Fréttablaðið - 20.11.2014, Qupperneq 74
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 62
„Það er verið að fjalla meira um sögurnar á bak
við þessar hljómsveitir, ef til vill aðeins minni
nördismi í gangi þótt það verði náttúrulega
fjallað um einhverjar græjur,“ segir raftónlistar-
maðurinn Guðni „Impulze“ Einarsson, sem stýr-
ir hinum vikulega tónlistarþætti Hljóðheimum,
sem hefur göngu sína á Vísi næsta miðvikudag.
Guðni framleiðir þáttinn með myndatöku-
manninum Sindra Grétarssyni. „Þetta er samt
sem áður beint framhald af síðustu seríum,“
segir Guðni. Síðast stýrði hann þættinum Á
bak við borðin ásamt plötusnúðnum Adda Intro-
beats þar sem þeir heimsóttu stúdíó og grennsl-
uðust fyrir um vinnuferli mismunandi tónlistar-
manna.
„Þetta er svolítið frábrugðið hinni seríunni þar
sem var bara verið að fjalla um raftónlistina en
þetta er meira blanda. Við erum með popp, rokk,
raftónlist og svo heimsækjum við líka hljóðver
og fleira,“ segir Guðni. „Það má segja að þessir
þættir séu gerðir fyrir breiðari hóp heldur en
fyrri serían.“ - þij
Skyggnast inn í vinnuferli
tónlistarmanna í nýjum þætti
Guðni „Impulze“ stýrir Hljóðheimum, nýjum tónlistarþætti sem hefur brátt göngu sína á Vísi.
MINNI NÖRDISMI Þættirnir eru fyrir breiðari hóp heldur en fyrri
þáttaröðin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Við erum
með popp,
rokk, raftónlist
og svo heim-
sækjum við líka
hljóðver og
fleira.
Sögusagnir um að Zayn Malik,
einn meðlima One Direction, ætti
við fíkniefnavanda að stríða fóru
um eins og eldur í sinu um Twitter
á mánudag, þegar félagar hans í
hljómsveitinni héldu til Orlando á
sunnudagskvöld til að kynna nýj-
ustu plötu þeirra, Four, án hans.
Í þætti Today Show á mánu-
dagsmorgun voru þeir spurðir
út í fjarveru félaga síns og hvort
ástæðan væri fíkniefnavandi.
Þvertóku strákarnir fyrir það
og sögðu Malik vera heima með
slæma magakveisu. Síðar um dag-
inn svaraði Malik fyrir sig á Twit-
ter og tísti meðal annars: „Ég er
mjög sár og reiður. Ég var mjög
veikur og þess vegna gat ég ekki
flogið til Orlando.“ - asi
Neitar sögum
um fíkniefni
EKKI Í RUGLI Zayn Malik var ósáttur
við sögurnar sem gengu um hann.
Raunveruleikaþáttastjarnan Kim
Kardashian West fór og heimsótti
munaðarleysingjahæli í Taílandi
í apríl. Munaðarleysingjahælið er
í Phang Nga-héraðinu, en mikill
mannskaði varð þar í flóðbylgj-
unni á annan í jólum 2004.
Þar heillaðist hún af þrettán
ára stúlku, Pink, og vildi ólm fá
að ættleiða hana. Unga stúlk-
an var hins vegar ekki á sama
máli og afþakkaði ættleiðinguna
og sagði að Taíland þarfnaðist
hennar. „Ég veit að það þrá allir
betra líf, en ég get ekki farið frá
öllu hér, ég er ekki tilbúin,“ sagði
Pink.
Kim mátti ekki
ættleiða hana
FÉKK NEITUN Stúlkan neitaði Kim um
ættleiðingu.