Fréttablaðið - 05.11.2014, Qupperneq 50
5. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 30
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
ÍBÚASAMTÖKIN BETRA BREIÐHOLT
Miðvikudaginn 12. nóvember kl. 20:00
Gengið inn að neðanverðu.
Aðalfundur
í Gerðubergi
Dagur B Eggertsson borgarstjóri verður gestur fundarins
og fer yfir málefni hverfisins.
Fundarstjóri verður
Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri hverfisins.
Stjórn ÍBB
www.lyfja.is
Lægra verð
í Lyfju
w.lyfja.is
Now D-vítamín 20%
afsláttur
Gildir til 17. nóvember.
Rannsóknir sýna að D-vítamín spilar
mikilvægt hlutverk í virkni ónæmis-
kerfisins og sem vörn gegn flensu.
Hágæða D3-vítamín í olíubasa sem
tryggir hámarks nýtingu.
SPORT
FÓTBOLTI Ingvar Jónsson, markvörður Stjörnunnar, hefur
hafnað tilboði frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Åtvidaberg
en hann æfði með liðinu fyrir skömmu. Aðalmarkvörður
félagsins, Henrik Gustavsson, er orðinn 38 ára gamall
og var vilji hjá forráðamönnum liðsins til að semja við
Ingvar.
„Ingvar stóð sig mjög vel á æfingu með liðinu en til-
boðið var þess eðlis að við ákváðum að hafna því,“ sagði
Hafþór Hafliðason, umboðsmaður hans, við Fréttablaðið.
„En við erum enn í sambandi við félagið og gefum
þeim vikuna til að koma með nýtt og betra tilboð.“
Ingvar var valinn besti leikmaður Pepsi-deildar
karla af leikmönnum deildarinnar í haust og var í
lykilhlutverki í Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar. Hann
er 25 ára Njarðvíkingur en skipti yfir í Stjörnuna árið
2011. - esá
Hafnaði tilboði frá Åtvidaberg
ÚRSLITIN Í GÆR
MEISTARADEILD EVRÓPU
A-RIÐILL
MALMÖ - ATLETICO MADRID 0-2
0-1 Koke (30.), 0-2 Raul Garcia (78.)
JUVENTUS - OLYMPIACOS 3-2
1-0 Andre Pirlo (21.), 1-1 Alberto Botía (24.), 1-2
Delvin Ndinga (60.), Roberto, sjm (65.), 3-2 Paul
Pogba (66.)
Staðan: Atletico 9 stig, Juventus 6, Olympiakos
6, Malmö 3.
B-RIÐILL
BASEL - LUDOGORETS 4-0
1-0 Breel Embolo (34.), 2-0 Derlis Gonzalez (41.),
3-0 Shkelzen Gashi (59.), 4-0 Marek Suchy (65.)
REAL MADRID - LIVERPOOL 1-0
1-0 Karim Benzema (27.)
Staðan: Real 11 stig, Basel 6. Ludogorets 3,
Liverpool 3.
C-RIÐILL
ZENIT - BAYER LEVERKUSEN 1-2
0-1 Son Heung-Min (68.), 0-2 Son Heung-Min
(73.), 1-2 Salomon Rondon (89.).
BENFICA - MONACO 1-0
1-0 Anderson Talisca (82.).
Staðan: Leverkusen 9 stig, Monaco 5, Zenit 4,
Benfica 4.
D-RIÐILL
ARSENAL - ANDERLECHT 3-3
1-0 Mikel Arteta, víti (25.), 2-0 Alexis Sanchez
(29.), 3-0 Alex Oxlade-Chamberlain (58.), 3-1
Anthony Vanden Borre (61.), 3-2 Anthonu Vanden
Borre, víti (73.), 3-3 Aleksandar Mitrovic (90.).
DORTMUND - GALATASARAY 4-1
1-0 Marco Reus (39.), 2-0 Sokratis Papastathopou-
los (55.), 2-1 Hakan Balta (70.), 3-1 Ciro Immobile
(74.), 4-1 Semih Kaya, sjm (85.).
Staðan: Dortmund 12 stig, Arsenal 7, Anderlecht
2, Galatasaray 1.
HRESS Benzema fagnar marki sínu í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HANDBOLTI Valdimar Grímsson og Bjarki
Sigurðsson upplifðu kynslóðaskiptin í
landsliðinu fyrir 24 árum. Þeir hafa báðir
áhyggjur af því að meðalaldur íslenska
liðsins sé farinn að nálgast 31 ár.
