Fréttablaðið - 13.12.2014, Page 46

Fréttablaðið - 13.12.2014, Page 46
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 46 Kaupmaðurinn á horninu — Óskar í Sunnubúðinni segir frá Höfundur Jakob F. Ásgeirsson Útgáfa Ugla Fjöldi síðna 288 Í daglegum innkaupaferðum sínum í mjólkurbúðina, fisk-búðina eða bakaríið hittust nágrannakonurnar í búðinni „sinni“. Þar voru málin rædd á léttu nótunum þeirra á milli og við afgreiðslufólkið og kaup- manninn. Oft var mikið hlegið í þessum félagsmiðstöðvum hverf- anna. Mér fannst ummæli einnar konunnar lýsa vel heilsulindinni, sem þessar stundir voru, þegar hún mætti í hópinn eftir að hafa legið í inflúensu í viku: „Það tafði fyrir batanum að ég komst ekki út í Sunnubúð til að hlæja með ykkur.“ Í þessum félagsskap þróaðist einlæg vinátta og samkennd — og orðið „viðskiptavinur“ öðlaðist meiri og dýpri merkingu. /…/ Þegar ég læt hugann reika um það tímabil ævi minnar sem ég var einn af kaupmönnunum á horninu minnist ég auðvitað langra vinnu- daga, en það eru mannlegu sam- skiptin sem hæst ber og bjartast er yfir. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir vináttu og hlýhug alls þess fólks sem ég átti samskipti við í Sunnubúðinni. ● Eftir því sem verkfallið [1955] dróst á langinn jókst harkan í aðgerðum verkfallsmanna. Allar flutningaleiðir til borgarinnar voru lokaðar. Vesturlandsvegin- um var lokað við brúna yfir Úlf- arsá. Þar voru tveir hópar manna. Annar hópurinn skoðaði í bílana sem voru á leið í bæinn. Hinn hóp- urinn lokaði veginum með síma- staur en tók hann frá þegar gefið var merki um að enginn varning- ur væri í bílunum og þeir mættu fara í gegn. /…/ Margar vörutegundir voru ófáanlegar. Mjólkinni var hellt niður í sveitunum, þar eð hún komst ekki til neytenda. Borgin var orðin kjötlaus og við höfðum lítið sem ekkert að selja í kjötbúð- unum. Ég lagði á ráðin um að fá kjöt frá Borgarnesi, því að þar átti ég góða að. Fimmtíu dilkaskrokkar voru pantaðir hjá kaupfélaginu. Rútubílstjórinn gat komið þeim fyrir aftast í rútunni með því að taka nokkrar sætaraðir úr henni. En hann sagðist ekki vilja standa í illindum við verkfallsverði og því yrði ég að mæla mér mót við hann uppi á Kjalarnesi og taka kjötið þar úr bílnum. Ég tók allt nema bílstjórasætið úr station- jeppa Sunnubúðarinnar, sem var ómerktur, og fékk ungan pilt á Dodge Weapon-jeppa frá Sendi- bílastöðinni til að koma með mér. Við biðum eftir rútunni á til- teknum stað, fórum inn í malar- gryfju og vorum fljótir að stafla 20 skrokkum í minn bíl og 30 í sendibílinn. Rútan fór nokkru á undan, svo fór ég á jeppanum með teppi breidd yfir skrokkana. Ég bað sendibílstjórann að koma u.þ.b. 10 mínútum á eftir mér, ef tafir skyldu verða við hliðið sem verk- fallsverðirnir höfðu komið fyrir við brúna og ég myndi þá mæta honum ef mér yrði snúið við. Við Álafoss stóð eldri kona við veginn og bað um far í bæinn sem var algengt þá. Ég sagði henni að sætið væri kalt. „Það gerir ekkert til,“ sagði hún og settist á teppið. Þegar við komum að hliðinu var bíll á undan mér sem búið var að skoða og gefið var merki um að hann mætti fara í gegn. Gamla konan hefur væntanlega virst svo sakleysisleg eða kannski var það eymdarsvipurinn af kuldan- um sem gerði það að verkum að einn úr verkfallshópnum rétti upp höndina til merkis um að við mættum fara líka. Um leið og bíllinn var kominn fram hjá verkfallshópnum sá einn vörðurinn skankana sem stóðu undan teppunum og öskraði: „Bíllinn er fullur af kjöti!“ Ég steig bensínið í botn og skaust fram hjá þeim sem voru með staurinn, en það munaði aðeins sekúndubrotum að þeim tækist að leggja hann í veg fyrir mig. Ég hélt áfram eins hratt og bíll- inn komst þar til ég setti konuna út innarlega við Laugaveg. Fljótt flaug fiskisagan um Hlíð- arnar að það fengist kjöt í Sunnu- búðinni og var ös út úr dyrum þar til allt var uppselt. Stuttu eftir að ég kom í búðina hringdi sendibíl- stjórinn frá kaupfélagsbúðinni í Mosfellssveit. Honum var snúið við með kjötið. Verkfallsvörður, sem hann þekkti, sagði honum að jeppinn, sem þeir hefðu til afnota, væri að elta þrjót sem hefði ruðst í gegn. Verkfallsvörðurinn bætti við: „Og rétt áðan slapp annar djöf- ull með fullan bíl af kjöti fyrir bölvaðan klaufaskap og þá var enginn bíll til reiðu til að elta hann á!“ Mannlegu samskiptin ber hæst Jakob F. Ásgeirsson hefur skráð sögu Óskars í Sunnubúðinni í bókinni Kaupmaðurinn á horninu. Þar lýsir Óskar Jóhanns- son yfir fjörutíu ára ferli í matvöruverslun. Hér er gripið niður á tveimur stöðum í bókinni, sem fjalla um hlátur og verkfall. ÓSKAR Í SUNNUBÚÐINNI Í UPPHAFI ÁRS 1971 Eins og sjá má voru innkaupa- kerrurnar ekki gerðar fyrir stórinnkaup á fyrstu árum kjörbúðanna og nælonsloppar voru komnir í stað gömlu léreftssloppanna. GAMLIR SENDISVEINAR Í SUNNUBÚÐINNI Pétur Sveinbjarnarson framkvæmdastjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, síðar borgarstjóri, Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, og Friðrik Sophusson, þáverandi fjármálaráðherra, komu saman með Óskari, fyrrum húsbónda sínum, snemma á tíunda áratug 20. aldar. Í LOK VINNUDAGS Elsa Friðriksdóttir, eiginkona Óskars, og Rósa dóttir þeirra en öll fjölskyldan tók mikinn þátt í búðarrekstrinum. SUNNUDAGUR Í SUNNUBÚÐINNI Í MÁVAHLÍÐ Myndin er tekin snemma á áttunda áratugnum þegar kvöld- og sunnudagssalan fór fram um gluggaop.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.