Fréttablaðið - 20.11.2014, Síða 86

Fréttablaðið - 20.11.2014, Síða 86
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 74 Ég fór bara að hafa mjög mikinn áhuga á þessum húmorpælingum. „Ég skynja miklu meiri áhuga á djassi hjá ungu fólki heldur en ég hélt,“ segir Baldvin Snær Hlyns- son, sextán ára nemandi í MH og FÍH, sem á dögunum gaf út djass- plötu. Tónlistina samdi Baldvin alla sjálfur og tók upp sjálfur. „Pabbi er að vinna hjá Axis húsgögnum svo ég fékk hljóðein- angrandi efni hjá honum og setti upp í herberginu mínu og tók upp plötuna þar,“ segir Baldvin. Með honum á plötunni spilar saxófón- leikarinn Sölvi Kolbeinsson og klarínettleikarinn Símon Karl Melsteð. „Vinur pabba, Ágúst Sveins- son trommari, býr í London og hann tók upp allar trommur úti og sendi mér bara,“ segir Baldvin, sem sjálfur spilaði á píanó, bassa og sá um allar upptökur og hljóð- blöndun. „Félagi minn ætlaði að mast- era plötuna en svo ákvað ég bara að gera það sjálfur. Ég fór bara á YouTube og lærði það,“ segir hann. Aðspurður hvort jafnaldrar hans séu að fíla djassinn segir hann svo vera. „Ég er sjálfur að stússast í elektróník og fönki ásamt því að vera í djassinum. Ætli við unga fólkið séum ekki bara opnara fyrir alls konar tónlist en var,“ segir hann. - asi Tók upp djassplötu í herberginu Baldvin Snær Hlynsson gefur út sína fyrstu djassplötu aðeins sextán ára. MASTERAÐI PLÖTUNA SJÁLFUR Baldvin fór á YouTube og lærði þar að mastera plötuna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Ég hef haft áhuga á þessum fræð- um lengi, þar sem móðir og barn eru í forgangi í fæðingunni,“ segir Kristín Maríella Friðjónsdóttir, hönnuður og eigandi skartgripa- merkisins Twin Within – Creat- ive Jewelry og doula. Hún lét drauminn rætast og fór á DONA International doulu-námskeið í Singapúr, þar sem hún býr ásamt manninum sínum og ellefu mán- aða dóttur. „Eftir fæðingu dóttur minnar var ég svo hugfangin, ég átti yndis- lega náttúrulega fæðingu í vatni og fékk löngun til þess að fræða og leggja mitt af mörkum svo að konur fái sem mest út úr fæðing- unni sinni og upplifi á eins góðan hátt og mögulegt er,“ segir Krist- ín. Á öðrum degi fengu þær sem sóttu námskeiðið að vera viðstadd- ar heimafæðingu í gegnum kennar- ann þeirra, en viðskiptavinur henn- ar fór af stað í fæðingu. „Þetta var alveg magnað. Hún var búin að segja okkur að það væri næstum útilokað, þar sem heima- fæðingar eru sjaldgæfar í Singa- púr,“ segir Kristín. Hún segir upp- lifunina hafa verið ómetanlega og að fæðingin hafi gengið eins og í sögu. „Ofan á allt þá fæddist barnið í belgnum, sem er enn sjaldgæfara. Þetta var bara dásamlegt. Við stóð- um þarna fjórar úti í horni, fylgd- umst með og grétum.“ Kristín segir að rannsóknir hafi sýnt fram á að þeim konum, sem hafa stuðning annarra kvenna í fæðingu, líði betur og fæðingar- upplifunin sé betri. „Þessar steríó- týpísku hugmyndir um að fæðing- ar séu hrikalega sársaukafullar og hræðilegar eru skilaboð sem maður fær ómeðvitað úr samfélaginu. Mér finnst sorglegt ef konur sem kvíða fæðingunni gefa sér ekki tíma til að undirbúa sig eða átta sig ekki á hvaða aðstoð þær geta fengið. Fyrir mér þarf að eyða þeim hugsunar- hætti