„Við þurfum að girða okkur í brók
og hefja undirbúning fyrir þá drengi
sem eru efnilegir og góðir. Eftir að
liðinu tókst ekki að komast á stórmót
núna í janúar hefði þurft að búa eitt-
hvað til fyrir þá til að þeir séu tilbúnir
í verkefnið þegar kemur að því,“ segir
Bjarki Sigurðsson og nefnir sérstaklega
1990-árganginn sem vann silfur á HM 19
ára árið 2009.
Bjarki vill sjá B-landslið. „Það kemur
að því að þessir leikmenn í dag lenda á
endastöð og það styttist óðfluga í það. Þá
þarf að koma nýjum leikmönnum inn.
Það er til fullt af ungum og efnilegum
drengjum en það þarf bara að fara að
gefa þeim tækifærið,“ segir Bjarki.
„Tímarnir eru breyttir en engu að
síður eru þetta mjög alvarlegir hlutir
sem eru að gerast. Þegar meðaldur liðs-
ins er farinn að nálgast 31 ár eru hlutir
sem við þurfum að huga að og passa upp
á. Það er ekkert sjálfgefið að vera þarna
sem við erum,“ segir Valdimar Grímsson
sem telur að við höfum gleymt okkur í
velgengni síðustu ára.
„Samkeppnin er alltaf að verða meiri
og meiri og við erum dálítið að sofna á
verðinum. Á næsta áratug getur brugð-
ið til beggja vona. Ef að þú dettur út þá
er gríðarlega erfitt að komast aftur inn.
Við sjáum dæmi um það hjá Svíum. Svíar
voru alltaf þjóð sem við litum upp til sem
bestu handboltaþjóðar í heimi. Núna er
hún bara horfin og ekki einu sinni með.
Þeir komast ekki inn. Ef við dettum út
þá getum við séð langt skeið þar sem við
sjáum ekki íslenska landsliðið á stórmót-
um,“ segir Valdimar.
Valdimar segir reynslu mikilvæga en
hann vill sjá yngri mennina fá að spila
þegar allt er undir. „Við erum með gríð-
arlega skemmtilega unga stráka inn á
milli og þeir hafa fengið að spila allt of
lítið í þessum stóru og mikilvægu leikj-
um,“ segir Valdimar og nefnir sem dæmi
vinstri hornastöðu liðsins.
Vill sjá Guðjón Val sitja meira
„Ef við tökum sem dæmi Guðjón Val
(Sigurðsson) sem er frábær leikmaður.
Við erum með tvo frábæra hornamenn á
eftir honum en þeir eru ekki ennþá búnir
að fá að spila leik sem skiptir máli þar
sem Guðjón er bara á bekknum og kemur
bara inn ef þeir eru að klikka. Í staðinn
fyrir að fara hina leiðina og leyfa þeim
bara að taka konfektið þegar það er búið
að klára leikinn. Ég veit að Guðjón Valur
er það mikill keppnismaður að hann vill
aldrei sitja eins og ég var í gamla daga.
Maður vill aldrei sitja en við skiljum
þetta alveg samt. Það þarf að rækta upp
menn. Ég veit að hann móðgast ekki og
þarna erum við með okkar efnilegustu
leikmenn í einmitt þessari stöðu í dag,“
sagði Valdimar. ooj@frettabladid.is
Erum dálítið að sofna á verðinum
„Ungu strákarnir hafa fengið að spila allt of lítið í þessum stóru og mikilvægu leikjum,“ segir Valdimar Grímsson en hann og Bjarki
Sigurðsson hafa báðir áhyggjur af háum meðalaldri íslenska landsliðsins. Bjarki nefnir B-landslið sem mögulega útungunarstöð liðsins.
ÞURFUM AÐ HORFA FRAM Á VEGINN Guðjón Valur Sig-
urðsson og Arnór Atlason. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Úrslit leikja í kvenna-
körfunni hafa oft verið fyrirsjáan-
leg í gegnum tíðina en það er allt
annað upp á teningnum í vetur og
útlit fyrir æsispennandi baráttu
um fjögur efstu sætin sem skila
farseðli í úrslitakeppnina í vor.
Nú munar aðeins tveimur stig-
um á efsta liðinu (Keflavík) og lið-
inu í fimmta sæti (Valur), öll lið
deildarinnar hafa tapað leik og
til að ítreka lítinn mun á efstu lið-
unum vann Keflavík leik liðanna
í síðustu umferð eftir framleng-
ingu. Þetta var þriðji sigur Kefla-
víkurliðsins í röð en á undan unnu
Keflavíkurkonur Íslandsmeistara
Snæfells sannfærandi á útivelli.
