Fréttablaðið - 09.12.2014, Síða 10
9. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
EFNAHAGSMÁL Tvær hugmyndir
um losun fjármagnshafta voru
kynntar fyrir samráðshópi um
afnám haftanna í gær.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins felur önnur hugmyndin
í sér að eigendur aflandskróna
verði hvattir eða jafnvel knúnir
til að skipta eignum sínum yfir í
skuldabréf til 30 ára eða meira.
Hin hugmyndin snýst um að
leggja flatan útgönguskatt á
erlendar sem og innlendar eignir.
Það myndi þýða að ef lífeyrissjóð-
ir vildu flytja fjármagn á milli
landa yrðu þeir að greiða skatta
af þeim fjármagnsflutningum.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru hugmyndirnar ekki
fullmótaðar en staða mála verður
engu að síður kynnt fyrir fulltrú-
um slitabúa bankanna þriggja
á fundi í dag. Á fundinum í gær
var ekki rætt um það hversu hár
útgönguskatturinn gæti orðið ef
hann yrði lagður á.
Það voru þeir Glen Victor Kim,
sérstakur ráðgjafi Bjarna Bene-
diktssonar, fjármála- og efna-
hagsráðherra, og Lee Buchheit,
lögfræðingur og aðalsamninga-
maður Íslands í Icesave-málinu,
sem hittu samráðshóp um afnám
hafta á fundinum í gær. Árni Páll
Árnason, formaður Samfylking-
arinnar, á sæti í samráðshópnum.
Hann sagði í samtali við frétta-
stofu Stöðvar 2 að afnám gjald-
eyrishaftanna yrði ekki sá gróða-
vegur fyrir íslenska ríkið sem
forsætisráðherra boðaði fyrir
síðustu kosningar.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son boðaði fyrir síðustu þingkosn-
ingar að samningar við kröfuhafa
myndu skila um 300 milljörðum í
ríkiskassann enda lægi kröfuhöf-
um á að fara með peningana úr
landi. Árni Páll segir að ljóst sé
eftir fundinn í dag að ekkert slíkt
sé í farvatninu. „Þetta er ekkert
í líkingu við það sem forsætis-
ráðherra hefur margsinnis sagt,
um að það sé rakinn gróðavegur
að afnema höft, og það sé hægt
að búa til peninga með afnámi
hafta,“ sagði Árni Páll. Þvert á
móti væri hægt að ráða það af
kynningu á fundinum að það væri
ekki áætlunin.
Árni Páll sagði að fyrir tveim-
ur árum hefði legið fyrir áætlun
um afnám hafta með samningum
sem hefði átt að skila 300 millj-
örðum í ríkiskassann. Núverandi
stjórnvöld hefðu ýtt henni til hlið-
ar. „Það sem líka virðist blasa
við er að lífeyrissjóðir almenn-
ings verði aftast í biðröðinni við
afnám hafta og hagsmunir kröfu-
hafa verði í forgangi. Það er eðli-
legt að spyrja núna: Hvað hefur
þessi töf kostað?“
tka@stod2.is, jonhakon@frettabladid.is
➜ Hugmyndir um losun
hafta verða kynntar
fulltrúum slitastjórna
bankanna í dag.
EINSTÖK
TILBOÐ!
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
4x4 bílar fyrir ófærðina
INFINITY Qx56 4x4
Nýskr. 01/05, ekinn 176 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 3.390.000
TILBOÐSVERÐ!
2.490 þús.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 06/13, ekinn 32 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 4.590.000
TILBOÐ kr. 3.990 þús.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 05/11, ekinn 109 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 3.290.000
TILBOÐ kr. 2.690 þús.
HYUNDAI SANTA FE II CRDi
Nýskr. 11/07, ekinn 161 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 2.550.000
TILBOÐ kr. 1.990 þús.
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 06/08, ekinn 94 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 3.990.000
TILBOÐ kr. 2.790 þús.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 04/11, ekinn 137 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 2.880.000
TILBOÐ kr. 2.390 þús.
SUBARU LEGACY SPORT SEDAN
Nýskr. 05/10, ekinn 97 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 2.580.000
TILBOÐ kr. 1.990 þús.
