Fréttablaðið - 09.12.2014, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 9. desember 2014 | SKOÐUN | 15
Nú er þriðja lota verk-
fallsaðgerða lækna hafin.
Öllum bráða- og neyðartil-
vikum hefur verið sinnt en
yfir 500 aðgerðir á biðlist-
um hafa verið felldar niður.
Ótal rannsóknum og yfir
2.000 dag- og göngudeildar-
komum á Landspítalanum
hefur verið frestað. Um 130
speglanir og 60 hjartarann-
sóknir, þræðingar og gang-
ráðsaðgerðir hafa beðið.
Langan tíma getur tekið að
grynnka aftur á vandanum
sem var þó talsverður fyrir.
Læknum þykir miður að þurfa
að grípa til slíkra aðgerða. Ekki
var hægt að horfa upp á núverandi
ástand og hnignun heilbrigðiskerf-
isins öllu lengur. Ábyrgð á þessu
ástandi er alfarið hjá stjórnvöld-
um. Læknar biðu frá sl. áramótum
og fram eftir sumri eftir að ríkið
fengist til að setjast að samninga-
borðinu. Ekkert hefur þokast í sam-
komulagsátt í þær sex vikur sem
aðgerðir hafa staðið með hléum.
Samninganefndin hefur ekki feng-
ið raunverulegt umboð til að semja
við lækna. Embættismenn fjármála
sitja enn þversum. Hafa greinilega
ekki kynnt sér ástand heilbrigðis-
þjónustunnar í aðdraganda verk-
fallsins og uppsafnað álag og vax-
andi vanda vegna skorts á bæði
sérfræðilæknum og almennum
læknum.
Endurnýjun nái jafnvægi
Læknar munu ekki láta af kröfum
sínum fyrr en leiðrétting á þróun
launaliða til jafns við aðrar heil-
brigðisstéttir hefur náðst. Tryggt
sé að kjör í boði séu hvatning til
íslenskra lækna um að flytjast
heim. Endurnýjunin nái jafnvægi
á ný. Að læknaflóttinn hætti og
stöðugildum fjölgi. Allt annað væri
ábyrgðarleysi. Dýrkeypt frestun
á því óumflýjanlega. Til að leysa
hnútinn þurfa læknar umtalsverða
leiðréttingu á grunnlaunum. Lands-
menn skilja það. Um það virðist
almenn sátt í þjóðfélaginu. Sam-
staða lækna á ríkisstofnunum er
eindregin.
Læknar hafa boðað áframhald-
andi aðgerðir á nýju ári. Fjórar
vikur í hverjum mánuði fram að
páskum eða þar um bil. Nú með
vaxandi þunga. Hvert svið í fjóra
daga í senn í stað tveggja áður. Ekk-
ert hlé á milli aðgerðalota eins og
fyrir jól. Það sýnir alvöru málsins.
Þjóðin hefur stutt kröfur lækna.
Niðurstöður skoðanakannana sýna
það rækilega. Mörg stéttarfélög
hafa lýst yfir stuðningi. Samtök
sjúklinga hafa áhyggjur af stöðu
mála. Það kemur ekki á óvart.
Úr böndunum
Undanfarin ár hefur þjónustan á
mörgum sviðum ekki verið við-
unandi. Stöðugildum lækna hefur
verið að fækka. Því fylgir að
aðgengi að læknismeðferð hefur
verið að dragast saman. Erfið-
ara verið að fá tíma og viðunandi
úrlausn, hvort sem er í grunnþjón-
ustu eða á sjúkrahúsum. Biðtími
lengist og álag er mikið. Vaxandi
fjöldi leitar á bráðamóttöku og aðra
vaktþjónustu til að fá úrlausn mála
sem eðlilegra hefði verið að leita í
grunnþjónustu á heilsugæslu eða
á skipulagðri sérfræðingsmóttöku.
Þar hafa nýir læknar ekki fengist
til starfa vegna dagvinnulauna-
kjara sem eru í boði hjá ríkinu.
Slíkar bráðaheimsóknir draga úr
skilvirkni kerfisins og eru dýrari
kostur. Soga til sín starfskraft og
fjármagn sem ætla mætti að væri
betur varið til annars. Við þessar
aðstæður fer reksturinn úr böndun-
um, kostnaðurinn rýkur upp og fjár-
hagsáætlanir heilbrigðisstofnana
standast ekki. Hægt væri að fara
betur með peningana. Það virðast
embættismenn fjármála ekki skilja.
Aðgerða krafist
Kröfur um sparnað og samdrátt
hafa komið víða niður á heilbrigðis-
þjónustunni. Sjá má þess dæmi t.d.
í blóðsjúkdómum. Áður voru níu
læknar á landinu sem sinntu þessu
alvarlega heilsufarsvandamáli. Nú
eru sex sérfræðilæknar í 4,6 stöðu-
gildum á Landspítalanum. Þar af
þrjú stöðugildi við meðferð ill-
kynja blóðsjúkdóma. Enginn lækn-
ir með slíka sérmenntun er á heim-
leið. Þrír meltingarlæknar hafa
nýlega sagt upp á Landspítalanum.
