Fréttablaðið - 20.11.2014, Page 2
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SKIPULAGSMÁL Frummatsskýrsla
um umhverfisáhrif kísilmálm-
verksmiðju Thorsil ehf., sem nú
liggur til kynningar hjá Skipu-
lagsstofnun, var gerð af fyrir-
tækinu Mannviti hf. Mannvit
og Thorsil skrifuðu undir sam-
komulag í janúar síðastliðnum
um hönnun kísilmálmverksmiðj-
unnar. „Óneitanlega dregur þetta
úr trúverðugleika matsins,“ segir
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
framkvæmdastjóri Landverndar.
Mannvit og Thorsil skrifuðu
þann 10. janúar undir samstarfs-
samning um hönnun kísilmálm-
verksmiðju Thorsil í Helguvík.
Verðmæti samningsins var sagt
rúmar 500 milljónir króna í til-
kynningu sem fyrirtækin sendu
frá sér. Um þrjú hundruð manns
koma til með að starfa í verk-
smiðjunni og er stefnan sett á að
framleiðsla geti hafist í lok árs
2016. Það er því hagur beggja fyr-
irtækja að kísilmálmverksmiðjan
rísi í Helguvík.
Samkvæmt upplýsingum frá
Skipulagsstofnun er ekkert í
lögum sem bannar það að sami
aðilinn sjái um hönnun verk-
smiðjunnar og geri frummat á
umhverfisáhrifum hennar. Lögin
eru byggð á Evróputilskipun og er
ekki tilgreint í lögum hverjir eigi
að framkvæma mat á umhverfisá-
hrifum.
Eyjólfur Árni Rafnsson, for-
stjóri Mannvits, vísar alfarið
á bug að óeðlilega sé staðið að
málum. „Við höfum ákveðið ferli
sem er bundið í lög. Það ferli gerir
það að verkum að mat á umhverf-
isáhrifum er ekki hægt að gera
öðru vísi en faglega. Þetta opin-
bera ferli tíðkast alls staðar ann-
ars staðar sem ég þekki til. Allir
aðilar vinna verkið samkvæmt
bestu faglegu kunnáttu sem til
er,“ segir Eyjólfur.
Guðmundur Ingi bendir á að
þarna þurfi að breyta lögunum
þannig að trúverðugleiki mats á
umhverfisáhrifum sé hafinn yfir
allan vafa.
„Þegar fyrirtæki gera mat á
umhverfisáhrifum getur það
dregið úr trúverðugleika þegar
fyrirtækin eru fjárhagslega háð
því að eiga viðskipti við fram-
kvæmdaaðilann. Þetta tilvik er
gróft dæmi þess hvernig verk-
fræðifyrirtæki er stórkostlega
háð framkvæmdaaðilanum og
dregur úr trúverðugleika mats-
ins því hagsmunir Mannvits eru
að matið komi sem best út. Einn-
ig efast ég um að verkfræðifyrir-
tækið vilji setja sig í þá stöðu að
hægt sé að vefengja niðurstöður
matsins vegna þessara tengsla.“
Frummatsskýrslan liggur nú
frammi til umsagnar og er hægt
að leggja fram athugasemdir til 5.
desember næstkomandi.
sveinn@frettabladid.is
Gerir umhverfismat
um eigin verkefni
Mannvit vann mat á umhverfisáhrifum kísilvers Thorsil. Gerði samning um
hönnun verksmiðjunnar upp á hálfan milljarð í janúar. „Þarf að breyta lögum til
að umhverfismat sé hafið yfir vafa,“ segir framkvæmdastjóri Landverndar.
STJÓRNMÁL „Staðgöngumæðrun
í velferðarskyni er villandi hug-
tak,“ segir Björt Ólafsdóttir,
þingmaður Bjartrar framtíðar.
Hún ræddi boðað frumvarp um
staðgöngumæðrun í velferðar-
skyni á Alþingi í gær.
