Fréttablaðið - 09.12.2014, Side 4
9. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
EFNAHAGSMÁL Hagvöxtur er
umtalsvert minni í ár en búist
hafði verið við. Skýringarnar eru
fyrst og fremst raktar til minni
einkaneyslu. Frosti Sigurjónsson,
formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis, segir hugsanlegt
að fólk sé að leggja meiri áherslu á
að greiða upp skuldir en búist var
við. Sumir séu hreinlega í þeirri
stöðu að þeir geti bara alls ekki
aukið einkaneyslu sína.
Landsframleiðslan á fyrstu níu
mánuðum ársins 2014 jókst um
0,5% að raungildi borið saman við
fyrstu níu mánuði ársins 2013. Á
sama tíma jukust þjóðarútgjöld,
sem eru samtala neyslu og fjár-
festingar, um 3%. Einkaneysla
jókst um 2,8%, samneysla um
1,1% og fjárfesting um 12%. Í
Peningamálum Seðlabankans frá
5. nóvember sagði að talið væri að
hagvöxtur yrði 2,9 prósent á árinu
í heild.
Frosti Sigurjónsson segir hugs-
anlegt að vextir séu of háir, vaxta-
byrðin of þung og það orsaki
litla neyslu. „Það er alveg ljóst
að einkaneysla á Íslandi er lítil
miðað við það sem hún hefur oft
verið áður og í samanburði við
nágrannalönd,“ segir Frosti. Hann
bætir því við að hann hafi ekki séð
skýringar um þetta frá sérfróðum
aðilum. „Þetta eru bara svona hug-
leiðingar mínar.“
Aðspurður segir hann að Seðla-
bankinn hljóti að taka tillit til
þessara talna við stýrivaxta-
ákvörðun á morgun. Hann vilji
þó alls ekki setja peningastefnu-
nefndinni neitt fyrir í því. „Seðla-
bankinn þarf að hafa sjálfstæði
í þeim efnum. En þeir hljóta að
taka allt til greina. Þetta og fleira
og þeir hljóta að horfa áfram,
fram á veginn,“ segir hann.
Frosti segir að þessar nýju hag-
tölur bendi til þess að skuldaleið-
réttingin geti verið nauðsynleg
sem efnahagsaðgerð. „Þetta sýnir
það að þær raddir sem vöruðu við
skuldaleiðréttingu, að hún myndi
leiða til neysluaukningar, hafa
ekki átt við rök að styðjast.“ Hann
bendir á að Seðlabankinn hafi
óttast svokölluð auðsáhrif. Fólk
myndi auka neyslu, jafnvel þó það
fengi ekki meiri pening upp í hend-
urnar. „En það hefur ekki reynst
vera,“ segir hann.
„Ég hef alltaf haldið því fram að
þetta væri bara nauðsynleg efna-
hagsaðgerð og fólk myndi leggja
áherslu á það að greiða upp skuld-
ir sínar,“ segir Frosti og bætir því
við að hann telji að fólk hugsi öðru
vísi núna en fyrir hrun. Menn sýni
meiri ráðdeild og skynsemi nú en
áður. „En það getur gleymst aftur
þegar menn eru búnir að gleyma
hruninu,“ segir hann.
jonhakon@frettabladid.is
Telur fólk hugsa af meiri
skynsemi eftir bankahrun
Hagvöxtur er minni á fyrstu níu mánuðum ársins en búist var við. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis segir mögulegt að fólk leggi meiri áherslu á að greiða upp skuldir sínar nú en áður. Hugsunarháttur
fólks hafi breyst eftir hrun. Hagvaxtartölur gætu haft áhrif á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans á morgun.
„Salan hefur bara verið í samræmi við áætlanir, ennþá,“ segir Borgar
Jónsteinsson, sölustjóri verslana hjá Pennanum um verslunina nú í haust.
Salan sé fín miðað við fyrra ár. „Þetta er nú alltaf svolítið upp og niður á
eftir veðrinu,“ bætir hann við. Hann segir að haustið hafi líka gengið vel.
Októbermánuður hafi verið undir væntingum en annars hafi salan verið
góð. Hann býst við því að Arnaldur Indriðason og Yrsa Sigurðardóttir verði
á meðal söluhæstu höfunda þegar jólin ganga í garð.
Veðrið hefur áhrif á sölu
Þrátt fyrir tölur um litla einkaneyslu segir Ágúst Guðbjarts-
son, rekstrarstjóri Skífunnar og Gamestöðvarinnar, að haust-
verslunin hafi verið ágæt. Hann segist þokkalega bjartsýnn
á jólaverslunina. „Helgin var mjög góð,“ segir Ágúst en býst
þó við því að mesta verslunin verði helgina fyrir jól. Ágúst
segir að besta salan sé í tölvuleikjum og leikjavélum. Það
gangi ekki eins vel að selja tónlist, enda hafi tónveitur á
borð við Spotify gerbreytt neyslumynstri fólks.
Spotify breytir verslun hjá Skífunni
JÓLAINNKAUP Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis telur hugsanlegt
að fólk leggi meiri áherslu á að greiða niður skuldir en aukna neyslu núna en áður.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Það er
alveg ljóst að
einkaneysla á
Íslandi er lítil
miðað við það
sem hún hefur
oft verið áður
og í samanburði við
nágrannalönd.
Frosti Sigurjónsson,
formaður efnahags- og
viðskiptanefndar Alþingis
SAMKEPPNISMÁL Þ orstei nn
Sæmundsson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, segir að enn sé
ekki ljóst hvers vegna eignarhlut-
ur Landsbankans í Borgun var ekki
settur í opið söluferli.
