Fréttablaðið - 09.12.2014, Síða 40
9. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 32
FÓTBOLTI Sigurður Ragnar Eyjólfsson
var í gær ráðinn aðstoðarþjálfari
Rúnars Kristinssonar hjá Lilleström
næstu þrjú árin. Sigurði Ragnari,
sem lét af störfum sem þjálfari ÍBV í
Pepsi-deild karla í haust, stóð einnig
til boða starf tækniráðgjafa hjá
ástralska knattspyrnusambandinu.
Sigurður Ragnar ákvað að taka
slaginn með Rúnari en báðir gerast
nú þjálfarar í atvinnumannadeild í
fyrsta skipti á ferlinum. Hann segir
það jákvætt að íslenskir þjálfarar séu
á óskalista erlendra félaga.
„Árangur A-landsliðsins hefur
vakið athygli og það er jákvætt fyrir
íslenska þjálfara að það sé útrás hjá
þeim. Þjálfarar heima sjá að þeir eiga
möguleika á því að komast út ef þeir
standa sig vel og vonandi fylgja fleiri
í kjölfarið,“ sagði Sigurður Ragnar við
Fréttablaðið í gær.
„Ég tel að þetta sé mikilvægt fyrir
þroskaferli þjálfara auk þess sem sú
reynsla og þekking sem þeir afla sér
á erlendri grundu skilar sér svo aftur
í íslenska knattspyrnu þegar þeir
snúa aftur heim. Þetta er því afar
jákvætt fyrir íslenska þjálfara,“ segir
hann enn fremur.
Sigurður Ragnar var lengi fræðslu-
stjóri KSÍ og þjálfari A-landsliðs
kvenna, sem hann kom tvívegis í
úrslitakeppni stórmóts. - esá
Fleiri tækifæri fyrir íslenska þjálfara
TIL NOREGS Sigurður Ragnar verður
Rúnari til aðstoðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI „Þetta er alveg ótrú-
lega erfiður riðill,“ sagði Craig
Pedersen, landsliðsþjálfari karla í
körfubolta, við Fréttablaðið fáein-
um mínútum eftir að Ísland var
dregið í B-riðilinn á EM 2015 í
körfubolta í gær. Hann verður spil-
aður í Berlín, en mótið fer fram
5.-20. september á næsta ári.
Drátturinn fór fram í Disney-
landi og var Ísland dregið í riðil
sem verður hálfgert ævintýri. Í
riðlinum auk Íslands eru Spánverj-
ar, Ítalir, Serbar, Tyrkir og gest-
gjafar riðilsins, Þjóðverjar.
„Við erum að tala þarna um
líklega fimm af átta bestu liðum
mótsins, allavega fimm af tíu
bestu. Þó Þýskaland hafi verið í
fimmta styrkleikaflokki þá verð-
ur Dirk Nowitzki með þeim sem
þýðir að Þjóðverj-
ar verða allt
í einu ein
af sigur-
strangleg-
ustu þjóð-
unum. Þeir
eru l íka
með annan góðan NBA-leikmann
og með tvo svona sterka spilara
innanborðs eru þeir til alls líklega.
En auðvitað eru Frakkar og Spán-
verjar líka skrefi á undan flest-
um,“ segir Craig.
Frábært tækifæri
Nowitzki er ekki eina stjarnan sem
Ísland mætir í þessum ævintýra-
riðli í Berlín á næsta ári. Í spænska
liðinu má finna NBA-hetjur á borð
við Pau Gasol, tvöfaldan meistara
með Lakers, og bróður hans, Marc
Gasol hjá Memphis Grizzlies. Ítal-
ir hafa Marco Belinelli hjá meist-
urum San Antonio Spurs og Tyrkir
bjóða upp á hinn 213 cm háa Ömer
Asik sem leikur með New Orleans
Pelicans.
„Þetta er rosalegur riðill svo
ég endurtaki það. En þetta er líka
fyrsta mótið hjá Íslandi og því
verður spennandi að mæta svona
gæðaliðum,“ segir Craig, en hvern-
ig mun íslenska liðið nálgast svona
svakalega erfitt verkefni?
„Við verðum að fara inn í þetta
eins og leikina gegn Bretlandi og
Bosníu sem komu okkur á EM. Við
verðum að spila hver fyrir annan
og reyna að búa til góð skot. Ef við
getum það þá erum við með góðar
skyttur sem geta skorað stig.“
Fyrst og fremst segir lands-
liðsþjálfarinn þetta vera ævin-
týri fyrir íslensku leikmennina.
„Í íslenska liðinu eru strákar sem
hafa lagt mikið á sig til að fá að
spila á svona háu stigi. Það er frá-
bært fyrir þá að fá svona tækifæri.