Björt sagði að það þyrfti að
ræða siðferðilegu málin sem að
baki lægju. „Við erum komin á
þann stað með væntanlegu frum-
varpi að líkt og maður gefur af
sér af góðmennsku nýrað megi
að sama skapi gera ráð fyrir að
konur gefi afnot af legi sínu og
líkama,“ segir hún. - jhh
Staðgöngumæðrun rædd:
Villandi að tala
um velgjörð
EYJÓLFUR ÁRNI RAFNSSON Forstjóri Mannvits segir ekki hægt að gera mat á
umhverfisáhrifum öðru vísi en faglega. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Óneitan-
lega dregur
þetta úr trú-
verðugleika
matsins.
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson,
framkvæmdastjóri
Landverndar.
JERÚSALEM, AP Heimili Palestínumannsins sem ók bifreið inn í hóp fólks á
járnbrautarstöð í Jerúsalem í síðasta mánuði var lagt í rúst í gær.
Ísraelskir hermenn sprengdu upp allar innréttingar í íbúðinni, sem er
á þriðju hæð í fjögurra hæða íbúðarhúsi. Töluverðar skemmdir urðu á
öðrum íbúðum í húsinu og bifreið, sem lagt var fyrir framan húsið, eyði-
lagðist þegar steypuklumpar hrundu niður.
Ísraelskir ráðamenn skipuðu í gær hermönnum að eyðileggja íbúðir
palestínskra árásarmanna, sem hafa orðið nokkrum hópi fólks að bana
undanfarnar vikur.
Þessi skipun var gefin í framhaldi af árás á samkunduhús gyðinga í
borginni á miðvikudaginn. Sú árás kostaði fimm manns lífið, en árásar-
mennirnir tveir féllu í skotbardaga við lögreglu strax á eftir. - gb
Ísraelski herinn hefnir fyrir árásir í Jerúsalem:
Íbúð árásarmanns lögð í rúst
SKEMMDIRNAR SKOÐAÐAR Íbúð á þriðju hæð í fjögurra hæða íbúðarhúsi var
rústuð í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Ögmundur Jónasson
og Svandís Svavarsdóttir, þing-
menn Vinstri grænna, leggja til
á Alþingi að ríkisstjórninni verði
falið að leita eftir samningi um
kaup á Grímsstöðum á Fjöllum
og tryggja þannig að jörðin verði
þjóðareign.
Ögmundur og Svandís segja
margt mæla með kaupunum.
„Æskilegt er að mótuð verði
stefna varðandi eignarhald og
umráð yfir óbyggðum og þá sér-
staklega bújörðum sem teygja sig
inn á hálendið,“ segir í greinar-
gerð þeirra. - aí
Tveir þingmenn VG:
Ríkið eignist
Grímsstaði
Þórður, hefur KÍ sungið sinn
síðasta tón í þessu máli?
Tónn KÍ hefur aldrei verið hreinni.
Kennarafélag Íslands hélt samstöðufund til
stuðnings tónlistarskólakennurum. Þórður
Árni Hjaltested er formaður KÍ.
KJARAMÁL „Þetta var ótrúlegt atvik og mikil vanvirða
við fólkið sem beðið hafði um aðstoð Eflingar á fund-
inum,“ segir Harpa Ólafsdóttir, hagfræðingur Efling-
ar, sem vísað var út af fundi þar sem yfirmenn fyrir-
tækisins Hreint ræddu við starfsmenn í ræstingum á
Landspítalanum.
Tólf Pólverjar sjá nú um að ræsta 26 þúsund fermetra
á Landspítalanum í Fossvogi en 32 starfsmenn höfðu
sama starf með höndum áður en ræstingar voru boðnar
út skömmu eftir hrun. Það var fyrirtækið Hreint sem
hreppti verkið og starfsmennirnir kveinka sér undan
álagi og kvarta yfir kjörum sínum. Starfsmennirnir
báðu Hörpu um að sitja áðurnefndan fund og þeir fylgdu
henni allir út þegar henni var úthýst.
Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir stjórn-
endum Landspítalans fullkunnugt um álagið á starfs-
fólki við ræstingar. Þeir láti sem þeim komi það ekki
við, þar sem störfin hafi verið boðin út. Þannig ætli
menn líka að hafa það í Stjórnarráðinu en Ríkiskaup
auglýsa nú eftir tilboðum í ræstingar þar eftir að átján
ræstingakonum var sagt upp störfum.
Ræstingakonur í Stjórnarráðinu, þær Bára Valtýs-
dóttir og Hulda Eygló Karlsdóttir, sem var sagt upp
störfum á dögunum gefa lítið fyrir þessa sparnaðar-
leið. Flestar konurnar þurfi að fara á atvinnuleysisbæt-
ur enda lítið um störf fyrir konur um og yfir sextugt.
Sigurður segir að menn þar ætli greinilega að bjóða
ræstingarnar út og láta síðan eins og þeim komi aðbún-
aður starfsfólksins ekki við. „Ég segi hins vegar, þetta
mál er á borði ráðherra,“ segir Sigurður. - þká
Uppgefnir Pólverjar fylgdu fulltrúa Eflingar út af fundi með yfirmönnum:
Tólf í starfi sem 36 sinntu áður
ÁLAG Margfalt álag er sagt á ræstingafólki á Landspítalanum
eftir að verkið var boðið út. FRÉTTABLAÐIÐ/BALDUR
STJÓRNSÝSLA Stjórn Persónuvernd-
ar fjallaði í gær um samskipti
þau er áttu sér stað milli Sigríðar
Bjarkar Guðjónsdóttur, fyrrver-
andi lögreglustjóra Suðurnesja og
núverandi lögreglustjóra höfuð-
borgarsvæðisins, og Gísla Freys
Valdórssonar, fyrrverandi aðstoð-
armanns innanríkisráðherra.
Gísli og Sigríður hringdust ítrek-
að á daginn eftir að Gísli Freyr lak
gögnum er vörðuðu mál hælisleit-
andans Tony Omos til fjölmiðla. Að
auki sendi Sigríður greinargerð um
málefni Omos til Gísla og honum
barst yfirheyrsluskýrsla frá starfs-
manni ráðuneytisins.
Skýrslan hafði borist ráðuneyt-
inu frá starfsmanni embættis lög-
reglustjórans á Suðurnesjum. Í
yfirheyrslum lögreglu kom fram
að Gísli Freyr taldi Sigríði hafa
lagt blessun sína yfir að hann
hefði þau gögn undir höndum.
Starfs- og stjórnarmenn Per-
sónuverndar vildu ekki tjá sig um
málið við vinnslu fréttarinnar.
- joe
Símtöl og tölvupóstskeyti Gísla Freys og Sigríðar Bjarkar eru til athugunar:
Persónuvernd skoðar samskipti
LÖGREGLUSTJÓRI Sigríður Björk er
núverandi lögreglustjóri höfuðborgar-
svæðisins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NOREGUR Fyrstu jarðgöng veraldar
fyrir skip eru nú í undirbúningi í
Noregi. Þeim er ætlað að sneiða
framhjá einni hættulegustu sigl-
ingaleið Evrópu, leiðinni fyrir Stað
sunnan Álasunds. Þar er veðravíti
mikið og svæsin röst, sem valdið
hefur mörgum sjóslysum. Göngin
eiga að verða 49 metrar á hæð og
36 metrar á breidd, nægilega stór
til að rúma farþegaferjur. Lengd
þeirra verður 1,7 kílómetrar og
kostnaður áætlaður um 20 millj-
arðar króna. - kmu
Norðmenn stórhuga:
Jarðgöng fyrir
skip áformuð
SPURNING DAGSINS
Mikið úrval vandaðra útisería
fyrir fyrirtæki, húsfélög og heimili
VELDU
SEM END
AST
OG ÞÚ SPARA
R
JÓLAL
JÓS
Opið kl. 11 - 18 virka daga
Opið kl. 11 - 16 laugardaga