Fréttablaðið - 07.11.2014, Síða 47
FÖSTUDAGUR 7. nóvember 2014 | MENNING | 27
Óperan Ragnheiður eftir Gunnar
Þórðarson og Friðrik Erlings-
son snýr aftur á svið Íslensku
óperunnar í desember, eftir
mikla sigurgöngu síðastliðið vor.
Alls urðu sýningar á óperunni
þrettán talsins í Eldborg í Hörpu
og komust færri að en vildu.
Sýningin hlaut tíu tilnefningar
til Grímunnar og var í kjölfar-
ið valin Sýning ársins 2014, auk
þess sem Gunnar Þórðarson
hlaut Íslensku tónlistarverðlaun-
in sem tónhöfundur ársins fyrir
verkið á þessu ári.
Þóra Einarsdóttir syngur titil-
hlutverkið, Elmar Gilbertsson er
Daði Halldórsson og Viðar Gunn-
arsson syngur hlutverk Brynj-
ólfs biskups. Hljómsveitarstjóri
er Petri Sakari og leikstjóri er
Stefán Baldursson.
Sýningarnar nú verða tvær,
laugardaginn 27. desember og
sunnudaginn 28. desember.
Ragnheiður
aft ur á svið
RAGNHEIÐUR Þóra Einarsdóttir syngur
titilhlutverkið. MYND/ÍSLENSKA ÓPERAN
Listasafn Íslands varð 130 ára þann 16.
október, var stofnað í Kaupmannahöfn
árið 1884 af hugsjónamanninum Birni
Bjarnarsyni. Á fyrstu 22 árum hinnar
nýju stofnunar tókst Birni og aðstoðar-
mönnum hans að safna 74 verkum eftir
mæta listmálara frá Norðurlöndunum,
Englandi, Þýskalandi og Austurríki.
Flest voru þessi verk gjafir listamann-
anna sjálfra. Nú, 130 árum síðar, eru
rúmlega 11 þúsund verk í eigu Listasafns
Íslands og til að vekja athygli á þessari
löngu sögu listaverkasöfnunar þjóðinni til
handa verður senn gefin út bók um safn-
eignina með 130 listaverkum sem spanna
þessa merku safneign og gefur til kynna
þá fjölbreytni í efniviði og aðferðum, sem
einkennir íslenska list í gegnum tíðina.
Af þessum 130 verkum hafa verið valin
til sýningar um 50 verk, sem endurspegla
130 ára sögu Listasafns Íslands.
Salir 1, 2 og 4 eru svo lagðir undir sýn-
ingu á nýjum verkum eftir Jón Óskar. Í
tilkynningu um opnunina segir að grunn-
einingin í myndlist Jóns Óskars sé og hafi
ætíð verið teikningin í sinni einföldustu,
en um leið margslungnustu mynd. Að því
leyti sverji hann sig í ætt við Kjarval,
sem teiknaði gjarnan með stífhára máln-
ingarpensli og málaði oft með því að snúa
penslinum við og teikna ofan í blautan
litinn með skaftinu. Verkin á sýningunni
eru risastór, agnarsmá og allt þar í milli.
Opnunin hefst klukkan 20 í kvöld og
báðar munu sýningarnar standa til 1.
febrúar á næsta ári.
Ný verk eft ir Jón Óskar og valin verk úr safneign
Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafni Íslands í kvöld: Ný verk Jóns Óskars og valin verk úr safneign.
JÓN ÓSKAR Listamaðurinn sýnir nú ný verk í
Listasafni Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rafhitarar
í skip, hús og sumarhús
Ryðfríir
neysluvatnshitarar
með 12 ára ábyrgð
Hitöld (element), hitastillar,
hitastýringar og flest annað
til rafhitunar
Við erum sérfræðingar í öllu sem
viðkemur rafhitun.
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði
Sími: 565 3265
rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is
Höfðabakka 9
fös., lau. og sun. frá kl. 11:00 - 17:00
og alla næstu viku frá kl. 9:00 - 17:00Vesturlandsvegur
H
öf
ða
ba
kk
i
700,- 1.500,- 1.900,-
1.100,-1.600,-1.100,-500,-
VANDAÐAR
VÖRUR Á
RUGL VERÐI
Margt smátt hefur tekið við sölu og framleiðslustarfsemi Tanna.
Við hreinsum til á lagernum. Þetta og margt, margt fleira.
Komið og gerið góð kaup!
4.900,-
➜Af þessum 130 verkum
hafa verið valin til sýningar
um 50 verk, sem endurspegla
130 ára sögu Listasafns Íslands.