Fréttablaðið - 07.11.2014, Side 2
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Sigríður, er eggið farið að
kenna hænunni?
„Já, ég heyri reglulega tónhvísl.“
Sigríður Eir Zophoníasdóttir, söngkona og
gítarleikari, er komin rúma átta mánuði á
leið og hefur túlkað spörk barnsins sem
ánægju með tónlistarsköpun hennar.
SVEITARSTJÓRNIR „Bæjarstjórn
Akureyrar beinir því til ríkis-
valdsins að efla löggæslu og þar
með öryggi bæði borgara og lög-
reglumanna með því að fjölga
lögreglumönnum og auka mennt-
un þeirra en fara mjög varlega
og af skynsemi í breytingar á
aðgengi lögreglumanna að vopn-
um,“ segir í bókun sem bæjar-
stjórn Akureyrar samþykkti sam-
hljóða eftir umræðu um málefni
lögreglunnar og vopnakaup. - gar
Samhljóða bókun nyrðra:
Fari hægt í að
vopna lögreglu
SPURNING DAGSINS
Tilboðið gildir 30. okt.–14. nóv.
MJÓDDIN
Álfabakka 14
Sími 587 2123
FJÖRÐUR
Fjarðargötu 13-15
Sími 555 4789
SELFOSS
Austurvegi 4
Sími 482 3949 Gleraugnaverslunin þín
TILBOÐSDAGAR Í AUGASTAÐ
afsláttur af
umgjörðum
15–80%
JAFNRÉTTISMÁL „Þetta er gott
dæmi um útilokun okkar úr sam-
félaginu,“ segir Guðjón Sigurðs-
son, formaður MND félagsins.
Afar erfitt er að komast til Við-
eyjar í hjólastólum. Þeir sem eru
í þyngri hjólastólum komast ekki
út í eyna.
„Reykjavíkurborg stendur fyrir
alls konar viðburðum þarna sem
okkur í hjólastól er útilokað að
sækja. Höfuðborgin er að útiloka
hjólastólanotendur frá heimsókn á
þennan sögufræga stað og það er
skítt,“ segir Guðjón.
Arnar Helgi Lárusson, formaður
SEM samtakanna, og Guðjón segja
aðstöðuna til skammar.
„Það fór ægilega í taugarnar á
mér þegar Yoko Ono bauð öllum
nema okkur hjólastólafólki út í
Viðey þegar hún tendraði friðar-
súluna. Það var engin leið fyrir
okkur sem erum í hjólastólum
að komast þangað,“ segir Guð-
jón.
„Aðgengið er alls ekki nógu gott
en við höfum hjálpað þeim sem
hægt er að hjálpa í hjólastólum út
í eyju,“ segir Guðlaugur Ottesen
Karlsson ferjumaður hjá Eldingu.
Þótt vilji sé til að bæta aðstöðuna
sé það dýrt. „Við förum ekki í að
breyta bátunum okkar fyrir mörg
hundruð þúsund fyrr en það er
búið að breyta aðstæðum á bryggj-
unni og í eyjunni sjálfri.“
Guðjón segist margoft hafa
bent á ódýrari og auðveldari
lausnir. „Til dæmis væri hægt að
setja hvíldar pall í stigann niður
á bryggjuna og minnka hallann.
Síðan gera ferjuna aðgengilegri
með rampi. Það má örugglega
leysa margt í Viðey með römpum
í stað stiga.“
Að sögn Gísla Gíslasonar
hafnarstjóra er ekki von á því að
aðstaðan í Viðey verði bætt í nán-
ustu framtíð. Leiðir til þess séu of
kostnaðarsamar og erfiðar.
„Það er fjárhagslega óraunhæft
eins og sakir standa. Aðstaðan
í lendingunni út í Viðey er mjög
erfið og hreyfihamlaðir þurfa á
aðstoð að halda til þess að kom-
ast í land. Það eru ekki aðstæður
í Viðey til þess að setja upp fast-
an búnað sem þýddi að rafmagns-
hjólastólar gætu ekki farið frá
borði aðstoðarlaust,“ segir hafn-
arstjórinn. viktoria@frettabladid.is
Engin leið að komast
á hjólastól út í Viðey
Formaður MND samtakanna segir borgina útiloka fólk í hjólastólum frá viðburð-
um í Viðey með lélegu hjólastólaðgengi. Ekki er von á breytingum á næstunni.
HORFT TIL VIÐEYJAR Guðjón og Arnar komast ekki í Viðey því aðgengi fyrir hjólastóla er slæmt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Það fór ægilega í
taugarnar á mér þegar
Yoko Ono bauð öllum
nema okkur hjólastóla-
fólki út í Viðey.
Guðjón Sigurðsson,
formaður MND félagsins.
SAMGÖNGUMÁL Hverfisgata í
Reykjavík er opin að nýju.