Efnahags- og viðskiptanefnd átti í
gær fund með forstjóra Samkeppn-
iseftirlitsins, bankastjóra Lands-
bankans og forstjóra Bankasýslu
ríkisins þar sem áðurnefnd sala á
31,2 prósenta hlut Landsbankans í
Borgun var til umræðu.
„Fyrir mig persónulega þá voru
svör þessara manna ekki fullnægj-
andi,“ segir Þorsteinn Sæmundsson.
Hann bendir á að Landsbankinn sé
hlutafélag og 98% séu í eigu ríkisins.
Það verði forvitnilegt að sjá hvað
kemur á daginn á næsta hluthafa-
fundi komi í ljós að hægt hefði verið
að fá hærra verð fyrir hlut bankans.
„Reynslan sýnir að það er óheppi-
legt að viðskiptabankar, sem eru
keppinautar, fari saman með eign-
arhlut í kreditkortafyrirtækjum,“
segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins.
„Undanfarið hefur verið lögð
áhersla á að lengra verði gengið í
þessum efnum og að viðskiptabank-
arnir komi ekki saman að eignar-
haldi fyrirtækjanna,“ heldur Páll
áfram. Hann bætir við að Sam-
keppniseftirlitið muni hvorki taka
afstöðu til þess hvaða bankar eigi
greiðslukortafyrirtækin né hvort
Landsbankanum hafi borið að setja
hlutinn í opið söluferli.
„Við hvorki föllumst á eða gerum
athugasemd við útfærsluna á söl-
unni,“ segir Páll. - jóe
Samkeppniseftirlitið hefur engar athugasemdir við söluferlið. Þingmaður segir svör munu fást að lokum:
Spurningum um sölu á Borgun enn ósvarað
ÞINGMAÐUR Þorsteinn Sæmundsson
fékk ekki svör á fundinum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMGÖNGUR „Á hverju ári sem
ríkið dregur að láta smíða nýtt
skip brennir ríkið að óþörfu um
130 milljónum vegna þess hve
óhagkvæmur í rekstri Herjólfur
er,“ segir bæjarráð Vestmanna-
eyja og vitnar í samantekt um
nýsmíði Vestmannaeyjaferju. Þar
komi fram að áætlaður árlegur
rekstrarkostnaður nýju ferjunn-
ar sé um 400 milljónum lægri en
á núverandi skipi og að áætlað-
ur lántökukostnaður sé um 270
milljónir verði skipið alfarið fjár-
magnað með lánum. - gar
Segja Herjólf óhagkvæman:
Töf sögð kosta
130 milljónir
HERJÓLFUR Ný Vestmannaeyjaferja er
í farvatninu. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
STJÓRNMÁL Þegar Alþingi kemur
saman eftir jólafrí 20. janúar á
næsta ári fjölgar um einn í þing-
salnum þar sem eftirmaður
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í
embætti innanríkisráðherra, Ólöf
Nordal, átti ekki sæti á þingi.
Ólöf tekur sæti Hönnu Birnu við
hlið Sigurðar Inga Jóhannssonar,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, en Hanna Birna fær autt
sæti í öftustu röð við hlið Hösk-
uldar Þórhallssonar úr Fram-
sóknarflokki. Framan við hana
eiga sæti Ögmundur Jónasson
úr VG, Össur Skarphéðinsson úr
Samfylkingu og þingforsetinn
Einar K. Guðfinnsson úr Sjálf-
stæðisflokki. - gar
Hanna Birna fær sæti:
Aftan við Össur
og Ögmund
39,7 vinnustundir voru unnar að meðaltali í
viku í október 2014.
Þeim hefur fækkað lítillega, voru 42
árið 2007.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
AAAAAAA
RRRRRR
\\\\\\
TB
W
A
W
A
W
A
TB
W
A
TBTB
•
A
A
S
ÍAASÍ
A
••
14
43
3
43
3
Sími: 4115555 og 5303002
Desembertilboð
á vetrarkortum
Fullkomin jólagjöf fyrir fjölskylduna,
vini og vandamenn!
Vetrarkort í Bláfjöll og Skálafell
eru komin í sölu og fást í Hinu húsinu,
Pósthússtræti 3–5 og Mohawks, Kringlunni.
Pantaðu og fáðu sent í síma 5303002
eða á midar@skidasvaedi.is.
Opið alla virka daga kl. 9–13 og 13:30–17.
A
R
W
A
1
4
PI
PAPA
PI
PAIP
APAPPPPPIPPIPPPPIIIPIPIPPPPPPPPPPPPPPP
Vetrarkort í Bláfjöll og Skálafell
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
VERSNAR VESTRA Óveðrið ætti að vera að mestu gengið yfir norðan og austan til
en í dag verður yfirleitt suðvestan strekkingur með éljum sunnan- og vestanlands.
Norðanstormur og ekkert ferðaveður vestan til seint í kvöld og nótt.
-2°
6
m/s
0°
9
m/s
0°
9
m/s
3°
16
m/s
13-20 m/s.
10-18 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
6°
19°
3°
5°
17°
3°
3°
6°
6°
24°
11°
15°
15°
13°
9°
3°
6°
3°
-2°
8
m/s
0°
11
m/s
-2°
8
m/s
-2°
11
m/s
-2°
10
m/s
-2°
9
m/s
-8°
10
m/s
-2°
-4°
-3°
-5°
-2°
-5°
-3°
-3°
-2°
-6°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FIMMTUDAGUR
Á MORGUN