Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.11.2014, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 20.11.2014, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 20. nóvember 2014 | SKOÐUN | 27 landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Hagvöxtur og lífskjör Miðvikudagur 26. nóvember kl. 8.30–10.00 í Silfurbergi Hörpu. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.00. Hagspá Landsbankans kynnt á morgunfundi í Hörpu Dr. Daníel Svavarsson forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans, kynnir greiningu á þróun og horfum í efnahags- málum. Gunnar Alexander Ólafsson heilsuhagfræðingur ræðir stöðu og horfur í heilbrigðis- þjónustu á Íslandi. Björgvin Skúli Sigurðsson markaðs- og viðskiptaþróunar- sviði Landsvirkjunar, allar um orkuiðnaðinn og möguleika Íslands til framtíðar. Fundarstjóri er Þórdís Ingadóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Skráning á landsbankinn.is. #hagspa N o re g u r F in n la n d L e tt la n d G ri k k la n d B a n d a rí k in H o ll a n d S p á n n Þ ý sk a la n d D a n m ö rk S v íþ jó ð B re tl a n d Sa md rát tur H agv öxt ur V er g la n d sf ra m le ið sl a á m an n Ís la n d Heimild: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, tölur fyrir árið 2013 Frá árinu 2009 hefur það verið baráttumál Framsóknar- f lok ksi ns að koma til móts við heimilin í land- inu með niður- fellingu skulda. Hér hefur aldrei verið um neinn populisma að ræða, heldur hefur það snúist um réttlæti og sanngirni frá upphafi. Í októ- ber 2008 féll heilt bankakerfi á Íslandi eins og alþjóð veit. Bankarnir fóru of geyst sem varð til þess að almenningur sat uppi með verulegt tjón. Frá fyrsta degi hefur Framsóknar- flokkurinn sagt að rétt væri að sækja fjármuni til þrotabúa föllnu bankanna og nota hluta þeirra fjármuna til að leiðrétta þann forsendubrest sem heim- ilin urðu fyrir. Á undanförnum árum hafa hundruð milljarða verið afskrifuð af fyrirtækjum ásamt því að hundruð milljarða gengislána hafa verið afskrifuð. Þegar kom svo að því að aðstoða venjuleg heimili með verðtryggð húsnæðis lán hefur ekki verið hægt að gera meira. Nú hefur því verið breytt og er leiðréttingin fjármögnuð með sérstökum skatti á þrotabú föllnu bankanna. Heimilin eru undirstaðan Heimilin eru undirstaða efna- hagslífsins. Há skuldsetning heimilanna dregur úr krafti efna- hagslífsins. Um 30% heimila voru nærri vanskilum eða í vanskilum og greiðslubyrði lána var almennt of há. Í kjölfar leiðréttingar- innar er gert ráð fyrir að hagkerf- ið fái viðspyrnu til frekari vaxtar. Þegar við náum að styrkja enn frekar efnahags- lífið getum við haldið áfram að styrkja þá innviði sem við erum flest sammála um að standa beri vörð um, s.s. heilbrigðis- og menntakerfið. Dreifing 110% leiðarinnar Í 110% leið fyrri ríkisstjórnar var heildarniðurfærsla verðtryggðra húsnæðiskulda um 45 milljarðar. Aðgerðin nýttist aðeins um 10% heimila með verðtryggðar hús- næðisskuldir, rúmlega sjö þús- und heimilum. Aðeins eitt prósent heimilanna (775 heimili) fékk um helming niðurfærslunnar eða rúmlega tuttugu milljarða. Þessi 775 heimili fengu öll yfir fimm- tán milljóna króna niðurfærslu og meðaltal þeirra var um 26 millj- ónir. Dreifing leiðréttingarinnar Einstaklingar sem skulda minna en fimmtán milljónir króna og heimili sem skulda minna en þrjátíu milljónir króna fá rúm- lega 70% af fjárhæð leiðrétting- arinnar. Flestar fjölskyldur fá 1,4 milljónir króna í höfuðstólslækk- un vegna leiðréttingarinnar og flestir einstaklingar fá um 800 þúsund krónur. Um 75% af fjár- hæð leiðréttingarinnar renna til einstaklinga með sjö milljónir eða minna í árstekjur og heimila með minna en 16 milljónir króna í árstekjur. Fólk sem var yngra en 50 ára við forsendubrestinn fær 68% af fjárhæð leiðréttingarinn- ar í sinn hlut. Þeir einstaklingar sem eiga minna en fjórar milljón- ir króna í eigið fé og heimili sem eiga minna en 13 milljónir króna í eigið