Fréttablaðið - 20.11.2014, Page 34

Fréttablaðið - 20.11.2014, Page 34
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 34 ➜ Kynjaskipt skólastarf með markvissri uppbóta- vinnu fyrir bæði kyn er gríðarlega öfl ug leið en ég er hins vegar algjörlega sannfærð um að það eigi það sama við um fl eiri leiðir. Aðalatriðið er eftir- fylgni, markmið og skýr sýn á leiðir að árangrinum – í jafnréttiskennslu líkt og í allri annarri kennslu. Enn er langt í land þegar litið er til jafnréttis í okkar samfélagi. Niður- stöður gefa okkur nei- kvæða mynd af viðhorfum ungmenna til jafnréttis. Samfélagið í heild sinni virðist engan veginn vera að standa sig í stykkinu. Hugmyndir ungmenna um hlutverk kynjanna gefa til kynna að hægt þokist áfram og jafnvel sé um afturför að ræða. Vonbrigði leyna sér ekki, hver jafnréttisráðstefnan á fætur annarri er haldin þar sem farið er yfir frekar von- lausa stöðu, mikinn launamun kynjanna, kynbundið ofbeldi í garð kvenna, hlutfall kvenna ekki sem skyldi í stjórnendastöðum svo ekki sé upptalin staða minnihlutahópa sam- félagsins sem hallar á á degi hverjum. Mikil vonbrigði fylla hjörtu jafnréttissinna. En er von? Ástæða þessara skrifa er hins vegar raunveruleikinn sem ég bý við í starfi mínu með börn- um í Hjallastefnuskóla, sú jafn- réttiskennsla sem ég hef orðið vitni að og skilar áþreifanleg- um árangri í þankagangi barna. Það er nefnilega þannig að við getum haft mikil áhrif á jafn- réttismál með því að fylgja jafnréttiskennslu eftir í leik- og grunnskólum. Meðvitaðir kennarar um stöðu jafnrétt- ismála, kennarar sem láta sig málið varða og láta verkin tala. Þar sem unnið er með viðhorf sem móta börn og ungmenni, vinna sem leiðir af sér ný við- horf, nýja sýn sem gefur okkur ástæðu til þess að trúa því að það sé von. Tæki til jafnréttiskennslu Að starfa með börnum frá 10-12 ára sem hafa flest gengið í Hjallastefnuskóla frá því þau hófu skólagöngu sína í leikskóla og sjá og heyra hvernig viðhorf þeirra mótast og taka breyting- um frá ári til árs er undursam- legt. Leið Hjallastefnunnar til jafnréttiskennslu er aðeins ein af mörgum og alls ekki sú eina rétta en hún virkar hins vegar og það er dásamlegur veruleiki sem við búum við. Það að vinna með leið sem skilar árangri gefur okkur til- efni til þess að fyllast jákvæðni og trú á að það sé virkilega von. Kynjaskipt skólastarf með markvissri uppbótavinnu fyrir bæði kyn er gríðarlega öflug leið en ég er hins vegar algjör- lega sannfærð um að það eigi það sama við um fleiri leið- ir. Aðalatriðið er eftirfylgni, Jafnrétti – er von? markmið og skýr sýn á leiðir að árangrinum – í jafnréttis- kennslu líkt og í allri annarri kennslu. Ný aðalnámskrá– jafnrétti Í nýrri aðalnámskrá fyrir grunnskóla er sérstaklega fjallað um jafnrétti sem grunn- þátt í öllu námi barna og því ber öllum skólum að fræða og búa börnum tækifæri innan skóla- kerfisins til frekari þroska, aukna jafnréttisvitund sem leiðir af sér breytt viðhorf fyrir komandi kynslóðir. Það er hægt að koma mikil- vægi jafnréttisviðhorfa til skila til barna og hafa jákvæð áhrif á viðhorf þeirra til jafn- réttismála með því að standa með jafnréttiskennslu strax í leikskóla og áfram menntaveg- inn. Það hefur sýnt sig svo um munar hjá 12 ára hjallastefnu- börnum. Þar verðum við áþreif- anlega vör við að slík vinna beri raunverulegan ávinning þar sem stúlkur standa með sjálfum sér og drengir tala fyrir mikil- vægi jafnrétti stúlkna jafnt sem drengja af hjartans einlægni. Ég nefni sérstaklega 12 ára börn vegna þess að viðhorfa- kennsla tekur tíma. Það þarf virkilega að standa með slíkri kennslu eins og við kjósum að kalla það hjá Hjallastefnunni. Galdurinn er nefnilega m.a. sá að standa með ákvörðunum og fylgja verkefnum eftir af trú- mennsku. Þá á einhverjum tíma- punkti springur afraksturinn út eins og blóm í haga. Ef skólasamfélagið virkilega beitir sér þá er von! Save the Children á Íslandi MENNTUN Sara Dögg Svanhildardóttir skólastýra Vífi ls- skóla miðstigsskóla - Lifi› heil www.lyfja.is Litlu jólin í Lyfju Smáralind Full búð af flottum jólagjöfum fyrir alla í fjölskyldunni. Flottar kynningar í göngugötunni. Opið til kl. 22:00 í kvöld. ÍS LE N ÍS LE N SK A SK A /S IA . /S IA .IS /L Y IS /L YF 7 16 F 71 65 4 11 54 1 1/ 14/1 4 AAAA Lyfja Smáralind 25% afsláttur af öllum snyrtivörum, gjafavörum og sokkabuxum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.