Fréttablaðið - 20.11.2014, Blaðsíða 60
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48
Um helgina býður Borgarleikhúsið upp á sýn-
ingu á leikverkinu Hamlet litla fyrir heyrn-
arlausa og blinda. Hamlet litli var frumsýnd-
ur í fyrra, sló í gegn og er því kominn aftur á
fjalirnar. Í fyrra var boðið upp á táknmáls-
túlkaða og sjónlýsta sýningu á Hamlet
litla og vakti það mikla lukku. Vegna
fjölda fyrirspurna var því ákveðið að
bjóða upp á slíkt aftur núna. Tálkn-
málstúlkaða og sjónlýsta sýningin á
Hamlet litla verður sunnudaginn
23. nóvember klukkan 17.
Hið íslenska glæpafélag boðar til
síns árlega Glæpakvölds í kvöld.
Á glæpakvöldinu, sem markar í
raun byrjun alþjóðlegu glæpahá-
tíðarinnar Iceland Noir, verður
lesið upp úr nýjum, íslenskum
glæpasögum og leikinn glæp-
samlegur djass auk þess sem
þrír erlendir höfundar, gestir á
Iceland Noir-hátíðinni, munu lesa
úr sínum verkum. Þessi myrkra-
verk fara fram á efri hæðinni á
Sólon, Bankastræti 7. Húsið verð-
ur opnað klukkan 20, upplestrar
hefjast um 20.30.
„Glæpafélagið hefur hald-
ið svona kvöld árlega síðan um
aldamótin,“ segir Ævar Örn Jós-
epsson, glæpasagnahöfundur og
talsmaður Hins íslenska glæpa-
félags. „Eins og í fyrra er þetta
nokkurs konar upptaktur að
glæpasagnahátíðinni Iceland
Noir sem hefst á föstudagsmorg-
un í Norræna húsinu.“
Glæpakvöldið nýtur góðs af
gestum Iceland Noir því ekki
ómerkari menn en Norðmaður-
inn Vidar Sundstöl og Finninn
Antti Tuom ainen, sem Íslending-
ar þekkja í þýðingum, eru meðal
þeirra sem lesa upp í kvöld. Einn-
ig les bandaríski höfundurinn
David Swatling, en hann tekur
þátt í pallborðsumræðum á hátíð-
inni í flokknum New Blood, eða
nýtt blóð.
Meðal íslensku höfundanna
eru þau Finnbogi Hermannsson
og Guðrún Guðlaugsdóttir, sem
bæði eru nýliðar í glæpasagna-
ritun, þótt þau hafi skrifað fjöl-
margar bækur. Aðrir höfund-
ar sem lesa upp eru þau Steinar
Bragi, Jón Óttar Ólafsson, Yrsa
Sigurðardóttir og Ragnar Jón-
asson, sem öll lesa auðvitað úr
nýútkomnum bókum sínum.
Það vekur athygli að sjá þá
Finnboga og Steinar þarna meðal
glæpasagnahöfundanna, bók
Finnboga er sagnfræðileg skáld-
saga um glæp og bók Steinars
snýst meira um hefnd en glæp-
inn sjálfan. Það liggur því beint
við að spyrja Ævar Örn hver sé
eiginlega skilgreiningin á glæpa-
sögu. „Það er næstum því eins
loðið og teygjanlegt hugtak og
klám,“ segir hann og dæsir. „Og
menn hafa rifist um þessa skil-
greiningu lengi. Sumir vilja setja
alla krimma undir einn hatt og
kalla afþreyingu. Að efnið sé
alltaf glæpur og síðan leitin að
glæpamanninum og/eða að kitla
spennutaugar fólks, en það er
auðvitað til fjöldinn allur af
góðum krimmum sem eru afskap-
lega hægir og rólegir og ganga
aðallega út á að skoða manns-
sálina, glæpirnir eru meira bara
krydd í frásögnina. Hin klass-
íska glæpasaga snýst hins vegar
vissulega um það að það er fram-
inn glæpur og upphefst leit að
þeim sem framdi hann. Oftast
endar svo sagan á að viðkomandi
finnst en það hefur þó dálítið
verið vikið frá þeirri reglu und-
anfarin ár, menn eru orðnir raun-
særri.“
Á milli upplestra verður leik-
inn „glæpsamlegur“ djass undir
forystu Eðvarðs Lárussonar og
Ævar segir stemninguna verða í
anda búlla sem fólk kannist við
úr amerískum glæpamyndum,
sem sé glæpsamlega góð. Hann
ítrekar að frítt sé inn og allir
hjartanlega velkomnir og bendir
í lokin glæpaþyrstum á að kynna
sér dagskrá Iceland Noir á slóð-
inni icelandnoir.com.
fridrikab@frettabladid.is
Glæpsamlegur lestur
með djassstemningu
Glæpakvöld Hins íslenska glæpafélags verður haldið á Sólon í kvöld. Þar les
fj öldi erlendra og innlendra höfunda úr verkum sínum og stemningin verður
glæpsamlega góð að sögn Ævars Arnar Jósepssonar, talsmanns félagsins.
Berglind María Tómasdóttir flautu-
leikari heldur tónleika í Mengi í kvöld
klukkan 21. Tónverkið sem flutt verð-
ur heitir Darmstadt-verkið en áður
en flutningur hefst mun hún kynna
verkið og hugmyndirnar að baki því.
Um gagnvirka tónleika er að ræða
þar sem áheyrendur eru beðnir um
að mæta með hljóðfæri og taka þátt
í flutningi verksins með Berglindi.
The Darmstadt Piece varð til
meðan á dvöl Berglindar á Alþjóð-
legu sumarnámskeiðunum í Darm-
stadt stóð síðastliðið sumar. Verk-
ið er sett saman úr tugum örverka
rituðum með blýanti á nótnablað af
þátttakendum í Darmstadt-námskeið-
unum.
Tónleikarnir eru jafnframt útgáfu-
fögnuður því í dag kemur verk Berg-
lindar Maríu, Practicing Ferneyho-
ugh in Harpa, út á hljómdiski sem
inniheldur upptökur frá æfingum
hennar í Hörpu fyrr í haust.
Berglind María Tómasdóttir
heldur útgáfutónleika í Mengi
BERGLIND MARÍA Gagnvirkir tónleikar
og útgáfufagnaður í Mengi í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hamlet litli sýndur með
táknmálstúlkun og sjónlýsingu
SÖNGKONAN
Kristjana
Stefánsdóttir
í Hamlet litla.
Lesið verður upp úr nýjum, ís-
lenskum glæpasögum og leikinn
glæpsamlegur djass auk þess
sem þrír erlendir höfundar lesa
úr sínum verkum.
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
H Ú S A S M I Ð J U N N I S K Ú T U V O G I
HLUSTAÐU!
Þráðlaus bluetooth hátalari
Vildarverð:
7.999.-
Fullt verð:
9.999.-
Sumir vilja setja alla krimma undir
einn hatt og kalla afþreyingu. Að efnið
sé alltaf glæpur og síðan leitin að
glæpamanninum og/eða að kitla
spennutaugar fólks, en það er auð-
vitað til fjöldinn allur af góðum krimm-
um sem eru afskaplega hægir og rólegir
og ganga aðallega út á að skoða manns-
sálina, glæpirnir eru meira bara
krydd í frásögnina.
Ævar Örn Jósepsson, glæpasagnahöfundur
og talsmaður Hins íslenska glæpafélags
MENNING