Fréttablaðið - 20.11.2014, Blaðsíða 18
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 18
Við lifum vel og lengi
Landssamtök lífeyrissjóða og Félag íslenskra tryggingastærðfræðinga,
í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins, efna til málþings um breyttar
lífslíkur og áhrif þess á lífeyrissjóði mánudaginn 24. nóvember kl. 13-16
á Grand hóteli Reykjavík.
Tilkynning um þátttöku berist Landssamtökum lífeyrissjóða á tölvupóstfangið radstefna@ll.is
Dagskrá:
13:00 Gunnar Baldvinsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, setur málþingið.
13:15 Bjarni Guðmundsson tryggingastærðfræðingur: Nýjar lífslíkur og spá um framtíðina.
13:30 Þórir Óskarsson tryggingastærðfræðingur: Aðferðafræði og niðurstöður.
13:45 Steinunn Guðjónsdóttir tryggingastærðfræðingur: Áhrif hækkandi lífaldurs
á tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða.
14.00 Fyrirspurnir til framsögumanna.
14:15 Björn Z. Ásgrímsson sérfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu: Hvernig hafa aðrar þjóðir
brugðist við hækkandi lífaldri?
Kaffihlé
15:00 Hvernig eiga íslenskir lífeyrissjóðir og aðilar vinnumarkaðarins að bregðast við
auknum skuldbindingum vegna hækkandi lífaldurs þjóðarinnar?
Þátttakendur í pallborðsumræðum: fulltrúar fjármálaráðuneytis, Alþýðusambands Íslands,
Bandalags háskólamanna, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Samtaka atvinnulífsins
og Sambands íslenskra sveitarfélaga
16:00 Málþingi lýkur.
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, stjórnar málþinginu.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, stýrir pallborðsumræðum.
SAMBAND Í S L E N S K R A
S V E I TA R F É L A G A
105 Reykjavík Sími: 563 6450 ll.is
AKUREYRI Á bæjarstjórnarfundi
á Akureyri á þriðjudag klofnaði
meirihluti L-listans, Framsóknar-
flokksins og Samfylkingarinnar,
vegna ályktunar um Reykjavíkur-
flugvöll. Samþykktu átta bæjar-
fulltrúar af ellefu ályktunina en
bæjarfulltrúar Samfylkingar og
Bjartrar framtíðar sátu hjá.
Meginágreiningurinn sner-
ist um að Alþingi ætti að hlutast
til um að taka skipulagsvald af
Reykjavíkurborg til að festa
Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýri.
Allir bæjarfulltrúar voru sam-
mála um mikilvægi þess að flug-
völlur yrði áfram staðsettur í
Reykjavík. Hins vegar kom bæjar-
stjórnin sér ekki saman um álykt-
un þess efnis.
Fór svo að bæjarfulltrúarnir
þrír ítrekuðu í bókun að flugvöll-
ur í Reykjavík væri mikilvægur
fyrir landsbyggðina. Segir þar að
Reykjavík sé höfuðborg Íslands og
hafi sem slík víðtækum skyldum
að gegna gagnvart landsmönnum
öllum. - sa
Flugvöllur í Vatnsmýri varð að hitamáli í bæjarstjórn Akureyrar í fyrradag:
Meirihluti klofnaði á Akureyri
AKUREYRI Ekki eru allir á einu máli um
Reykjavíkurflugvöll. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BANDARÍKIN, AP Kuldar og fann-
fergi hafa herjað á Bandaríkja-
menn síðustu daga. Þetta er
óvenju snemma árs.
Íbúar í vestanverðu New York-
ríki hafa orðið einna verst úti, en
mikil snjókoma hefur verið þar
með tilheyrandi umferðartepp-
um.
Íbúar í borginni Buffaló og
nágrenni hennar vöknuðu upp
við það á þriðjudagsmorgun að
meira en 1,5 metra jafnföllnum
snjó hafði kyngt niður. Í gær var
reiknað með allt að 1,8 metrum
í viðbót og í dag mega íbúarnir
búast við 60 sentímetra snjó.
Umferð stöðvaðist víða vegna
fannfergisins, bifreiðar sátu fast-
ar í snjókomunni og fólk komst
ekki út úr húsum sínum þar sem
snjórinn lokaði bæði dyrum og
gluggum auk þess sem ófært var
á götum.
Þessar óvæntu vetrarhörkur
urðu að minnsta kosti sjö manns
að bana í New York, New Hamp-
shire og Michigan. Þar á meðal
fannst 46 ára gamall maður
snemma í gærmorgun í bifreið
sinni, sem var ofan í skurði og
var komin á kaf í snjó. Fjórir lét-
ust af völdum hjartaáfalls þegar
þeir voru að moka snjó, en einn
varð undir bifreið sem hann var
að reyna að losa úr snjónum.
Í einu húsi létu bakdyrnar
undan fannferginu þannig að her-
bergi fylltist af snjó.
„Það urðu gríðarlegar drunur.
Við hlupum öll þangað og héld-
um hreinlega að þakið á húsinu
væri að hrynja,“ segir Chrissy
Gritzke Hazard, sem var heima
hjá sér ásamt eiginmanni sínum,
fimm börnum og þremur vinum
barnanna.
„Við bjuggumst svo sannarlega
ekki við því að dyrnar myndu láta
undan, dyrakarmurinn og allt,
inn í húsið.“
Næturfrost varð í öllum 50
ríkjum Bandaríkjanna í fyrri-
nótt, og mátti búast við því að
slíkt hið sama myndi gerast
næstu nætur.
Sjaldgæft er að frost mælist í
öllum ríkjunum fyrr en upp úr
áramótum.
Víða í Bandaríkjum urðu slys á
fólki vegna hvassviðris og hálku
á vegum. Loka þurfti skólum og
tafir urðu á afgreiðslu hvers kyns
mála í opinberum stofnunum.
gudsteinn@frettabladid.is
Fannfergi og
frost vestra
Vetrarhörkur hafa skollið á íbúum Bandaríkjanna nú
í vikunni, óvenju snemma árs. Næturfrost var í öllum
50 ríkjum Bandaríkjanna síðustu nótt. Líka á Hawaii.
FANNFERGI Snjórinn réðst þarna inn
um dyr á íbúðarhúsi í bænum Cheek-
towaga í New York. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HLASS Á ÞAKI Ökumaðurinn lét eiga sig að skafa af þakinu, eftir að hafa mokað
bílinn út úr snjóskafli í Lancaster. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÚKRAÍNA, AP Rússar gagnrýna harð-
lega ákvörðun Úkraínustjórnar, frá
því fyrr í mánuðinum, um að stöðva
allar greiðslur úr ríkissjóði til austur-
héraðanna sem uppreisnarmenn hafa
á sínu valdi. Reiknað er með því að
efnahagsástandið í austurhéruðunum
muni versna enn í framhaldinu.
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, segir að með þessu geti
Úkraínustjórn verið að „undirbúa
jarðveginn fyrir nýja innrás í þeim
tilgangi að leysa vandann með vald-
beitingu“. - gb
Rússar mótmæla ákvörðun Úkraínustjórnar:
Greiðslur stöðvaðar
SERGEI LAVROV Segir Úkraínu-
stjórn undirbúa innrás. FRÉTTABLAÐIÐ/AP