að það þurfi að bjarga börn- um úr líkama móðurinnar sem Vill aðstoða konur að upplifa góða fæðingu Kristín Maríella Friðjónsdóttir hjá Twin Within lét drauminn rætast og fór í doulu-nám. Eigin fæðingarupplifun veitti henni innblástur til að fara í námið. ÓTRÚLEG UPPLIFUN Kristín segir upplifunina af að vera viðstödd fæðingu magnaða og eitt af því stórkostlegasta sem hún hafi séð. „Ég er að lesa Me Talk Pretty One Day eftir David Sedaris, sem er mjög skemmtileg. Svo er ég að lesa A Bigger Message: Conversations with David Hockney.“ Snorri Ásmundsson, myndlistarmaður FIMMTUDAGSBÓKIN Doulur veita foreldrum andlegan stuðning í fæðingunni, hvort sem um keisara eða náttúrulega fæðingu er að ræða, og sjá um samskipti milli ljós- mæðra, lækna og foreldra. Þær mega ekki aðhafast neitt læknisfræðilegt og veita einungis andlegan stuðning. ➜ Hvað gerir doula? Hnotu- brjóturinn St. Petersburg Festival Ballet ásamt Sinfóníu- hljómsveit Íslands Hrífandi jólaævintýri við tónlist eftir Tchaikovsky Heillandi sýning fyrir alla fjölskylduna Sýnt í Eldborg www.harpa.is/hbr Nánari upplýsingar í s: 528 5050, á midi.is og harpa.is Helmingsafsláttur fyrir 12 ára og yngri 21. nóvember kl. 19:30 Frumsýning 22. nóvember kl. 13:00 2. sýning kl. 17:00 3. sýning 23. nóvember kl. 13:00 4. sýning kl. 17:00 5. sýning virðist því miður enn vera algengt viðhorf á sjúkrahúsum,“ segir hún. Fyrir henni er þetta femínískt viðhorf líka. Þegar fæðingin var flutt inn á spítala í byrjun 20. ald- arinnar hafi konur orðið að við- fangsefni og ekki með mikla rödd í fæðingarferlinu. „Mig langar að vera partur af þessari hreyfingu þar sem konur ganga fyrir í þessu náttúrulega ferli og fyrir mig sem femínista þá snertir þessi boðskap- ur mig djúpt,“ segir hún. adda@frettabladid.is Kristín Einarsdóttir þjóðfræðing- ur segir húmor eitt aðaláhugamál sitt. Í dag flytur hún erindið Hvað á að gera við afa? en nafnið er vísun í uppáhaldsatriði hennar úr sjónvarpsþáttunum Fóstbræðrum. „Ég man ekki hvar þetta byrj- aði, ég fór bara að hafa mjög mik- inn áhuga á þessum húmorpæling- um,“ segir Kristín. Í erindinu mun Kristín fjalla um húmor, tengsl hans við sam- félagið og fræg hlátursköst og mun sýna myndbönd af vel þekkt- um hlátursköstum. Myndbönd af ofsafengnum hlátursköstum hafa oft vakið mikla lukku á internet- inu. „Hláturinn smitar og veld- ur einhvers konar slökun. Hann reynir á vöðva sem við reynum aldrei á annars og það er hluti af því af hverju okkur finnst svona ofboðslega gott að hlæja.“ En Kristín mun meðal annars sýna frægt hláturskast Péturs Blöndal í pontu. Kristín segir húmorinn stóran hluta af menningu okkar og fólk jafnvel sækja í húmor og hlátur þegar því líður illa. „Við hlæj- um oft að því sem veldur okkur áhyggjum. Reynum að ná tökum á erfiðum aðstæðum með hlátri og húmor. Það eru ótal dæmi um það.“ Kristín flytur erindið í Gerðu- bergi klukkan fimm. - gló Sýnir myndbönd með þekktum hlátursköstum Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur er áhugakona um húmor og fl ytur erindi um fyrirbærið í Gerðubergi. HÚMORISTI Kristín segir fólk oft leita í húmorinn þegar því líði illa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.