Fréttablaðið - 09.12.2014, Page 36
TÓNLIST ★★★ ★★
Batnar útsýnið
Valdimar
ETG MANAGEMENT
Hljómsveitin Valdimar hefur
verið nokkuð áberandi í íslensku
tónlistarlandslagi undanfarin
ár. Frumburður sveitarinnar,
Undraland, vakti mikla lukku og
þá naut önnur plata sveitarinnar,
Um stund, einnig talsverðra vin-
sælda. Batnar Útsýnið er þriðja
plata Valdimars og hefur, eins og
fyrri plötur, fengið ágætis spilun
í íslensku útvarpi.
Platan er nokkuð tilraunakennd
miðað við fyrri verk sveitarinnar
án þess að hægt sé að tala um ein-
hvers konar Kid-A-stefnubreyt-
ingu. Í öllu falli er reynt að víkka
hljóðheiminn sem er sveimkennd-
ari en áður hefur heyrst. Enn má
þó heyra fastagesti sem kristall-
ast í vel gerðum blásaraútsetning-
um sem stækka hljóminn þegar
við á. Flutningur laganna er tipp-
topp og öll tæknivinna sömuleið-
is.
Betra útsýni fjallar annars um
ástina, eða öllu heldur glataða eða
týnda ást; hún fjallar um endalok
ástarsambands – um sambands-
slit. Textarnir eru einkar ein-
lægir og flutningur höfundar
þeirra ber með sér sálarangist og
eymd … en sem betur fer er mesta
eymdin að baki. Höfundur virð-
ist eiga erfitt með að gera upp við
sig hverjum sambandsslitin séu
að kenna, ýmist ljóðmælanda eða
hinum aðila sambandsins, stund-
um er hann sáttur við orðinn hlut
en stundum saknar hann. Allt
mjög kaotískt en um leið mann-
legt.
Gallinn er
einfaldlega að
textarnir eru
fastir í þess-
um sér ís -
lensku hjól-
förum að
allt verði að
ríma, sem
skapar um
leið ótrú-
verðuga
og klaufa-
lega setn-
ingauppbyggingu
sem enginn lifandi Íslendingur
myndi nokkurn tímann nota í
óbundnu máli. Lögin sjálf virð-
ast vera smíðuð utan um textana,
sem er skiljanlegt, þar sem platan
er einhvers konar uppgjör. Það er
helst að ágætlega takist til í lög-
unum This Time,
sem er eini enski
textinn (og um
leið sá „eðlileg-
asti“ vegna skorts
á rími), Út úr
þögninni, þar sem
má heyra mjög
flotta stígandi og
lagið Hindranir.
Besta lag plötunn-
ar er þó síðasta
lagið, Eftirspil, þar
sem má heyra virki-
lega flotta spretti.
Björn Teitsson
NIÐURSTAÐA: Platan er einlæg
og hefur að geyma góða spretti en
vantar slagara. Og þótt það þurfi
allt af að vera vín … þá þarf ekki
alltaf að vera rím.
Einlægur óður um glataða ást
M
YN
D
/G
U
Ð
M
U
N
D
U
R
VI
G
FÚ
SS
O
N
Þú getur hjálpað núna með því að greiða valgreiðslu í heimabanka.
Einnig:
• Frjálst framlag á framlag.is
• Gjafabréf á gjofsemgefur.is
• Styrktarsími: 907 2003 (2.500 kr.)
• Söfnunarreikningur:
0334–26–50886, kt. 450670-0499
Þinn stuðningur gerir kraftaverk
Skortur á drykkjarhæfu vatni og hreinlætisaðstöðu veldur banvænum sjúkdómum
en með aðgangi að hreinu vatni hefur allt líf möguleika á að vaxa og dafna.
Hjálparstarf kirkjunnar tryggir fólki aðgang að hreinu vatni í Úganda og Eþíópíu
– og þitt framlag skiptir sköpum.
IP
A
PI
PAPAPA
PI
PAAAAAAAPAPAPAPAPAPAIPPI
P
PI
P
PI
P
RRRRRR
\\\\\\\
A
BW
A
TB
W
A
TB
W
A
TB
W
A
W
A
TB
W
A
W
A
W
A
W
A
BW
A
TB
W
A
W
TB
W
A
WBWTB
WW
TB
W
TB
W
TB
WWWW
TB
••••••
ÍSÍ
A
SÍ
A
SÍ
AA
S
ÍA
A
SÍ
AA
SÍ
A
S
ÍA
S
ÍAASÍ
A
SÍ
AÍAÍASS
•••••
4
32
14
4
32
14
4
3232
4
4
32222
1
4
4
32
14
4
32
4
4
32
14
4
3333
4
3
4
4
3
14
4
3
4
1
4
4
14
111111
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Jamie xx úr hljómsveitinni The xx
mun troða upp á tónlistarhátíðinni
Sónar Reykjavík í Hörpu í febrúar.
Hann ætti að vera kunn-
ur Íslendingum en The xx
tók upp plötu hér á landi í ár.
Einnig kemur fram teknóplötu-
snúðurinn Jimmy Edgar frá
Detroit og kanadíski taktsmið-
urinn Ryan Hemsworth, eins og
Fréttablaðið sagði frá í seinustu
viku.
Þeir íslensku tónlistarmenn
sem tilkynntir verða í dag eru Jón
Ólafsson & Futuregrapher sem
leiða saman hesta sína, Emmsjé
Gauti, Páll Ivan frá Eiðum, Kött
Grá Pjé, AMFJ og Bjarki.
Sónar Reykjavík verður haldin
á fimm sviðum í Hörpunni í þrjá
daga, 12.-14. febrúar. Tónlistar-
menn og hljómsveitir sem hafa
þegar verið tilkynnt eru Skrillex,
Yung Lean, SBTRKT, Kindness,
Todd Terje, Nina Kraviz og fleiri.
Sónar var upprunalega haldin í
Barcelona en hátíðin hefur stækk-
að í gegnum árin og verið haldin
víðs vegar um heiminn. - þij
Bretinn Jamie xx
treður upp á Sónar
Jamie xx, Jimmy Edgar og Ryan Hemsworth nýjustu
erlendu viðbæturnar við hátíðina sem verður í febrúar.
➜ Hátíðin verður haldin
á fimm sviðum í Hörpu
12.–14. febrúar.
JAMIE XX Nýjasta viðbótin við Sónar-hátíðina. NORDICPHOTOS/GETTY
SÓNAR Mikil stemning var á hátíðinni
í fyrra.
9. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 28