Fréttablaðið - 09.12.2014, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 09.12.2014, Blaðsíða 18
9. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 18 Ofbeldi er smánarblett- ur á hverju samfélagi og mikilvægt er að vinna markvisst að útrýmingu þess. Ekkert umburðar- lyndi gagnvart ofbeldi var yfirskrift málþings sem Jafnréttisstofa, norræna ráðherranefndin, innan- ríkisráðuneytið og vel- ferðar ráðuneytið stóðu nýlega fyrir. Þar var kynnt viðamikil rannsókn sem gerð var á vegum Mann- réttindastofnunar Evr- ópusambandsins á ofbeldi gegn konum í 28 Evrópulöndum (Violence against women: An EU- wide survey. Results at a glance). Rannsóknarniðurstöðurnar byggj- ast á persónulegum viðtölum við 42.000 konur í Evrópu og er þetta stærsta rannsókn sem gerð hefur verið á reynslu kvenna af ofbeldi í Evrópu og reyndar á heimsvísu. Konurnar voru á aldrinum 18-74 ára og voru valdar af handahófi. Rannsóknin gefur til kynna að ofbeldi gegn konum sé algengt en falið mannréttindabrot í Evrópu. Mannréttindastofnun Evrópusam- bandsins hvetur allar þjóð- ir í Evrópu til að skera upp herör gegn ofbeldi gegn konum og að gera allt sem hægt er til að hindra það. Í rannsókninni kom meðal annars fram að barnshafandi konur eru sérstakur áhættuhópur en 42% kvenna urðu fyrir ofbeldi meðan þær áttu von á barni. Einni af hverj- um 20 konum hafði verið nauðgað frá 15 ára aldri. Um þriðjungur kvenna hafði orðið fyrir líkam- legu eða kynferðislegu ofbeldi frá 15 ára aldri. Þá höfðu 27% kvenna þurft að þola einhvers konar lík- amlegt ofbeldi af hendi fullorðins einstaklings fyrir 15 ára aldur og 12% kvenna höfðu þurft að þola kynferðislegt ofbeldi í bernsku. Í 97% tilfella kynferðislegs ofbeld- is í bernsku var ofbeldismaðurinn karlmaður. Í mestri hættu Rannsóknin sýnir að það eru ungar konur sem eru í mestri hættu á að verða fyrir ofbeldi. Því þarf að beina athyglinni alveg sérstaklega að þeim þegar rætt er um aðferðir til að hindra ofbeldi gegn konum. Í Istanbúlsamningi Evrópuráðsins eru settir fram staðlar um hvernig aðstoða skuli þolendur kynbundins ofbeldis. Þessa staðla þarf að kynna og innleiða. Við erum hönnuð til að vera heil- brigð en hver manneskja er ein heild, líkami og sál. Það sem brýtur á sálinni brýtur á líkamanum. Í fáu er þessi sannleikur jafn skýr og í áhrifum ofbeldis á líkamann, hvort sem ofbeldið sjálft er andlegt, lík- amlegt eða kynferðislegt. Stórar rannsóknir sýna að þau sem verða fyrir ofbeldi eru í meiri hættu á að fá ýmsa alvarlega sjúkdóma. Ræða þarf því ofbeldi sem lýðheilsu- vandamál. Mikilvægt er að auka þekkingu á ofbeldi og áhrifum þess, taka á vandanum með sam- stilltu átaki allra aðila og vinna markvisst að því að útrýma því. Ekkert umburðarlyndi gagnvart ofbeldi Aldrei nokkurn tímann datt mér í hug að verk- fall lækna stæði yfir í 6 vikur. Sjötta vika verkfalls lækna, þess fyrsta í sög- unni, er þó gengin í garð. Læknar eru byrjaðir að birta uppsagnarbréf. Læknanemar og kandídat- ar neita að vinna á spítal- anum án samninga. Helm- ingur sérfræðilækna á landinu, 181 læknir, segist íhuga sterklega eða hafa þegar ákveðið að flytja úr landi á næstu árum. Helmingur melt- ingarlækna spítalans hefur þegar sagt upp störfum. Svæfingarlækn- ar, gjörgæslulæknar og tauga- læknar íhuga uppsagnir strax eftir áramót. 12 vikna verkfall án nokkurra hléa blasir við – frá áramótum fram að páskum. Forsætisráðherra kallar hins vegar eftir þjóðarsátt um forgangsröðun í þágu heil- brigðiskerfisins. 90% þjóðarinnar vilja forgangs- raða í þágu heilbrigðiskerfisins. 78% segjast styðja kjarabaráttu lækna. 70% vilja að læknar fái hækkun umfram aðrar stéttir. Minnst 11 starfsstéttir hafa opin- berlega lýst yfir stuðningi við kjarabaráttu lækna. Í sérstakri umræðu á Alþingi í nóvember um verkfall lækna voru allir þeir þingmenn sem tóku til máls, úr öllum flokk- um, sammála um að leysa þyrfti deiluna sem fyrst. Samt kallar forsætisráð- herra eftir þjóðarsátt. Fjármálaráðherra telur kröfur lækna vera óraun- hæfar. Þær samrýmast ekki markmiði Seðlabank- ans um 3,5-4% hámark á launahækkunum vegna verðbólgumarkmiðs SÍ. Skuldaleiðréttingin samræmist ekki heldur þessu markmiði. Raunhæfar kröfur? En eru raunhæfar kröfur gerðar til lækna á Íslandi? Er raunhæft að áætla að unglæknar snúi til síns heima eftir sérnám, á eigin kostn- aði, með óleiðrétt námslán á herð- um sér, þegar kjör þeirra hér eru margfalt verri en annars staðar? Búast stjórnvöld við að læknar, sem haldið hafa út í niðurskurðar- tíð undanfarins áratugar, láti bjóða sér aðeins 3% launahækk- un þegar