Fréttablaðið - 20.11.2014, Síða 56
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 44TÍMAMÓT
Ástkær eiginkona mín,
LÚLLEY ESTHER LÚTHERSDÓTTIR
lést á dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn
10. nóvember. Útför hennar fer fram
frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
25. nóvember kl. 10.30. Jarðsett verður að
Hálsi í Fnjóskadal. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á að láta Hlíð njóta þess.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hallur Jónasson
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRDÍSAR RÖGNVALDSDÓTTUR
frá Þverá í Skíðadal,
til heimilis að Dalbæ, Dalvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dalbæjar
fyrir góða umönnun.
Ingvi Eiríksson Sigrún Þorsteinsdóttir
Vignir Sveinsson Valdís Gunnlaugsdóttir
Soffía Sveinsdóttir Stefán Jakobsson
Ragna Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginkona mín,
móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
EDDA LÖVDAL
er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Konráð Guðmundsson
Þór, Bryndís, Konráð og fjölskyldur
MERKISATBURÐIR
1763 Dómkirkjan að Hólum í Hjaltadal, sú sem enn stendur, er
vígð.
1945 Réttarhöldin yfir 24 háttsettum nasistaforingjum hefjast
í Nürnberg.
1947 Elísabet krónprinsessa giftist Philip Mountbatten í West-
minster Abbey.
1959 Viðreisnarstjórnin, samsteypustjórn Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks undir forsæti Ólafs Thors, tekur við völdum.
1975 Spænski einræðisherrann Francisco Franco hershöfðingi
andast 82 ára að aldri.
1992 Eldur kviknar í Windsor-kastala á Englandi.
Málstofa um mótun kínverskrar norðurslóðastefnu verður
haldin í Gimli í Háskóla Íslands í dag.
Þrátt fyrir suðlæga staðsetningu verður Kína fyrir mikl-
um áhrifum af þeim breytingum sem eiga sér stað á norð-
urslóðum, ekki síst loftslagsbreytingum og félags- og efna-
hagslegri þróun. Þessar breytingar hafa orðið til þess að
Kína telur sig eiga mikilla hagsmuna að gæta á svæðinu.
Ríkið hefur skuldbundið sig til þátttöku í vísindastarfi
og samstarfi við norðurslóðaríki og aðra hagsmunahópa
sem þar er að finna. Á málstofunni mun Deng Beixi, rann-
sóknarmaður hjá Norðurslóðarannsóknastofnun Kína og
gestafræðimaður við Rannsóknasetur um norðurslóðir við
Háskóla Íslands, fjalla um mótun kínverskrar norðurslóða-
stefnu, almenn viðmið og samstarf stofnana við framkvæmd
hennar.
Málstofan fer fram í stofu 301 á milli 11 og 12 og fara
umræðurnar fram á ensku.
Kína og norðrið
Málþing um mótun kínverskrar norður-
slóðastefnu verður í Háskóla Íslands í dag.
Á NORÐURSLÓÐUM Málstofa um mótun kínverskrar norður slóða-
stefnu verður haldin í dag. NORDICPHOTOS/GETTY
Á þessum degi árið 1995 viðurkenndi
Díana prinsessa af Wales í sjónvarpsvið-
tali að hafa haldið framhjá Karli krón-
prins. Þetta var í fyrsta sinn sem Díana
tjáði sig opinberlega um skilnað sinn við
prinsinn.
Sjónvarpsmaðurinn Martin Bashir hafði
tekið klukkutímalangt viðtal við prinsess-
una fyrir þáttinn Panorama á BBC. Í
samtali þeirra kom meðal annars fram að
Díana hafði átt í ástarsambandi við reið-
kennarann James Hewitt. Hún lýsti einnig
sárum tilfinningum sínum vegna langrar
vináttu Karls við Camillu Parker-Bowles.
Þá ræddi hún einnig á opinskáan hátt
um þunglyndi og átröskun sem hún hafði
lengi átt við að stríða.
Mánuði eftir viðtalið sendi Elísabet
drottning bréf til bæði Karls og Díönu
þar sem hún bað þau að fá lögskilnað.
Hjónabandinu lauk því formlega þann 28.
ágúst 1996.
Díana lést á sviplegan hátt í bílslysi
31. ágúst 1997 í París. Karl prins
kvæntist Camillu Parker-Bowles í apríl
árið 2005.
ÞETTA GERÐIST: 20. NÓVEMBER 1995
Prinsessa viðurkennir ástarsamband
Hljómsveitin Mannakorn hefur sent frá
sér sína tíundu hljóðversplötu með nýju
efni. Hún nefnist Í núinu og inniheldur
níu ný lög úr laga- og textasmiðju Magn-
úsar Eiríkssonar.
„Textarnir eru svolítið um núið, það
sem er akkúrat í gangi í dag. Það er
engin sérstök fortíðarhyggja í gangi í
textagerðinni,“ segir Magnús aðspurð-
ur.
