Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.11.2014, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 20.11.2014, Qupperneq 26
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS S egja verður sem er að forysta stjórnarandstöðuflokk- anna á Alþingi hefur gjaldfellt sig. Og það á því aumasta af öllu aumu. Þrátt fyrir að eiga það sameigin- legt að búa við fjárhagslegt öryggi, sameinaðist for- ysta stjórnarandstöðuflokkanna, reyndar að Pírötum frátöldum, í að þiggja greiðslur úr ríkissjóði til að lækka skuldir sínar lítið eitt. Ekki vegna þess að þetta annars ágæta fólk glímdi við fjárhagslegan vanda, ætti ekki fyrir afborg- unum, lifði í óvissu um hvernig tækist að ná endum saman. Nei, bara til að þess að hafa það ögn betra. Ekki er nokkrum blöðum um það fletta að þau eru ekki ein velstæðra sem gerðu það. Nei, aldeilis ekki. Víða má finna dæmi þess að velstætt fólk hafi fengið ótrúlegar niðurfellingar lána. Enda var leikurinn meðal annars til þess gerður. Hitt er annað, að fáir hafa haft uppi jafn mikla gagnrýni og stjórn- málaleiðtogar á Alþingi Íslend- inga. Þar er fólk sem fann allt að aðgerðunum, fannst rangt að útdeila peningum til þeirra sem ekki þurfa nauðsynlega á þeim halda. Þar á meðal til þeirra sjálfra Eins og þetta ágæta fólk hefur bent á er víða brýn þörf fyrir þá peninga sem fara nú til velstæðra Íslendinga, meðal annars stjórnmálaforingja. Grípum aðeins niður í ræðu eins þeirra: „Það er verið að ganga á innviðina, við sjáum það bara á veg- unum, þeim er ekki haldið við. Það safnar bara upp kostnaði ef þeim er ekki haldið við. Þörf er á nýjum spítala en það er ekki hægt að fara í hann. Peningarnir fara í skuldaleiðréttinguna. Það er þörf á fjárfestingu í menntakerfinu, menntamálaráð- herra talar síendurtekið um að við séum að dragast aftur úr þar, og það er þörf á því að greiða niður opinberar skuldir.“ Já, orð að sönnu. Við lesturinn hér að ofan er hreint ótrúlegt að þeir sem þannig tala, og skortir ekki neitt, skuli samt sækja í almannapeninga sér til hagsbóta. Frægt er að fjármálaráðherrann, sem er með stöndugri mönnum en sótti samt um að hluti skulda hans færi yfir á ríkis- sjóð, sagði í ræðustól Alþingis: „Var það sanngjarnt að öllu leyti hvernig tekið var á gengislánamálum eða á öðrum skuldum? Ég veit það ekki, en það er að minnsta kosti ýmislegt búið að gera fyrir flesta aðra en þá sem falla undir þá aðgerð sem við ræðum hér í dag.“ Trúverðugleiki er stjórnmálamönnum eflaust mikils virði. Þess vegna er klént að tala sig hásan um vondar aðgerðir í niðurfellingu skulda en fara samt í röðina í von um að fá sneið af hinni fordæmdu köku. Öll orð hér eftir, um þetta mál hið minnsta, verða að skoðast í því ljósi að orð og athafnir hafa stangast á. Öll gagnrýnin, sem sett hefur verið fram, missir þar með marks. Enn og aftur eru það peningar, von um gróða, sem varpar skugga á fólk. Það er ekki hægt að tala á einn veg og fara aðra leið sjálfur. Það er eiginlega aumast af öllu aumu. Forysta stjórnarandstöðunnar kom mikið á óvart: Gjaldfelldu sig í hagnaðarskyni Sigurjón Magnús Egilsson sme@frettabladid.is Í fúlustu alvöru „Forvitnilegt að sjá hve viðkvæmt er fyrir suma að fundið sé að því að nokkrir lögfræðingar eigi greiðari aðgang með mál skjólstæðinga sinna í fréttir Ríkisútvarpsins en aðrir.“ Þetta skrifar fyrrverandi menntamála- og dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, og er að fjalla um lögmenn hælis- leitenda og finnur að viðtölum við þá. „Taki umboðsmaður Alþingis ekki upp hjá sjálfum sér að kanna þetta mál má beina því til hans með kvörtun. Skrýtið að menn skuli kippa sér upp við þá hugmynd. Ríkisútvarp- ið er ríkisstofnun og fellur undir stjórnsýslulög og um- boðsmaður fjallar um hvort að þeim sé farið,“ skrifar Björn Bjarnason. Skattaskilin og njósnirnar Styrmir Gunnarsson, sem um árabil stundaði njósnir fyrir Bandaríkin, Sjálfstæðisflokkinn og Morgunblaðið, hefur sagt að hann hafi borgað upp- ljóstrara sínum peninga. Fyrst komu peningarnir