Sá fjórði lét af störfum vegna ald-
urs fyrr á árinu. Engin endurnýj-
un er þar í augsýn. Spyrja verður
hvort stjórnvöld hafi í raun og veru
vilja til að takast á við vandann
með samtökum lækna og stöðva
þessa þróun. Aðgerða er krafist.
Losa þarf um tregðuna. Hver verð-
ur áramótaboðskapur ríkisstjórn-
arinnar? Áframhaldandi uppsagnir
lykilstarfsmanna í heilbrigðisþjón-
ustunni eða verða alvöru viðræður
hafnar og gengið til samninga við
lækna? Þjóðin vill en þing ræður.
Neyðarþjónusta áfram
og frestun læknis-
meðferða til vors?
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
Kíkið inná:
heklanotadirbilar.is
GÓÐIR, NÝLEGIR,
TRAUSTIR
GÆÐABÍLAR
Á GÓÐU VERÐI
Skoda Rapid Amb. 1.2 TSI
105 hö. Árgerð 2013, bensín
Ekinn 33.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 2.690.000
VW Golf A7 Highl. 1.4 TSI
DSG. Árgerð 2013, bensín
Ekinn 21.000 km, sjálfskiptur
Komdu og
skoðaðu úrvalið!
MM Pajero 3.2 Instyle
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 45.500 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 7.590.000
Skoda Superb Combi
TDI 170 hö. Árgerð 2013, dísil
Ekinn 100.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 4.390.000
Skoda Octavia Combi
Amb. 4x4. Árgerð 2010, dísil
Ekinn 113.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 2.790.000
Ásett verð: 3.640.000
VW Polo1.4 Comfl. 5 gíra
85 hö. Árgerð 2010, bensín
Ekinn 98.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 1.490.000
VW Polo 1.2 Trendl. 5 gíra
70 hö. Árg. 2013, bensín
Ekinn 39.700 km, beinskiptur
Ásett verð: 1.990.000
VW Golf A6 Trendl 1.4 TSI
Árgerð 2012, bensín
Ekinn 65.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 2.490.000
VW Tiguan Track&Style.
Árgerð 2013, dísil
Ekinn 30.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 5.790.000
VW Caddy Maxi Trendl.
1.6 TDI. Árgerð 2013, dísil
Ekinn 27.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 3.690.000
➜ Kröfur um sparnað
og samdrátt hafa kom-
ið víða niður á heil-
brigðisþjónustunni.
Sjá má þess dæmi t.d.
í blóðsjúkdómum.
Áður voru níu læknar
á landinu sem sinntu
þessu alvarlega
heilsufarsvandamáli.
Nú eru sex sérfræði-
læknar í 4,6 stöðugildum á
Landspítalanum. Þar af þrjú
stöðugildi við meðferð ill-
kynja blóðsjúkdóma. Enginn
læknir með slíka sérmennt-
un er á heimleið.
HEILBRIGÐISMÁL
Reynir
Arngrímsson
varaformaður
Læknafélags
Reykjavíkur
Á fullveldisdaginn voru
15 bækur tilnefndar til
Íslensku bókmenntaverð-
launanna við hátíðlega
athöfn á Kjarvalsstöð-
um og óska ég höfundum
þeirra til hamingju. For-
lagið gefur út 60% bók-
anna eða níu talsins en
framkvæmdastjóri þess
er einnig formaður Félags
íslenskra bókaútgefenda
(FÍBÚT) sem veitir verð-
launin. Hann stýrði athöfninni og
afhenti sérhverjum höfundi blóm;
það fannst mér undarleg stund,
sami maðurinn sat beggja vegna
borðsins, var bæði veitandi og
þiggjandi og í raun að færa sjálf-
um sér viðurkenningar og níu
rauðar rósir.
Þegar betur er að gáð
kemur í ljós að formaður
FÍBÚT er ekki eini stjórn-
armaðurinn sem er tengd-
ur Forlaginu. Varafor-
maðurinn er fyrrverandi
starfsmaður þess, gjald-
kerinn er ritstjóri þar á bæ
og einn meðstjórnenda er í
útgáfusamstarfi við fyrir-
tækið.
Stjórn FÍBÚT er ein af
birtingarmyndum þess
landslags sem blasir við á íslensk-
um bókamarkaði þar sem eitt
fyrir tæki hefur náð markaðs-
ráðandi stöðu. Margir fjölmiðla-
menn, rithöfundar, bókaútgefend-
ur og bókakaupmenn þekkja þessa
mynd en fæstir þeirra kjósa að tjá
sig um hana.
Níu rauðar rósir
MENNING
Bjarki Bjarnason
rithöfundur og
bæjarfulltrúi