Fréttablaðið - 20.11.2014, Síða 34
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 34
➜ Kynjaskipt skólastarf
með markvissri uppbóta-
vinnu fyrir bæði kyn er
gríðarlega öfl ug leið en ég
er hins vegar algjörlega
sannfærð um að það eigi
það sama við um fl eiri
leiðir. Aðalatriðið er eftir-
fylgni, markmið og skýr sýn
á leiðir að árangrinum – í
jafnréttiskennslu líkt og í
allri annarri kennslu.
Enn er langt í land þegar
litið er til jafnréttis í
okkar samfélagi. Niður-
stöður gefa okkur nei-
kvæða mynd af viðhorfum
ungmenna til jafnréttis.
Samfélagið í heild sinni
virðist engan veginn vera
að standa sig í stykkinu.
Hugmyndir ungmenna
um hlutverk kynjanna
gefa til kynna að hægt
þokist áfram og jafnvel
sé um afturför að ræða.
Vonbrigði leyna sér ekki,
hver jafnréttisráðstefnan
á fætur annarri er
haldin þar sem farið
er yfir frekar von-
lausa stöðu, mikinn
launamun kynjanna,
kynbundið ofbeldi í
garð kvenna, hlutfall
kvenna ekki sem skyldi
í stjórnendastöðum svo
ekki sé upptalin staða
minnihlutahópa sam-
félagsins sem hallar á
á degi hverjum. Mikil
vonbrigði fylla hjörtu
jafnréttissinna.
En er von?
Ástæða þessara skrifa er hins
vegar raunveruleikinn sem ég
bý við í starfi mínu með börn-
um í Hjallastefnuskóla, sú jafn-
réttiskennsla sem ég hef orðið
vitni að og skilar áþreifanleg-
um árangri í þankagangi barna.
Það er nefnilega þannig að við
getum haft mikil áhrif á jafn-
réttismál með því að fylgja
jafnréttiskennslu eftir í leik-
og grunnskólum. Meðvitaðir
kennarar um stöðu jafnrétt-
ismála, kennarar sem láta sig
málið varða og láta verkin tala.
Þar sem unnið er með viðhorf
sem móta börn og ungmenni,
vinna sem leiðir af sér ný við-
horf, nýja sýn sem gefur okkur
ástæðu til þess að trúa því að
það sé von.
Tæki til jafnréttiskennslu
Að starfa með börnum frá
10-12 ára sem hafa flest gengið
í Hjallastefnuskóla frá því þau
hófu skólagöngu sína í leikskóla
og sjá og heyra hvernig viðhorf
þeirra mótast og taka breyting-
um frá ári til árs er undursam-
legt. Leið Hjallastefnunnar til
jafnréttiskennslu er aðeins ein
af mörgum og alls ekki sú eina
rétta en hún virkar hins vegar
og það er dásamlegur veruleiki
sem við búum við.
Það að vinna með leið sem
skilar árangri gefur okkur til-
efni til þess að fyllast jákvæðni
og trú á að það sé virkilega
von. Kynjaskipt skólastarf með
markvissri uppbótavinnu fyrir
bæði kyn er gríðarlega öflug
leið en ég er hins vegar algjör-
lega sannfærð um að það eigi
það sama við um fleiri leið-
ir. Aðalatriðið er eftirfylgni,
Jafnrétti – er von?
markmið og skýr sýn á leiðir
að árangrinum – í jafnréttis-
kennslu líkt og í allri annarri
kennslu.
Ný aðalnámskrá– jafnrétti
Í nýrri aðalnámskrá fyrir
grunnskóla er sérstaklega
fjallað um jafnrétti sem grunn-
þátt í öllu námi barna og því ber
öllum skólum að fræða og búa
börnum tækifæri innan skóla-
kerfisins til frekari þroska,
aukna jafnréttisvitund sem
leiðir af sér breytt viðhorf fyrir
komandi kynslóðir.
Það er hægt að koma mikil-
vægi jafnréttisviðhorfa til
skila til barna og hafa jákvæð
áhrif á viðhorf þeirra til jafn-
réttismála með því að standa
með jafnréttiskennslu strax í
leikskóla og áfram menntaveg-
inn. Það hefur sýnt sig svo um
munar hjá 12 ára hjallastefnu-
börnum. Þar verðum við áþreif-
anlega vör við að slík vinna beri
raunverulegan ávinning þar
sem stúlkur standa með sjálfum
sér og drengir tala fyrir mikil-
vægi jafnrétti stúlkna jafnt sem
drengja af hjartans einlægni.
Ég nefni sérstaklega 12 ára
börn vegna þess að viðhorfa-
kennsla tekur tíma. Það þarf
virkilega að standa með slíkri
kennslu eins og við kjósum að
kalla það hjá Hjallastefnunni.
Galdurinn er nefnilega m.a. sá
að standa með ákvörðunum og
fylgja verkefnum eftir af trú-
mennsku. Þá á einhverjum tíma-
punkti springur afraksturinn út
eins og blóm í haga.
Ef skólasamfélagið virkilega
beitir sér þá er von!
Save the Children á Íslandi
MENNTUN
Sara Dögg
Svanhildardóttir
skólastýra Vífi ls-
skóla miðstigsskóla
- Lifi› heil
www.lyfja.is
Litlu jólin
í Lyfju
Smáralind
Full búð af flottum jólagjöfum
fyrir alla í fjölskyldunni.
Flottar kynningar í göngugötunni.
Opið til kl. 22:00 í kvöld.
ÍS
LE
N
ÍS
LE
N
SK
A
SK
A
/S
IA
.
/S
IA
.IS
/L
Y
IS
/L
YF
7
16
F
71
65
4
11
54
1
1/
14/1
4
AAAA
Lyfja Smáralind
25% afsláttur af
öllum snyrtivörum,
gjafavörum og sokkabuxum.