frá Bandaríkjunum, síðar Sjálfstæðisflokknum og svo frá Morgunblaðinu. Forvitnilegt yrði að sjá með hvaða hætti þær greiðslur voru færðar í bókhaldi Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins. Eins hvort upp- ljóstrarinn hafi greitt skatta af tekj- unum sem hann fékk frá flokki og málgagni. Væntanlega var farið að lögum um skattskil og bókhald, en ekki hvað. Annars hafa bæði flokkur og blað gerst brotleg við skattalög, bókhaldslög og jafnvel fleiri lög. Kannski segir Styrmir frá því í næstu bók. Stjórnmálamenn með bankavald Jón Sigurðsson, fyrrum formaður Framsóknarflokksins, skrifar grein þar sem hann fjallar um skuldaleiðrétt- inguna. Og finnur að ýmsu: „Það er alvarlegt að nú hafa stjórnmálamenn tekið sér bankavald með pólitískum inngripum í útistandandi lán, og slíkt boðar sjaldnast farsæld. Ýmsar hættur geta fylgt þessum aðgerðum.“ Jóni, sem einnig var seðlabankastjóri, er órótt: „Vonandi fer núverandi ríkis- stjórn ekki lengra en orðið er út á þessa hættubraut. Nú er nefnilega hætta á því að í hvert sinn sem hér verður einhver bylta krefjist menn sambærilegra aðgerða. Kjörorðið verður á hvers manns vörum: „Almennur for- sendubrestur.“ sme@frettabladid.is ht.is UMBOÐSMENN UM LAND ALLT AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • SELFOSS • REYKJANESBÆR • REYKJAVÍK Engin venjuleg upplifun Við kynnum Philips Ambilight 9000 sjónvörpin Ultra HD með Android Sumir hafa lýst yfir áhyggjum af því að arðurinn af raforkuauðlindinni renni í vasa fárra og telja að aðeins útvaldir sleiki smjörið sem af stráunum drýpur. Hið sanna er að Landsvirkjun, sem sér um stærsta hluta auðlindanýtingarinnar, er alfarið í þinni eigu, lesandi góður. Lands- menn og engir aðrir eiga Landsvirkjun milliliðalaust og allt eigið fé sem þar mynd- ast vegna nýtingarinnar, ca. 200 milljarð- ar í dag, er okkar eign. Landsvirkjun á að kanna hvar er hægt að virkja en við sem samfélag eigum svo að ákveða hvort eigi að virkja. Raforkuauðlindin hér er svo stór að langstærstan hluta hennar verður að selja á stærri markað. Það sama gildir um fiskinn okkar, þar eru veiðar langt umfram það sem þjóðin getur torgað en almenn sátt virðist vera um að veiða hann samt og selja á sem hæstu verði á erlendan markað. Núverandi stefna Landsvirkjunar er ein- mitt sú sama, þ.e. að reyna að fá sem allra besta verðið fyrir auðlindina þína hvort sem það er til fyrirtækja sem starfrækt eru hér eða með mögulegum sæstreng. Sumir telja að auðlindin hafi í gegnum tíðina hreinlega verið gefin erlendum auð- hringjum. Það má deila um verðið sem fæst frá stóriðjunni en grundvallarmis- skilningur er að stóriðjan eigi auðlindina og ekkert sé skilið eftir fyrir framtíðina. Hið rétta er að líftími flestra orkumann- virkja er miklum mun lengri en þeir samn- ingar sem gerðir hafa verið við stórnotend- ur. Við samningslok getum við, eigendur auðlindarinnar, ákveðið að ráðstafa auð- lindinni með allt öðrum hætti eða á allt öðru verði. Önnur umræða er svo flutningur á raf- orku en þar snýst málið um hvort raforku- auðlindinni er tæknilega skilað jafnt til landsmanna. Í dag er það ekki svo þar sem byggðalínan er á þanmörkum og landið skiptist í tvennt. Suðvesturhorn landsins býr við sterkt kerfi og getur nýtt raforku- auðlindina að vild til atvinnuuppbyggingar. Hinn hlutinn af landinu býr hins vegar við veikt kerfi og á víða erfitt með bjóða upp á framtíðar atvinnuuppbyggingu þar sem raforkuþörf er eitthvað umfram meðal- notkun. Að mínu mati er bara tvennt í boði. Það er að fara í einhverja af þessum raforkukerfisuppfærslum sem Landsnet er að kynna eða að skapa þjóðarsátt um að SV-hornið verði eitt um að njóta framtíðar atvinnumöguleika sem tengjast raforku- auðlindinni okkar allra. Orkuauðlindin okkar ORKUSETUR Sigurður Ingi Friðleifsson ➜ Það má deila um verðið sem fæst frá stóriðjunni en grundvallar- misskilningur er að stóriðjan eigi auðlindina og ekkert sé skilið eftir fyrir framtíðina.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.