Fréttablaðið - 20.11.2014, Síða 12
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
REYKJANESBÆR Mikillar óánægju
gætir meðal starfsmanna Reykja-
nesbæjar með fyrirhugaðar nið-
urskurðarhugmyndir bæjarins.
Fjölmenntu bæjarstarfsmenn af
því tilefni á fund bæjarstjórnar í
gær og mótmæltu áformum um að
lækka útgjöld vegna bifreiðastyrkja
og yfirvinnu starfsmanna.
Áætlað er að minnka útgjöld til
þessara liða um 250 milljónir króna.
Formaður Starfsmannafélags Suð-
urnesja segir mikinn óróa í fólki.
Friðjón Einarsson, formaður
bæjar ráðs Reykjanesbæjar, segir
þetta vera hluta af 900 milljóna
króna hagræðingaraðgerð sem
þurfi að fara í.
„Aðalástæðan fyrir þessum
aðgerðum er sú að eftirlitsnefnd
með fjármálum sveitarfélaga hefur
krafist þess að bæjarstjórn taki á
sínum málum því ekki hefur gengið
sem skyldi á síðustu árum. Ef við
getum ekki staðið okkur þá tekur
eftirlitsnefnd yfir reksturinn,“
segir Friðjón.
Stefán B. Ólafsson, formaður
Starfsmannafélags Suðurnesja,
segir mikinn óróleika í kerfinu og
starfsmenn uggandi um hag sinn.
Lítið samráð hafi verið við starfs-
menn bæjarins með þessar áætl-
anir.
„Það þarf fyrst og fremst að vera
ákveðið samráðsferli við starfs-
menn. Við erum að vinna þetta
með okkar lögmönnum. Það sem
þeir eru að skoða er hvort ákvæði
um hópuppsagnir eigi við,“ segir
Stefán.
Að sögn Stefáns er fólk á mis-
munandi stað í lífinu og því komi
þetta misjafnlega niður á fólki.
„Þetta er áfall fyrir fólk sem er
búið að vera á fínum launum í lang-
an tíma og fer að lenda í niðurskurði
núna. Tala nú ekki um ef einhverjir
eru á síðustu árum starfsævi sinnar
og lenda nú í að laun þeirra skerð-
ast. Það gæti þá þýtt skerðingu á líf-
eyrisréttindum fólks,“ segir Stefán
sem kveður samráðið vanta og að
starfsmenn viti lítið um málið.
„Við erum ekki búin að sjá neina
útlistun eða útfærslu á hvernig
þetta verði gert. Því er starfsfólkið
uggandi yfir að laun þess skerðist.
Óvissan vegna ýmissa þátta er erfið
en vonandi fer að skýrast hvernig
þetta er hugsað.“
Friðjón Einarsson segir aðgerð-
irnar óumflýjanlegar.
„Reykjanesbær greiðir á sjötta
hundrað milljónir á ári í bílastyrki
og yfirvinnu. Við verðum að lækka
þá tölu um helming. Það er ekki verið
að segja upp neinum starfsmanni
bæjarins eða hreyfa við föstum laun-
um fólks.“ sveinn@frettabladid.is
Starfsmenn
mótmæltu
niðurskurði
Starfsmenn Reykjanesbæjar fjölmenntu á bæjar-
stjórnarfund á þriðjudag og mótmæltu fyrirhuguðum
niðurskurði á launum um 250 milljónir. Verkalýðs-
og sjómannafélag Keflavíkur og Starfsmannafélag
Suðurnesja funduðu í gær með bæjarstarfsmönnum.
ÓSÁTTIR Bæjarstarfsmenn í Reykjanesbæ mættu á bæjarstjórnarfund og mót-
mæltu skertum greiðslum. MYND/VÍKURFRÉTTIR
MENNTUN Drengur sem fæddist heyrnarlaus
hlaut 95 í raðeinkunn í samræmdum prófum
lokaárs grunnskóla í október.
Pilturinn fór í kuðungsígræðslu tæplega
tveggja ára og heyrir í kjölfar þess. Ígrædda
tækið framkallar hljóðáhrif með því að örva
heyrnartaugina með rafmagni. Með krókaleið-
um er hljóði breytt í rafboð sem örva tauga-
frumur innra eyrans og notandinn skynjar sem
hljóð.
„Árangur piltsins er mjög merkilegur og sýnir
hvað hægt er að gera með breyttum ytri skilyrð-
um og markvissri þjálfun,“ segir Bryndís Guð-
mundsdóttir talmeinafræðingur. - joe
Fæddist heyrnarlaus en skaraði fram úr:
Dúx með ígræðslu
BRYNDÍS GUÐMUNDS-
DÓTTIR Þakkar árangur
drengsins kuðungs-
ígræðslu og markvissri
þjálfun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þetta er áfall fyrir
fólk sem er búið að vera á
fínum launum í langan
tíma og fer að lenda í
niðurskurði núna.
Stefán B. Ólafsson, formaður
Starfsmannafélags Suðurnesja.
Ef við getum ekki
staðið okkur þá tekur
eftirlitsnefnd yfir
reksturinn.
Friðjón Einarsson,
formaður bæjar ráðs Reykjanesbæjar.
Erfðir brjóstakrabbameins
Fæst hjá Jóni & Óskari.
Laugavegi 61 // Kringlunni // Smáralind.
Tel.+354 552 4910 // www.jonogoskar.is.
Nýjasta hönnun úr Icecold silfurlínunni
er innblásin af hinum töfrandi Norðurljósum.
Tilvalin gjöf til vina og vandamanna erlendis.
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
4
39
8
9
Men frá 16.900 kr.
Lokkar 15.900 kr.