Gatan, sem tekið hefur miklum
stakkaskiptum, verður formlega
opnuð næsta laugardag klukkan
13 með fræðslugöngu sem Hjálm-
ar Sveinsson, formaður skipu-
lagsráðs Reykjavíkurborgar, og
Guðjón Friðriksson sagnfræðing-
ur leiða.
Framkvæmdir hafa staðið yfir
frá Vitastíg að Snorrabraut á
þessu ári. - sks
Endurnýjuð og betrumbætt:
Hverfisgatan
opnuð á ný
SAMFÉLAG Íbúar í Garðabæ, á
Álftanesi, í Grafarvogi og Grafar-
holti eru virkastir í því að standa
vörð um nágranna sína gegn inn-
brotum. Íbúar í Hlíðunum eru hins
vegar óvirkastir í því að standa
vörð um nágrannana.
„Það er erfitt að segja í hverju
munurinn felst, en ég held að
samfélagið sé mögulega nánara í
Garðabæ og á Álftanesi en í öðrum
þéttbýlum hverfum á höfuðborgar-
svæðinu,“ segir Jónas Orri Jónas-
son félagsfræðingur hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu.
12,5 prósent íbúa í Garðabæ
tóku þátt í formlegri nágranna-
vörslu í fyrra. Í Hlíðunum tóku
hins vegar aðeins 0,8 prósent íbúa
þátt í formlegri nágrannavörslu.
Þetta kemur fram í nýútkominni
könnun sem unnin var af Félags-
vísindastofnun Háskóla Íslands
fyrir lögregluna. - glp
Talsverður munur er á virkni íbúa í aðgerðum gegn innbrotum á milli hverfa:
Samstaðan mest í Garðabænum
FÓLK Í dag verður gengið gegn einelti í öllum níu skólahverfum Kópa-
vogs.
„Markmið göngunnar er að stuðla að jákvæðum samskiptum, vekja
athygli á því ofbeldi sem einelti er og að það sé aldrei liðið,“ segir í til-
kynningu frá Kópavogsbæ.
Leik- og grunnskólabörn fá endurskinsmerki með merki bæjarins
öðrum megin og orðunum „Gegn einelti“ hinum megin.
Kópavogsbær efndi í fyrsta sinn til eineltisgöngu í fyrra og þótti
gangan takast svo vel að ákveðið var að endurtaka leikinn. Börnin
ganga í fylgd kennara og starfsfólks skólanna. Lagt verður af stað í
gönguna á bilinu hálftíu til tíu fyrir hádegi. - gar
Skólakrakkar ganga gegn einelti í annað sinn á morgun:
Einelti er ekki liðið í Kópavogi
EKKERT EINELTI Krakkarnir í Kópavogi fjölmenntu í göngu gegn einelti í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
REYKJANESBÆR Bæjarráð leggur til
að launakostnaður Reykjanesbæj-
ar verði minnkaður með takmörk-
un yfirvinnu. Opnunartímar og
verklag einstakra stofnana verða
skoðuð og vaktakerfi endurskoðuð
til að ná þessari breytingu fram.
Þá er lagt til að öllum ákvæð-
um um fasta yfirvinnu í ráðn-
ingarsamningum verði sagt upp
og fastlaunasamningar í heild og
samningar sem innifela ákvæði
um önnur laun endurskoðaðir.
Ákvæðum um fasta bifreiðastyrki
í ráðningarsamningum verði sagt
upp en greitt verði fyrir akstur
samkvæmt akstursdagbók. Þetta
eru á meðal þeirra tillagna sem
bæjarráðið samþykkti í gær. Með
tillögunum á að minnka launa-
tengdan kostnað um 250 milljón-
ir króna.
Þá hafa einnig verið lagðar
fram tillögur um hækkun tekna,
með því að hækka bæði útsvar
og fasteignaskatta á íbúðarhús-
næði. Útsvar myndi þá hækka frá
og með 1. janúar 2015 úr 14,52%
í 15,05%, sem er hlutfallshækk-
un upp á 3,62%. Þetta myndi bæta
fjárhagsstöðu bæjarsjóðs um 200
milljónir.
Fasteignaskattur hækki úr 0,3
prósentustigum í 0,5 frá sama
tíma, sem hækkar tekjur bæjar-
sjóðs um 255 milljónir króna. Sam-
tals ættu tekjur bæjarsjóðs því að
hækka um 455 milljónir króna.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
greiddu ekki atkvæði með tillög-
unni.
- jhh
Launakostnaður verður skorinn niður um 250 milljónir króna og skattar hækkaðir um 455 milljónir:
Reykjanesbær sækir 455 milljónir til íbúa
FRÁ ÍBÚAFUNDI Í REYKJANESBÆ Lagt
var til í gær að fasteignagjöld og útsvar
yrðu hækkuð. MYND/VÍKURFRÉTTIR
VEL Á VERÐI Í Garðabæ og á Álftanesi
eru menn duglegri en aðrir að setja upp
þjófavörn. NORDICPHOTOS/GETTY