Keflavík var spáð yfirburðasigri í
spá fyrir mót og þar er allt til alls
til að bæta fleiri titlum við mynd-
arlegt titlasafn liðsins.
Spútniklið fyrstu fimm umferð-
anna eru án vafa Haukakonur,
sem misstu marga lykilmenn frá
því í fyrra og töpuðu síðan fyrir
Íslandsmeisturunum í fyrsta leik.
Síðan þá hefur þetta unga lið unnið
alla sína leiki og stimplað sig fyrir
alvöru inn í toppbaráttuna þar sem
fáir bjuggust við að sjá þær í vetur.
Íslandsmeistarar Snæfells mæta
með nokkuð breytt lið en hafa
samt unnið fjóra af fyrstu fimm-
leikjum sínum þrátt fyrir að allir
nema einn hafi verið á móti efstu
fimm liðum deildarinnar. Snæfell
fær heimaleik gegn Hamri í kvöld.
Grindavík og Valur hafa bæði
tapað tveimur leikjum en á meðan
bæði töp Valsliðsins hafa verið
naum töp á útivelli á móti liðum
í efstu þremur sætunum hafa
Grindavíkurkonur tapað tveim-
ur heimaleikjum í röð. Grindavík
og Valur eiga bæði eftir að vinna
lið í efstu fimm sætunum en fá
tækifæri til að breyta því í kvöld
þegar Valur tekur á móti Haukum
og Grindavík heimsækir Keflavík.
Breiðablik, Hamar og KR hafa
ekki fengið stig á móti efstu fimm
liðunum í vetur og KR-konur eiga
enn eftir að vinna leik. Þessi lið
eru ekki líkleg til að berjast um
sæti í úrslitakeppninni en keppast
öll við að sleppa við fall. KR tekur
á móti nýliðum Breiðabliks í kvöld.
Bandarískir leikmenn liðanna
eru eins og áður í stórum hlut-
verkum og skipa sér í sjö efstu
sætin á listanum yfir hæsta fram-
lag til síns liðs. Það vekur hins
vegar athygli að þær stelpur sem
eru með hæsta framlag af íslensku
leikmönnunum eru allar að spila
inni í eða í kringum teiginn.
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir hjá
Hamri, Valskonurnar Ragnheið-
ur Benónísdóttir og Ragna Mar-
grét Brynjarsdóttir og María Ben
Erlingsdóttir úr Grindavík hafa
skilað mestu til sinna liða í upp-
hafi móts af íslenskum leikmönn-
um deildarinnar. Keflavík, KR og
Breiðablik eru líka með íslenska
miðherja eða stóra framherja inni
á topp tuttugu í framlagi. Stóru
stelpurnar okkar eru því að standa
sig í spennandi deild. - óój
Spennandi tímabil
Dominos-deild kvenna í körfubolta fer vel af stað.
ÖFLUG Hin 18 ára gamla Sara Rún
Hinriksdóttir fer fyrir liði Keflavíkur í
vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Samninganefnd KSÍ hefur
úrskurðað í máli Emils Atlasonar
og knattspyrnudeildar KR vegna
ágreinings um ákvæði í samningi
hans við deildina.
Emil skrifaði undir tveggja ára
samning við KR í febrúar árið 2012
sem rann út í síðasta mánuði. KR
ákvað hins vegar að virkja ákvæði í
samningnum um framlengingu til
eins árs. Samninganefnd komst
að þeirri niðurstöðu að KR hefði
verið í fullum rétti og er því
samningurinn gildur.
„Það er alveg klárt mál að mínu
mati að samningurinn er runninn út.
KR-ingarnir vilja meina að þeir hafi
átt rétt á að framlengja samninginn
án þess að ég hefði neitt um það að
segja. Þetta var aldrei útskýrt þannig
fyrir mér,“ sagði Emil í samtali við
Morgunblaðið þann 23. október og
sagðist hann vilja losna frá KR.
„Þetta eru auðvitað ekki ákjósan-
legar aðstæður en hann er ungur og
óharðnaður leikmaður. Við setjumst
nú niður og ákveðum framhaldið,“
segir Kristinn Kjærnested, formaður
knattspyrnudeildar KR, sem sagði að
afstaða KR í málinu hefði verið skýr
frá fyrsta degi.
„En nú er búið að úrskurða að
þetta hafi allt saman verið rétt, eins
og við töldum ávallt.“
Ekki náðist í Emil í gær þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir. - esá
Neyðist til þess að spila áfram með KR
EMIL ATLASON.