Það eru menn sem fara í gegnum
heilan feril án þess að komast svo
mikið sem einu sinni á stórmót,“
segir Craig Pedersen.
Gerir boltann hér heima betri
Hannes S. Jónsson, formað-
ur Körfuknattleikssambands
Íslands, var viðstaddur drátt-
inn líkt og landsliðsþjálfarinn
í ævintýralandi Disney-sam-
steypunnar í París í gær.
„Þetta er frábært tækifæri
fyrir íslenskan körfubolta,“ sagði
Hannes við Fréttablaðið í gær. Þó
Íslendingar óttist eðlilega mótherj-
ana þá verður það sama líklega
ekki sagt um stórþjóðirnar þegar
kemur að íslenska liðinu.
„Þetta er alveg klárlega dauða-
riðillinn og verður auðvitað mjög
erfitt. Sjálfar súpa hinar þjóðirn-
ar hveljur yfir því að vera allar
saman í þessum riðli. Þeim leist
samt ágætlega á að vera með
Íslandi í riðli,“ sagði Hannes léttur.
Formaðurinn fékk mikið af
hamingjuóskum frá kollegum
sínum í París í gær með það eitt að
íslenska liðið sé komið þetta langt,
en þetta er vitaskuld í fyrsta skipti
sem Ísland verður með í loka-
keppni stórmóts í körfubolta.
„Í heildina er þetta bara stór
liður í því að gera körfuboltann
heima betri. Á borðinu sem ég sat
á voru allir helstu stjórnarmenn
FIBA Europe og þeir óskuðu mér
allir til hamingju með þessa sögu-
legu stund. Þetta verður mjög
gaman, en auðvitað ætlum við að
mæta þarna og gera okkar besta.“
tomas@365.is
Riðillinn ævintýri
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta dróst í dauðariðilinn á EM 2015 sem spil-
aður verður í Berlín. Gríðarlega erfi tt verkefni en spennandi engu að síður.
TÆKIFÆRI Logi Gunnarsson og Jón Arnór Stefánsson hafa lengi spilað með íslenska landsliðinu en fá nú tækifæri til að spila
við þá allra bestu í Evrópu og heiminum á stærsta sviði Evrópukörfuboltans í Berlín á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MÓTHERJAR ÍSLANDS Á EM
5. SEPTEMBER ÞÝSKALAND - ÍSLAND
NBA-leikmenn: Dirk Nowitzki, Dallas Mavericks,
Dennis Schröder, Atlanta Hawks.
6. SEPTEMBER ÍSLAND - ÍTALÍA
NBA-leikmenn: Marco Belinelli, SA Spurs, Luigi
Datome, Detroit Pistons, Andrea Bargnani, NY
Knicks, Danilo Gallinari, Denver Nuggets.
8. SEPTEMBER SERBÍA - ÍSLAND
NBA-leikmenn: Ognjen Kuzmic, Golden State.
9. SEPTEMBER ÍSLAND - SPÁNN
NBA-leikmenn: Pau Gasol, Chicago Bulls, Marc
Gasol, Memphis Grizzlies, Serge Ibaka, OKC, Ricky
Rubio, Minnesota Timberwolves, José Caldeón,
Dallas Mavericks, Víctor Claver, Portland.
10. SEPTEMBER TYRKLAND - ÍSLAND
NBA-leikmenn: Ömer Asik, New Orleans Pelicans.
*Miðast við síðustu landsliðsverkefni.
KÖRFUBOLTI Eftir að búið var að draga í riðla fyrir EM 2015 í körfubolta í Dis-
neylandi í París í gær hófust forsvarsmen körfuboltasambandanna og þjálfara
liðanna handa við að setja upp dagskrá fyrir næsta ár og undirbúning fyrir EM.
„Það er allt á fullu hérna að skipuleggja leikina. Maður vildi
ekki festa neina æfingaleiki fyrr en við vissum með hverjum
við yrðum í riðli,“ sagði Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, við
Fréttablaðið í gærkvöldi.
Eitt æfingamót var neglt niður í gær, en Hlynur Bæringsson
og strákarnir okkar mæta Makedóníumönnum, Úkraínu og Pól-
landi á fjögurra landa móti í lok ágúst.
„Þetta eru virkilega sterkar þjóðir og gott mót að fara á. Við
erum svo að skoða æfingaleiki við fleiri þjóðir sem eru að fara á Evr-
ópumótið en eru ekki með okkur í riðli,“ sagði Hannes, en viðræður
stóðu hvað hæst þegar Fréttablaðið heyrði í formanninum í gær.
„Við erum á fullu hérna að tala saman og það er að myndast dag-
skrá. Menn vilja klára þetta bara strax hérna.“ - tom
Fara á sterkt æfi ngamót fyrir EM
SPORT