fé fá um 55% fjárhæðar leiðréttingarinnar. Mest fá þeir sem ekkert eiga. Meira en helm- ingur af heildarfjárhæð leiðrétt- ingarinnar rennur til fólks sem er undir meðallaunum. Áhrifin Ráðstöfunartekjur hjá þeim sem nýttu sér leiðréttinguna munu aukast um 17% eða 130-200 þús- und krónur á ári á árunum 2015- 2017. Afborganir og vaxtagjöld heimilanna lækka um 22% til ársins 2017. Eiginfjárstaða 54 þúsund heim- ila styrkist með beinum hætti og fjögur þúsund aðilar færast úr því að eiga minna en ekki neitt, yfir í að eiga jákvætt eigið fé í fasteignum sínum. Úr neikvæðu í jákvætt Barnaheill, umboðsmaður barna og UNI- CEF óska öllum börnum til ham- ingju með afmæli Barnasáttmál- ans, en í dag er hann 25 ára. Heill aldarfjórðungur er liðinn frá því að Allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna ákvað að tryggja börnum sjálfstæð mannréttindi. Barna- sáttmálinn er í dag útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims og er afmæli hans fagnað um allan heim á þessum degi. Nú er tilefni til að líta yfir far- inn veg og gleðjast yfir öllu því sem hefur áorkast í réttindabar- áttu barna á þessum 25 árum. Þó að Ísland teljist fyrirmynd innan alþjóðasamfélagsins með tilliti til lífsskilyrða og réttinda barna, verðum við að vera með- vituð um þá ábyrgð sem felst í þessu hlutverki. Okkur miðar vel, en betur má ef duga skal – stuðla þarf markvisst að innleið- ingu réttinda barna ef tryggja á að sýn Barnasáttmálans verði að veruleika fyrir öll börn. Hinn 20. febrúar 2013 sam- þykkti Alþingi Íslendinga ein- róma að lögfesta Barnasátt- málann. Sáttmálinn hefur því lagalegt gildi hér á landi. Barna- sáttmálinn boðar byltingar- kennda sýn á stöðu barna. Sátt- málinn viðurkennir að börn séu viðkvæmur hópur sem tryggja þurfi sérstaka vernd og umönn- un. Samhliða því gengur hann út frá því að börn séu fullgildir þátttakendur í samfélaginu og búi yfir þekkingu og reynslu sem sé verðmæt fyrir samfé- lagið. Ein af fjórum grundvallarfor- sendum sáttmálans gengur út á að börn eigi rétt til að tjá sig í öllum málum sem þau varða og skyldu hinna fullorðnu til þess að taka réttmætt tillit til skoð- ana barna. Það er lítil lýðræðis- leg hefð fyrir því í samfélagi okkar að börnum sé gefið tæki- færi til að hafa áhrif á ákvarð- anir sem snerta þau. Slíkt krefst vitundarvakningar um lýðræði og þátttöku barna, jafnt sem fræðslu um hvernig réttindi þeirra eru sett í hversdagslegt samhengi. Aðrar grundvallar- forsendur Barnasáttmálans eru að öll börn eigi rétt á að lifa og þroskast, ekki megi mismuna börnum með nokkrum hætti og að allar ákvarðanir sem varða börn skulu grundvallaðar á því sem þeim er fyrir bestu. Barnasáttmálinn er mikil- vægt skjal sem hefur alla burði til að bæta líf okkar allra. Séum við samtaka í að halda réttindum barna á lofti sköpum við betra samfélag fyrir börnin okkar. Þannig byggjum við grunn að framtíð betra samfélags. Á þess- ari vegferð er mikilvægt að fræða börn um réttindi þeirra. Ef börn eru meðvituð um þau eru þau líklegri til að vera tals- menn réttinda sinna og sam- ferðamanna sinna. Þau verða sterkari einstaklingar sem láta sig óréttlæti varða, í hvaða mynd sem það birtist. Barnasáttmál- inn er hagnýtt verkfæri sem getur hjálpað okkur að skapa réttlátara og betra samfélag. Tökum höndum saman og stöndum vörð um réttindi allra barna í krafti Barnasáttmálans! Barnasáttmálinn 25 ára! HEIMILIN Helgi Haukur Hauksson formaður SUF Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður SUF ➜ Frá fyrsta degi hefur Framsóknarfl okkurinn sagt að rétt væri að sækja fjár- muni til þrotabúa föllnu bankanna og nota hluta þeirra fjármuna til að leið- rétta þann forsendubrest sem heimilin urðu fyrir. BARNASÁTTMÁLINN Margrét María Sigurðardóttir umboðsmaður barna á Íslandi Erna Reynisdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla– Save the Children á Íslandi Bergsteinn Jónsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.