starfsmönnum spítalans hefur fækkað og verkefnum fjölg- að um leið? Er líklegt að læknar sem hætt hafa störfum á Íslandi vegna aðstöðu og kjara, snúi til baka fyrir 3% launahækkun? Er raunhæft að áætla að kandídatar og nemar starfi á spítalanum við óbreytt kjör? Ríkisstjórnin segist setja heil- brigðismál í forgang. Hún segist hafa gert það með því að leggja til „auka“ milljarð í rekstur Landspít- alans. Þar að auki hefur hún lagt tæpar 900 milljónir í hönnun nýs spítala. Það er verulegt fagnaðar- efni. Það blæs manni von í brjóst. En þetta er ekki forgangsröðun í þágu heilbrigðiskerfisins. Raunveruleg forgangsröðun ein- kennist ekki af spurningum for- manns fjárlaganefndar um „hve- nær sé nóg nóg“ þegar bent er á að enn vanti milljarð í rekstrar- grunn Landspítalans. Hún felur ekki í sér að forsætisráðherra kalli eftir „þjóðarsátt“ þegar tæp 80% þjóðarinnar styðja kjarabar- áttu lækna. Hún lýsir sér ekki í því að fjármálaráðherra fullyrði að „kröfur lækna séu óraunhæf- ar“ þegar kröfur ríkisins sjálfs til lækna eru ekki aðeins óraunhæfar heldur ómanneskjulegar. Mun forgangsröðun ríkisstjórn- arinnar bjarga heilbrigðiskerfinu? Eða er þetta allt í plati? Allt í plati Óskalag þjóðarinnar er ljúfur ópus Bjartmars Guðlaugssonar, Þannig týnist tíminn. Tíminn hefur einmitt verið mér hugleikinn undanfarið. Sennilega vegna þess að oftast finnst mér ég ekki hafa nóg af honum. Þannig kemur til dæmis jólaundirbúningurinn mér gjörsamlega í opna skjöldu því mér finnst raunverulega eins og ég hafi pakkað rauðu jólaeldhús- blúndunum, litla jólatrénu með ljósunum og aðventukransin- um niður í gær. Árið hefur þotið áfram án þess að ég tæki eftir því; eiginlega eingöngu vegna þess að ég gleymdi að líta í kring- um mig, njóta þess að vera og þakka fyrir tímann. Ég er samt viss um að ef ég gef mér tíma til að rýna í baksýnis- spegilinn, þá munu birtast mér ljóslifandi fyrir hugskotssjón- um hlýjar minningar, vandræðaleg augnablik, markmið sem náðust og draumar sem rættust. Á þessu ári, sem hefur þotið áfram. En undanfarið hef ég verið minnt á að tíminn er ekki endalaus. Og það kemur ekki til af því að ég sé að missa heilsuna eða að eitthvað sé að fara að eiga sér stað sem gæti mögulega kollvarpað því góða og hamingjuríka lífi sem ég lifi núna. Nei, ástæðan er sú að ég óttast að mín kynslóð – ég þar á meðal – sé að sólunda þeim tækifærum og tíma sem okkur er gefinn núna, til að annast um samferðafólk okkar eins vel og okkur er unnt. Erum við að hrósa fyrir það sem vel er gert? Erum við að hjálpa fólki til sjálfshjálp- ar? Erum við að hlusta með hjart- anu á fólk? Ég veit ekki – frekar en nokkur annar – hvenær að því kemur að lífið verður ekki eins og það er núna. Því ef það er eitthvað sem er ófyrirsjáanlegt í lífinu, þá er það lífið sjálft. En ég veit að tíminn getur afar auðveld- lega týnst. Og einhvern veginn einmitt þegar við þurfum mest á honum að halda, þá finnum við hann hvergi. Þess vegna skulum við nýta tímann vel. Við vitum ekki hvenær sá dagur kemur sem verður okkar síðasti. Ég óska þess að við munum þá geta litið tilbaka full þakklætis fyrir tím- ann sem okkur var gefinn. Með hlýjum óskum um að þið njótið aðventunnar. Þannig týnist tíminn ➜ Árið hefur þotið áfram án þess að ég tæki eftir því; eiginlega eingöngu vegna þess að ég gleymdi að líta í kringum mig, njóta þess að vera og þakka fyrir tímann. KYNBUNDIÐ OFBELDI Sigríður Halldórsdóttir prófessor við heilbrigðisvísinda- svið HA ➜ Um þriðjungur kvenna hafði orðið fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi frá 15 ára aldri. KJARAMÁL Ragna Sigurðardóttir læknanemi og formaður Röskvu ➜ 12 vikna verkfall án nokkurra hléa blasir við – frá áramótum fram að páskum. SAMFÉLAG Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir hjúkrunarfræðingur Munaðarlausu málin Sem kjósandi pírata í síðustu kosningum reyni ég að gera mér grein fyrir stöðu flokksins núna. Flokkurinn stendur sig bezt allra flokka í málum, sem snerta upplýsingafrelsi og opinn aðgang að upplýsingum. Hann hefur líka pönkast meira en aðrir flokkar í að ýta fram stjórnar- skránni, sem þjóðin samþykkti. Þetta eru tvö af mikil- vægustu málum samfélagsins og hart að hafa ekki nema 10% fylgi út á þau. Birgitta hefur lítillega tjáð sig um þriðja stórmálið, fiskveiðikvótann. Í fjórða málinu, launum almennings, nægir ekki tillaga að þingsályktun. Ég held, að á sviði auðlindarentu og velferðar vanti flokk með öfluga frambjóðendur. http://www.jonas.is/ Jónas Kristjánsson AF NETINU

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.