Fjörutíu ár eru liðin síðan Þeir Pálmi
Gunnarsson og Magnús hófu samstarf
undir vinnuheitinu Hljómsveit Pálma
Gunnarssonar. Fyrsta plata þeirra kom
út árið 1975 og bar heitið Mannakorn,
sem þróaðist svo út í verða nafn hljóm-
sveitarinnar.
„Við vorum í hljómsveit á þessum
tíma sem hét Lísa og í henni voru ég,
Björn Björnsson trommari og Bald-
ur Már Arngrímsson, gítarleikari og
söngvari. Við vorum að svipast um eftir
bassaleikara. Við vorum með æfinga-
aðstöðu í skúr vestur í bæ, þar sem
Ísbúð vesturbæjar er núna og eitthvað
fleira,“ segir Magnús. „Einhvern tím-
ann voru þeir að vinna saman, Baldur
og Pálmi, í söngleiknum Jesus Christ
Superstar, og þannig kynntust þeir.
Baldur tók Pálma með á æfingu út í
skúr og einhvern veginn small þetta allt
saman,“ segir hann og bætir við: „Pálmi
var frægastur út af Júdasar-hlutverkinu
og um tíma hétum við Hljómsveit Pálma
Gunnarssonar, því það seldist betur en
eitthvað annað. Fljótlega gerðum við
plötu saman og hún hét Mannakorn. Við
tókum hana upp ´74 og ætluðum að gefa
út fyrir jól en það hafðist ekki.“
Pálmi og Magnús hafa alla tíð mynd-
að kjarna Mannakorna en allt frá árinu
1979, á plötunni Brottför kl. 8, hefur
Ellen Kristjánsdóttir einnig verið órjúf-
anlegur hluti af hljómsveitinni og hún
kemur að sjálfsögðu við sögu á nýju
plötunni. Einnig spila á plötunni synir
Magnúsar, Stefán Már og Magnús, auk
þess sem dætur Pálma, Ninna Rúna
og Ragnheiður Helga, syngja. Af þeim
hefur aðeins Magnús yngri spilað áður
inn á plötu með Mannakornum. „Það er
gaman að spila með strákunum, rosa-
legt stuð,“ segir Magnús eldri, spurð-
ur út í samstarfið með sonunum. „Ég á
þrjá stráka, sem spila allir á hljóðfæri.
Ég var nýlega að gera mér grein fyrir
því að við gætum verið með hljómsveit,“
segir hann en þriðji sonurinn er bassa-
leikarinn Andri sem starfar sem raf-
magnstæknifræðingur.
freyr@frettabladid.is
Small allt saman 1974
Fjörutíu ár eru liðin síðan Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson hófu samstarf. Þá
hétu þeir Hljómsveit Pálma Gunnarssonar en breyttu nafninu svo í Mannakorn. Tíunda
hljóðversplatan með nýju efni er komin út þar sem börn þeirra beggja koma við sögu.
PÁLMI OG MAGNÚS Pálmi Gunnarsson og Magnús Kjartansson hafa starfað saman í fjörutíu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Rafrænn aðgangur að Seltirningabók
Heimis Þorleifssonar verður opnaður
formlega í Bókasafni Seltjarnarness
kl. 17 í dag. Bókin, sem hefur verið
ófáanleg um langt skeið, verður öllum
aðgengileg án kostnaðar.
Við sama tækifæri verður opnuð
sýningin Frónari í Eiðisskeri þar sem
Sigursveinn H. Jóhannesson leiktjalda-
málari sýnir m.a. verk frá Seltjarnar-
nesi.
Boðið verður upp á veitingar og eru
allir velkomnir.
Í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli
Seltjarnarness á þessu ári samþykkti
bæjarstjórn að ráðast í gerð rafrænn-
ar útgáfu á Seltirningabók eftir Heimi
Þorleifsson. Dagurinn í dag tengist rit-
höfundinum og Seltirningnum Heimi,
sem hefði orðið 77 ára 22. nóvember, en
hann lést um mitt síðasta ár.
Í bókinni, sem er skipt í sex hluta,
er að finna mikinn fróðleik um þróun
mannlífs og sveitarstjórnar í ört vax-
andi byggð. Sá fyrsti fjallar einkum um
landamerki og sveitarstjórn, annar um
landsvæði núverandi kaupstaðar, þriðji
um útgerð, fjórði um skólahald, fimmti
um félagsstarfsemi á Nesinu og sjötti
um kirkjuhald. Í bókarlok eru ítarlegar
heimilda-, mynda- og nafnaskrár.
Það var Guðmundur Einarsson sem
bjó bókina í rafrænt form en fyrirtækið
Snara ehf. hýsir bókina.
Ný rafræn Seltirningabók opnuð
Rafrænn aðgangur að bók Heimis Þorleifssonar verður opnaður formlega í dag.
FRÓNARI Í EIÐISSKERI Sýningin Frónari í
Eiðisskeri eftir Sigursvein H. Jóhannesson
verður opnuð í dag.
➜ Mannakorn hélt vel heppn-
aða fjörutíu ára afmælistónleika
í Háskólabíói og Hofi á Akureyri
fyrr á árinu.