Rnr. 142429
Rnr. 320139
Rnr. 142190
Rnr. 282038
Rnr. 102116
Rnr. 142195
Rnr. 280899
4x4
4x4
4x4
4x4
4x4
4x4
4x4
GÖNGUM FRÁ
FJÁRMÖGNUN Á
STAÐNUM
WWW.BÍLALAND.IS
DÓMSMÁL Kári Stefánsson, for-
stjóri Íslenskrar erfðagreiningar,
þarf að greiða Karli Axelssyni,
lögmanni og settum hæstaréttar-
dómara, tvær milljónir króna.
Um er að ræða reikning sem
Kári hafði neitað að greiða Karli
vegna starfa þess síðarnefnda
fyrir forstjórann. Stefndi Kári
Karli vegna þessa og taldi reikn-
inginn of háan. Dómur var kveð-
inn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur
í gærmorgun. Kári krafðist þess
að úrskurður Lögmannafélagsins
um þóknun Karls yrði felldur úr
gildi og að hæstaréttarlögmað-
urinn greiddi allan málskostnað.
Kári þarf hins vegar að greiða 470
þúsund krónur í málskostnað.
Við aðalmeðferð málsins sagð-
ist Kári hafa ráðið Karl í vinnu og
að þeir hefðu gert með sér sam-
komulag um það. Reikningur-
inn hefði hins vegar ekki pass-
að við það samkomulag þar sem
fulltrúi Karls, Þórhallur Berg-
mann, var skráður fyrir 150
tímum af vinnunni en Karl fyrir
17 tímum. Kári sagði að Karl hefði
svo upplýst sig um að hann væri
hættur að flytja mál fyrir héraði.
Aðspurður um hverju hann hefði
þá svarað sagði Kári að hann hefði
bent honum á að þeir hefðu gert
samkomulag um að hann myndi
flytja mál sitt.
Karl sagði fyrir dómi að Kári
hefði verið ósáttur við ýmislegt
í málinu, meðal annars kostnað
málsins, laun fulltrúa hans og svo
hefði hann hætt að borga reikn-
inga. - ktd
Neitaði að greiða Karli Axelssyni reikning vegna lögfræðistarfa hans:
Kári þarf að greiða tvær milljónir
HEILBRIGÐISMÁL „Þrátt fyrir að
hin árlega inflúensa hafi enn ekki
greinst hér á landi þennan vetur-
inn telur sóttvarnalæknir afar
mikilvægt að fólk láti bólusetja
sig,“ segir í frétt á vef landlæknis.
„Ekki er bara horft til inflúens-
unnar heldur ber líka að hafa í
huga að vegna gosmengunar frá
Holuhrauni gæti inflúensan lagst
þyngra á þá sem eru með lang-
vinna sjúkdóma og/eða eru 60 ára
og eldri,“ segir landlæknir sem
kveður ávallt mega búast við inflú-
ensunni í kringum áramótin. „Svo
nú er rétti tíminn fyrir bólusetn-
ingu.“
Þá segir að veirustofnar inflú-
ensunnar geti verið mismunandi
milli ára og þess vegna sé hvatt
til árlegrar inflúensubólusetn-
ingar. „Það getur tekið allt að 2
til 3 vikur fyrir bóluefnið að gefa
vörn. Bóluefnið verndar ekki gegn
almennu kvefi eða öðrum veiru-
sýkingum en sumar af þessum
sýkingum geta valdið einkennum
sem líkjast inflúensu.“ - gar
Árleg inflúensa hefur enn ekki greinst en sóttvarnalæknir hvetur til aðgerða:
Tími bólusetninganna kominn
BRUNNURINN BYRGÐUR Allir yfir
60 ára eru hvattir í bólusetningu gegn
inflúensu. NORDICPHOTOS/GETTY
TAPAÐI Kári þarf að greiða Karli tvær
milljónir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tvær hugmyndir
um losun hafta
Stjórnvöld kynna fulltrúum slitastjórna bankanna hugmyndir um losun hafta í
dag. Tvær hugmyndir eru á borðinu. Annars vegar er rætt um útgönguskatt og
hins vegar að eigendur aflandskróna breyti eignum sínum í skuldabréf.
HITTI SAMRÁÐSNEFND Lee Buchheit var einn ráðgjafa ríkisstjórnarinnar sem hitti
samráðsnefnd um afnám hafta í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI