir ætla að stefna það sem eftir er af kjörtímabilinu. Annars er hætt við því að mótmælafundum á Austurvelli fjölgi. Mikil mótmæli þrátt fyrir gerbreyttar aðstæður. Samtal við þjóðina Þess vegna er svo áhugavert að velta því fyrir sér hvers vegna 4.500 manns eru reiðubúnir til þess að koma saman og mótmæla þegar aðstæður í efnahagslífinu virðast vera svo miklu betri. Markaðshornið Jón Hákon Halldórsson jonhakon@frettabladid.is Í Markaðshorni síðustu viku mátti lesa þá fullyrðingu Þorbjörns Þórðarson- ar fréttamanns að engin raunveruleg verðmætasköpun eigi sér stað í bönk- um. Fullyrðingin var sett fram til að skjóta fótum undir umræðu um launa- mál í bönkum og hagnað þeirra. Hugs- unin var sú að þar sem fjármálafyrir- tæki skapa ekki raunveruleg verðmæti en væru bakhjarlar raunverulegrar verðmætasköpunar ættu laun og hagn- aður í geiranum að vera lág. Hér er ekki ætlunin að draga úr gildi þess að hagkvæmni sé gætt í allri efnahagsstarfsemi. Hagfræðin kenn- ir og reynslan sýnir að það er líkleg- ast til að gerast þegar saman fer frelsi á markaði og lýðræðislegt skipulag í stjórnmálum. Sú hugsun sem Þorbjörn styðst við er býsna gamaldags. Hún tilheyrir þeim kenningum sem skildar voru eftir í vegkantinum við framgang hag- fræðinnar, þó hún fyrirfi nnist enn í marxískri hugmyndafræði. Uppruni þessara hugmynda um að skipta megi efnahagsstarfseminni í framleiðslu raunverulegra verðmæta og aðra starfsemi, með áherslu á gildi þeirr- ar fyrri, má rekja til frönsku búauðgi- stefnunnar frá miðri átjándu öld. Búauðgistefnan taldi að landbúnaður væri uppspretta allra raunverulegra verðmæta, en seinni tíma fylgjendur stefnunnar útvíkkuðu hana þannig að áherslan er á vöruframleiðsluna sem hina raunverulega uppsprettu verð- mæta í hagkerfi nu. Áhrif marxisma á þróun þessarar hugmyndar er því greinileg. Nútímahagfræði byggir að megin- stofni á tveimur kenningum. Annars vegar kenningum Adams Smith frá seinni hluta átjándu aldar sem í riti sínu Auðlegð þjóðanna lagði áherslu á að efnahagsstarfsemi væri samfelld keðja þar sem hlekkir keðjunnar mót- uðust af verkaskiptingu í efnahags- starfseminni. Enginn hlekkur væri í raun mikilvægari en annar. Hins vegar á kenningum Alfreds Marshall (og reyndar fl eiri) frá seinustu árum nítjándu aldar um verðmyndun vöru og þjónustu, þar sem framboð og eft- irspurn eftir vöru og þjónustu á jaðr- inum ákvarðar viðskiptaverð. Þessar kenningar gera engan greinarmun á efnahagsstarfsemi hvort sem hún er framleiðsla á vörum eða veiting þjón- ustu: hvort tveggja er nauðsynleg- ur hlekkur í efnahagsstarfseminni og verð beggja ákvarðast með sama hætti. Sömu efnahagslögmál gilda um rekstur, laun og arðsemi fyrirtækja óháð því hvort um er að ræða fram- leiðslu á vörum eða þjónustu. Engin hlutlæg rök liggja því til grund- vallar fullyrðinga um að ein tiltekin efnahagsstarfsemi skapi raunveru- leg verðmæti en aðrar ekki. Þannig er verslun sem selur aðföng til vörufram- leiðslu, þjónustufyrirtækja eða neyt- enda mikilvægur hlekkur í efnahags- starfseminni og veitir raunverulega þjónustu. Eins er um lánastofnun sem veitir lán til fjárfestingar eða rekstr- ar. Sama gildir um tryggingafélag sem tryggir rekstur og eignir fyrirtækja og heimila. Sama gildir um aðra fjármála- þjónustu og þjónustu á sviði rannsókna, mennta, heilbrigðismála og löggæslu svo fl eiri dæmi séu tekin. Fjármálafyrirtæki veita fyrirtækj- um og heimilum margvíslega þjón- ustu. Grunnþættir í starfsemi þeirra eru þrír: greiðslumiðlun, miðlun á sparnaði og dreifing áhættu. Hag- ræði af greiðslumiðlun bæði innan- lands og milli landa er oft vanmet- ið. Eilítil umhugsun ætti þó að leiða í ljós hvílíkur tímasparnaður nútíma greiðslumiðlun er fyrir fyrirtæki og heimili. Aðilar sem ætla að skiptast á greiðslum þurfa ekki að hittast á sama stað og sama tíma til að inna af hendi greiðslu og ekki að burðast með reiðufé. Gildi hinna ýmsu tegunda fjármálafyrirtækja við söfnun sparn- aðar og miðlun fjármagns heimila og fyrirtækja og dreifi ngu áhættu er hins vegar augljósara og þekktara. Það sem við höfum lært Skoðun Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur Samtaka fjármálafyrirtækja. 8 Vöruflokkar · 200 PLU númer · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · Rafrænn innri strimill · Mjög auðveld í notkun Verð kr. 49.900 LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 · ORMSSON.IS 99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer · Rafrænn innri strimill 9000 línur · Stór LCD skjár · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · íslenskur strimill · Mjög auðveld í notkun Verð kr. 74.900 99 vöruflokkar · Allt að 10,000 PLU númer · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · íslenskur strimill · Mjög auðveld í forritun Verð kr. 89.900 XE-A307XE-A207BXE-A147B ÖRUGGAR OG ENDINGARGÓÐAR 40 ÁR Á ÍSLANDI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.